Vísir - 09.07.1955, Page 6
vlsm
Laugardaginn 9. júlí 1955.
D A G B L A Ð
Ritstjóri: Hersteinn Pálsson.
Auglýsingastjóri: Kristján Jónsson.
Skrifstofur: Ingólfsstræti 3.
ÁfgraiSsIa: Ingólfsstræti 3. Sími 1660 (fimm linur).
Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VlSIR H.F.
Lausasala 1 krónm.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Utanríkisvilskíptin.
gær voru gerðar hér lítillega að umræðuefni blekkingar þær,
sem kommúnistar viðhafa jafnan, þegar rætt er um við-
skiptin við Sovétríkin. Þeir vilja telja fólki trú um, að reynt
hafi verið að eyðileggja þau viðskipti, og það hafi tekizt um
tíma, svo að þau hafi lagzt niður. Hefur þó verið sýnt fram á
•að íslendingar skorti ekki viljann til þessara viðskipta, enda
tókust þau þegar í stað á nýjan leik, þegar sovétyfirvöld höfðu
'tilkýnnt, að þau hefðu hug á þeim. É i lMf
Þjóðviljinn talar enn um þessi viðskipti í gær, og kemst að
þeirri niðurstöðu, að íslendingum geti ekkert til bjargar orðið
i viðskipta- og sjálfstæðismálum annað en að verzla sem mest
við Sovétríkin. „Aukin v'ðskipti í austurveg — stoð í sjálf-
stæðisbaráttunni", segir blaðið. Er það raunar ekki nema eðli-
3égt, því að blaðið sér yfirleitt ekkert gott nema í austurvegi.
Þarna gera þeir sig seka um það, sem þeir liggja öðrum á
hálsi fyrir. Þeir kenna öðrum um að vilja binda öll viðskipti
íslendinga við Bandaríkin og fleiri „arðránslönd“, en sjálfir
"vilja þeir binda þau öll við kommúnistaríkin. Hyggilegast mun
'þó vera að verzla jafnan þar sem hagkvæmast er hverju sinni
— selja þeim, sem bezt borgar og geta jafnframt selt góða
'vöru. Það hefur verið stefna ríkisstjórnarinnar undanfarið, og
"verður væntanlega framvegis, enda er það öllum fyrir beztu —
'þótt kommúnistum kunni að líka það illa, að ekki sé farið í
þessu efni eftir vilja þeirra og óskum. En þá varðar heldur
ckkert um þjóðarhag.
Verkfalfshótun í Eyjum.
¥ 7'élstjórar við hraðfrystihúsin í Yestmannaeyjum hafa sagt
i r upp samningum sínum og boðað, að þeir muni leggja nið-
xir virmu á miðvikudaginn, ef ekki hefur verið gengið að kröf-
vim þeirra fyrir þann tima. Er hér um tuttugu menn að ræða,
'en verðmæti það, sem geymt er í frystihúsunum, mun vera
20—30 milljónir króna virði, og verða þau að sjálfsögðu öll í
hættu, ef vélarnar verða stöðvaðar.
Hafa samningatilraunir ekki borið árangur, af því að vél-
stjórarnir vilja ekki sætta sig við þau kjór, sem veigæzjumem
hér í Reykjavík hafa samþykkt, en þau byggjast aftur á sam-
Lomulagi því, sem gert var í vor í lok verkfallsins mikla
Verður eltki annað séð en að vélstjórarnir ætli að nota sér
það, að mikil verðmæti liggja undir skemrndum, ef vélar
jfrystihúsanna stöðvast, og reyna að þvinga fram kröfur sínar,
ihvað sem allri sanngirni líður í þessu efni. ■ ; .jf |
Er hér vissulega um alvörumál að ræða, því að ef vél-
fitjórárnir fá kröfum sínum framgengt, er hætt við að aðrar
stéttir telji, að þeim beri hækkun til viðbótar til samræmis vii
það, sem vélstjórarnir fá. Og afleiðingarnar verða þá aðeins
einn veg, að kaupskrúfan heldur áfram að snúast, og verður
<ekki séð í fljótu bragði, hversu skjótlega jafnvægi kemst á aftur.
