Vísir - 11.02.1957, Side 1
12
bls.
VI
12
Í3.
«7. árg.
Mánudagirtn 11. febrúar 1957
tbL
P § js3
siö inkaéist i
rei
ísraei.
® r r<
r y&c~
•aa
Vaa* opn&öll &?k§3‘ i
Seiðlr frá Rvík færar»
iyi
Si3g
ss,
A
;\$sÍ€s&€s. §sa*ísois virðist
Iiílar fórn Krýsuvíkurleiðbia í
gn?r, en íæri var þungt á kafla,
endu skafbylur allan daginn,
veðurhæð mikil og blinda,
Leiðin iokaðist í fyrrinótt, en
klukkan 6 í gærmorgun var snjó-
plógur sendur í Vatnsskarðið,
því þar voru aðalumferðatálm-
animar. En skafbylurinn var
svo mikill að plógurinn annaði
ekki ruðningnum og var þá
, jarðýta send til þess að halda leið
inni opinni. Var hún þar þangað
til í nótt að allir bílar voru
komnir leiðar sinnar. Voru bilar
yfirleitt nokkuð lengi á leiðinni
og bílalest sem lagði úr Reykja-
vík um kl. 4.30 í gærdag var
t. d. ekki komin austur að Sel-
fossi fyrr en á miðnætti i nótt,
en það orsakaðist meir af blindu
á veginum frekar en af ófærð.
í dag verða nokkrir kaflar
ruddir og betrum bættir á Krýs-
urvíkurleiðinni þar sem færðin
var verst í gær og er það auk
Vinnustöðvun á
Kýpur.
A Kýpur hefur viima stöðvast
víða, einkum í Nikosia og Fama-
gnsta, en Eoka hvatti rnenn til
þess fyrir helgina, iið efna til
sólarhrings allsherjarvinnustöv-
unar.
Engin blöð á ensku eðe grisku
koma út í dag. -— Útgöngubann
er í gildi með áður boðuðum
takmörkunum, nær útgöngu-
bannið til drengja yfir 12 ára og
pilta og ungra manna til 27 ára.
18 ára piltur var dæmdur til
liíláts fyrir helgina. Hafði sá
vopn í fórum sínum.
Vatnsskarðsins vi Hiiðarvatn.
á Selvogsheiðinni vestanverðri
og víðar.
j Aörar ieiðir frá Revkjavik
voru yflrleitt opnar og sæmileg-
• ar í gær, þar á meðai leiðin til
Kefia\ ikur og til annarra staða
á Suðurnesjum. Hvalfjarðarleið-
in' lokaðist ekki i gær og fært
var upp aö Lögbergi. 1 Borgar-
firði var aítur á móti hrið í gær
i og þar tepptust vegir.
Langur sátta-
fundur.
Samningar hafa ekki náðzt
enn milli flugmanna og flugfé-
laganna.
Sáttafundinum, sem hófst kl.
5 í gær, var ekki lokið á há-
degi, þegar Vísir fór í prentun.
Samkomulag mun hafa náðst að
einhverju leyti, en samningar
haf.a ekki verið undirskrifaðir.
Horfur mun samt vera á því að
vinnudeilan leysist áður en
langt um líður.
Seldu í Grimsby í
morgun.
Tveii- íslenzkir togarar seldu
afla sinn í morgun.
Voru það Neptunus og Jón
Forseti. Tilkynning um söluverð
aflans hafði ekki borizt er Vísir
fór í prentun.
Einn íslenzkur togai'i telur í
Grimsby á morgun.
Forsprakkar stjórnleysingja
handteknir í París.
Samtök þefrra höföu unalð mörg
kryöjuverk.
Hammais).jcild framkvæmda-
stjóri Sameinuðu bjóðanna
leggur i dag f\rir alisherjar-
þingið nýja skýrslu um tilraun-
ir sínar til hess að fá Israel iil
■ að hlýðnast fyrirmælum Sam-
í eir.uðu þióðanna urn heimköll-
! un israelska herlíðsins, en af-
; staða Israels virðist gersamlega
óbreytt, og horfurnar í sambúð
Israels og Ejfyptalands aldrei
verið ískyggilegri en nú, að
sumra áliti.
