Vísir


Vísir - 04.06.1958, Qupperneq 7

Vísir - 04.06.1958, Qupperneq 7
Miðvikudaginn 4. júní 1958 VlSIB Æ*/fíðleitihú.v£ð: „Kyssíu sis'g KaSa", fénilst sf textar eftír Cob Porter. Leiksíjóri Sven Aage Larsen. Þjóðleikhúsið sýnir um þess- ar mundir amerískan gaman og söngleik, Kysstu mig, Kata. Tónlist og söngtextar eru eftir Cole Porter, en texti eftir Samuel og Bellu Spewack. Höfundur laga og ljóða, Cole Porter er orðinn mjög þekktur í heimalandi sínu og hefur samið ljóð og lög við marga gaman-söngleiki. Meðal þeirra söngleikja, sem eftir hann liggja, eru „The Gay Diverocel“ „Anything Goes“, „Jubilee“, „Red Hot and Blue“, „Leave it to me“, „Panama Hattie“, og „Something for the Boys“ svo að eitthvað sé nefnt. En söng- leikurinn, sem Þjóðleikhúsíð sýnir núna, Kystu mig, Kata, hefur orðið einna vinsælastur allra söngleikja hans og hefur verið sýndur bæði vestan hafs og austan. Hann hefur verið sýndur á öllum 'Norðurlöndum, en auk þess í París, Vínarborg, Berlín, Amsterdam og London. Söngleikurinn er byggður á leikriti Shakespeares „The Taming of the Shrew“ eða „Svarkurinn taminn“ og gerist í leikhúsi, þar sem verið er að sýna þetta leikrit, en aðalleik- endurnir, Lilli og Fred voru einu sinni hjón. Er leikriti Shakespeares ofið inn í deilur þessara fyrrverandi hjóna á hinn skemmtilegasta hátt. En að lokum tekst að temja svark- inn. Frumsýning Þjóðleikhússins á þessum skemmtilega söngleik tókst einkar vel og var í alla staði. hin glæsilegasta, enda mun ekkert hafa verið til þess sparað, að gera hana sem bezt úr garði. Aðalheiðurinn af því ber leikstjóranum, Sven Agc Larsen, sem hefur sett leikinn á svið af mikilli kunnáttu og smekkvísi. Hraði og nákvæmni var með ágætum. Þá eru þarna ágætir dansar, eftir danska ballettdansarann Svend Bunch, sem einnig dansaði þarna af- burðavel. Hinn ameríski hljóm- sveitarstjóri Saul Schechtman, sem æfði hljómsveitina og stjórnaði herfni, skilaði einnig sínu verki með mikilli prýði. Þá aðstoðaði einnig Þjóðleikhús- kórinn, en honum hefur stjórn- að Magnús Bl. Jóhannsson. Á sviðinu bar hita og þunga kvöldsins Jón Sigurbjörnsson. Hann hefur breiða og volduga söngrödd og leikur einnig á- I gætlega. Hin sænska óperettu- , söngkona, Ulla Sallert, sem | söng hlutverk Lilli Vanessi sem gestur, virðist jafnvíg á söng i og leik og var frammistaða. hennar meS ágætum. Sigríður Þorvaldsdóttir var fremur dauf’ en náði sér þó ágætlega á striki í einu atriðinu. Rödd Árna Jóns sonar, sem fór með hlutverk Bills, er hljómfalleg og skær, en fi-emur „spinkel“ og kveður lítið að henni. Leikur hans var einnig fremur daufur, en hann er viðkunnanlegur á sviði og á vafalaust eftir að vaxa fiskur um hrygg. Rúrik Haraldssor fór með hlutverk Harrison Howell’s á bráðskemmtilegar hátt. Sömuleðis skilaði Valde- mar Helgason hlutverki Harry Trevor’s af prýði. En alveg í sérflokki voru Ævar Kvaran og Bessi Bjarnason sem fyrsti og annar bófi. Leikur þeirra og söngur var bráðskemmtilegur og samleikur þeirra hreinasta afbragð. Klemenz Jónsson fór þarna mjög snoturlega með lítið hlutverk. Aðrir leikarar voru Helgi Skúlason, Erlingur Gíslason, Anna Guðmundsdótt- ir og Haraldur Einarsson. Dansfólkið úr Ballettskóla Þjóðleikhússins puntaði mikið Uíla Sallert sem Kata. upp á sýninguna og sólódansmjög smekkleg og báru vott um Bryndísar Schram var með á-ágæta kunnáttu. gætum. Karl ísfeld. Leiktjöld Lothar Grunds voru