Vísir - 05.04.1957, Síða 3

Vísir - 05.04.1957, Síða 3
íöstudaginn 5. apríl 1957 vlsm s Þau vsrða ú vera samkvæmishæf. I Hollywood liefir verið kom- ið upp samkvæmishegðunar- skóla fyrir leikara. Hafði komið í ljós, að fimmta hver leikkona og fjórði hver leikari kunnu eklti að koma i'am í samkvæmum eða síðdeg- isveizlum. Nemendur skólans læra að dansa virðulega, um- gangast hníf og gaffal siðsam- lega og — konurnar að hlæja virðulega. Hætlu við að skilja. Fyrir nokkru voru leikkonan Jcaime Crain og eiginmaður hennar, Paul Brinkman, að jhugsa um að skilja. En þegar þau hugsuðu mál- ið_ komust þau að þeirri niður- stöðu_ að þau gætu ekki sundr- að heimilinu, því að þau eiga f jögur börn. Þau sættust heilum sáttum og fóru bara í nýja brúðkaupsferð til Hawaii. Chevalier í nýrri mynd. „Parents Magazine“ hefur nýlega verðlaunað myndina ,,The Happy Road“, sem fram- leidd er af Metro-Goklwin- Mayer, en slík verðlaun veitir tímaritið mánaðarlega. Gene Kelly er framleiðandi myndarinnar, stjórnandi henn- ar og fer að auki með eitt af að- alhlutverkunum. Aðrir leikend- ur. sem fram koma í myndinni, eru Maurice Chevalier og Michael Redgrave. Bræðurnir Kara- mazov á kvikmynd Richard Brooks mun skrifa handrit að Metro-Golíhvyn-Meyer kvikmyndinn. „Bræðurnir Ivara- mazov“. Það verður byggt á hinni heimsfrægu skáldsögu eftir Dostojevski. Brooks mun einnig annast kvikmyndastjórnina. Kvikmyndir, sem hneyksl un valda. ,iaby Holi66 og 99lsðaod in ve-kja miklar deiltir. Elza Kazan, sem sem lengst af hefur liaft samvinnu við Tennessee Williams og mörgum kunnur hér á landi, m. a. fyrir „A Streetcar Named Desire“, hefur nú hleypt af stokkunum nýrri mynd. Hún hefur verið allmikið umdeild og hennar jafnvel getið Jhér á landi, þótt ekki hafi hún verið sýnd hér enn. Myndin hlaut nafnið „Baby Doll“ og fjallar um unga stúlku, sem varla hefur slitið barns- skónum, þegar hún er gefin manni hér um bil helmingi eldri en hún er sjálf. Henni hefur verið lofað, að hjónabandið skuli ekki fullkomnað fyrr en að ári liðnu. Nú er árið senn á enda, er til sögunnar kemur ungur maður úr öðrum lands- hluta og reynir að fá stúlkuna til lags við sig. Kardinálinn fordæmir. „Baby Doll“ hefur ekki ver- ið talin brjóta í bág við regl- ur þær, er gilt hafa síðan 1930 um takmörk þau, sem kvik- myndum er sett, m. a. í ásta- lífslýsingum. Þó brá svo við, að Francis Spellmann kardináli varaði við myndinni í stólræðu og kvað þá drýgja synd, ef þeir sæju myndina. Hann kvað myndina hafa siðspillandi áhrif á alþýðu manna. Hún bryti í bága við þau náttúrulög, sem gæfi lífinu styrk. Hann kvaðst einnig furða sig á því að mynd- in skyldi hljóta náð fyrir aug- um kvikmyndaeftirlitsins. Hon- um væri fyllilega ljóst, að það kynni að hvetja marga til að sækja myndina að hann gerði hana nú að umtalsefni. „Ef svo er,“ sagði hann, „þá er þetta dómur yfir þeim, sem þannig brjóta guðslög og stuðla að spill ingu í landi sínu.