Vísir - 19.06.1957, Blaðsíða 5

Vísir - 19.06.1957, Blaðsíða 5
VISIB Jíiðvikudaginn. 19. júní 1957 4 „♦ y BRinGEÞATTiR y ** VÍSIS í siðustu viku lagði eg leið mina niður í Hafnarhús, þar sem landslið okkar æfir vænt- arilega Vínarför. Erindið var, að leggja fyrir þá félaga tvö spil og bera síðan sagnir þeirra saman við sagnir útlendra bridgestórmenna. Þykir mér ekki ósennilegt, að islenzkir bridgemenn hafi bæði gagn og gaman af slíkum samanburði. Fyrra spilið var spilað í keppni í Bretlandi og tókst engum keppendanna að stoppa fyrr en í slemmu. Síðan var spilið lagt fyrir fyrrverandi heimsmeist- ara, Dodds, Konstam, Reese, Shapiro og einnig fyrir fjóra menn úr sveit Ameríkumanna, sem tapaði fyrir Frökkum í heimsmeistarakeppninni 1956. Spilað var eftirfarandi: Norður: 4 4 ¥ Á-9-6-3 4 7-5-4-3 * K-G-8-6 Suður: í ■ 4 Á-D-G-10-9 ' ¥ K ♦ Á-10-6-2 4 Á-D-4 Allir í hættu, suður gefur. Dodds (suður) og Konstam (norður) komu með eftirfar- andi sagnaseríu: 1S, 1G, 3T, 3H, 3G, 5T, 6T, P. Þetta er af- leitur samningur, sem óhugs- andi er að vinnist. Reese (suður) og Shapiro (norður) komu með eftirfar- andi sagnseríu: 2S, 3L, 4L, 4G (Culbertson), 5H, 6L, P. Þessi samningur er ekki góður, en samt ekki óhugsandi að hann geti unnizt. Ameríkumennirnir sögðu á spilin, tveir og tveir saman og komu með sömu sagnseriu og Dodds og Konstam. Hafði Char- les Goren orð á því á eftir, að þetta væri mikið gildruspil og erfitt væri að komast hjá þvi að lenda í 6T. Guðjón Tómasson (norður) og Gunnar Pálsson (suður) sögðu eftirfarandi: 2S, 2G, 3T, 5T, 6T, P. Tveggja granda sögn Guðjóns er slæm og nokkuð finnst mér vafasamt að stökkva úr þremur gröndum í fimm tígla með engan honor í litnum. Þorsteinn Þorsteinsson (suð- ur) og Sigurhjörtur Pétursson (norður) komu með eftirfar- andi sagnseriu: 2S, 3L, 3T, 4T, 4G (Blackow.), 5T, 5G, 6T, P. Vilhjálmur Sigurðsson (suð- ur) og Árni M. Jónsson (norð- ur) sögðu eftirfarandi: 2S, 3L, 3T, 4T, 4G (Blackw.), 5T, 5G, 6T, 6G, P. Sennilegt þykir mér að Vilhj. hafi sagt sex gröndin til þess að fá ekki gegnumspil í laufi áður en búið væri að rífa út spaðakónginn, gangandi út frá því að Árni hefði tígulkóng- inn. Hvað samninginn snertir, er hann ekki góður en hefur það þó fram yfir sex tíglana aðj hugsanlegt er að hann geti unn- : jizt, þ. e. ef annað hvort austur jeða vestur hafa D. G, 10 í (hjarta og fjórlit í tígli og þá að ekki sé spilað út í tígli. Einnig 'vinnst hann augljóslega ef austur hefur kónginn í spaða annan. Það ólgar undir niðri í S.