Vísir - 02.06.1958, Blaðsíða 12
ö.'kert klað er édýrara I áikrift em Visir.
iiitð >«"■ fsera yður fréttir eg annaS
lukarcfni kelm — án fyrirkafnax il
rlir hálfo.
Síml 1-1«-*«.
TES
Míinið, að þeir, sem gerast áskrifendor
Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðil
ékeypis til mánaðamóta.
Súni 1-16-60.
Mánudaginn 2. júní 1958
Tilkynning gefin út im
. Verður 12 mílur frá grunnrmum, sem
kann að verða breytt.
Skrifstofa forsætisráðherra
tilkynnti í gær, að gert hefði
vcrið fyrir nokkru samkomulag
milli stjórnarflokkanna um
í'yrirhugaðar aðgerðir í land-
iieigismálinu.
Tilkynning ráðuneytisins var
á þessa leið:
„Samkomulag hefur verið
gert milli stjórnarflokkanna
um eftirfarandi:
Reglugerð um fiskveiðiland-
helgi íslands verði gefin út 30.
júní næstkomandi. í reglugerð-
innj. verði eftirfarandi efnis-
breytingar einar gerðar frá því,
sem nú gildir samkvæmt reglu-
gerð um verndun fiskimiða
umhverfis ísland nr. 21 frá 19.
marz 1952.
1.
Fiskiveiðilandhelgin skal
vera 12 sjómílur út frá grunn-
línum.
íglenzkum skipum, sem veiða
með botnvörpu, flotvörpu eða
dragnót; skal heimilt að veiða
innan fiskveiðalandhelginnar
en þó utan núverandi friðunar-
línu. Sérstök ákvæði skulu sett
um þessa heimild og tilgreína
nánar veiðisvæði og veiðitíma.
!
3.
I Reglugerðin skal öðlast gildi
1. september næstkomandi.
Tíminn þangað til reglugerð-
in kemur til framkvæmda. skal
notáðúr-til að vinna að skiln-
ingi og viðurkenningu á rétt-
mæti og nauðsyn stækkunar-
innar. Réttur til breytinga á
grunnlínum er áskilinn.
Þessi sameiginlega tillaga
hefur, eins og fyrr hefur verið
skýrt, verið,,lögð fyrir riefnd
allra þingflokka í máli þéssu
fyrir nokkrum dögum.“
Norðmenn gefa
Frá útiskemmíuninni á Austurvelli á sjómannadaginn,
Guðmundur Jónsson, óperusöngvari syngur.
Tveggfa daga hátíðaliöld í
Hafnarfirði nnt heigina.
Vígsla bæjarbókasafnsins og 50 ára
kaupstaðarafmæli.
Chtirchill
heiðraður.
í ráði er að stofna nýjan há-
skóladeild (college) í Cam-
bridge, sem á að heita Churchill
College, til heiðurs Sir Winston
Cliurchill og' í viðurkenningar-
skyni fyrir störf Imns í þágu
Breta og annarra þ.jóða og á-
huga hans fyrir menningu, vís-
indalegu Og tæknilegu náini.
Hafist verður handa um fjár-
söfnun og er ráðgert að safna
3.450 þús. stpd., en Churcill hef-
ur lofað 25.000 stpd. úr sjóði
þeim, sem stofnaður var í tilefni
af áttræðisafmæli hans. — Gert
ér ráð fyrir, að 70 af hverjum
300 nemendum í háskóladeild-
inni, leggi stund á visinda- og
tækninám.
Lengri er tilkynning þessi
ekki, en geta má þess, að Þjóð-
viljinn birti tilkynningu þessa
síðast liðinn miðvikudag, og er
ekki ósennilegt, að birting
blaðsins á þessu samkomulagi
héyri undir kafla hegningar-
lagánna, er fjallar um landráð.
Er þar greint frá viðurlögum
fyrir að ljóstra upp mikilvæg-
um málum gagnvart erlendum
ríkjum, en það var einmitt það
sem Þjóðviljinn gerði, þegar
hann rauk- til og skýrði frá
samkomulaginu, því að vissu-
lega kallast þar mikilvægt mál-
efni fyrir þjóðina. Er hér um
atriði að ræða, sem dómsmála-
ráðherra, sem jafnframt er
forsætisráðherra, verður að
athuga, ekki sízt þar sem
það var að beinu undirlagi-eins
af ráðherrunum, sjávarútvegs-
málaráðherrans, að blaðið birti
fregnina.
brögð ú eldi s görðn.
