Vísir - 11.03.1957, Side 12
Þeir, sem gerast kaupendur VÍSIS eftir
10. hvers mánaðar fá blaðið ókeypis til
mánaðamóta. — Sími 16G0.
VÍSIK er oaýrasta biaðið og þó það fjðl-
breyttajsta. — Hringið í sima 1660 og
gerist óskrifendur.
Mánudaginn 11. marz 1957
Verðlagsákvæðin
nýju lama verzlunina
Viðskipti munu dragast saman og almenn-
ingur sæta verrs kjörum.
Innflutningsskrifstofan hefur hlnn 14. f.m. sett regiur
um verðlagningu, sem að áliti þeirra, sem við verzlun fást,
eru fjarri 'því að vera í samræmi við kostnað við imikaup
vara og dreifingu þeirra.
Samkvæmt gildandi lögum ber að miða allar verðlags-
ákvarðanir við þörf fyrirtækja, sem hafa vel skipulagðan
og hagkvæman rekstur, en það ákvæði hefur verið þver-
brotið með hinum nýjum regum.
Óhjákvæmileg afleiðing verðlagsákvæðanna er stór-
felldur taprekstur verzlana, sem svo leiðir af sér minnk-
andi vöruval og í ýmsum greinum vöruskort.
Af hinum nýju verðlagsreglum hlýtur ennfremur að
leiða versnandi verzlunarkjör fyrir almenning, þar sem
öll verzlunarstarfsemi og þjónusta í þessmn efnum lamast.
Horfur eru á, að verðlagsákvæðin komi harðlega niður
á hinum fjölmenna hópi launþega í landinu, sem fæst við
verzlun og vörudreifingu.
Vegna þess, að innflutningur og viðskipti að öðru leyti
munu fyrirsjáanlega dragast saman, Iiljóta ríkissjóður og
útflutningssjóður að missa af tekjum, sem gert hefur verið
ráð fyrir.
Það er harmað, að horfið skuli frá þeirri stefnu að auka
frjálsræði í viðskiptum og láta eðlilega samkeppni fyrir-
tækja innbyrðis um hagkvæm innkaup og þjónustu við
almenning ráða úrslitum um vöruverð. Það öryggi um
verðlag, sem auk þessa hefur vcrið talið felast í tilveru
samvinnuverzlana og einstaklingsreksturs hlið við hlið, er
nú einskis metið af yfirvöldunum, en ströng höft tekin
upp að nýju.
Undirrituð samtök krefjast þess, að horfið verði frá
núverandi stefnu í verzlunarmálum, og teknir upp frjáls-
Iegir verzlunarhættir en að öðrum kosti, að gildandi regl-
um sé breytt í það horf, að tekið sé fullt tillit til raunveru-
legs kostnaðar við innkaup og dreifingu vara í landinu.
Samband smásöluverzlana.
Verzlunarráð íslands.
Samtök HBii all nota elilii
Snez koina til greina —
þrálsf Nasser við að f irona sami-
gjarnci laiasit cllslftEnnar.
^ töurkpnning á ísrael fraKa-
ííðarorj^íji.
Kvartað undan ágengni
togara við Breiðafjörð.
Strax og fréttist um afla þar koma þeir og
sópa upp veiðarfærum líuubáta.
Átta bátar eru gerðir út frá Að því er Vísir hefir fregnað
Rifi í vetur og er afla þeirra frá Hellissandi, hefir vertíðin,
ekið 3 km. leið til Hellisands í
frystihús þar. Enginn bátur rær
nú frá IleUissandi.
KrísuvíksirSeiðln
greiifær.
Strax og Hellisheiðarvegur-
inn lokaðist í gærkvöldi var
umferðinni beint til Krísuvík-
urlciðarinnar, sém nú er vel
greíðfær.
Áætlunarbíll, sem var á leið
austur yfir fjall, sneri við í
gærkvöldi og fór Krísuvíkur-
leiðina og var kominn til Sel-
foss fyrir hádegi í dag.
Þótt snjókoma væri upp þil
fjalla, rigndi við ströndina og
hefur því heldur hlánað á Krísu
víkurveginum.
það sem af er, verið allsæmileg,
en þó ekki eins góð og í fyrra.
