Vísir - 23.11.1957, Blaðsíða 1
•7. árg.
ILaugardagmn 23. nóveunber 1957
276 tbl.
NorðffienR Eeggja megháherzb
á ffiarkaðsöfSun vestra.
Ætla að auka auglýsingastarf til
muna.
f Parísarútgáfu New York
Herald Tribune er birt skeyti
frá Osio, sem beir með sér, að
Norðmenn leggja megináherzlu
á, að seija fiskafurðir sínar til
Bandaríkjanna.
Þar segir, að útflutningur frá
■Noregi á frystum fiski muni
verða meiri í ár en nokkum
tíma fyrr. Útflutningurinn er
þegar orðinn meiri en hann var
allt árið í fyrra (17 þús. lestir).
Bandaríkin verða nú á þessu
ári, í fyrsta sinn, stærsti kaup-
andinn á frystum fiski frá Nor-
egi. Einnig hafa Norðmenn afl-
að sér nýrra markaða í Ástralíu
og Afríku.
Norðmenn áforma að auka
mjög á þessu ári auglýsinga-
starfsemina til þess að afla
nýrra markaða fyrir frystan
fisk.
Tækið á myndinni er ekki fallbyssa af nýjustu gerð, þótt menn
kyrinu að ætla það. Þetta er nefnilega kvikmyndavél, sem hefur
sérstöku hlutverki að gegna — hún á að taka myndir af flugi
eldflauga. Hefur 70 mm. kvikmyndavél verið komið fyrir í átta
feta löngum stjörnusjónauka með 500 þumlunga „fókuslengd“,
og getur tekið 60 myndir á sekúndu. Getur hún tekið myndir
af eldflaugum í 80—150 km. fjarlægð.
Stjórn FFSI vill, að
togararnir fái að sigk
Erfitt er að fá menn á skipin.
Vísi hefur borizt eftirfarandi
frá Farmanna- og fiskimanna
sambandi Islands.
„Stjórn FFSl skorar á rílds-
stjórnina að hamla ekki aflasölu
íslenzkra skipa erlendis, meðan
áhafnir skipanna og útgerðar-
menn telja sér það vænlegra."
Gremargerð stjórnarinnar
er á þessa leið:
„Mikii mannekla er nú á ís-
lenzka togaraflotar.um. og verð-
ur að manna togarana að miídu
leyti með útlendingum. Til þoss
að menn þessir fáist, verður að
greiða þeim káup í erlendum
gjaldéyri.
Þetta er misrétti, sem er ill-
þolandi og auk þess til .þess fall-
ið að skapa.gjaldeyrlsskovt.
Ekki virðist vera auðvelt að
manna síldarbátana og horfir
það til stórvandræða.
Þar sem svona er ástatt virð-
ist ekki nein ástæða til að þvinga
skipin til að landa innanlands í
því skyni að auka atvinnu í landi.
Meðan menn fást ekki á skipin
er ekki þörf á að auka atvinnu
í landi á kostnað þeirra. sem
fiskveiðar stunda, með opin'ner-
um aðgerðum."
• Fyrir nokltmm ðögitm !; vi
hollenzkt skip, Raki. tii Aiev-
andriu í Egyptalandi.
Egypzka lögreglan i;, . ‘ ;
einn kyndarar.n, Lsi
borgara. Ekki gáfu þr, - .joi-:
aðra skýringu á hand .
én að þeú „þyrftu að .yfir- ■
heyra“ manninn.
Ný skrifstofa
Loftteiða í Höfn.
Skrifstofur Loftleiða í Kaup-
mannahöfn hafa að undauförnu
verið í stórri byggingu, sem
Centrumgarden heitir og er
hún við Vesíer-Farimagsgötu.
Með vaxandi starfsemi varð
húsnæðið of þröngt og tók
félagið þá á leigu stærri salar-
kynni í sama húsi, og voru
skrifstofurnar opnaðar þar 8.
þ.m. að viðstöddum mörgum
gestum, er félagið hafði boðið,
í þessu tilefni.
Afgreiðslusalurinn nýi er
skreyttur teikningum lista-
mannsins Ib Antoni og sýna
þær hina gömlu og nýju far-
kosti norræna manna á leiðun-
um milli Ameríku og Evrópu.
Eru skreytingar þessar mjög
smekklegar.
Rúm 11 ár eru nú liðin síð-
an fyrsta Loftleiðaflugvélin
lenti í Kaupmannahöfn, en
síðan hefur félagið haldið nær
óslitið uppi áætlunarferðum
milli Danmerkur og íslands.
Flutningarnir hafa farið vax-
andi að undanförnu.
Forstjór i Danmerkurdeildar
Loftleiða er nú H. Davids
Thomsen, en auk hans vinna 7
manns við skrifstofu og af-
greiðslustörf hjá félaginu í
Kaupmannahöfn.
Hneyksfisfréttin
ntfssfi ntarks.
Fregn frá Baltimore hermir,
að *það kunni að koma ónotalega
við lesendur helzta bókmennta-
j blaðs Rússa, som birti fregn um
það reginhneyksli, að Glass
öldungadeildarþingmaður sé
allt a£ fjarverandi frá störfum
— að hann muni áreiðanlega
verða fjarverandi áfram.
í hneykslisfréttinni var sagt,
að Glass hefði ekki sést í sæti
sínu í þingsalnum í tvö ár, og
embættismaður að nafni Smith
orðið að taka á sig öll störf hans
í Washington. Þannig, segir
blaðið, er spillingin í Banda-
ríkjunum: Þeir, sem eiga að
semja lögin, koma hvergi nærri,
en aðstoðarmenn þeirra ann-
ast það, flytja ræðurnar fyrir
þá og jafnvel greiða atkvæði
fyrir þá.
