Vísir - 21.12.1954, Síða 3
Þriðjudaginn 21. desember 1954
VÍSIR
I Frakklandi kunna menn sára
lífil skil á íslendingum.
Rabbað við Gaston Grego, franskan
stúdent, sem fæddur er í V.-Indíum.
Undanfarin ár hefur Háskóli íslands sveigzt í þá átt að vera
ekki aðeins menntasetur, þar sem íslenzkir stúdentar hafa
sótt Iærdóm og þroska, heldur um leið alþjóðleg lærdóms-
stofnun, sem erlendir námsmenn hafa leitað til í æ ríkari mæli.
Hefir það ýtt mjög undirísland í enskum bókum og
þessa þróun, að menntamála -tímaritum, og eg fór að hug-
i’áðuneyti landsins hefir veitt
erlendum stúdentum styrki til
þess að nema hér, og hyggst þar
með endurgjalda að nokkru
styrki og aðra fyrirgreiðslu,
sem íslendingar hafa notið með
öðrum þjóðum. Fer vel á þessu.
Suður á Nýja garði, á her-
bergi nr. 52, býr sjaldgæfur
gestur, franskur borgari, fædd-
ur á eynni Guadeloupe í
Frönsku Vestur-Indíum, dökk-
ur af suðrænni sól, og nemur
nú tungu Snorra.
■ Hann heitir Gaston E. Grego,
þaulmenntaður maður, en yfir-
.lætislaus og viðfelldinn. Tíð-
indamaður Vísis heimsótti hann
fyrir fáum dögum til þess að
xabba við hann um eitt og ann-
að, en maðui’inn er víðförull
og' hefir frá mörgu að segja.
Franskur blær.
Hann hefir leitazt við að
gæða herbergi sitt að einhverju
leytí frönskum blæ, því á
væggjunum má sjá spjöld, sem
segja frá París, Versailles, Lei-
rudal og Rivieraströndinni,
en á borðinu fyrir framan hann
er þykk kennslubók í íslenzku
eftir dr. Stefán Einarsson.
Hingað er Gaston Grego kom-
inn til þess að læra, en ekki til
þess að spóka sig, eins og það
er kallað.
Faðir Gregos er í utanríkis-
þjónustu Frakka, og hefir það
haft í för með sér mikil ferða-
lög fjölskyldunnar. Gaston
hefir numið við háskólann í
París, latínu, grísku, franskar
bókmenntir og heimspeki. Þá
hefir hann stundað nám við
Oxford, enda talar hann lýta-
lausa ensku, en franskan er
vdtaskuld móðurmál hans. Auk
þess talar hann ítölsku og skil-
ur vel býzku, spænsku og
norsku. í Norégi hefir hann
dvalið í sex mánuði, m. a. flutt
þar fjölmarga fyrirlestra;á veg-
um Alliance Francaise, m-. a. í
Osló, Bergen, Stavanger, Dram-
men, Fredriksdal og! víðar.
Gaston Grego er kunnugur
bókmenntum hinna Norður-
landaþjóðanna. Hann talar um
Ibsen, Björnson, Wergeland og
Welhaven eins og kunningja
sína. og hann kann góð skil á
Strindberg og Lagerkvist.
,,Þér spyrjið, hvernig það hafi
atvikazt, að eg er hingað kom-
inn. Eg skal segja yður, að mér
fannst það ekki vanzalaust að
vita nærri ekki neitt um þetta
land, sem á svo dýrar bók-
menntir. Eftir að eg hafði dvalið
í Noregi og á hinum Norður-
löndunum, fannst mér það blátt
áfram skylda mín að reyna að
komast hingað. Mér eru hug-
fólgnar bókmenntir Norður-
landa, en eg, verð að geta lesið
íslenzku perlurnar á frunamál-
leiða, að það hlyti að vera stór-
merk þjóð, sem hefði varðveitt
menningu sína um' þúsund ár í
umróti tímans. Þá fannst mér
það líka athyglivert, að þjóð,
sem ekki er nema um eða yfir
150 þúsund maniis, skuli skipa
virðulegan sess á mannfundum
stórþjóðanna.
Vita ekkert
um Island.
Hins vegar er sannleikur-
inn sá, að meðal menntamanna
í París vita menn svo að segja
ekkert um ísland, og raunar
alls ekki neitt. Landið og' þjóðin
er fyrir utan umræðuhring
þeirra, ef svo mætti segja. Það
er þeim mun undarlegra, sem
skandínaviskar þjóðir njóta
geysilegra vinsælda í Frakk-
landi.
Eg labbaði inn í ferðaskrif-
stofu í París til þess að afla
mér upplýsinga um ísland.
