Alþýðublaðið - 15.03.1958, Blaðsíða 11
Laugardagur 15. marz 1358
AlþýðublaSiS
11
fjörðum. Skjaldbreið er á I-’ing-
J. IVlagsús BjaraasoRi
Nr. 52,
IRIKUR HANSSON
Skáldsaga frá Nýja Skotlandi.
S
$
s
s
s
s
s
s
s
s
s
í DAG er laugardagurinn, 15.
marz 1958.
Slysavarðstefa Kcys^rTkíor er
opin allan sólarhringinn. Nœtur-
læknir L.R. ki. 13—8. Sími
15030.
Eftirtalin. apótek eru opin lcl.
9—20 alla daga, nema laugar-
daga kl. 9—16 og sunnudaga kl.
13-—16: Apótek Austurbæjar
(sími 19270), Garðsapótek (sími
34006), Holtsapótek (sími
33233) og Vesturbæjar ápótek
(Simi 22290).
Bæjarbókasafn R^ykjayikar,
Þingholtsstræti 29 A, • sími
1 23 03. Útlán qpið virka daga
kl. 2—10, laugardaga 1—4. Les-
stofa opin kl. 10—12 og 1—10,
laugardaga kl. 10—12 og 1—4
Lokað á sunnudögum yfir sum-
armánuðina. Útibú: Hólmgarði
34 opið mánudaga, miðvikudaga
og föstudaga kl. 5—7; Hoísvaiia
götu 16 opið hvern virkan dag
nema iaugardaga kl. 6—7; Eísta
sundi 36 opið mánudaga, mið-
vikudaga og föstudaga kl. 5.30—
7.30.
FLUGFEEÐIR
Flugféiag Xslands h.f.:
Millilandaflug: Hrimíax: fer
tii Oslo, Kaupmannahaínar og
Hamborgar kl. 08,30 í dag. Flug
v-élin er væntanleg aftur til .Rvk.
kl. 16.10 á morgun. — Ihnan-
landsflug: í dag er áætlað að
fljúga til Akureyrar (2 ferðir),
Blönduóss, Egilstaða, ísafjarðar,
Sauðárkróks, Vestmannaeyja og
Þórshafnar. — Á morgun er á-
ætlað að fljúga til Akureyrar og
Vestmannaeyja.
. Loftleiðir h.f.:
Edda kom til Reykjavíkur kl.
07.00 í morgun frá New York.
Fór til Oslo, Kaupmannahaínar
og Hamborgar kl. 18.30. Hekla
er væntanleg til Reykjavíkur kl,
18.30 frá Hamborg, Kaupmanna
höfn og Oslo. Fer til New York
,kl. 20.00.
SKIFAFRÉTIÍE
Eimskipafélag íslands h.f.:
Dettifoss fór frá Gdynia 13.3.
til Ventspils, Turku og Réykja-
víkur. Fjallfoss kom íil Kaup-
mannahafnar 13.3. fer þaðan 15.
3. til Gautaborgar og Réýkja-
víkur. Goðafoss er í Keflavik fer
þaðan til Patreksfjarðar, Flateyr
ar, ísafjarðar, Vestmannae.vja og
Reykjavíkur. Gullfoss fer frá
Leith í dag 14.3. til Reykjavíkur.
Lagarfoss fer frá Bíldudal í dag
14.3. til Flateyrar, Sig'ufjurðar,
Dalvíkur, Akureyrar, Húsavik-
ur, ísafjarðar og Reykjavíkur.
Reykjafoss er í Hamborg. Trölla
foss fór frá New York 11.3. til
Reykjavíkur. Tungufoss fór frá
Hamborg 11.3. til Veslmanna-
eyja og Reykjavíkur.
Skipaútgerð ríkisins:
Hekla fer frá Akureyri í dag
á-vesturleið: Esja er ó Þingeyri
og losar vörur í Skjaldbreið,
vegna bilunar. Herðubreið kom
til Reykjavíkur í gær frá Aust-
.eyri og lestar vörur úr Esju. til
Norðurlandshafna. Þyrill er i ol-
íuflutningum á Faxaflóa. Skaft-
fellingur fór frá Reykjavík í gær
til. Vestmannaeyja.