-Afríku. Hver kynþáttur um sig óttast alla hina. Hitt spilið var spilað í heims- meistarakeppninni í París 1956 og var það eftirfarandi: í Suður-Afríku liggur ótthrn í loftinu, eins og liitabeltismóð- an. Ailir óttast alla — Indverjar, sverting.jar, hvítir nienn — allir horfa kvíðafullir til framtíðar- innar, til þess ólieiila dags, er eitthvað gerist. Og allir hafa þá trú, að eitt- hvað muni gerast, ef ekki tekst nógu snemma að draga úr fjand- skapnum milli kynþáttanna og koma á stjórnarháttum, er leiði til eðlilegra samskipta milli hinna mörgu kynþátta. Fyrir nokkru gerðust þeir viðburðir í Jóhannesarborg, sem mörgnuðu þennan kviða hjá hinum hvitu íbúum: Hinir innfæddu íbúar borgarinnar tóku sig saman um að hætta að nota strætisvagna hlutafélags þess (Public Utility Transport Company), er annast flutninga milli borgarinnar og Alexöndru, eins af verstu fá- tækrahverfunum. ,rAsikivei-waw“. Ástæðan fyrir viðskiptastöðv- uninni var sú, að hlutafélagið hækkaði fargjaldið um einn penny (um 20 au.). Þetta töldu íbúar Alexöndru sig ekki geta greitt og hófu andspyrnuhreyf- ingu með vígorðinu: „Asikwei- waw" (akið ekki með strætis- vagni). Andspyrnan - hófst snemma þessa árs, síðan hafa vagnarnir ekið tómir, en 65 þús- und verkamenn og konur gengið þessa 5 km. vegarlengd kvölds og morgna. Berfættingar. Viðskiptabannið er ógurlega erfitt fyrir flesta, en enginn dirf- ist að brjóta það. Ein af kon- unum, sem búa í Alexöndru, Elizabeth Mthombeni, 36 ára gömul og gift, fimm barna móð- ir, fer inn í Jóhannesarborg á hverjum morgni til að þvo fyrir fjölskyldur þar. Yngsta barn hennar er sjö mánaða gamalt. Þegar hún fer til vinnunnar, verður hún að hafa barnið með sér og bera það á bakinu, vafið í sjal. Síðan ökubannið var sett á, hefur Elizabeth orðið að ganga þessa 5 kílómetra vegar- lengd fimm sinnum i viku kvölds og morgna. Hún verður að fara á fætur klukkan hálf fjögur á morgnana til að matreiða íyrir mann sinn og eldri börnin fjögur. Klukku- tíma síðar leggur hún af stað með yngsta barnið. Hún heidur á skónum i hendinni, annars slitnuðu þeir of fljótt, vegna hinnar löngu göngu. Fætur hennar eru þrútnir og hana verkjar í þá, en hún hefur ekki efni á að kaupa sér skó fyrstu mánuðina. Klukkan 8% kemur hún á vinnustaðinn, en kl. rúm- lega 5 e.h. er hún búin með dagsverkið og heldur af stað heimleiðis með barnið á bakinu. Á ieiðinni verður hún að stanza til þess að gefa barninu að borða, en kl. rúmlega 7 er hún vanalega komin heim til sin. ökubannsmönnum og öllum, sem sýna málstað þeirra skiln- ing eða stuðning, hefur aukið viðsjár manna á milli um allan helming. Allt frá upphafi hefur iögreglan iðulega framkvæmt lögregluaðgerðir gegn Evrópu- mönnum, sem hafa flutt vinnu- fólk sitt til Alexöndru-borgar- hlutans. Hefur lögreglan hvað eftir annað hótað mönnum fé- sektum af þessum sökum, og þarlendir lögfræðingar telja að ekki eigi sér stoð i landslögum. Gegn ökubannsmönnunum sjálf- um notar lögreglan auðvitað enn meiri harðneskju — fram að þessu hefur lögreglan handtekið 8000 innfædda í Jóhannesborg fyrir ýmiskonar smáyfirsjónir i sambandi við bannið. Oftast fyrir það, að dveljast nætur- langt án leyfis í borgarhlutum hvitra manna, til að sleppa við gönguna milli heimilis og vinnu- staðar. Fram að þessu hafa þessar ofsóknir þó ekki getað brotið mótstöðuna á bak aftur. Þegar maður heimsótti