Sparijjársöfiuinin.
“ 4, síðast liðnum vetri var hafin skipulagsbundin tilraun til að
■J’innræta skólabörnum sparnað. Hefur nú verið gert yfirlit
iim þessa starfsemi, sem framkvæmd var á vegum skólanna og
Xandsbankans, og munu 13—-14,000 börn hafa tekið þátt í söfn-
Tuninni að einhverju leyti, og voru þau í 43 skólum. Landsbank-
5nn gaf út sparimerki fyrir um hálfa aðra milljón króna, Of
rnunu um þrír fjórðu hlutar þeirra hafa selzt.
Að meðaltali munu börnin hafa safnað innan við hundrað
3srónum hvert, og telja þeir, sem fyrir þessu standa, að árangur-
inn hafi verið góður, og raunar betri en gert hafði verið ráð
íyrir. Það er ekki'aðalatriðið, að börnin safni sem allra mestu
íé. Hitt skiptir meira máli. að þeim sé innrætt nauðsyn spar-
semi og að það sé hættulegt fyrir þau að eyða og sóa öllu,
sém þeim áskotnast, jafnóðum og þau eignast það, því að
•venjulega fara slíkir aurar í einhverja vitleysu.
Forstöðumenn söfnunarinnar telja vel af stað farið, og er
’þess að vænta að starfsemi þessi nái því til enn fleiri á næsta
ári og framvegis. Skólamenn hafa unnið kappsamlega að þessu,
ðg foreldrarnir eiga líka að taka virkan þátt í þessu uppeldis-
gtarfi. Fyrr nær það ekki tilgangi sínum fullkomlega.
Samþykktir gerðar um
veiðar við helztu eyjar.
Shothrúö hönnssð í IÞs'ntstfjpí-'»/-
Hríinsey «r/ i estsnnesntsey/nsts.
Nýlega hefir verið gerð sam-
þykkt um fuglaveiði í Vest-
mannaeyjum, Grímsey ,og
Drangey og er hún í aðaltriðum
samliljóða samþykt þeirri, sem
gerð var árið 1893 og fjallar
um fuglaveiðar í Vestmanna-
eyjum. Engin veiðisamþykkt
hefir verið gerð fyrir Grímsey
og Drangey og hafa því bændur
þar stuðzt við gamlar venjur.
Fuglaveiðar á þessum stöð-
um hafa lítið verið skertar af
samþykkt þessari, þar sem
Euglatekja telst til hlunninda.
í samþykkt þes-.jari segir, að
lundi skuli algerlega friðaður
nema á tímabilinu frá og með |
11. viku sumars og' þar til 17
vikur eru af sumri.
Það sama gildir um veiði j
svartfugls, þ. e. langvíu, stutt-
nefju og álku. Veiði þeirra er.
aðeins leyfð til jafnlengdar.
lundaveiðunum.
Veiðitæki, sem leyft er við
væiðarnar, er eingöngu háfur.
Oll skot eru bönnuð í eyjum
þessum, nær nytjuðum fugla-
björgum en 2 km., á tímabilinu
frá 1. maí til 1. sept., ár hvert,
iiema til þess að aflífa búpening
og til þess að eyða kjóa, svart-
bak (veiðibjöllu), hrafni eða til
annarra brýnna nauðsynja.
Þá segir einnig í samþykkt-
inni, að þar sem legið sé við
lundaveiðar, skuli veiðimenn
taka grassvöðinn af a. m. k. 10
nýjum lundaholustæðum, hver
maður á þeim stað, er fyrirliði
hvers viðlegufélags álítur
heppilegastan, með tilíiti til
oývarps.