Þetxa kemur m. a. fram í
brezkum blöðum í morgun. Hið
frjálslynda blað News Chron-
icle segir, að öðru máli væri að
gegna, ef Nasser fengist til að
lýsa yfir, að skip Israels fengju
að sigla óáreitt um Akabaflóa
og Súezskurð, og Sameinuðu
þjóðimar til þess að ábyrgjast
loforð í þessu efni, en í raun-
inni sé engin von til, að Israel
geti fallist á skilyrðislausa
heimkvaðningu liðsins. Tvö
áhrifamikil blöð brezk, utan
Lundúna, Western Mail í Car-
diff, og Sheffield Telegraph,
snúast algerlega gegn refsiað-
gerðum og hið síðarnefnda vill,
að Bretar beiti sér gegn þeim.
Erfiðleikar
Eisenhowers.
ískyggilegar horfur í sambúð
Israels og Egyptalands valda
Eisenhower og stjórn hans
miklum erfiðleikum. Sendi-
herra Bandaríkjanna í nálæg-
um Austurlöndum vinna kapp-
samlega að því, að vara gegir
hættunum, og Eisenhower,
sem dvelst sér til hvíldar í
Georgiu-fylki, hefur enn rætt
Brezkir íréttaritarar í Wash-
ington síma þaðan, að áhrifa-
miklir menn beggja þingflokk-
rg
anna, republikana og demo-
krata, séu andvígir einhliða
refsiaðgerðum. Bándaríkjunurn
sé ekki stætt á því, að gerast
aðili að refsiaðgerðum gegn
Israel, en láta Egyptaland og
Ráðstjórnarríkin sleppa við
slíkar aðgerðir.
I
Bcn Gurion oy
sendiherra Bandaríkjanna
ræddust við í Tev Aviv i gær
| og stóð fundur þeirra fulla
. klukkustund. Ben Gurion mun
j hafa sagt hinum, að afstaða!
! Lsraels væri óbreytt. — Frú \
I Meirs utanríkisráðherra Israels
sagði í sjónvarpsræðu í New!
York í gær, að Israel kallaði
ekki heim herlið sitt skilyrðis-
laust.
Afríku- o"
Asíu þjóðirnar
koma saman á fund í dag til
þess að taka ákvörðun um til-
lögu um refsiaðgerðir.
Yfirleitt virðist þeirri skoð-
un aukast fylgi, að ekkert rétt-
læti sé í, að samþykkja refsi-
aðgerðir gegn Israel, og stimpla
það sem árásarríki, en láta
Egyptaland og Indland sleppa.
Frföurlnn tryggöur.
Börn í kínverskum skólum
voru nýlega spurð eftirfarandi
spuringar: „Hvað er tré?“
Bezta syarið fékk verðlaun,
og var það á þessa leið: „Tré
gefur af sé 100 byssuskefti í
þágu friðarins." Það er greini-
legt að uppeldið er í lagi þarna
og í góðum, kommúnistiskum ]
anda.
éhg sílévéi
Vetrarsíldveiðar Norðmanna
hafa gengið illa í vetur og er
þar um að kenna stöðugri ótíð.
S.l. þriðjudag var stórsíidar-
veiðin ekki orðin nema 2.7 millj.
hektólítra, en það er um það
bil helmingi mintia en í fyrra.
Verðmæti aílans upp úr sjo er
60 millj. n. kr. virði.
Mörg skipanna eiga nú i mikl
um fjárhagsörðugleikum vegna
þess, að veiðin hefur algeriega
brugðizt. Þótt nokkuð sé nú hð-
ið á veiðitímann, eru allmörg
skip, sem ekki hafa einu sinni
fengið síldarbröndu á dekk og
horfir uggvænlega fyrir þeim.
Helzt eru það reknetabátarn-
ir, sem veitt hafa nokkuð að
ráði, og megnið af síldinni, sem
komið hefur á land undaníarn-
ar vikur, er frá reknetabátum.
Á sama tíma í fyrra var búið að
veiða 5.2 milljónir hektólítra af
síld við Noregsstrendur.
Sveit llarðar í
forystusæti.
í gær var sjötta umferð í
sveitakeppni Bridgefélags Bvík
ur í meistaraflokki spiluð.