“ Við svo búið mátti ekki standa og því gaf Elia Kazar út yfirlýsingu varðandi mynd- : ina, þar sem hann komst m. a. ísvo að orði, að hann gæti ekki veriö á sama máli og kardínál- inn og kvaðst vera hneykslað- ur yfir því, að mj-ndin hefur verið sögð óþjóðemisleg. „Þetta er saga um fjórar vesælar mann eskjur. Tennessee Wiiliam og ég höfum reynt að líta þær með skilningi heiðarlegra manna.“ Dómur almennings. Þannig getur hann þess, að kvikmyndaeftirlitið, sem sé skipað hinum menntuðustu mönnum, hafi álitið myndina hæfa til sýninga. „Spellmann kardináli eða hver sá, sem sá myndina fyrir hann, er á öðru máli. En því er nú þannig var- ið í voru landi, að skoðanir manna mótast -.ekki af palla- dómum, sem koma yfirvöldum' illa, og sem enginn má síðan andmæla. Fólk sér með sínum eigin augum og fellir síðan sinn persónulega dóm. Þannig á það líka að vera, samkvæmt hefð okkar og venju, Eg þori að leggja mál mitt undir almenn- ingsdóm.“ Tennesse Williams gaf sjálf- ur út yfirlýsingu og segir þar svo m. a.: „Það er jafnólíklegt að gömul og góð grein kristinn- ar trúar sé ekki ríkari í hug og hjarta fólksins heldur en þeirra, sem fella dóm yfir túlk- unarmáta, sem nær til allra í landi voru og jafnvel þótt víðar væri leitað. ar eftirlitsins. Önnur heitir „The Moon is Blue“ og hin er mynd Otto Premingers „Mað- 1 urinn með gullna arminn“. Sú Imynd fjallaði, sem kunnugt er þeim, er sáu hana í Trípólibió nú nýverið, um eiturlyfjanotk- un og þá andlegu og líkamlegu tortímingu, sem slíkt hefur ætíð í för með sér. Það er því engan veginn ólíklegt að eitthvað kunni að hafa verið syndgað í skjóli þess að búið var að beina almenningsálitinu að þessum „ófullkomleik" eftirlitsins. Nú er því svo komið, að gerð ar hafa verið ýmsar breytingar á starfsreglum "og sem dæmi má nefna, að nú liggur ekki lengur blátt bann við því að sýna eitthvað þar sem er um óiöglega eiturverzlun að ræða, vændi, fóstureyðingar og mann rán. Enn rná samt sem áður ekki sýna kynvillu eða kynsjúk dóma, svo nokkuð sé nefnt. Allt takmörkun háð. Ástarævintýri litaðra og hvítra var áður fyrr skoðað sér- stakt fyrirbrigði, sem fara ætti með „innan takmarka góðs vel- sæmis“. Þetta bann hefur nú verið fellt úr gildi. Þó er farið sérstökum orðum um eiturlyfja- sölu, fóstureyðingar, vændi og mannrán. Þannig er þess t. d. getið, að fóstureyðing sé ekki hið rétta viðfangsefni í kvik- myndum. Því segir hin nýja reglugerð, að til slíks skuli ekki hvatt, og aldrei skuli farið Framhald ó 10. síðu. Ný Disney - mynd um hest. Innan skamms mim koma á inarkaðinn kvikmynd frá Walt Disney, sein liyg'gð er á sögunni „Comanche" efíir David Appsk Handrit að myndinni hefur Lillie Hayward skrifað. Fjalkír hún um Comanche, írægan hest, sem kom við sögu i orustunni miklu við ána Little Big Horn, þar sem Custer féll með öllu liði sínu, eins og sagt var -frá. í Vísi nýlega. Canado var hestur Curtes. sveíffi- 99 Innan skamms verðiu- farið r.