Og að lokum segir, að hver
-.éreign eða sameign jarða skulí
' upphafi lundaveiðitímáns, í
:amráði við fuglaveiðimenn og
ýrirliðakosningu þeirra inn-
jyrðis, kjósa umsjónarmann,
■em sjái um, að veiðisamþykkt
'essari og lögum um fuglaveið-
ar og fuglafriðun sé framfylgt
og hlýtt í hverju veiðimanna-
félagi.
Sumarnámskeið hefst aö
Löngntiiýrí um helgina.
Sumarskólinn fyrir stúlkur að
Löngiimýri í Skagafirði starfar
í sumaj- eins og í fyrrasumar og
hefst annað námskeiðið um
aæstu helgi.
Þar gefst ungum stúlkum
jafnt sem fullorðnum konum
tækifæiú til þess að eyða sum-
arleyfum sínum á hollan og
heilbrigðan hátt þar sem saman
■:er hvíld og hresing -ásamt
fi’æðslu.
Kennsla verður í kristnum
'ræðum, bókmentum trjárækt,
grasasöfnun, matreiðslu, þjóð-
lönsum og íþróttum.
Útisundlaug er rétt hjá staðn
irn og farið verður í ferðalög
til hinna mörgu sögustaða í ná-
grenninu.
Nýir nemendur geta snúið
jér til skrifstofu Aðalsteins Ei-
ríkssonar námsstjóra í Reykja-
vík. Sími 82244.
Óeðhlegt frsmferði
hnefc’öfkLfrömiíðar.
Frá fréttaritara Vísis.
Stokkhólmi, í júní.
Qddviti sænskra hnefaleika-
manna, Oscar „Glokar“ Söder-
Iitnd, kunnur folaðamaður og
thekktur maður í lieimi hnefa-
leikanna, var nýlega dæmdur í
1000 marka sekt í Vestur-Ber-
lín fyrir ósiðlegt framferði við
ungan pilt.
Söderlund hafði tekið þátt
í heimsmeistarmótinu í Berlín
og verið fararstjóri sænsku
hnefaleikamannanna. Undan-
farið hefir hann verið þjáður
af magasjúkdómi. Ekki er með
öllu upplýst, hvernig máli
þessu er háttað. Söderlund
hafði verið í skemmtigarði ein-
um og spurt til vegar heim að
hótelinu. .16 ára piltur, ölvaður,
sliýrði frá því síðar, að Söder-
lund hafi sýnt sér ósiðlegt
framfei’ði. Engin vitni voru að
þessu. Dómarinn leit svo á, að
Söderlund hafi verið miðui'
sín vegna magasjúkdómsins og
að verknaðinn hafi hann fram-
ið vegna óeðlilegra áhrifa af
áfengisnautn.
a
ir.'*
Frá fréttaritara Vísis.
Akureyri í morgun.
Unnið er að lagfæringum,
breytingum og stækkun lysti-
gaiðsins á Akureyri í sumar.
Verður hann m. a. stækkaður
um þriðjung og er sú stækkun
gerð suður af lóð Fjórðungs-
sjúkrahússins, þannig að eftir-
leiðis nær garðurinn allt upp að
spítalanum. Er verið að steypa
mikla girðingu á milli þessara
tveggja lóða.
Hefur verið unnið að hvers
konar lagfæringum í garðinum í
allt sumar, m. a. hefur gos-
þj’unninum verið breytt og
komið fyrir í honum styttu sem
Jónas Jakobsson hefur gei’t.
fb, Annai'S/ eru það, ,þeir, bræður
,Jíjn og K.ristján, Rögnvaldgsynr
•ir- f.rá; fFííi.l-gep'Úþ fifipj, skjip&l^gj!
íhal'a j breytingaj: pg aðgerðir. í
garðinum og . stjósnað .írarp;
kvæmdunum.
| Þura í Garði er garðvörður :
sumar eins og að undanförnu.