Þar vann Hörður Ólaf, Bgg-
ert vann Ragnar, Árni vann
Guðmund, Vigdís vann Einar
og Kristján vann ívar.
Er sveit Harðar Þórðarsonar
nú efst með 10 stig, en næstar
sveitir Eggerts Benónýssonar
og Kristjáns Magnússonar með
9 stig hvor.
Næsta umferð verður spiluð
annað kvöld.
Lögreglunni í París tólcst
fyrir skömmu að hafa hendur
í liári helztu leiðtoga stjóm-
lej'singjafélags, sem hafði sagt
þjóðfélaginu stríð á Siendur, og
framið hin verstu hryðjuverk
i úthverfum Parísar.
Komst upp um samtök þessi,
er sprenging varð í einni skrif-
stofu Poujades-hreyfingarinn-
ar í París. Lögreglumaður, sem
af tilviljun var nærstaddur,
handtók þá_ sem komið höfðu
sprengjunni fyrir, Georges
Bastiere, 25 ára, og Omar Der-
dal, 35 ára. Við yfirheyrslur
játuðu þeir að hafa fengið fyr-
irskipun um að koma sprengj-
unni fyrir, frá framkvænida-
stjórn samtakanna_ og létu í té
upplýsingar um þá, sem þeir
höfðu haft samband við. Var
nú teflt fram miklu liði lög-
reglumanna og húsrannsókn
gerð í heilu hverfi. Voru- fjórir
af forsprökkunum handteknir,
og mikið fannst af sprengiefni,
skammbyssum o. fl. í sarntök-
unum munu hafa verið um 50
menn og þótt flestir þeirra leiki |
enn lausm hala, er talið, að
ekki þui'fi að óttast þá svo
mjög þar sem þeir eru nú for-
ystulausir. Lögreglan veit hver
var höfuðleiðtogi, en hefir ekki
enn tilkynnt hver hann er,
íslenzk kona deyr í
slysl vestan hafs.
Ung kona héðan úr Keykja-
vík, Kristjana Edda Biering, dó
af slysförum í Minneapolis í
Bandaríkjunum á föstudaginn.
Hefir Vísir fregnað, að hún
hafi verið á ferð í bíl með
manni sínum, Gunnar Biering,
sem leggur stund á framhalds-
nám í læknisfræði vestan hafs,
þegar ekið var á bílinn með
miklum hraða. Beið frú Kristj-
ana bana, svo og roskinn mað-
ur, er ók hinum bilnum, en
Gunnar mun hafa meiðst lítið.
^ Pólska stjórnin hefur tekið
ákvörðun xun að auka fram-
leiðslu nauðsynjavarnings í
landiuu til almenniugsþarfa.
Keflavíkurbátar fengu
1,5—5 lestir á laugardag.
Engfnn fiskur hvar sem ifnan er
Afli Keflavíkurbáta á laug-
ardaginn var minni en nokkurn
annan dag á þessari vertíð, sem
hingað til hefu verið mjög léleg.
Sá bátur, sem mest fékk á
laugardaginn, var með 5 lestir,
en sem minnst fékk, var með
IV2 lest. Flestir bátanna voru
með 3—4 lestir.
Enginn bátur var á sjó á
sunnudaginn og fáir reru í gær-
kvöldi, bæði vegna þess að veð-
ur var óhagstætt og svo er lítil
aflavon hvert sem er róið. Helzt
er fisk að fá úti í dýpinu langt
undan landi, en þar er lítið næði
í austanátt.
Frá Keflavík róa 46 stórir ver
tíðarbátar, en auk þess 5 minni
þilfarsbátar, sem gerðir eru út
á ýsuveiðar í Faxaflóa. Er aíli
þeirra all sæmilegur og afkoma
öll betri en hjá stóru bátunum.
Hafa ýsubátarnir aflað allvel í
vetur.
Magnið af saltsíldaraflanum
frá því í haust og í vetur er að
mestu búið að flytja út. Katla
tók síld fyrir nokkru og Hvassa
fellið er þar að lesta síld. Er
þá eftir slatti í eitt skip. Þá hef-
ur Jökulfellið lestað frystan fisk
í Keflavík.
Vegna aflaleysisins er lítil at-
vinna hjá fólki, sem stundar
frystihúsavinnu.