Vísir - 15.09.1958, Blaðsíða 2
&
V 1 S I R
. Mánudaginn 15. september 1953"
"Útvafpið í kvöld:
20.30 Um daginn og veginn
, (Vilhj. S. Vilhjálmsson rit-
' höfundur). 20.50 Tvísöngur:
, Margherita Carosio og Carlo
, Zampighi syngja (plötur).
] 21,10 Erindi (endurflutt):
íslandsráðherra í tukt
j húsið1*1 — Kosningahríðin á
] íslandi 1908 og Albertímál-
ið; II (Helgi Hjörvar). 21.45
i Tónleikar (plötur). 22.00
Fréttir, íþróttaspjall og veð-
! urfregnir. 22.15 Búnaðar-
; þáttur: Landbúnaður á
1 kjarnorkutímum (Gísli
] Kristjánsson ritstj.). 22.35
, Kammertónverk, hljóðrituð
] á tónlistarhátíð Alþjóða-
sambands nútímatónskálda í
Strasburg í júní — til 23.10.
Bréf frá Japan.
Hingað til blaðsins hefur
borizt bréf frá ungri stúlku í
Japan, sem vill komast í
bréfasamband við jafnaldra
hér á íslandi. Hún heitir ung
i frú Misa Murase, er 21. árs
og búsett í Tokyo. Hún hefur
mikinn áhuga fyrir íslandi
’ og hefur meðal annars lesið
„Sjálfstætt fólk“ Kiljans í
enskri þýðingu. Hún hefur
trú á þvf að bezta leiðin til
j þess að skapa skilning á milli
fjarlægra þjóða sé fólgin í
því að kynna sér siði þeirra
og venjur. Helztu áhugamál
] hennar eru bækur, hljómlist,
kvikmyndir og hagfræðileg
málefni. Hún stundar nám
við háskóla í Tokyo. Ungfrú
] Murase skrifar lýtalausa
ensku, og heimilisfang henn-
ar er Miss Misa Murase,
57-1 Nishiogikubo, Sugin-
ami-Ku, Tokyo, Japan.
lEvrópusamkeppni.
Eins og áður hefur verið
sagt frá í, blöðum og útvarpi
hafa Evrópusamtökin þrjú,
Evrópuráðið, Efnahagssam-
vinnustofnun Evrópu og
Evrópusamfélagið svo-
: nefnda, efnt til samkeppni
meðal evrópskrá Ijósmynd-
ara, sem yngri eru en tutt-
ugu ára. Keppni þessi átti að
standa til 15. sept., en skila-
frestur hefur nú verið lengd-
ur til 19. okt. 1958, fyrir á-
skoranir margra aðila. Efni
keppninnar er: „Evrópa,
eins og hún kemur mér fyrir
sjónir“, og eiga myndirnar
að lýsa að einhverju leyti
hugmynd þátttakenda um
sameiningu Evrópu. Mynd-
] irnar eiga að vera svart-
hvítar, ekki minni en 9X9
cm. og ekki stærri en 18X
24 cm. Þátttakandi velur
mynd sinni heiti og ritar það
aftan á myndina ásarnt nafni
sínu, heimilisfangi, aldri og
þjóðerni. Ennfremur á að
fylgja myndinni stutt setn-
ing er lýsi hugmynd þátt-
takanda um sameiningu
Evrópu og á hún ekki að
vera lengri en tuttugu orð.
20 þúsund verðlaun eru í
boði þeirra á meðal flug-
ferðir innan Evrópu, Ijós-
myndavélar og ýmisskonar
útbúnaður til myndatöku.
Myndirnar skulu sendar til
„Evrópusamkeppninnar í
Ijósmyndum, co. Aðalskrif-
stofa Ríkisútvarpsins, Thor-
valdsensstræti 4, Reykjavík,
fyrir 19. okt. næstk.
Tímarit Iðnaðarmanna,
5. hefti 31. árgangs hefur
borizt blaðinu. Aðalefni
blaðsins er skýrsla stjórnar
Landssambands iðnaðar-
manna yfir starfstímabilið
nóvember 1957 til júní 1958.
Þá eru birtar samþykktir
tuttugasta Iðnþings íslend-
inga og loks . er grein um
Iðnaðarmannaíélag ísfirð-
inga sjötugt.
Veðrið:
í morgun var SSV 3 og 9 st.
hiti í Reykjavík. Horfur:
Sunnan eða suðvestan kaldi
og skýjað. Úrkomulaust að
mestu. Vaxandi suðaustan
átt í nótt. Allhvasst og rign-
ing í fyrramálið.
IfrjjAFÞÓR ÓUMUNPSSON
ýœAd&s'&i. h . ó'óní 23970
INNHE'MTA
LÖGFHÆ.QI3TÖHF
Nærfatnaður
karlmanna
«g drengja
fyrirliggjandi.
L.H. MULLER
Jóhan Rönning h.f.
Raílagnir og viðgerðir á
öllum heimilistækjum. —
Fljót og vönduð vinna
Sími 14320.
Jóhan Rönning h.f.
fatnaði
Hafnarfirði.
Svefnherbergishúsgögn
úr Ijósu birki.
Skókassar
Innskotsborð
Sófaborð
Blómaborð
BÓLSTURGERÐIN H. F.
Skipholti’19 — Sími 10388.
ÍftlimtiMai dwminqA
Mánudagur.
258. dagur ársins.
Árdegisflæði
kl. 07.17.
Slökkvistöðin
hefur sima 11100.