Slökkviliðið tvisvar kvatt á Austurvöll og
þrisvar í matjurtagarða um helgina.
Slökkviliðið í Reykjavík var
sjö sinnum Iivatt á vettvang' frá
því síðdegis á laugardaginn og
þar til kl. tæplega 7 í gærkveldi.
Á þessum tíma var slökkvilið-
ið tvívegis kvatt á Austurvöll. í
annað skiftið hafði kviknað í
blómum, en í hitt skiftið í mold-
arbeði og var orsökin talin vera
frá áburði — þ.e. tröllamjöli.
Samkvæmt upplýsingum frá
slökkviliðinu eru dæmi þess áð-
ur að kviknað hafi út frá trölla-
mjöli í görðum.
Þá var slökkviliðið kvatt um
„helgina i þrjá kálgarða hér i eða
við bæinn, en ekki var um tjón að
ræða sem neinu nemur.
Seint á laugardagskvöldið
kviknaði í mannlausum og læst-
um bíl, sem stóð á Hverfisgöt-
unni neðarlega. Vegfarandi sem
átti leið eftir 'götunni sá að log-
aði í aftursæti bifreiðarinnar og
gerði slökkviliðinu þegar aðvart.
Nokkrar skemmdir urðu á bíln-t
um.
Síðasta kvaðningin var í gær
að gömlum fjárhúskofa við Mela
braut á'Seltjarnarnesi. Hafði ver-
ið kveikt í kofanum en slökkvi-
liðið kæfði eldinn þegar i stað.
Nú lun lielgina voru tveggja
dága hátíðahöld í Hafnarfirði.
Yar þar slegið saman 50 ára
kaupstaðarafmæli Hafnarfjarðar
og sjómannadeginum.
' Hófust hátiðahöldin kl. 2 á
laugardag með vígslu hins nýja
bókasafns. Húsið er hið mynd-
arlegasta, tvær hæðir og mun
vera fyrsta húsið á Islandi, sem
reist er sem bókasafn. Við vígslu
athöfnina fluttu ræður Stefán
Júlíusson, formaður bókasafns-
nefndar, Stefán Gunnlaugsson
bæjarstjóri, ög A.nna Guðmunds-
dóttir bókavörður.
) . 1 gærmorgun kl.1-0 hófust svo
aftur hátíðahöld með messu í
báðum kirkjunum. Þá höfst
skrúðganga kl. 1.30 og nam hún
staðar á hátíðasvæði við Strand-
götuna. Formaður hátíðanefnd-
•ar, Kristinn Gunnarsson setti
| skemmtunina, en síðan flutti
(bæjarstjóri ræðu. Þá fóru fram
ýmsar skemmtanir m.a. hand-
knattleikskeppni milli Hafnfirð-
inga og KR og sigruðu Hafnfirð-
ingar með 16 gegn 14. Þá var
reipdráttur milli kvenna úr
j „Hraunprýði“ og skipstjóra og
j sigruðu konurnar. Þá fór fram
j fimleikasýning, Karlakórinn
Þröstur söng undir stjórn Páis
ICr. Pálssonar, en lúðrasveit lék
milli atriða.
Klukkan 5.30 var hátíðafund-
ur bæjarstjórnar og var þar sam
þykkt að láta gera minnismerki
sjómanna. Gestir vinabæja fluttu
Hægriflokkar unnu
á í Belgíu.
Hægriinenn hafa nnnið mikið
á í þingkosningum í Belgín.
Lokaúrslit eru ekki enn kunn,
en víst er, að það er á kostnað
jafnaðarmanna og lýðveldis-
sinna, sem þeir hafa bætt að-
stöðu sína.
Viðburðirnir í Frakklandi og
líkurnar, að De Gaulle kæmist
aftur til valda, munu hafa haft
sín áhrif í kosningunum.
ræður og færðu afmælisgjafir,
Forseti íslands og frú heiðruðu
fundinn með nærveru sinni.
I gærkvöldi flutti Emil Jóns-
son afmælisræðu. Þá fóru fram
fimleikar kvenna. Guðmundúr
!Jónsson og Þuríður Pálsdóttir
J sungu einsöngva og tvísöngva.
