Vísir - 12.10.1955, Blaðsíða 12

Vísir - 12.10.1955, Blaðsíða 12
VlSIB er ódýrasta bla$i3 «2 þó þa3 fjöl- breytinít*. — Hringið I ilma 16S0 eg gerist áskrifendnr. VI Þelr, sem gerast kaupendur VtSlS eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið ókeypls fil mánaðamóta. — Sími 1660. Miðvikudaginn 12. október 1955 Aukið öryggi á sjónum try á ráðstefnu radiosérfræðinga. Radióviðskipti milli skipa innbyrðis 09 skipa'og lands verða bætt. Háðslefnan markaði tímainót í ialstöðvajijóttiistunm. Radíó-sérfræðingar frá iönd- mm, sem liggja að Eystrasalti «g Norðursjónum, sátu fundi í Mmmi fögru salarkynnum Sjó- minjasafnsins í Gautaborg í s.l mánuði til að ræða radíótal- stöðvaþjónustu skipa. Mikilvægi skipatalþjónust- unnar hefur vaxið allverulega síðustu árin og er nú svo komið, að talsvert fleiri skip eru búin talstöðvum en loftskeytastöðv- um. Hinn öri vöxtur skipatai- stöðva og hinn takmarkaði fjöldi radíótíðna, sem henni er ætlað, hefur orðið til þess, að , innbyrðis truflanir milli skipa hafa hamlað talþjónustu land- anna. Alvarlegustu truflanirn- ar eru þær, sem hindra að neyð- arköli heyrast. Fyrri alþjóðasamningar um radíóþjónustu hafa flestir fjall- að um reglur fyrir loftskeyta- viðskipti, sem hafa nú reynst ó- fullnægjandi fyrir talstöðva- þjónustuna. Sænska símastjórn- in bauð því til ráðstefnu um jþessi mál í Gautaborg með það fyrir augum að færa núgild- andi reglur til samræmis við Jjarfir talstöðvaþjónustunnar. Arangur ráðstefnunnar varð samkomulag, sem felur í sér aukið öryggi á sjónuni með tiltölulega litlum til- kostnaði fyrir skipin, svo að jafnvel smæstu fiskiskipin geta orðið liðir í öryggis- kerfimi. Á sama tíma reyndi ráðstefn- ©n að finna reglur til að bæta radíóviðskiptin milli skipa inn- byrðis og milli skipa og lands. Ráðstefnan gerði tillögur urn tæki og hlustvörzlu í skipum og ákvað m. a. um notkun sjálf- vekjara-tækja fyrir nýtt vekj- aramerki handa radíótalstöðva- , þjónustunni. Hingað til hafa ein ungis verið í notkun sjálfvekj- aratæki fyrir loftskeytamerki. Ákvarðanir ráðstefnunnar marka tímamót í talstöðva- -Mónustunni, og má líta svo á, að nýr þáttur hefjist nú næstu mánuði þegar tillögur ráðstefn- unnar koma til framkvæmda, en þær helztu eru þessar: Skip hlusti, “þegar því verður við komið, á kall- og neyðar- tíðninni og gjallarhorni eða sérstöku viðtæki fyrir þá tíðhi verði fyrirkomið í stýrishúsi skipa. Skipasföðvar verði búnar sendibúnaði fyrir sjálfvekjara- merkið fyrir talstöðvar. Fyrirmæli um hverníg skuli haga neyðarviðskiptum. Lögð drög að samningu dulmáls handa skipum í neyðarviðskipt- um, þannig að sérhvert skip á að geta gert sig skiljanlegt við erlend skip, ef það þarfnast að- stoðar. Einnig var samþykkt að skerpa eftirlit með notkun radíótíðna og að radíóviðskipti skipa fari fram eftir settum reglum. Að aflokinni radíó-ráðstefn- unni hófst sérstakur fundur um samvinnu radíóstöðva í björgun á sjó. Samkomulag varð um sérstakar reglur, sem strandarstöðvarnar eiga að fara eftir, þegar slys á sjó ber að höndum. Fundarsamþykktin verður gefin út af Alþjóða- fjarskiptasambandinu í Genf, en í henni verða birta upplýs- ingar um, hvernig slysavarna- málum á sjó er fyrir komið í þeim löndum, sem þátt tóku í nefndum fundi. Flotaheímsóknir. 