Vísir - 14.04.1958, Qupperneq 7
Mánudaginn 14. apríl 1958
VÍSIB
2
FratfftíðsrskipEn rasinsékna
í þágy iSnaðarins.
Áherzla lögð á réttláta aðild Fél.
ísl. iðnrekenda.
Á síðasta ársþingi Félags ís-
lenzkra iðnrekenda var tekið fyr-
ir mál, sem er nijög’ þýðingar-
ínikið, og aðkallandi fyrir verk-
smiðjuiðnaðinn í landinu.
Málið fjallaði um nauðsyn
þess, að komið yrði á fót rann-
sóknarstofu, sem starfaði í
sem nánustum tengslum við hinn
íslenzka iðnað i landinu. Fram-
sögu um það mál höfðu þeir
Gúnnar J. Friðriksson fram-
kvœmdarstjóri og Bragi Ólafs-
son verkfræðingur.
1 framsöguræðum sinum gerðu
þeir glögga grein fyrir þvi,
livernig öllu rannsóknarstarfi í
þágu iðnaðarins er nú háttað.
Sú stofnun, sem starfrækt hefur
verið í sambandi við iðnaðinn er
Iðnaðardeild Atvinnudeildar
Háskólans. Deildin býr við
þröngan húsakost og hefur ekki
að neinu ráði getað sinnt hag-
nýtum rannsóknum í þágu verk-
smiðjuiðnaðarins. Töldu þeir að
v'issulega ætti það að vera hlut-
•verk Iðnaðardeildar Atvinnu-
deildarinnar að gefa sig að vís-
indalegum og tæknilegum vanda-
Tnálum iðnframleiðslunnar.
Er þeir höfðu gert grein fyrir
máli sínu, báru þeir fram eftir-
farandi ályktun, sem var sam-
þýkkt.
„Ársþing iðnrekenda telur nú-
værandi fyrirkomulag á almenn-
um og hagnýtum rannsóknum í
þágu atvinnuveganna næsta ó-
fullkomið og brýna nauðsyn beri
til að endurskipuleggja það og
endurbæta, svo að fé þvi, sem
varið er til rannsóknarstarfsemi
nýtist betur og komi að verulegu
gagni. Þingið fagnar að Atvinnu-
málanefnd hafi fengið það verk-
| efni að gera gagngerða athugun
á þessu máli og tillögum til end-
urbóta. Ársþingið telur að iðnað-
ardeild Atvinnudeildar Háskól-
, ans gæti unnið mikið og gagn-
legt starf í þágu iðnaðarins, um-
fram það, sem verið hefur á und-
anförnum árum, ef Iðnaðardeild-
in yrði tengd iðn^ði landsmanna
nánari böndum og samtökum
iðnaðarins veitt aðild að stjórn
og rekstri hennar. Þvi vill þing-
ið eindregið skora á Atvinnu-
málanefnd að gera hið fyrsta
drög að nýju lagafrumvarpi um
rannsóknarstörf í þágu atvinnu-
veganna og er Fél. íslenzkra iðn-
rekenda reiðubúið til samstarfs.
Á það er lögð sérstök áherzla
af þinginu um mikilvægi þess að
íslenzkur iðnaður geti stuðst við
vísindalegar rannsóknir, svo að
hráefni og mannafli verði nýtt
sem best, og hann gerður eins
samkeppnisfær og kostur er á.
Einkum verður þetta óhjákvæmi-
legt, ef i framkvæmd kemst hið
fyrirhugaða friverzlunarkerfi
Evrópu.“
I framhaldi af þessu var siðan
samþykkt að gera hið fyrsta til-
lögur til Atvinnumálanefndar
um framtiðarskipan rannsóknar
í þágu iðnaðarins og var lögð
áherzla á réttláta aðild Félags
íslenzkra iðnrekenda að stjórn
og rekstri þessarar stofnunar.
Garðyrkjumenn ræða
áhugamál sín.