Or- lando-borgarhiutann, þar sem 10 þúsund samúðar-ökubannsmenn búa, komst maður að því, hve alvarlegt ástandið var. Ot í þennan borgarhluta geta verka- mennirnir ekið með járnbrautar- lest og þurfa þess vegna ekki að nota strætisvagnana, en frá járnbrautarstöðinni er löng leið fyrir marga þeirra heim til sín. Áður var þetta ekið í strætis- vögnum, en nú ganga menn. Það var furðuleg sjón, að sjá þennan iðandi straum þúsunda verka- manna. Og ekki virtust menn sérlega ánægðir með lifið — það væri synd að segja, þrátt fyrir það þótt þeir geti annars hlegið að hverju sem er. Þessi ' sífelldi straumur gangandi1 manná hefst kl. iaust eftir 3 að morgni að heiman og heim aftur frá nóni og stendur með nokkr- um hléum fram undir miðnætti. Slæmt. útlit. 4 S-7-5-4 ¥ K-4-3 ♦ G-6-2 4 K-8-4 4 K-9 ¥ 5 ♦ D-10-8-7-5-4-3 4 A-6-2 4 G-6 ¥ D-G-10-8-7 ♦ A 4 D-10-9-7-5 4 A-D-10-3-2 ¥ A-9-6-2 ♦ K-9 4 Gt3 N. V. A. S. Suður gefur og allir á hættu. Frakkarnir Jais og Trézel sögðu eftirfarandi á n-s spilin: 1S, 2T, 2H, 2S, P. Frakkinn varð einn niður og gat þó unn- ið spilið á nokkra vegu. Ameríkumennirnir Hasen og Solomon sögðu éftirfarandi: 1S, 2T, D (aust), P, 2H (vest), 3T, 3H (aust), 3G, P. Út kom hjarta og spilið var vonlaust. Geoffrey Fel.1 (suður) og Swinnerton-Dyer (Norður) komu með eftirfarandi sagn- seríu: 1S. 2T, 2H. 3H. P. Nor- mal sagnir á normalspil. Guðjón Tómasson (suður) og Gunnar Pálsson (norður) sögðu eftirfarandi: 1S, 2T, 2H, 3T. 3S, P. Þriggja spaða sögn Guðjóns er /frekar vafasöm, betra væri fjórir tíglar, sem er sennilega lykillinn að úttektarsögninni. Árni M. og Vilhjálmur, og Þorsteiim og Sigurhjörtur komu með sömu sagnseríu og Fell og Swinnerton-Dyer. Frekar kom mér það á óvart að Guðjón skildi standa sig einna lakast í samanburði þess- um, þar sem hann er í flokki okkar traustustu spilamanna. -----♦------- Kashmirdeilan aftur fyrir öryggisráðið. Forsætisráðherra Pakistan boðaði í gær, að stjórn lands- ins hcfði ákveðið að leggja Kashmirdeiluna aftur fyrir Öryggisráðið. Ef það gerði ekkert i málinu myndi hún taka það upp á alls- herjarþinginu. *— Hann kvað Pakistan vilja frið við Indland, en ef Indverjar létu ekki af of- beldislegri framkomu yrði Pak- istan að grtpa til sinna ráða. — Fólkið getur ekki greitt þessi háu fargjöld, segir Thomas Nkobi, einn af foringjum öku- bannsmanna, og við erum þess albúin að ganga mánuðum sam- an, ef fargjöldin lækka ekki. Ibúar Alexöndnj hafa síðar fengið hjálp frá 10 þúsund inn- fæddum í öðrum borgarhlutum og frá öðrúm hlutum Suður- Afríku, sem sýna kynbræðrum sínum samúð með því að nota ekki almenningsvagnana, enda þótt þeir þurfi ekki að greiða hinn nýja og hækkáða taxta. Ótti við sanitök svartra. Það er þetta, sem aukið hefur óttann meðal hvíta kynstofns- ins i landinu — hinir innfæddu eru byrjaðir að sýna, að þeir geta myndað samtök með sér til þess að koma einhverju í framkvæmd, jafnvel þótt þeir hafi engin félagsleg eða borg- araleg