6 rússnesk herskip koma til Portsmouth í dag í vináttu- heimsókn. Til Leningrad kemur brezka flugvélaskipið Triumph og önn- ur herskip. — Ráðstafanir hafa verið gerðar í báðum borgun- um um landgöngur sjóliða. Beittu ilöskum sem barefli. Sltjsfarir í ba»saunt í fyrra tiatj. í gærmörgun varð mnferðar- slys á mótum Lönguhlíðar og Miklubrauíar. Um hálfáttaleytið var lög- reglunni tilkynnt að maður á reiðhjóli hafi orðið fyrir bif- reið á gatnámótum Lönguhlíð- ar og- Miklubrautar. Maðurinn á reiðhjólinu, Páll Guðmunds- son, Hverfisgötu 70, meiddist á handlegg ' og var fluttur í sjúkrabifreið á slysavarðstof- wna. Annað slys varð í fyrradag á Flugvallarvegi. Þar var olíu- flutningabifreið á ferð, en um leið og henni var ekið framhjá fótgangandi kvenmanni, Ólöftl Huseby, datt spýtukubbur af bílnum, lenti á fæti Ólafar og marði hana mikið. Þriðja slysið orsakaðist af handalögmáli tveggja manna í Austurstræti í fyrrinótt. Munu þeir, annarhvor eða báðir hafa notað flösku að barefli. Særð- ist annar þeirra á höfði og blæddi mikið úr sárinu. Baldur @§ Pilnik sömdu um jafn- tefli. í fyrrakvöld var tefld 5. um- ferð í haustmóti Taflfélags Reykjavíkur. Telja má, að allar skóltir séu útkljáðar, þótt þrjár hafi verið settar í bið. Baldúr MöIIer og Pilnik sömdu um jafntefli eftir sögulega keppni í skemmti- legri skák. Guðmundur Pálmason á unna biðskák gegn Ásmundi Ásgeirssyni og Guðmundur Ágústsson gegn Arinbirni Guð- mundssyni og Ingi R. Jóhanns- son gegn Jóni Þorsteinssyni. Þórir Ólafsson og Jón Einars- son sömdu um jafntefli. Nýr bankastjéri vi6 Útvegsbankann. Gunnar Viðar hefir verið ráðinn bankastjóri við Útvegs- bankann. Bankaráð Útvegsbankans samþykkti á fundi sínum í gær að ráða Gunnar Viðar að Út- vegsbankanum í stað Helga Guðmundssonar, sem verið hef- ir bapkastjóri þar, en lætur nú af störfum. Gunnar Viðar hefir undan- farið verið bankastjóri við Landsbankann. Rússar fá kom frá Kanada. Pearson, utanríkisráðherra Kanada, hefir verið í heimsókn í Ráðstjórnarríkjunum að und- anförnu. Tilkynnt er í Moskvu, að við- ræðum hans við ráðstjórnar- leiðtoga um viðskipti verði haldið áfram í Ottawa. M. a. hefir verið vikið að því, að Kanada selji Rússum mikið af korni, en Kanada á nú óhemju miklar kornbirgðir. Fyrsta bókneMtakynnÍBg Al- menna bókafélagsins. Verlt Hergssonar kvnní í háiíðasal háskólans í kvold. Harding og Makarios samdist ekki. Viðræður Hardings marskálks og Makarios erkibiskups hafa farið út um þúfur. í tilkynningu Hardings, hins nýja- landstjóra á Kýpur, er harmað að samkomulag náðist ekki. Kveðst hann fús til þess að ræða við erkibiskupinn hve- nær sem hann óski þess. Þá kvéður Harding það skyldu sína að halda uppi lög- um og reglum og þá skyldu murii hann inna af hendi. — Bretar senda aukið herlið til Kýpur, m. a. skozka hersveit. I kvöld kl. 9 hefst í hátíða- sal háskólans kynning á verk- um Þóris Bergssonar. Er það Almenna bókafélagið, sem gengst fyrir bókmenntakynn- ingúnni í tilefni af sjötugsaf- mæli rithöfundarins. Öllum er heimill ókeypis aðgangur. Rithöfundurinn Þórir Bergs- son varð sjötugur 23. ágúst s.l. og ákvað Almenna bókafélagið þá að sýna honum virðingu með því að efna til kynningar á verkum hans. Þórir Bergsson er meðal list- fengustu höfunda landsins og