Skipadeiid S.Í.S.:
Hvassafell fór 13. þ. m. frá.
Stettin áleiðis til Akureyr.ar. —
Arnarfell kemur í kvöld til Rvk.
frá New York. .Jökulfell er í
Reykjavík. Dísarfell er í Borg-
arnesi. Litlafell er í Rendsburg.
Helgafell fór frá Reykjavík 13.
þ. m. áleiðis til Kaupmannahafn
ar, Rostock og Hamborgar. —
Hamrafell er í Batum.
FCNDIK
Kvenfélag Alþýðuflokksins í
Hafnarfirði heldur aðalfund n.
k. þriöjudagskvöld kl. 8,30 í Al-
þýðuhúsinu við Strandgötu. -—
Fundarefni: Inntaka nýrra fé-
laga og venjuleg aðalfundar-
störf.
M E S S U R Á M O R G U N
Neskirkja: Barnamessa kl.
10.30 árd. Messa kl. 2 e. h. Séra
Jón Thorarensen.
Háteigssókn: Messa í hátíðar-
sal háskolans kl. 2. Barnaguðs-
þjónusca kl. 10.30 árd. Séra Jón
Þorvarösson.
Hallgrímskirkja: Messa. kl. 11
f. h. Sera Sigurjón Þ. Árnason.
Barnaguösþjonusta kl. 1.30 e. h.
Séra Björn H. Jónsson.
Langholtssókn: Barnaguðs-
þjónusta í Sjómannaheimilinu
kl. 10 árd. Messa í Laugarnes-
kirkju kl. 5 e. h. Séra Árelíus
Níelsson.
Fríkirkjan: Messa kl. 5. Séra
Þorsteinn Björnsson.
Hafnarfjarðarkirkja: lVIessa
kl. 2 e. h. Séra Garðar Þorsteins
son.
Bústaðaprcstakall: Messa í
Háagerðisskóla kl. 2 e. h. Barna
guðsþjónusta á sama stað kl.
10.30 f. h. Séra Gunnar Árna-
son.
Dómkirkjan: Messa kl. 11 árd.
Séra Óskar J. Þorláksson. Síð-
degismessa kl. 5. Séra Jón Auð-
uns. Barnasamkoma í Tjarnar-
bíói kl. 11 árd. Séra Jón Auðuns.
Laugarneskirkja: Barnaguðs-
þjónusta kl. 10.15. Messa kl. 2
e. h. (Altarisganga). Séra Garð-
ar Svavarsson.
Kvenfélag NessafnaSar. Bazar-
inn er í dag, laugardag 15. marz
í félagsheimilinu í kir-kjunnL og
hefst kl. 2.30. Margir ágætír
munir við vægu verði.
Barnasamkoma verður í Guð-
spekifélagshúsinu á morgun,
sunnudaginn 16. marz og hefst
hún kl. 2 e. h. Svavar Fells segir
börnunum sögu Guðrún Árna-
dóttir leikur á -hljóðfæri og
stjörnar söng barnanna, Þá verð
ur danssýning (Stjörnudans),
undir stjórn frú Guðrúnar Ní-
elsen leikfimiskennara. A-ð lok-
um sýnir Gísli Guðmundsson
kvikmynd. Öll börn eru velkom
in. Aðgangseyrir er 2 kr.
ast að hlauna að skíðgarðinum
og komast yfir hann, ef ‘kost-
ur væri. Eg. kastaði töskunni
og pokanum inn fyrir sklíð-
garðinn og fór svo sjálfur á
eftir yfir, en varð þó svo
naumt fyrir, að hundurinn gat
glefsað í annann fótinn á mér.