I Lystigarðurinn var opnaðui
fyrir almenning fyrir nokkru
Hann er nú í sínu fegurst;
skj’úði og hefur verið mikil að
sókn að honum.
-ár Baráttunni gegn iippreist
armönnum er haldið áfram;
Malakkaskaga. 9 voru vegn
ir í gær og allmargir gáfus
upp. Fíugvélar Breía fIjúg;
Iágt yfir frumskógana og e
kallað í gjailarhoi-n í sífelh
að barátta uppreistarmann;
sé vonlaus, og þeim ráðlag
að gefast upp.
Það hefur löngum verið sagt
í gamni, að vont væri að renna
á bananabej'ki, og höfum við
víst öll oft séð myndir af því,
þegar einhver dettur kylliflat-
ur af því að hann steig á
skreipan bananbörk. En gamnið
fer sánnarlega af, þegar slys
verður af, eins og varð á
Framnesveginum í fyrradag.
Þar rann kona nokkur á slík-
um ávaxtaberki og féll svo illa
að hún handleggsbrotnaði.
j Maður, sem þar var nærstadd-
j ur skýrði Bergmáli frá þessu
slysi og bað þess að minnst
yrði á það í dálkinum hve
hættulegt það gæti verið að
fleygja frá sér ávaxtahýði á
götur. FóJk, sem kannske hef-
ur ekki rnjög góða sjón getur
, hæglega fengið slæmar byltúr,
; er það stígur óafvitandi á á-
vaxtahýði, eins og dEémið að
ofan sýnir bezt.
Er mesti ósiður.
j Það skal hér tekið undir það,
sem maðurinn sagði að það er
mesti ósiður að lcasta frá sér
ávaxíahýði á götur og gang-
stéttir. Ef börn eða fullorðnir
eru að eta ávexti úti er auð-
vitað skynsamlegast að láta
hýðið falla í rennusteininn, þar
sem minnstar líkur eru til að
fólki stígi á þau. En á þessu
vill oft verða misbrestur og þá
getur ílla fai’ið. Sennilegt vséri
að halda mætti götunum hrein-
legri og koma í veg fýrir slys
í því sambahdi, ef komið væri
fyrir ruslakörfum á ljósastaur-
um víðsvegar um bæinn, eins
og gert var einu sinni, og sums
Staðár efu til ennþá.
Ekkert £ friði.
En það er nú svo með það,
eins og svo margt annað sem er
til bóta hér, og ekki er hægt
að hafa vakandi auga með all-
an sólárhringinn að það fær
naumast að vera í friði. Alls-
konar næturgaufarar hafa það
sér til dundurs að eyðileggja
slíkar körfur svo þær duga
ekki deginum lengur nema þær
séu úr stáli og svo dyggilega
frá beim gengið að kraftajöt-
unn þurfíi til þess að losa þær
frá Ekkert fær að vera í friði og
sýnir það bezt hve lítil um-
gengismenning er hjá okkur,
■þótt þarna eigi öftást hlut að
.máli,: drukknir unglingar. >f.v
SJteá'tfi Öfi fiaod ::y /:p .cpps,
Fámcim götulögreglá. > >
: Það getur :líka verið.áð göter
lögreglan hjá okkur sé orðih
of fámenn, því bærinn vex
hröðum skrefum og marga
gæzlumenn þarf, ef líta á eftir
alls staðar. Manni finnst Ííka
svo nú, að oft verði ekki lög-
reglumanna vart nema í mið-
bænum eða helztu götunum, en
í úthverfum sjást lögreglu-
menn sjaldan. Sennilega stafar
það helzt af því að lögreglan
er orðin of fámén enn nokkru
öðru, enda hefur hún mörg og
margvísleg verkefni bæði um
daga og nætur. En hvað sem
því nú líður, er full þörf á því
að áminna fólk um að fleygja
ekki ávaxtahýði á göturnar, ef
það vill ekki eiga sök á því að
aðrir vegfarendur beinbrjóti
sig. — kr.