Komið hefur það fyrir að afla-
brögð hafa verið með ágætum
í nokkra daga, en aflahrotan, ef
svo má að orði komast, hefur
aldrei staðið lengi, þvi um leið
og fréttist að vel fiskist á línu
eru togararnir óðar komnir í
tuga tali og sópa upp fiskinum
og veiðarfærum bátanna með.
Allmikið tjón hefur orðið á
veiðarfærum báta af þessum
sökum.
Við reynum, sagði heimildar-
maðurinn, að forðast að gefa upp
afla bátanna dag frá degi, því
svo virðist að við fáum að vera
lengur í friði á miðunum ef
fregnir af aflabrögðum berast
ekki út.
Aðstaða til útgerðar frá Rifi
er talin hin bezta. Stutt er þaðan
á aflasæl fiskimið og höfnin
örugg í hverskonar veðrum.
★ f Noregi biðu 27 menn bana Stærsta skip gem koiriið hefur
af umferðarslysum í janúar. þangað er særiskt 1100 tonna
Enn þykir allþimglega horfa
um Iausn Súezskurðarmáísins.
Heyrast mn það raddir í brezk-
um löðum, að siglingaþjóðirnar
verði að síofna til samtaka með
sér um, að nota skurðinn, ef
Nasser þráist við að fallast á
sanngjarna Iausn.
Því er m. a. haldið fram, að
hann kunni að líta svo á, að
hann sé í þann veginn að ná
því marki, að full yfirráð yfir
skuÆinum og hafa aðstöðu til
að setja öðrum þjóðum skilyrð-
in, en siglingaþjóðirnar geti vel
verið minnugar þess, að Nasser
sé það eins mikil nauðsyn og
þeim, að skurðurinn verði opn-
aður og notaður.
Bretar og Frakkar
sammála.
McMilIan forsætisráðherra
Bretlands gat þess sérstaklega,
er hann kom heim af Parísar-
fundinum í gær, ásamt Selwyn
Lloyd utanríkisráðherra, að
rætt hefði verið um horfur í
nálægum Austurlöndum og Sú-
ezskurðinn alveg sérstaklega.
Kvað hann enga ástæðu til
annars en að ætla en að brezk
og frönsk skip fengju að sigla'
um skurðinn hindrunarlaust.
í afstöðunni til krafna ísra-
elsstjórnar virðist Nasser óbif-
anlegur, og skírskotar til þess,
að ísrael sé fjandsamlegt
Egyptalandi.
Nehru hvetur Nasser
til samkomulags.
Það hefur vakið mikla athygli
að Nehru forsætisráðherra Ind-
lands hefur ráðlagt Nasser að
fara með gát og leyfa skipum
allra þjóða að sigla um skurð-
inn, einnig skipum ísraels.
ísrael og Alþjóða-
dómstóllinn.
Það er ekki óskylt þessum
málum, að ísrael hefur lýst yf-
ir, að það muni hlíta öllum úr-
skurðum Alþjóðadómstólsins í
Haag í deilum ísraels við aðrar
þjóðiir, þó ekki þær, sem við-
urkenni ekki ísrael, þ. e. Araba
ríkin.
___♦ _____
„Kaupféiags-
stjörar
óánægÖir."
Tímínn segir frá því í gær,
að „kaupfélagsstjórar víða
um land eru mjög óánægðir
með verðlagsákvæði inn-
flutningsskrifstofunnar“. —
Það er heldur ekki nema eðli
legt, því að Tíminn og fram-
sóknarmenn hafa hingað til
viljað telja mönniun trú um,
að ekki væri til betra verð-
lagseftirlit hér á landi en
það, sem framkvæmt væri
með samvinnuverziuninni,
en kommúnistum þótt rétt að
„lappa upp á það“. Fram-
sóknarmenn í ríkisstjórn
hreyfa hins vegar engum
andmælum gegn ofsóknum
kommúnista — í von um, að
kaupfélögin hjari, þótt kaup
menn verði drepnir.
Bogi Obfsson,
S. yfirkennari.
Bogi Ólafsson, fyrrum yfir-
kennari við Menntaskóiaim,
andaðist að heimili sínu í gæi -
morgun.