Þar sem ég kom niður í garð-
inn, var lægri haugur fyrir,
o,g var hann auðsjáanlega ný-
orpinn, því að moldin var svo
laus, að förin sáust glöggt
eftir fætur mína. Eg var í þann
veginn að taka unp farangur
rninn, þegar ég sá, að maður
kom í hendingskasti frá hús-
inu og.stefndi þangað, sern ég
var. Það leyndi sér ekki, að
maðurinn var, miög æstur, því
að hann hrópaði áfengislega
og veifaði handl'eggjunum,
sem voru berir upp að oln-
bogum. Þegar hann kom nær,
sá ég, að þetta var fremur
aldraður maður með mikið og
grátt yfirvararskegg og ákaf-
lega loðnar augabrýr. Hann
var ekki sérlega hár vexti, en
hann var framúrskarandi
þrekinn og fasmikill.
— Hvern fjandann ertu að
gera hér, þorpiarinn þinn?
sagði þessi fasmikli maður,
þsgar hann kom til mín.
— Ekkert, sagði ég og skalf
á beinunum af ótta.
,— Ekkert, öskraði hann og
steytti hnefarm framan í mig.
Sérðu ekki hvað þú hefur gert,
þorparinn þinn? Og um leið
benti hann á liauginn.
— Það var óviljaverk, sagði
'ég kjökrandi.
— Það er trúlegt, eða hitt
heldur sagði hann og hristist
allur af vonzku. Eg gróf hann
Róver þarna, — hundinn minn,
hann Róver, og ég líð engum
þorpara að troða á gröf hans.
Hann má liggja þar alveg óá-
reittur, segi ég.
— Eg gat hvergi flúið,
nema hingað, sagði ég.
— F.lúið, —- þú skalt ekki
leika þér að því að ijúga í mig,
þoparinn þinn, sagði hann og
hristist af Vonzku. Flúið, flýja,
undan hverium áranum þurft-
ir þú að flýja?
— Það elti mig stór hund-
ur, sagði ég.
— Elti þig stór hundur?
sagði þessi fokvondi maður í
ofurlítið lægri tón en áður.
— Já, sagði ég.
— Liótur hundur, sagði
hann, og rómurinn varð ofur-
lítið þýðari.
— Já, sagði ég.
—• Ljótur og loðinn? — Og
rómurinn varð enn lægrí og
þýðari.
— Já.
— Og guliír á( /lit? sagði
hann, og svipur hans lýstí á-
kafri forvitni.
■— Já, sagði ég.
•— A-ha. sagði hann og var
allt í einu orðinn stilltur.
— Það hefur verið Sámur,
bannsettur Sámur, hundurinn,
sem drap Róver minn, — aum-
ingja, meinlausa Róver. Róver
var orðinn gamall, vesalingur
inn, en Sámur er upp á sitt
bezta. Bannsettur Sámur, —
mér er illá við hann. Og þú
segir, að hann haf| elt þig.
— Já, sagði ég og var nú
nokkuð hughægara.
— Það hefur vafalaust ver
ið bannsettur Sámur. Og ég
gæti bezt trúað því, að gamli
O’Hara og stráiltar hans hafi
sigað honum á þig. Það eru
þokkasnáðar þeir O’HJara og
strákar hans. Þeir siguðu Sátm
á Róver, þegar þeir vissu, að
ég var ekíki heimaj og þeir
hjálpuðu Sámi til að slíta lífið
úr vesalings, gamla Róver mín
um. En ég á eftir að beria þá
fyrir það níðingsverk, og ég
æta að drepa Sám. Og hann
sagði síðustu orðin ofboð lágt,
eins og hann vildj segja: Eg
segi þér þetta í trúnaði, það er
okkar á milli.
— Eg sagði ekkert, en ein
blíndi foara á þenna gamla
mann, sem mér þótti einkenni
lega fljótur að skipta um
skap.
— Svo að hann ætlaði aö
bíta þig, sagði gamli maðurinn
í meðaumkunartón.
— Já, sagði ég.
—- Hann hefði rifið þig á
fool, hefðir þú ekki í tæka tíð
sloppið inn fyrir skíðgarðinn.