Næturvörður í dag.
Ingólfs Apótek, sími 11330.
Lögregluvarðstofan
feefur síma 11166.
Slysavarðstofa Reykjavíkur
I Heilsuverndarstöðinni er op-
In allan sólarhringinn. Lækna-
vörður L. R. (fyrir vitjanir) er á
«ama stað kL 18 til ki.8.— Sími
15030.
1 , L jósatírni
þifreáða og annarra ðku'
yerður kl. 20.25—6.20.
Árbæjarsafn
OpiO daglega nema mánudaga,
kl. 2—6 e.h.
Landsbókasafnið
er opið alla virlta daga frá kl.
10—12, 13—19 og 20—22, nema
laugardaga, þá frá kl. 10—12 og
13—19.
I>,j óðm i n j asai'mð
Listsafn Einars Jónssonar
Hnitbjörgum, er opið kL 1,30—
3,30 alla dagæ
er opiB á þrfðjud.. Finamtud.
og laugard. kl. 1—3 e. h. og á
sunnudögum M, 1—4 e. h.
Tæknibókasafn L.USJ.
I Iönsjjtflapum .«rj»oS8,fcá..M.
1-16 é. hl álla yfcka daga nema
iaugardaga.
Bæjarbókasafn Reykjavíkur
sími 12308. Aðalsafnið Þingholts
stræti 29A. Utlánsdeild: Opið alla
virka daga ld. 14—22, nema laug-
ardaga. kl. 13—16. Lesstofa: Op-
ið alla virka daga kl. 10—12 og
13—22. nema laugardaga kl. 10
—12 og 13—16. — Otibúið Hóhn-
garði 34.0tlánsd. fyrir fullorðna:
mánud. kl. 17—21, .miðvikud. og
föstud. kl. 17—19. Utlánsd. fyrir
börn: mánud.. miðvikud. og föstu
daga kl. 17—19. — Otibúið Hofs-
vallagötu 16. Otlánsd. fyrir böm
og fullorðua alla virka daga
neraa laugardá^a kl. 18—19. —
Útibúið Efstasundi ,26. Útlánsd.
fyrir börnpg fullorðna, mánud.,
miðvikudaga og föstud. kL 17—19
Biblíulestur: Jónas 2.1—11.
Hjálpræðið kemur frá Drottni.
Halló, manni.
I Komdu sæll.
I Er tombóla?
Nei, af hverju heldurðu
það?
Eru ekki tombólurnar hér
alltaf?
Jú, en aðeins á veturna.
Hvað. er, núna?
Það er málverkasýning?
Hvað er það?
Það er verið að sýna.mynd-
ir, sem hafa verið málaðar
—pg teikningar.
Má ég sjá?
Já, gjörðu svo vel.
Eru myndir af hestum og
beljum og svoleiðis?
Nei, það er nú lítið um það.
Hver bjó myndirnar?
Ég gerði það.
Af hverju ertu með svona
skegg?
Ja, ég veit það eiginlega
ekki. Ég lét það bara vaxa.
Eru allir menn með svona
skegg, sem búa til myndir?
Nei, ekki nærri allir.
Nei, sjáðu þessa mynd.
,Hún ,er eins og margir litlir
eldspýtustokkar, allavega lit-
ir.
Kannske eru þetta líka eld-
spýtustokkar, ég hefi aldrei
komið auga á það fyrr.
Af hverju eru ekki myndir
af, hestum og beljum og íólki
og strákum og svoleiðis?
Ég mála aldrei svoleiðis
myndir.
Þekkirðu ekkert 'fólk og
.hesta til að mála?
Jújú, en það ,eru aðrir, sem
mála það. Ég mála bara
svona. Allavega lita eldspýtu-
stokka, litla og stóra.
Nei, heyrðu þarna er ein
mynd af konu?
Já, reyndar. Þetta var göm-
ul kona, sem ég þekkti i Þing-
holtunum.
Svakalega er hún krumpuð
í framan. Þú hefðir átt að
straua hana áður en þú bjóst
til myndina.
Ég hugsa að hún hefði nú
ekki orðið hrifin af því.
Jæja, bless manni. Ég er að
fara í skólann. Ég er í sjö
ára bekk. Veiztu hvað fimm
og sex eru?
Já, það eru ellefu.
Þakka þér fyrir, þá er ég
búinn með öll dæmin. Bless.
essg.
Starfsstúlkur óskast
Starfsstúlkur óskast í eldhús Kleppsspítalans nú þegar eða
um næstu mánaðamót. Upplýsingar veitir matráðskonani
í síma 34499.,
Skrifstofa ríkisspííaianna.
til afgreiðslustarfa.
Austurstræti.
Maðurinn minn
ÞORSTEINN JÓNSSON
bátsmaður,
er andaðist að heimili sínu Skólavörðrstíg 24 A 5. september
verður jarðsettur frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 16.
september kl. 13,30.
Athöfninni útvarpað. Blóm vinsamlega afþökkuð. Þeir, sem
vildu minnast hins látna láti líknarstofnanir njóta þess.
Fyrir hönd vandamanna.
Þorbjörg Grímsdóttir.
Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir
GUÐRÚN JÓHANNA JÓNSDÓTTIR
Framnesveg 46,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni £ Reykjavík þriðju-
daginn 16. sepíember n.k. kL 2 e.h.
Bára Jóhannsdóttir,
Gunnar Jóhamisson
U (ScúííFíEii-Tvr
Gimnar Eggertsson,
Guðrún Guðmundsdóttir