Stúlkan, sem þar var fyrir
svörum, góndi á mig, er eg
spurði um ísland. Hún hafði
enga bæklinga, engar upplýs-
ing'ar um land og þjóð. Frakk-
ar streyma til Noregs, Dan-
merkur eða Svíþjóðar í sum-
arleyfi sínu, en engum dettur
ísland í hug. Allir kannast við
Norðmenn, sem hafa gert fjöl-
margt til þess að kynna land
sitt og þjóð. Allir vita um Kon-
Tiki, og og. hvalurinn, sem
Norðmenn höfðu til sýnis í Pai’-
ís, vakti óhemju athygli. Eg
minnist frekar á þetta til gam-
ans, en það sýnir, að þeir gera
mikið til þess að kynna land
sitt. Sænskar kvikmyndir eru
í miklu áliti og þannig' mætti
lengi telja.
Mig langar tl þess að flytja
erindi um ísland, þegar til
Frakklands kemur, þýða smá-
sögur, skáldsögur og kveðskap
á frönsku, því að þetta má heita
óplægður akur.“
„Þér stundið íslenzkunám hér
við Háskólann, er ekki svo?“
íslcnzkan
ekki erfið.
„Jú, eg sæki tírna hjá dr.
Halldóri Halldórssyni dósent.
Mér finnst málið ekki eins erf-
itt og eg hafði búizt við. Lík-
lega hjálpar latínan mér; vegna
hennar finnst mér málfræðin
ekki eins flókin og margir vilja
vera láta. Mér finnst alls ekk-
ert óeðlilegt, að föllin skuli
vera fjögur og þar fram eftir
götunum."
„Hvernig gefst yður að ís-
lendingum?“ í
„Mér virðist þeir vera fjarska
fáskiptnir og seinteknir. Eg'
hefi að vísu ekki verið hér
nema rúman hálfan mánuð, og
þess vegna er varla von, að eg
hafi kynnzt mörgum. En ein-
Gaston E. Grego.
vera dulir og lítt ryrii pað
gefnir að gefa sig að ókunnug-
um. Því er ekki að leyna, að eg
er frekar einmana hér. Þó hefi
eg kynnzt allvel nokkrum ' ís-
lenzkum stúdentum, sem mér
gezt mjög vel að, eru ræðnir og
skemmtilegir þegar svo ber
undir. Vonandi kynnist eg ein-
hverjum íslenzkum heimilum
áður en lýkur.“
„Þarf að kynna ísland betur
í Frakklandi?"
Þarf að
kynna Island.
„Tvímælalaust. Eins og eg I
drap á áðan, vita menn sáralítið
um þetta merkilega land, og á
það jafnt við um lærða menn
sem almenning. Mér finnst, að
gera ætti meira að því að flytja
fyrirlestra um landið í Frakk-.
landi. —•' Frakkar eru sólgnir í
fyrirlestra. Þá mætti sýna þar
íslenzk málverk, bjóða þangað
blaðamönnum og ýmsum at-
kvæðamönum. ísland skipar
svo virðulegan sess í menning-
arlífi heimsins, að ekki dugar,
að land og þjóð megi heita ó-
þekkt meðal stórþjóðar eins og
Frakka.“
Gaston Gregor fylgir tíðinda-
manni til dyra, fágaður heims-
borgari, en léttur í tali og yfir-
lætislaus í fasi.Hér hyggst hann
dvelja a. m. k. fram á sumar.
Þess er að vænta, að dvölin
verði honum sem ánægjulegust1
og eftirminnileg'.
ThS
inu.'Eg hefi'lésið sitthvað um hvern veginn finnst mér þeir
BB
EcEjfo" taíSlst
níman sólarhrtn§.
„Edda“, millilandaflugvél Loft
leiða, tafðist hér í landi í meirá
en sólarhring vegna illviðra.
Flugvélin kom til Keflavikur
frá Stavanger kl. 11 á sunnu-
dagskvöld, en fór ekki vestur um
haf fyrr en i morgun. Miklir
stormar hafa verið á svæðinu
rnilli íslands og Bandaríkjanna,
og liafa samgöngur tafizt af
þeim sökum. „Edda“ varð að
lenda i Keflavik að þessu sinni
vegna þess, að hér þóttu flug-
brautir of hálar til þess að ör-
uggt þætti að lenda á þeim, en
hins vegar auðlendanlegt í Kefla-
vík.
<
Beztu
jólabækurnar eru:
♦ Gröndal
♦ Væringjasaga
♦ Trúarbröð mannkyns
♦ Þjóðsögur Þorsteins
Erlingssonar
t.
♦ Ljóðmæli Guðmundar
Guðmundssonar
♦ Leíðin dulda
♦ Fjarlæg lönd og fram-
andi þjóðir
♦ Feirðin til tunglsins
♦ Sögur Þórís Beígssonar
♦ Gamia Reykjavík
*
Bókaverzlun Isafoldar
Barnaskíði nýkomin
Tilvalin jjólagijöf
Fyrir 2—4 ára með stöfum og ásettum böndum
kr. 125,00. (í gjafakössum).
Fyrir 4—6 ára mcð stöfum og ásettum böndum
kr. 165,00.
Fyrir 6—7 ára með stöfum og ásettum böndum
kr. 185,00.
Fyrir7—8 ára með stöfum og ásettum böndum
kr. 205,00.
Geíið btifiiuíi tiin síiiði í 'ffíltifý/iii’
l
\
I
*•