Alþýðublaðið - 19.03.1958, Blaðsíða 4
A1 J» f S n b I a 8 I 9
Miðvikudagur 19. marz 195®
<1
VETTVANGtítl MGSMS
Góðar fermingaigjafir
Skrifbo.rð, margar gerðir, úr ei'k, mahogni og birki.
Einnig snyrtiborð., sem líka getur bénað sem skrif-
borð.
Ti'l sýnis í sýningarglugga, Bankastræti 4.
Húsgagnavinnustofan Nýmörk.
Sími: 14423.
BÓNDASONUR skrifar: „Und
.anfarið hafa menn rætt og skrif-
að um það, hvar ætti að stað-
.setja landbúnaðarháskóla. Mig
furðar á því að nokkrum manni
skuli hafa dottið í hug að stað-
setja slíkan skóla í Reykjavík.
Ég hef talað við marga menn og
jhver einn og einasti, undantekn-
ingarlaust, er andvígur þeim, er
Jhafa gerzt talsmenn fyrir þess-
ari vitieysu.
ÉG ER EICKI andvígur Reykja
vik, langt frá því, ég vil meira
að segja að hún heimti rétt sinn
til fulls í sambandi við kjör-
dæmaskiptingu landsins, en við
víkjandi landbúnaðarháskóla á-
iít ég að hann eigi að vera í
sveit, helst í miðri frjósamri
sveit þar sem nemendurnir lifðu
við landbúnað um leið og þeir
iærðu vísindi hans.
ÉG HEF HEYRT raddir um
að hann eigi að verða á Hvann-
«yri. Sú tillaga lílcar mér vel.
Ég vona að leiðtogar bænda-
stéttarinnar láti það ekki henda
íiig að stofnsetja háskóla um
væktun og búskap í Reykjavík.“
BIFREIÐ ARST JÓRI skriíar:
,,Ég hef lengi ætlað að skrifa
M I N N I N G .
Loftur
Bjarnason
pípulagningameistari.
F. 30. 9. 1881. D. 11. 3. 1958.
Góður maður genginn er.
Gef ég horfnum vini
fífsorð, sem að lýsir hér
ILofti Bjarnasyni.
Svipur þinn var hár og hýr,
Iiugurinn rór og Jjúfur,
ínnri maður alltaf hlýr,
aldrei sár né hrjúfur.
Varstu svo að vallarsýn
vörpulegur maður.
Minnissæð er myndin þín :
Mildur, skýr og glaður.
Þitt var yndi að laga Ijóð
hg lesa andans fræði.
Hátt þinn trúarhugur stóð,
hófst þú bæn í næði.
Vel þú nýttir vökuna,
vafinn orðlofssóma.
Strengja-hreinu stökuna
■stundum léztu hljóma.
jLangur dagur liðinn er,
línumörkin dregin.
Fegurð lífsins fylgi þér
fram á nýja vcginn.
Andi minn hann þakkar þér
þel í kynningunni.
Góðhug þinn ég geymi mér
ficm gull í minningunni'.
Búnaðarháskóli í Reykja-
vík. Bréf frá bóndasyni.
Þrjú stórhættuleg horn
í Austurbænum. j
þér nokkur orð um þrjú götu-
horn í borginni. Þetta eru horn-
in: Laugavegur og Skúlagata,
Suðurlandsbraut og Nóatún og
Suðurlandsbraut og Laugarnes-
vegur.
IIORNIN LAUGAVEGUR og
Skúlagata er afar viðsjárvert og
það er hreinustu vandræði fyrir
bíla, sem koma úr austurátt og
ætla að beygja niður á Skúla-
götu að komast þessa leið vegna
sífells straums. Þarna hafa og
orðið margir árekstrar með þeim
hætti að ekið hefur verið aftaná
bílana.
HORNID á Suðurlandsbraut
,og Nóatúni er eitt hið erfiðasta
í öllum bænúm. Það er mjög erf-
itt að komast á vissum tímum
Framhald af 3. síðu.
lag, sem Gaillard stingur UPP á,
k.ynni að styrkja tök Banda-
ríkjamanna á flugvöllunum,
sem þeir hafa þegar til afnota
í Marokko.
Ef nauðs.yn bæri til aðvörun-
ardæma varðandi stofnun fleiri
hernaðarbandalaga þarf ekki
lengra að leita en til síðasta
Bagdaðþandalagsfundarins í
Ankara, og ekki er ósennilegt
að á sömu leið fari á fundi
SEATO. Bæði þessi bandalög
einkennast nefnilega fyrst og
fremst af innbyrðis deilum en
ekki viðnámi gegn kommúnism
anum - sem þau telja meira að
segja enga ástæðu til að óttast.
Forsætisráðherra Pakistan túlk
aði vel afstöðu þeirra skömmu
áður en fundurinn í Manilla
hófst, er hann lýsti yfir því, að
svo fremi sem Indland ógnaði
sjálfstæði Pakistan myndu þeir
í Pakistan brjóta öll bandalags
ákvæði og samninga, og brýsta
bakksamlega hönd hverrar
beirrar b.ióðar, sem þéir hefðu
gert sér fjandsamlegar annarra
þjóða vegna.