réttindi að bakhjarli. — Við getum blátt áfram ekki borgað hærri framfærslukostn- að, segir Nkobi. Meðaltekjur íólks í Alexöndru eru tæp 2 sterlingspund. (um 90 ísl. kr.) á viku. Með þessum tekjum verða margir að sjá fyrir konu og fimm til sex börnum. Meðal þessa fólks eru jafnvel sumir, sem gleðjast yfir þessu nýja skipulagi, þvi vegna þess geta þeir sparað sér átta smáskild- inga (penny) daglega, — far- gjaldið var 4 pence og var hækk- að upp i 5 pence í hverri ferð. Manndráp í bardögum 1955. Næsta skylduverk hennar er þá að matreiða handa fjölskyld- unni, -skammta mat, þvo upp og taka til. Venjulegast kemst hún ekki í rúmið fyrr en undir mið- nætti. Og næsta morgun hefst sama stríðið á ný. Hún þofir ekki fyrir sitt líf að láta sér detta i hug að aka með strætis- vagninum — það væri að leggja líf sitt í hættu, vegna hinnar miklu hörku, sem banninu er framfylgt. Það hefur kornið til ökubanns í Jóhannesborg. Árið 1955 féllu fimmtán manns, hvitir og þel- dökkir, i áköfum bardögum, áður en bannið leiddi til sigurs fyrir Afrikumennina. Enginn hefur ennþá beðið bana í þessum síðári deilum, en margir liggja á sjúkrahúsum særðir hnifst.ung um íyrir að hafa ekið í strætis- vögnum. Einn þeirra, sem fyrir slíkum hnífstungum varð, var sendill hjá Norðurlandamanni einum í Jóhannesborg. Hann ók í strætisvagni rétt eftir að bann- ið hafði verið ákveðið og uggði ekki að sér. Hann liggur nú i sjúkrahúsi með stungusár á brjóstinu. Áhyggjur manna auk- ast með degi hverjum. 8000 handteknir. En ástandið er ekki aðeins sök þeirra, sem settu bannið á. Fram ferði rikisstjómar og lögregl- unnar með ofsóknum á hendui' — Hvað segið þér um þetta?' spurði maður einn frá Basuto- landi, þegar við stöðvuðum bil- inn. Finnst yður þetta ekki ófag- urt útlit? Einn góðan veðurdag höfum við fengið nóg af þessu, og þá er okkar tími kominn. Þetta ökubann kennir okkur að vera samtaka og láta eitt yfir alla ganga. Þegar við erum búnir- að svitna samannógulengi.munu hvítu mennirnir, sem hafa neytt okkur til þess, fá ástæðu til að iðrast gjörða sinna. Það skiptir engu, þótt við þurfum að fórna- þúsundum eða tíu þúsundum okkar manna, ef við aðeins fáum rétt okkar og frelsi. Ummæli þessa manns túlka þó ef til vill ekki viðhorf almenn- ings til málanna; foringjar öku- bannsmanrya segja aðejins, að þeir ætli að neyða strætisvagna-i félagið til að lækka aftur far- gjöldin með friðsamlegu sam- tökum, vegna þess að launum manna sé haldið svo lágum, að þeir 'geti ekki greitt hin hækk- uðu fargjöld. En það, að menn í verka- mannahverfunum ræða máiin með v.iðhorfi Basutomannsins, er í sjálíu sér nægilega hættulegt. Ef liaidið er nægilega lengi áfram að boða almenningi úpp- reisn og lögleysu -og haldi rikis- stjórnin áfram að hundelta menn vegna kynþáttamismunar', . getur allt farið i bál og brand' fyrr en varir. Það er að líkindum- af þcssum ástæðum, sem ýmsir;

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.