Um Carter Glass er það mn-
ars að segja, að hann var um
mörg ár öldungadeildarþing-
maður fyrir Virginiufylki, en
andaðdst fyrir rúmum áratug
(1943).
[yr Gengi punds er 2,80 dollar-
ar, en Engíandsbanki segir,
að það sé nú komið upp í
17/32 úr cent yfir skráð
gengi!
Howard Fast Eíklr kemgnánlsm-
anisnt vfi fangeisl
Var kommúnisíi í 13 ár - nýtur
nú andlegs frelsis.
Howard Fast, bandariski rit-
höfundurinn, sem sagði sldiið við
kommúnista, eftir að liafa verið
í þeirra flokki í 13 ár, líkir hon-
um við fangelsi, sem notað er
til innilokunar fegurstu og djörf-
ustu drauma mannkynsins".
Hann segist nú aftur vera
frjáls — í fyrsta skipti, eftir að
hafa verið flokksbundinn komm-
únisti á annan tug ára.
Vonsvikinn og illa blekktur
kveðst hann hafa verið og gerir
hann grein fyrir þvi í nýút-
kominni bók, og hvernig hann
öðlaðist af nýju ást og traust
á lýðræðinu. Bókinn nefnist The
naked God“ (Hið nakta goð).
Hann segir framtíðina þeirra,
sem brjóta niður fangelsismúr-
ana — sem umlykja liugi manna,
— ekki þeirra, sem reist hafa
slíka veggi. Framtiðarvonir mann
kyns hafi ávallt byggzt á auk-
inni menntun, frjálsræði og víð-
sýni — á stöðugt meira einstakl-
ingsfrelsi.
á tvo menn.
Um kl. 7 í gærkvöld vildi það
slys til á Reykjanesbraut aS
bifreið ók aftan á tvo gangands
menn.
Bifreiðin R-7296 sem er 6-
manna fólksbifreið, kom ak-
andi norður Reykjanesbraut
og gengu mennirnir tveir á
vinstra kanti í sömu átt. Skipti
það engum togum að bifreiðin
lenti aftan á mönnunum, sem
féllu í götuna. Annar mann-
anna, Sveinn Hauksson, Lang-
holtsvegi 154, fótbrotnaði og
fékk áverka á höfuð, en hinn,
Ölver Waage, Skipholti 32,
meiddist á læri. Mennirnir voru
að koma frá vinnu. Kvaðst bíl-
stjórinn ekki hafa séð þá fyrr
en um seinan.
Kennarar við einkaskóla
séu launaðir af ríkinu.
Frumvarp um það á Alþingi.
Nýlega var lagt fram á Al-
þingl frumvarp til laga um
breytingu á lögum um einka-
skóla. — Flutningsmaður var
Bjarni Benediktsson.
í frumvarpinu segir að fræðslu-
málastjórn skuli heimilt, að
fengnum méðmælum hlutaðeig-
andi fræðsluráðs, að löggilda
barnaskóla, sem kostaðir eru af
einstökum mönnum og stofnun-
um, ef þeir starfa samkvæmt
reglugerð er hún samþykkir.
Skólarnir hlýti sömu reglum og
eftirliti og aðrir barnaskólar.
Kennarar verða að fullnægja öll-
um settum skilyrðum um rétt til
kennslu I barnaskólum. Ekki
þarf undanþágu fyrir böm er
sækja kennslu í skólum þessum,
en forstöðumaður skal í byrjun
hvers skólaárs senda hlutaðeig-
andi skólanefnd skrá yfir börn-
in og allar breytingar jafnóðum
og þær verða. Heimilt skal að
greiða laun fastra kennara við
skóla þessa úr ríkissjóði, enda
verði þeir ráðnir og launaðir
eftir sömu reglum og kennarar
barnaskóla. Að öðru leyti ber rík
issjóður engan kostnað af þessu
skólahaldi.
Lögin gangi í gildi 1. janúar
1958.
í greinargerð segir að það hafi
verið flutt á 2 þingum. 1 því
felist 2 breytingar frá núgildandi
lögum, þ. e. 1.) gert er ráð fyrir
því að til stofnunar einkaskóla
þurf; meðmæli hlutaðeig, freeðslu
ráBs og 2) fastir kennarar við
skóla þessa fái greidd laun úr
ríkissjöði eftir sömu reglum og
aðrir barnakennarar.
Einkaskólar hafi hingað til,
haldið uppi kennslu án styrks úr
ríkissjóði, og þannig létt undir
með sveitarfélögum og ríkissjóði.
En ef börn þau, sem nú stunda
nám í skólunum, hættu því,
mundi þurfa að fjölga kennur-
um í barnaskólunum í hlutfalli
við það. Því virðist það sanngirn-
ismál að komið sé á móts við
þessa skóla þannig að heimilt
verði að greiða laun fastra kenn-
ara við þá úr ríkissjóði eftir
sömu reglum og gilda um aðra
barnaskóla.
EídsvoHi í iiesct-
grdf.
KI. 17.34 í gær var slökkvi-
Mðið kvatt inn í Blesugróf.
Hafði kviknað þar í húsi við
B-götu, nr. 14, en það stóð autt.
Eigandinn, Sveinn Þorsteins-
son, var að vinna þar að inn-
réttingu. Húsið stendur áfast
við húsið Skuld.
Talsverður eldur var í auða
húsinu. Tókst að slökkva hann,
en skemmdir urðu miklar. Hús-
ið Skuld tókst að verja, en
rjúfa varð þakið á nokkrum
stöðum. Skemmdir urðu þarna
nokkrar af vatni.
Um eldsnpptök var ekki
kúnnugt, er blaðið-fékk fregn-
ar af bnmanum.