Þrjú umferðarslys í gær. Ivær bifreiðir skemmast af eldi í nótf. Þrjú umferðarslys u.rðu hér í bænum í gær og í tveimur tilfellanna var um beinbrot að ræða. I | Um klukkan 4 í gærdag varð í drengur, Þorvarður Jónsson ' Nökkvavogi 15 fyrir bíl á Langholtsvegi og bæði hand- leggs- og fótbrotnaði. Á mótum Skólavörðustígs og Bankastrætis varð umferðar- slys litlu síðar. Unglingspiltur Jón Sören Jónsson varð fyrir . bíl og fótbrotnaði. Þriðja slysið varð í gær- | kvelöi, laust fyrir kl. 10 á mót- | um Hverfisgötu og Vitastígs. . Þar varð maður, Sigurður Daníelsson að nafni fýrir bíl og meiddist á læri. Sjúkrabílar fluttu alla hina slösuðu í Slysavarðstofuna. Kviknar í tveim bifreiðum. í nótt var slökkviliðið tví- vegis kvatt á vettvang vegna elds í bifreiðum. Fyrra skiptið laust fyrir kl. 4, en þá hafði lcviknað í bílnum R-8373, sem stóð við Fossvogskirkjugarð. Smávegis skemmdir urðu á bílnum. Nokkrum' mínútum seinna kviknaði í bíl á Nýbýlavegi. Þar var eldur í dekki á vinstri afturhjóli bílsins R-4099, en eldurinn komst þaðan upp í aftursæti og bak bifreiðarinn- ar og skemmdist hún allmikið. Auk þessa var slökkviliðið kvatt út þrívegis s.l. sólár- hring. Fyrst að vélbátnum Auði Re-100, sem lá við Grandagarð. Hafði verið unnið með logsuðutækjum í bátnum Orðsending. - Framh. af 1. síðu þjóðar til fiskveiða utan þriggja mílna landhelgi, og var þetta ítrekað síðar um daginn af tals- manni franska utanríkisráðu- neytisins, sem sagði, að franska stjórnin féllist ekki á einhliða ákvörðun íslenzku ríkisstjórn- arinnar um útfærslu landhelg- innar og bann við veiðum er- lendra togara innan nýju mark- anna. Talsmaðurinn kvað Frakka þó fúsa til viðræðna um þessi mál við aðrar þjóðir, sem hér ættu hlut að máli,ogmyndu þær krefjast þess, að þannig yrði frá málum gengið, að allir gætu við unað. Blaðið Yorkshire Post, sem er íhaldsblað, segir í morgun, að heppilegra myndi, að gert yrði út um slík mál sem þessi á viss- um svæðurn af þeim þjóðum, sem mestra hagsmuna eiga að gæta, heldur en að útkljá þau á alþjóða vettvangi. Þá kemur fram í blaðinu uppástunga um, að íslendingar og brezkir tog- araeigendur reyni að komast að samkomulagi í málinu. (Vafa- laust eru það skoðanir brezkra togaraeigenda sjálfra, sem hér eru túlkaðar, enda hafa þeir löngum litið á sig sem eins kon- ar stórveldi, og alkunn er af- staða þeirra í löndunarbanns- deiluni, er þeir yirtust ætla, að allar deilur um landhelgina þá mætti leysa með samkomulagt milli íslendinga og þeirra.) Bonn setur markið hátt. Ætlunin er, að um 80.008 menn verði í flugher V.-Þýzka- lantls eftir 5 ár. Á flugher sambandslýðveld- isins þá að vera fullskipaður, og mun hann þá hafa á að skipa 2700 flugvélum af öllum stærðum og gerðum. Á þessu ári verður lokið við að skipu- leggja þrjár sveitir orustuflug- véla og eina sveit sprengju- flugvéla. Tékknesk'.r strigaskór kyenna eftir hádegið í gær, en neisti | komist milli þilja og valdið þar íkveikju. Búið var að, ] slökkva þegar slökkviliðið komi á staðinn. Mikið úrval. 1. leikur fcr fram á íþróttavellinum í kvöld kl. 8,39 e.h. Þá leika iliir j F.C. og lí.11 Komið og sjáið ensku knattspyrnusnillingana. — Aðgöngumiðar verða selöir á Iþrótta- veíIiiUMn frá kl. 1 e.h. leikdaginn. — Verð: S.úkusæti kr. 40,00. — Síólar kr. 30,00. — Stæði kr. 20. — Börn kr. 5,00. KNATTSPYRNUFÉLAG REYKJAVÍKUR.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.