Vísir - 05.04.1957, Blaðsíða 11

Vísir - 05.04.1957, Blaðsíða 11
Föstudaginn 5. april 1957 vrsiB 1! - • . ' ■ ' • ? ' •< ‘V v < ’ • Myndin cr af Jack Lemmon, Judy HoIIiday og Jack Carson í! skemmtimynd, sem Stj.örnubíó sýnir þessa dagana um hjú- skaparerjur, sem enda með fullri sátt. Auk fyrrnefndra Icikara fer Kim Novak þarna með skoplegt hlutverk. Judy Holliaay | l;annast margir við úr kvikmyndinni „Fædd í gær“, en fyrir | leik sinn í henni fékk hún hin svonefndu Oscars-verðlaun. — Kvikmyndin er fyndin og vel Ieikin. ÍR sigraði Fram glæsilega. * ' Oþolandi skrílslæti unglinga að Hálogalandi. A þriðjudaginn fóru fram tveir Ieikir í meistaraflokki og eimi í 3. fl. í 3. fl. áttust við F.H. og Í.R., b-Iið og sigraði F.H. með yfirburðum, 19:9. Fyrri leikurinn í mfl. var milli Vals og Aftureldingar. Eft ir sigui- Aftureldingar yfir Í.R. var búizt við, að hún mundi einnig geta velgt Valsmönnum undir uggum, og varð sú raunin á.,Leikurinn var frá .upphafi til enda mjög tvísýnn og spenn- andi. Afturelding tók forustuna, Valur jafnaði og komst yfir. — Svona gekk allan leikinn, hvor um sig fékk haldið forustunni skamma stund í einu og voru úrslitin 21:21 því mjög sann- gjörn. í hálfleik stóð 11:10 fyrir Val. Þess ber að gæta, að í þess- um leik lék Valur Benediktsson ekki með-Valsliðinu, en hann er „sálin“ í liðinu, ef svo mætti segja. Hann handleggsbrotnaði í leiknum á móti Fram og getur þvi ekki leikið með það sem eft ir er af mótinu. Hinn leikurinn var milli Fram og Í.R., en þessa leiks hafði ver- ið beðið með mikilli eftirvænt- ingu, bæði vegna þess, að hami getur skorið úr um þriðja sæt- ið í mótinu, og einnig vegna þess, að þarna áttust við sterk lið, sem álitin voru mjög jöfn að styrkleika og líkleg til að sýna góðan og skemmtilegan handknattleik. Yfirburðir Í.R.-inga urðu glæsilegri en menn grunaði. Strax í upphafi var sýnt, að.þeir hugðust ekki gefa. á sér mörg færi og léku þeir nú að mínu áliti sinn bezta leik um langt skeið. Leikur þeirra var mik- ill álitsauki eftir hið óþægilega tap fyrir Aftureldingu. Leikur Fram var aftur á móti veikari ag þróttminni en í undaníörn- um leikjum liðsins, liðið fann aldrei hina réttu sámstillingu og reyndist mjög erfitt að leiká á hina þéttu vörn Í.R. Vörn, Í.R.,, sem verdð hefur veikasti, punkturinn í leik liðs- íiis/kom nú mjög á .óvar.t og st.óð af sér, allai' árásir. mpð mestu prýðL Í.R. tóku.þegar í upphafi for- ustuna og hélt henni.öruggri all an leikinn. Það næsta sem.Eram komst var tveggja marka mun- iur (14:12), en það var í miðjum síðari hálfleik, og bjuggust þá flestir við fjörugum enda- spretti, en vörn Fram brást gjörsamlega í síðustu átökun- um og íék hið skemmtilega tríó Í.R., Gunnlaugur-Hermann- Matthias, margar listir og nýtti vel eyðurnar, sem sköpuðust. Í.R. fór sem sagt með glæsileg- an sigur af hólmi, 21:14. ! Skrílslæti og óspektir ung- linga hafa í vetúr verið með mesta móti í Hálogalandi, áhorf endum og keppendum til hins mesta ama og óþæginda. Hefur svo ramrat kyeðið að þessu, að nú þykir nauðsyii að hafa um- sjónarmann á staðnum, sem I starfar sem nokkurs konar lög- regla, þaggar niðri í rollingun- um og reynir að; halda sóma- samlegri reglu í húsinu. Á1 þriðjudaginn neyddist umsjón- armaðurinn, Bjarni Felixson til j að íjarlægja nokkra pörupilta úr húsinu, en þeir fétu ekki segjast og héldu uppi óspektum utan dyra. Leitt er til þess að vita, að þarna áttu í hlut kepp- endur í þessu móti. Þeir reynd- ust vera úr 3. fl. B. í Í.R. og er þess hér með farið á leit við félag þeirra, að það geri við- eigandi ráðstafanir í .