Vísir


Vísir - 23.11.1957, Qupperneq 1

Vísir - 23.11.1957, Qupperneq 1
•7. árg. ILaugardagmn 23. nóveunber 1957 276 tbl. NorðffienR Eeggja megháherzb á ffiarkaðsöfSun vestra. Ætla að auka auglýsingastarf til muna. f Parísarútgáfu New York Herald Tribune er birt skeyti frá Osio, sem beir með sér, að Norðmenn leggja megináherzlu á, að seija fiskafurðir sínar til Bandaríkjanna. Þar segir, að útflutningur frá ■Noregi á frystum fiski muni verða meiri í ár en nokkum tíma fyrr. Útflutningurinn er þegar orðinn meiri en hann var allt árið í fyrra (17 þús. lestir). Bandaríkin verða nú á þessu ári, í fyrsta sinn, stærsti kaup- andinn á frystum fiski frá Nor- egi. Einnig hafa Norðmenn afl- að sér nýrra markaða í Ástralíu og Afríku. Norðmenn áforma að auka mjög á þessu ári auglýsinga- starfsemina til þess að afla nýrra markaða fyrir frystan fisk. Tækið á myndinni er ekki fallbyssa af nýjustu gerð, þótt menn kyrinu að ætla það. Þetta er nefnilega kvikmyndavél, sem hefur sérstöku hlutverki að gegna — hún á að taka myndir af flugi eldflauga. Hefur 70 mm. kvikmyndavél verið komið fyrir í átta feta löngum stjörnusjónauka með 500 þumlunga „fókuslengd“, og getur tekið 60 myndir á sekúndu. Getur hún tekið myndir af eldflaugum í 80—150 km. fjarlægð. Stjórn FFSI vill, að togararnir fái að sigk Erfitt er að fá menn á skipin. Vísi hefur borizt eftirfarandi frá Farmanna- og fiskimanna sambandi Islands. „Stjórn FFSl skorar á rílds- stjórnina að hamla ekki aflasölu íslenzkra skipa erlendis, meðan áhafnir skipanna og útgerðar- menn telja sér það vænlegra." Gremargerð stjórnarinnar er á þessa leið: „Mikii mannekla er nú á ís- lenzka togaraflotar.um. og verð- ur að manna togarana að miídu leyti með útlendingum. Til þoss að menn þessir fáist, verður að greiða þeim káup í erlendum gjaldéyri. Þetta er misrétti, sem er ill- þolandi og auk þess til .þess fall- ið að skapa.gjaldeyrlsskovt. Ekki virðist vera auðvelt að manna síldarbátana og horfir það til stórvandræða. Þar sem svona er ástatt virð- ist ekki nein ástæða til að þvinga skipin til að landa innanlands í því skyni að auka atvinnu í landi. Meðan menn fást ekki á skipin er ekki þörf á að auka atvinnu í landi á kostnað þeirra. sem fiskveiðar stunda, með opin'ner- um aðgerðum." • Fyrir nokltmm ðögitm !; vi hollenzkt skip, Raki. tii Aiev- andriu í Egyptalandi. Egypzka lögreglan i;, . ‘ ; einn kyndarar.n, Lsi borgara. Ekki gáfu þr, - .joi-: aðra skýringu á hand . én að þeú „þyrftu að .yfir- ■ heyra“ manninn. Ný skrifstofa Loftteiða í Höfn. Skrifstofur Loftleiða í Kaup- mannahöfn hafa að undauförnu verið í stórri byggingu, sem Centrumgarden heitir og er hún við Vesíer-Farimagsgötu. Með vaxandi starfsemi varð húsnæðið of þröngt og tók félagið þá á leigu stærri salar- kynni í sama húsi, og voru skrifstofurnar opnaðar þar 8. þ.m. að viðstöddum mörgum gestum, er félagið hafði boðið, í þessu tilefni. Afgreiðslusalurinn nýi er skreyttur teikningum lista- mannsins Ib Antoni og sýna þær hina gömlu og nýju far- kosti norræna manna á leiðun- um milli Ameríku og Evrópu. Eru skreytingar þessar mjög smekklegar. Rúm 11 ár eru nú liðin síð- an fyrsta Loftleiðaflugvélin lenti í Kaupmannahöfn, en síðan hefur félagið haldið nær óslitið uppi áætlunarferðum milli Danmerkur og íslands. Flutningarnir hafa farið vax- andi að undanförnu. Forstjór i Danmerkurdeildar Loftleiða er nú H. Davids Thomsen, en auk hans vinna 7 manns við skrifstofu og af- greiðslustörf hjá félaginu í Kaupmannahöfn. Hneyksfisfréttin ntfssfi ntarks. Fregn frá Baltimore hermir, að *það kunni að koma ónotalega við lesendur helzta bókmennta- j blaðs Rússa, som birti fregn um það reginhneyksli, að Glass öldungadeildarþingmaður sé allt a£ fjarverandi frá störfum — að hann muni áreiðanlega verða fjarverandi áfram. í hneykslisfréttinni var sagt, að Glass hefði ekki sést í sæti sínu í þingsalnum í tvö ár, og embættismaður að nafni Smith orðið að taka á sig öll störf hans í Washington. Þannig, segir blaðið, er spillingin í Banda- ríkjunum: Þeir, sem eiga að semja lögin, koma hvergi nærri, en aðstoðarmenn þeirra ann- ast það, flytja ræðurnar fyrir þá og jafnvel greiða atkvæði fyrir