Garðyrkjufélag íslands hélt
líýlega fræðslufund um garð-
yrkjumál (í Tjarnarcafé í Beykja
vík).
Formaður, Jón H. Björnsson,
skýrði fyrst frá starfsemi félags-
Ins, en það hefur s.l. ár m. a.
gengizt fyrir 11 útvarpsíyrir-
lestrum um garðyrkju, gefið út
garðyrkjuritið og unnið að því
að komið vei'ði á stofn grasa-
garði í Reykjavík. í vor mun
ikoma út matjurtabók.
Hafliði Jónsson, garðyrkju-
stjóri Reykjavíkur flutti erindi
um skipulag og ræktun lóða í
kaupstöðum. Taldi hann fulla
þörf á þvi, að settar yrðu reglur
um lóðirnar og staðsetningu
húsa á þeim, um leið og götur og
húsahverfi eru skipulögð.
Siðan sýndi Hafliði likan af
húsi og lóð í smáíbúðarhverfinu
í Reykjavík og rabbaði við fund-
armenn um skipulag og ræktun
slíkrar lóðar. Komu fram mörg
sjónarmið bæði leikra og lærðra
garðyrkjumanna, enda er smekk
ur manna að sjálfsögðu misjafn.
Paul Michelsen i Hveragerði
sýndi allmörg pottablóm og
kenndi verklega hvernig gróður-
3áta hrifningu sína betur í Ijósi
en á eftir Píanókonsertinum. j
Það má teljast góðs viti að
Þjóðleikhúsið hefur verið þétt-
skipað áheyrendum á undanförn j
um hljónrleikum, og ber vissu- j
lega að fagna því. — MBJ. j
setja skyldi og hafa pottaskipti
o. s. frv.
Hánn lýsti ennfremur hentug-
um jarðvegsblöndum handa inni-
jurtum, óburði, vökvun o. fl —
Mun P. Miehelsen eiga mikið úr-
val pottablóma.
Fundurinn var fjölsóttur og
mun félagið ætla sér að halda
fleiri fræðslufundi um garðyrkju
mál. Öllum er heimill ókeypis
aðgangur.
Kunnáttumenn í garðyrkju
munu jafnan vera á fundunum
og svara fyrirspurnum.
(Frá stjórn Garðyrkjufél. Is-
lands).
Sá sterkasti og sá
afhninnst!.
Sterkasti bílalireyfillinn í ame-
rísku bílxmum er i Ford Mercury
Park Lane. Hann er 405 hestöfl.
Þai- næst kemur Chrysler 300-D
með 395 liö. Afhninnstur er
hreyfillinn í Kanibler Ameriean,
90 hö.
Til samanburðar má geta þess
að sterkasti evrópski bílhreyfill-
inn er í Ferrari Super Fast (síð-
an hætt var að framleiða Mas-
erati, sem hafði 400 hö.) og er
hann 366 hö.
Cylindermál Marcurybílsins er
7 litrar, en Ferraribílsins 4,9
lítrar, og er hann auk þess mun
léttari.
Hinar heimsfrægu
legusmiðjur
I SCHWEINFURT
ERU
r *
ARA
1883- 1958
LEGUSMIÐJURNAR ERU ELZTI GG REYNDASTl
FRAMLEIÐANDI EVRDPU í
KÍLU- oq HULLULEGUM
MUNIÐ AÐ VDNDUÐUSTU VELAR GG TÆKI, SEM
FLYTJA5T FRÁ ÞÝZKALANDI ERU
BÚIN <£&> LEGUM
NDTIÐ ÞVI EINUNGIS
LEGUR
í VÉLAR YÐAR
Veitutn Lceknileqa aiiteí tiii tiat á leautn
AÐALUMBDÐ A ISLANDI FYRIR:
KIjGELFISOIER - GEOKG SCIIÁFER A CO.
SCHWEINFURT — ÞYZKALANDI
FÁLKIM H.F
VÉLADEILD
SÍMI: 1 B6 7B
REYKJAVÍK