Þá fór fram glímusýning og að
lokum var dansað á tveim stöð-
um til kl. 2 í nótt.
I J
l Mikill mannfjöldi var við ha-
tíðahöldin bæði úr Hafnarfirði
og víðar að.
Frá fréttaritara Vísls —
Osló í gær.
Timburflutningar til fslands
frá Noregi voru eitt af því sem
tekið var fram í Gamla sattmála.
Þörf íslendinga fyrir timbur er
enn hin sama, og enda þótt 700
ár séu liðin frá því að þessi sáít-
máli var gerður milli frændþjóð-
anna lialda timburfiutningarnir
áfram, en þó með nokkuð "öðr-t
um hætti en áður.
í fyrra sendu Norðmenn ls-
lendingum að gjöf 3000 gifðing-
arstaura. 1 ár verða sendir 1400
staúrar og á þessu ári eru það
bændur i Kvinneherad sem senda
stauranna, sem ákveðið hefur
verið að senda með m.s. Heklu
í sumar. Þeir sem hafa beitt sér
fyrir staurasöfnuninni að þessu
sinni eru Per Haugland skógar-
vörður og rithöfundurinn Ragn-
vald Vaage.
Það eru margar sveitir á Hörða
iandi sem hafa safnað staurum
að senda til íslands og er staura-
talan komin upp í 8000 i sumum.
sveitum. Það skortir ekki áhug-
ann til að safna stauranna, en
það skortir skipulag til að fram-
kvæma verkið.
Norðmenn skilja vel hve mik-
ils virði það er fyrir þjóð, sem
ekki hefur nytjar af skógi að fá
girðingarstaura, og menn gera
sér Ijóst að án þess að geta girt
af skógræktarsvæði er skógrækt
á íslandi ekki framkvæmanleg.
De Gaulle hefur tekið við.
Fær fullt vald í misseri. - Þjóðaratkvæfti
um stjórnarskrárbreytmgu.
Fulltrúadeild franska þjóð-
þingsins vottaði í gær De
Gai'lle traust sitt sem forsætis-
| ráðherraefni með 329 atkvæð-
um gegn 224. Ýmsir jafnaðar-
! menn greiddu atkvæði gegn
honum. — Þjóðaratkvæði á
j fram aö fara um breytingu á
stjórnarskránni. De Gaulle fær
fullt vald i misseri og liafði
þingnefnd frumvarp um það
efni til áthugunar j alla nótt.
De Gaulle mun fara til Alsír á
morgun.
Yfirleitt virðist mönnum í
Frakklandi og út um heim létt-
ir að því að stjórnarkreppan er
farin hjá garði, cg' einkum
vegna þess, að De Gaulle gat
tekið við forustunni friðsam-
lega. Menn g'era sér Ijóst, að
öll hætta er ekki úr sögunni,
en ekki kcm til hættulegra
uppþota í París í gær, þótt
vinstrisinnar söfnuðust saman
og færu í hópum og létu all-
ófriðlega. Lögreglan vopnuð
kylfum dreifði hópunum.
De Gaulle
ávarpar þingið.
Coty forseti kynnti De Gaulle
fyrir þingheimi. — De Gaulle
ávarpaði þingið og var ræða
hans stutt. Hann fór fram á
fulit vald sér og stjórn sinni
til handa í misseri. Stjórnar-
skrárbreytingu kvaðst hann
mundu leggja undir þjóðar-
atkvæði. Að ræðunni lokinni
gekk hann hvatlega úr þing-
salnum.
Fyrsta verkið.
En De Gaulle sigraði og
fyrsta verk hans var að leggja
ráðherralista sinn fyrir Coty
forseta, en í stjórn hans eiga
15 menn sæti, þeirra meðal
Pflimlin fyrrv. forsætisráð-
herra, en hann er úr Þjóðlega
lýðveldisflokknum, og Guy
Framh. á 7. síðu.
Nú eru aðeins 9 dagar þar til
dregið verður í happdrætti Sjálf-
stæðisflokksins.
Allt sjálfstæðisfólk er vinsam-
lega minnt á að gera skil á heim-
sendum miðum sem fyrst. Skrif-
stofa happdrættisins er opin til
kl. 5 í dag. Sótt heim ef óskað er.
Happdrætti Sjálfstæðisflokksins.