ð sýna Metro-Goldwyn-Mayer kvik- myndina „Tíu þúsimd svefnlier- bergi“, seni tekin er á mörgum merkustu stöðum í Róniaborg. Kvikmyndastjóri verður Rich- ard Thrope, en aðalhlutverkin leika þau Anna Maria Albergetti, Eva Bartok, Paul Henreid, Walt- er Slezak og Dean Martin. ★ ★ ★ L/UIGAVEC 10 - SIMi 3387 IVIyndin án blessunar. Nú hefur það verið svo und- anfarið í Bandaríkjunum, að háværar kröfur hafa verið born ar fram þess efnis, að kvik- myndaeftirlitið, eða réttara sagt starfsreglur þess, þarfnaðist endurskoðunar, Því hefur a. m. k. tveimur myndum verið hleypt á markaðinn án blessun- Harry Belaforte og Joan Fontaine leika einnig í kynþáttavanda- I málskvikmyndinni „Island in the Sun“. Robert Standish: Efiiin vildi giftasí iii fjái*. að Thérésa og hann ætluðu að giftast undir eins og lagaleg- um skilyrðum yrðá fullnægt. Vildi eg koma aftur og verða svaramaður hans? ,,Mér þykir fyrir þessu, Sam,“ sagði eg og þótti mjög miður. því áð eg vissi að hin stutta vinátta okkar myndi ekki þola það, sem eg ætlaði að segja, „en ef þú ert nógu heimskur til að halda fast við þetta, þá verður þú að gera það án þess að vænta þér hjálpar frá mér.“ „Hvað hefirðu á móti henni?“ sagði hann alveg undrandi og ruglaður. Hann var áreiðanlega ófær til þess að skilja hvérs vegna eg gat ekki séð hana eins og hann gerði. 1 „Fyrst þú spyrð mig, Sam,“ svaraði eg. ,,Mér geðjast ekki að munninum á henni, hann er eins og rottugildra. Og mér geðjast ekki að neistunum frá þessum blágrænu augum. Eg hefi séð meiri hlýju í ísjaka. Og eg yrði ekki undrandi yfir því þó að mér væri sagt, að henni hefði verið gefinn pen- ingakassi til að leika sér að, þegar hún var í vöggunni. Eg — eg er hræddur við hana, Sam. Og líttu á. vinnufólkið hérna. Það er auðséð. að það hatar hana, allt með tölu, og hræðist hana.“ Það var ekkert meira. sem eg gat sagt eða gert. í rauninni fann eg, að eg hafði sagt of 'mikið. Og' þegar eg fór úr hót- elinu degi síðar lét Sam mig fara án þess að mæla orð. Mér þótti það léitt, því að mér geðj- aðist Sam. í rauninni held eg að mér geðjist að honum enn. Þó er eg ekki viss um það. Þrem vikum síðar fekk eg bréf frá Sam það var frá París. Sagði hann mér þar, áð hann og» Thérése væri gift og ætluðu til Bandaríkanna og búa þar. Hann gaf mér utanáskrift á smábæj- arbanka, einhvers.staðar í Con- necticut, en áður hafði hann sagt mér, að þar væri faðir hans [bankastóri. Þetta ságði mér jekki mikið því að árið 1936, í endalok kreppunnar, voru bankastjórar í stórborgum ekki Imjög auðugir. En hvers konar j „bankastjóri" hlýtur að hafa ■ hljómað vel í eyrum Thérése. Seint á árinu 1938 fekk eg bréf frá Sam. sent frá París. jstuttu máli, að faðir sinn væri látinn og hann og Thérésa myndu bráðlega sigla til Frakklands. Þau vonuðust til þess, að geta fengið húseign í grennd við Miðjarðarhafsströnd ina. En vildi eg þá ekki gefa upp verðið á Mas des Violet- tes? Eða ef svo væri ekki, gæti eg ekki hugsað mér að Jeigja þeim húsið meðan þau væri að líta í kringum sig eftir öðrum stað? Þó að eg hefði aðeins komið í Mas des Violettes einu sinni frá því að við Sam vorum saman þar, var eg tregur á að selja. Eg íhugað'i það um stund hvort eg ætti að leigja Sam húsið. En hugsunin um Thérésu þar, sem smellti svipunni og ræki Alphonsine, sem var svo góð og hæglát, til og frá, eins og hún hafði rekið þjónustufólk hótelsins — og mér fannst það óhugsandi. Mér brá í brún þeg-

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.