þessu máli. Svona ,,kultur“ verður að úti- loka úr Hálogalandi og nauðsyn ’ legt að alli.r taki höndum sam- an til að gera keppniskvöldin mönnum sæmandi. Ko'rmákr. j helming fyrir lok ársins 1962, en herskylda verður afnumin 1960. Stofnaður verður her atvinnu- hermanna, skipulagður þannig, að flytja megi hann til í skyndi, og verður hann staðsettur á Bretlandseyjum, en hætt að hafa dreifðar hersveitir út um allan heim eins og nú. 1 þessum nýja heimaher verða 375.000 manns. Hann verður búinn kjarnorku- vopnum, en þau koma nú í stað annara vopna, sem teljast úrelt. Vetnissprengja. Bretar hafa nú, segir í skýrsl- unni, smíðað vetnissprengju, og verður nú saínað birgð.um aí þeim. Kjarnorkusprengj ubirgðir voru áður fyrir hcndi. Tekið er fram, að ógerlegt sé að verja Bretland fyrir kjarnorku- og vetnissprengjuárásum, og þess vegna verði að leggja megin- áherzlu á srníði eldflauga og vetnissprengna. Stórskotalið Breta í V. Þ. fær flugskeyti og kjarnorkukúlur, en Kýpur veíð- ur bækistöð fyrir kjarnorku- sprengjur. Flotinn. Áherzla verður lögð á smiði flugvélaskipa, sem geta flutt ílugvélar er hafa kjarnorku- sprcrigiur meðíerðis, hafi skipin eldílaugaútbúnaði Gömlu her- skipin verða flest rifin, þannig til dæmis öll orrustuskipin, og beitisldpin, jafnóðum og beiti- skip af nýrri gerð verða smíðuð I þeirra stað. Vtöskipti við Dani. Hinn 2. april var undirritað í Reykjavík samkomulag um viðskipti milli Islands og Dan- merkur, er gildir fyrir tíma- bilið 15. marz 1957 til 14. marz 1958. Samkvæmt samkomulagi þessu munu dönsk stjórnarvöld veita innflutningsleyfi fyrir islenzk- um vörum á svipaðan hátt og áður hefur tíðkazt og íslenzlc stjórnarvöld munu einnig heim-l ila innflutning frá Danmörku i eins og að undanförnu að svo, miklu leyti, sem gjaldeyris-1 ástand landsins leyíir. Samkomulagið undirritaði j fyrir Islands hönd Guðmundur 1. Guðmundsson utanrikisráð- herra og fyrir hönd Danmerkur ambassador Dana í Reykjavík, E. A. Knuth, greifi. Sex dóu, 20 meiddust, ein fæddist Sex manns biðu bana, 20 meiddust og barn fæddist, er langferðabifreið ók út af 70 m. hárri vegarbrún skammt frá San Juan í Puerto Rico. Varð bifreiðin að víkja fyrir sjúkrabifreið, en rann bá út af veginum. Meðal farþega var vanfær kona, sem varð undir bifreiðinni og beið bana, en fæddi um leið mey- barn, sem unnt var að bjarga. Hýtt, kalt striá! Strauss landvarnaráðherra Kanada varði í gær stefnu sína og stjórnarinnar í landvama- málum, en á hana Jhefur verb* ráðist vegna þess, að hersveiti:.1 búnar kjarnorkuvopnum séu .. Iandinu. Strauss kvað ekki hægt að fara fram á stuðning við a?í' verja landið, ef á það yrði ráð ist, og banna verjendum að nofc kjarnorkuvopn. Hann vék að aðvörunur,. Búlganins til Noregs og Dan- merkur og aðvarana í saraa dúr í útvarpi til V.-Þ., Hollands og Belgíu, og kvað Rússa hafa byrjað kalda styrjöld með þessum aðvörunum. Húseigendur Járnklæðum, gerum við hús, málum, snjó- kremum og önnumst margskonar vmnu. — Sími 5368. Fóstbræðrafélag Fríkirkjunnar heldur spilakvöld fyrir Frí- kirkjufólk í Iðnó kl. 8.30. I Kjarnorkuvopn... Framh. af 1. stðu. liin venjuiegu vopn, sem í. notkun eru- og haía vgráð; iþar til .kiarn- orkuvoprur kcmu, til sögunnar), , séu.raunverulega úselt.og gagns- 1 iaus. Áæthmin í höfuð- afcriðum. Samkvæmt tillögunum á ao- fækka í brezka liermim um baía náð svo miklum vingældum hér á landi á skörnraum tíma,.að slíks eru íá dæmi, enda sameina þeir í rík.um .mæli þú kosti, sem ailar konur sækjast eftir: ENDINGU • og ÚTLITSFEGURÐ. Af sokkunum eru 3 gerðir í mismunandi liíum umbúðum: Marta . gular umbúðir Mína grænar umbúðiv JÁaría bjáar umbúðir ísabella Þessi tegund er sérstaklega gerð fyrir granna fætur. Jmrmir sokkar, sterkir og íallegir. Gerðir fyrir gildari fætur. Hafa mikla og varanlega teygju. Þunnir, endast lengi, fai-a vel. Þykkari sokkar til aílra daglegra starfá. Faílegir, sterkir. . Sokkarnir fullnægja ströpgustu' kröfum um útlits- fegurð og endingu. Fást r verzhimim um aili land. , q n s? t fí f-^óronr ^ufíinááön C7' C-o.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.