Bogi fæddist 15. október 1879
að Sumarliðabæ í Holtum, en
1914 gerðist hann kennari við
Menntaskólann í Reykjavík, og-
varð upp frá því aðalensku-
kennari skólans í fulla þrjá ára-
tugi. Verður hans nánar getið
síðar hér í blaðinu.
Skákeinvígið;
Biðskák, en staða
Friðriks talin betri.
Skákeinvígi þeirra Hermannis
Pilniks og Friðriks Ólafssonar
var Sialdið áfram í gær í Sjó-
mannaskólanum.
Var þetta önnur skák þeirra
og hafði Friðrik hvítt. Valdi
hann Larsensbyrjun, en Pilnik
virtist þar öllum hnútum kunn-
ugur og kom sterkari út úr
byrjuninni. En seinna snerist
svo taflið við þannig, að eftir
40 leiki, en þá fór skákin í bið,
virtist staða Friðriks aðeins
betri, en þó ekki svo, að nægi til
sigurs. Er skákin talin mjög lík-
leg til jafnteflis.
Hwidruö veðurteppt í
Skíðaskálauunr í nótt.
600 manns í bílum i Svínahrauni,
30 bílar fastir við Smiðjulaut í nátt.
NorðurBönd og
gæzlullð Sþ.
Bandarískt vikurit skýrir frá
því, að landvarnaráðherrar
Noðurlanda hafi nýlega rætt
sín á milli tun herflokka þá,
sem þessi Iönd hafa lagt Sam-
einuðu þjóðunum til í gæzlu-
liðið í Egyptalandi.
Sú ákvörðun var tekin í
kyrrþei, að bjóða þjónustu liðs-
ins_ gerist þess þörf í misseri
til, en verði þá frekari þörf
gæzluliðs, verð’. aðrar þjóðir að
leggja það til.
skip, serii tók þar saltfisk. Af 'is-
lenzkum skipuiri yar Cranga-
jökull fyrstur áp 'sigk íim'J
hina 'nýju höír. á Rif:
Mörg hundruð manns úr
Reyltjavík urðu að láta fyrirber-
ast í bilum sínum þar sem þeir
sátu fastir í snjóskafli á leiðinni
frá skíðaskálanum í Hveradöl-
um til Reykjavílnu'.
Einna erfiðastur var vegurinn
gegnum Svínahraun, þar munu
í nótt hafa verið um 600 manns
í bílum sem sátu fastir. 1 alla
nótt voru ýtur að draga bílana,
stóra og litla gegnum skaflana,
en verkið gekk seint vegna bíla-
fjöldans sem þar hafði safnast
saman. Veðrið var slæmt, ofan-
burður og skafrenningur.
Flestir af þeim sem urðu fastir
í Svínahrauni eru nú komnir til
Reykjavikur en þó eru þar enn
nokkrir litlir bílar.
400 manns leituðu hælis í
Skiðaskáíanum í riótt. Mun
sumt af því fólki hafa verið á
sldðamóU í. R. en flestir sem til
skíðaskálcins komu í nótt var
fólk, sem var að koma austan
yfir fjall eftir mikla hrakninga.
Fyrir helgina var Hellisheiðar
vegúfiiúí 'r'úddúf og var orðinn
mjög sæmilegur yfirferðar, S
gær spilltist færðin fljótt þegar
tók að snjóa, varð ófært er
hvessti með snjókomu og skaf-
renningi.
Það tók bílana 14 klukkd-
stundir að brjótast úr Hvera-
gerði að skíðaskálanum í Hvera-
dölum, en þar leitaði ferðafólkið
hælis eftir hina löngu hrakn-
inga.
Einna erfiðastur var kaflinn
nærri Smiðjulaut, þar voru um
tíma 30 bílar fastir ekki aðeins
litlir heldur og stórir og kraft-
miklir langferðabílar. í alla nótt
voru ýtur að hjálpa bílunum
áleiðis.
Enn er margt fólk í Skíða-
skálanum og er ekki að búast
við því til bæjarins fyrr en undir
kvöld.
Afmælismót 1. R. var haldið í
Hveradölum á laugardag og'
sögðu kunnugir að aldrei fyir
hefði verið jafnmargt fólk verið'-
þar saman komið og um helg-
ina. -