En er þetta nú ekki íhugunar
vert, að þú skyldir einmitt
koma þar niður í garðinn, sem
Róver er heygður? — Það er
vi'ssulega íhugunarvert. Og
hvaða náungi ertu, drengur
minn.
— Eg er íslendingur, sagði
ég-
— Hættu núj sagðj hann í
róm, sem lýsti því, að hann
trúði mér ekki.
-— Eg segi satt, ég er íslend
ingur,_sagði ég.
— íslendingur, sagði hann,
eftir að hafa horft á mig þegj
andí um stund. Getur það
borið sig? Segirðu satt?
I — Eg get ekki sannara
sagt, sagði ég.
— Ja, hver raekalli'nn. Þetta
er íhugunarvert, sagði hann og
starði á mig ofboð íbygginn.
Þér er bezt að koma með mér
heim að húsinu.
!Svo gekk bann heim að hús
inu, og ég fór á eftir honum *
með farangur minn.
Rétt í því að við vorum að
koma að húsdyrunum, kom
stúlka á mínu reki út úr hús
inu.
— Heyrðu þarna, Kata.
sagði gamli maðurinn við
stúl'kuna. Komdu með miólk í
skál og væna sneið af brauði
með sírójpi ofan á-. Og vertu
nú einu sinni fljót á fæti.
— Já, afi minn, sa.gði stúlk.
an og hvartf inn í húsið.
— íhugunarvert, íhugunar
vert, tautaði gamii maðurinn
við sjálfan sig. Ef hann er
íslenzku'r, drengnrinn, þá er .
það íhugunarvert.
Stúlkan kom aftur eftir ör
stutta stund og íærði mér.
mjólk í skál og væna sneið
af brauði með sírópi ofan á.
og kom mér sá greiði mjög vel
sérstaklega mjólkin.
— Hevrðu, Kata mín, sagði
gamlj maðurinn. Þessi dreng
ur segist vera frá íslandi.
i —- Einmitt það, sagði hún .
og leit til mín út undan sér. *
— Þú ert skólagengin, Kata
mín, sagði gamli maðurinn, og
þes:s vegna getur þú sagt mér, ■
hvort fólkið,. sem byggir ís—
land, er í hátt eins og. okkar í
fólk, nefnilega hvítt.
— Eg held, að það sé alveg *
hvítt, afi minn,.sagði stúlkan. '
En til að vera alve'g viss um ’
það, skal ég hlaupa inn eftir ;
landafræðinni mrnni.
— Gerðu það, Kata min. j
sagði gamli maðurinn.
Stúlkan hljóp inn í húsið á’
ný og kom út aftur að vörrnu j
spori með stóra bók undir'
hendinni, og sá ég, að það var!
landafræði sú, sem notuð var 5
í alþýðuskólunum í Nýja
Skotlandi á þeim árum.
— Fólkið á íslandi er hvítt,
sagði stúlkan.
— Og er alveg hvítt, sagði
gamli maðurinn, það er íhug—
unarvert.
— Það er kalt á íslandi, eða
er ekkí svo, sagði stúlkan. ;
— Já, er þar ekki veruieg
ur kuldi? sagði gamli maður—
inn og lét sem. nístingskuldi;
færi um sig allan.
•— Það er nokkuð kalt þar '
I stundum, sagði ég.
Bifreiðastöð Steindórs
Sírni 1-15-80.
' —o—-
B ifrciðastöð Keykjavíkúr
Sími; 1-17-26
SENDIBÍLAR
Seridibílasíöðin Þröstur
Sími 2-21-75
Zorin hafði kalla.5 samaú
fund undir eins. Fiestir fylgis-*
manna hans voru útlagar og
.glæpamemi, en Zorin hafði ekki
"úáð á því, að vera vandlátur í
þeim efnum. Það tóksx að halda
leyndarmálinu vel geymdu, þar
til einn góðan veðurdag, að fað
ir yfirmanns loftskipsins, sem
hafði fundið gíginn, sakaði
Drago um að hafa nryrt son
einn og áhöfn loftskipsins. _____...