sögur hans sérstæðar og auð- kennilegar. Hann bregður upp miklum og eftirminnilegum ör- Skólunt e.t.v. frestab enn. Til orða mun hafa komið að fresta skólunum enn um sinn vegna mænuveikifaraldursins. Eins og kunnugt er, var fyrst ákveðið að fresta skólunum til 15. þessa mánaðar, eða til næst- komandi laugardags, en búist er við að í dag verði tekin ákvörð- un um hvort þeim verði frest- að lengur. Samkvæmt viðtali, er Vísir átti í morgun við fræðslumálaskrifstofuna mun fræðslumálastjóri ræða þetta mál við borgarlækni og heil- brigðistjórnina og fara eftir tillögum hennar um það, hvort fresta beri skólunum lengur. Talið er að almenningur sé því fylgjandi, af ótta við mænu- veikina, að skólarmr hefjist ekki að sinni, og má búast við, að þótt skólarnir byrjuðu, myndu margir foreldrar ekki láta börn sín í skólana meðan mænuveikin geisar. lögum með einföldum atvikum, svo að þar stendur honum eng- inn hérlendur höfundur jafn- fætis. Munu margir vilja nota tækí- færið til að rifja upp kynni sín af Þórir Bergssyni og þakka honum um leið margar ánægju- stundir. Á bókmeimtakynningunni flytja ávörp þeir Bjarni Bene- diktsson, menntamálaráðherra og Gunnar skáld Gunnarseon. Guðmundur G. Hagalín, skáld. flytur erindi um Þóri Bergs- son og verk hans. Brynjólfur Jóhannesson, Helga Valtýsdótt- ir og Valur Gíslason lesa upp, og Gísli Magnússon leikur á píanó. Kristmann Guðmunds- son, skáld, kynnir dagskrárat- riðin. Má búast við mikilli aðsókn. að kynningunni, en aðgangur að henni er ókeypis. Er fólki bent á að koma tímanlega, Btt mænuveikitilfei í HafnarfirSi. í gær varð vart við eitt mænuveikitilfelli *' Hafnarfirði og var um lítilsháttar lömun að ræða. Sjúklingur þessi er tvítug stúlka, sem stundað hefur at- vinnu í Reykjavík. Sjúklingar þeir„ sem veikjast að mænuveiki í Hafnarfirði, munu njóta sömu umönnunar og sjúklingar hér í Reykjavík og fá sjúkrahúsvist í Heilsu* verndarstöðinni nýju. ★ í Jakarta, höfuðborg Indó- nesíu, eru nú 3.000.600 íbúa, og er hún stærsta botg i SA-Asíu. Tillögur um niðurskurð og fjárskipti í Dölum. Verði þæP samþykktar vcrð- nr 9000 fjár fargað í kanst. Eins og áður hefir verið get- ið hefir sauðf jársjúkdómanefnd setið á fundum nú í vikunni með fulltrúum bænda á mæðiveiki- svæðinu í Dölum og var seint í gærkveldi gengið frá tillögum, sem sendar voru ríkisstjóminni árdegisi dag. Þegar fjárskipti hafa verið á- kveðin þarf' til % atkvæða meirihluta í hlutaðeigandi sveitum, en varaákvæði er í lög- unum, ef nægur meirihluti fæst ekki, að landbúnaðarráðherra geti fýrirskipað fjárskipti, ef nauðsynlegt sé talið vegna sýk- ingarhættu. Nú er ekki nægur méirihluti fyrir hendi í fyrr- nefndum sveitum, en vegna sýkingarhættunnar hefir nefnd- in komizt að þeirri niðurstöðu, sem í tillögum hennar felst, þ. e.: Að byrjað verði á fjár- skiptum þegar í haust og hafinn niðurskurður í tveim- ur hreppum, Laxárdal og Hvammssveit, og mun þar vera um að ræða 9000 fjár, ef til kemur. Verði svo sauð- laust x þessum sveitum til haustsins 1956. Þá verði skorið niður allt fé á öllu svæðinu, eða 3 hreppum til yiðbótar. Þeir verði sauðlajxsir til haustsms 1957. Nefndin gerir tillögur um verulegar hækkanir bóta frá því, sem lög nú ákveða.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.