þá. Um Carter Glass er það mn- ars að segja, að hann var um mörg ár öldungadeildarþing- maður fyrir Virginiufylki, en andaðdst fyrir rúmum áratug (1943). [yr Gengi punds er 2,80 dollar- ar, en Engíandsbanki segir, að það sé nú komið upp í 17/32 úr cent yfir skráð gengi! Howard Fast Eíklr kemgnánlsm- anisnt vfi fangeisl Var kommúnisíi í 13 ár - nýtur nú andlegs frelsis. Howard Fast, bandariski rit- höfundurinn, sem sagði sldiið við kommúnista, eftir að liafa verið í þeirra flokki í 13 ár, líkir hon- um við fangelsi, sem notað er til innilokunar fegurstu og djörf- ustu drauma mannkynsins". Hann segist nú aftur vera frjáls — í fyrsta skipti, eftir að hafa verið flokksbundinn komm- únisti á annan tug ára. Vonsvikinn og illa blekktur kveðst hann hafa verið og gerir hann grein fyrir þvi í nýút- kominni bók, og hvernig hann öðlaðist af nýju ást og traust á lýðræðinu. Bókinn nefnist The naked God“ (Hið nakta goð). Hann segir framtíðina þeirra, sem brjóta niður fangelsismúr- ana — sem umlykja liugi manna, — ekki þeirra, sem reist hafa slíka veggi. Framtiðarvonir mann kyns hafi ávallt byggzt á auk- inni menntun, frjálsræði og víð- sýni — á stöðugt meira einstakl- ingsfrelsi. á tvo menn. Um kl. 7 í gærkvöld vildi það slys til á Reykjanesbraut aS bifreið ók aftan á tvo gangands menn. Bifreiðin R-7296 sem er 6- manna fólksbifreið, kom ak- andi norður Reykjanesbraut og gengu mennirnir tveir á vinstra kanti í sömu átt. Skipti það engum togum að bifreiðin lenti aftan á mönnunum, sem féllu í götuna. Annar mann- anna, Sveinn Hauksson, Lang- holtsvegi 154, fótbrotnaði og fékk áverka á höfuð, en hinn, Ölver Waage, Skipholti 32, meiddist á læri. Mennirnir voru að koma frá vinnu. Kvaðst bíl- stjórinn ekki hafa séð þá fyrr en um seinan. Kennarar við einkaskóla séu launaðir af ríkinu. Frumvarp um það á Alþingi. Nýlega var lagt fram á Al- þingl frumvarp til laga um breytingu á lögum um einka- skóla. — Flutningsmaður var Bjarni Benediktsson. í frumvarpinu segir að fræðslu- málastjórn skuli heimilt, að fengnum méðmælum hlutaðeig- andi fræðsluráðs, að löggilda barnaskóla, sem kostaðir eru af einstökum mönnum og stofnun- um, ef þeir starfa samkvæmt reglugerð er hún samþykkir. Skólarnir hlýti sömu reglum og eftirliti og aðrir barnaskólar. Kennarar verða að fullnægja öll- um settum skilyrðum um rétt til kennslu I barnaskólum. Ekki þarf undanþágu fyrir böm er sækja kennslu í skólum þessum, en forstöðumaður skal í byrjun hvers skólaárs senda hlutaðeig- andi skólanefnd skrá yfir börn- in og allar breytingar jafnóðum og þær verða. Heimilt skal að greiða laun fastra kennara við skóla þessa úr ríkissjóði, enda verði þeir ráðnir og launaðir eftir sömu reglum og kennarar barnaskóla. Að öðru leyti ber rík issjóður engan kostnað af þessu skólahaldi. Lögin gangi í gildi 1. janúar 1958. í greinargerð segir að það hafi verið flutt á 2 þingum. 1 því felist 2 breytingar frá núgildandi lögum, þ. e. 1.) gert er ráð fyrir því að til stofnunar einkaskóla þurf; meðmæli hlutaðeig, freeðslu ráBs og 2) fastir kennarar við skóla þessa fái greidd laun úr ríkissjöði eftir sömu reglum og aðrir barnakennarar. Einkaskólar hafi hingað til, haldið uppi kennslu án styrks úr ríkissjóði, og þannig létt undir með sveitarfélögum og ríkissjóði. En ef börn þau, sem nú stunda nám í skólunum, hættu því, mundi þurfa að fjölga kennur- um í barnaskólunum í hlutfalli við það. Því virðist það sanngirn- ismál að komið sé á móts við þessa skóla þannig að heimilt verði að greiða laun fastra kenn- ara við þá úr ríkissjóði eftir sömu reglum og gilda um aðra barnaskóla. EídsvoHi í iiesct- grdf. KI. 17.34 í gær var slökkvi- Mðið kvatt inn í Blesugróf. Hafði kviknað þar í húsi við B-götu, nr. 14, en það stóð autt. Eigandinn, Sveinn Þorsteins- son, var að vinna þar að inn- réttingu. Húsið stendur áfast við húsið Skuld. Talsverður eldur var í auða húsinu. Tókst að slökkva hann, en skemmdir urðu miklar. Hús- ið Skuld tókst að verja, en rjúfa varð þakið á nokkrum stöðum. Skemmdir urðu þarna nokkrar af vatni. Um eldsnpptök var ekki kúnnugt, er blaðið-fékk fregn- ar af bnmanum.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.