Ef Bretar og Bandaríkjamenn
vilja hj'álpa Frökkum' í vand-
ræðunum í Alsír við að vekja
aftur traust Araba á Frökkum,
þá verða þeir að beita einhverj
um öðrum ráðum en einhver j-
um stórfenglegum pappírsáætl
unum. Þar dugar elckert annað
en trúnaðarviðræður milli
æostu manna. Með þeirri að-
ferð hafa þeir Murphy og Bee-
ley afstýrt yfirvofandi hættu
á styrjöld milli Frakklands og
Tunis. Fái þeir að halda starfi
sínu áfram óáreittir ber bað
eflaust enn varanlegri árangur.
Almenningsálítið í Frakk-
.dagsins af Nóatúni eða Löngu-
hlíð á Suðurlandsbraut. Þarna
þarf nauðsynlega að koma götu-
viti. Lögregluþjónar hafa und-
anfarið bætt mikið úr þessu með
því að stjórna umferðinni, en
það er dýrt og það er erfitt fyrir
lögregluna að láta menn standa
heilar vaktir á einu horni.
HORNIÐ á Suðurlandsbraut
og Laugarnesvegi er hættu-
legra en bæði hin hornin, sér-
staklega þó fyrir bifreiðar sem
koma að austan og ætla að
beygja niður á Laugarnesveg.
Þetta stafar fyrst og fremst a£
því hversu hraksmánarlega hef
ur verið gengið frá auða reitn-
um, sem menn eiga að aka með-
fram.
ÞARNA hefur hvað eftir ann-
að qrðið árekstur vegna þess að
bílstjórar taka hornið vitlaust,
enda engin furða. Auk þess má
benda á að þarna til vinstri er há
brekka — og ef bíll lendír út
af, til dæmis fyrir þá sök, að
hann hefur tekið vitlaust horn-
ið, eða bíllinn sem kemur á
móti honum hefur gert það, get-
ur hann fallið mikla hæð.“
Hannes á horninu.
landi er öfgakenndara og hættu
legra nú en nokkru sinni er
menn hafa jafnað sig eftir at-
burðina í Sakiet. Fyrir nokkr-
um dögum hældist einn af
frönsku þingmönnunum um og
kvað Frakka ekki mundu þurfa
neinna vináttusamninga við er
þeir hefðu komizt yfir nokkr-
ar kjarnorkusprengjur. Það má
vel vera að útgjöldin við Alsír
styrjöldina eigi eftir að opna
augu Frakka fyrir þeim stað-
reyndum sem hvorki pólitísk
skynsemi eða siðgæði hefur
megnað. Þangað til verða
bandamenn þeirra að fara gæti
lega, eigi viðleitni þeirra til
aðstoðar að bera tilætlaðan ár-
angur.
Denis Healey.
Þýzkaland
Framhald af 3. siðu.
bæði af hálfu Ves£urveldanna
og Vestur-Þýzkalands, að til
þess yrði að binda bráðan endi
á þróunina eftir stríðið og
ganga til frjálsra kosninga í
báðum landshlutum. Þessu hef
ur rússneska stjórnin stöðugt
þverneitað, og sú neitun virð-
ist nu vera farin að hafa sín
áhrif. Enda þótt enginn ábyrg-
ur stjórnmálaleiðtogi Vestur-
Þýzkalands vilji láta það eftir
sér hafa að beinar viðræður
stjórna Vestur- og Austur-
Þýzkalands séu hugsanlegar til
lausnar málinu, er þegar farið
að leita möguleika til samvinnu
báðum megin landamæranna
með sameiningu í huga. Ernest
Lemmer, sem sæti á í ríkisráð-
inu, hefur til dæmis sagt að
sameiningin hljóti að verða
smátt og smátt og byggjast á
nokkurri eftirgjöf af hálfu
beggja aðila.
Nú hafa þeir í S'ovétríkjun-
um gert það að tillögu sinni að
saminn verði friður við stjórn-
irnar í báðum landshlutum, en
Gerstenmeier, sem margir telja
tilvonandi utanríkismálaráð-
herra Vestur-Þýzkalands hefur
talið sig hlynntan því, þar með
þá hl.ytj sameiningarmálið að
koraa mjög til greina á eftir.
Getur þessi tillaga Sovétveld
anna ef til vill orðið til þess að
skapa nýja hreyfingu um mál-
ið? Það er vitanlega nokkur
niði'un fyrir Bonnstjórnina að
verða að viðurkenna austur-
býzku stjórnina sem jafnréttis-
aðila, — en hjá því verður þó
ekki komizt þegar sameiningar
málið verður til umræðu, enda
þótt þetta sé vitanlega enn alit
á byrjunarstigi. Því, eins og
Gerstenmsier sagði fvrir
skömmu í viðtali- við þýzka
blaðið „Der Spiegel", — slík
sameining er því aðeins hugs-
anleg að til muna dragi úr
spennunni í alþjóðamálum.
J. S.v.
Bréf fil Laugarvafns
Framhald af 5. síðu.
kvæmdum falla engir himnesk
ir loftsteinar á götu ykkar eða
annarra framgjarnra íslend-
inga. Stjórnarvöldin hafa stund
um sofið fast og draumlaust
áratugi, eða jafnvel í heila öld
og gleymt að viðhafa föðurlega
og móðurlega forgöngu í upp-
eldismálum. Er þar sem endra-
nær hver sinnar eigin gæfu-
smiður. í næsta kafla verður
skýrt frá sigrum og ósigrum í
þróunarsögu tveggja yngstu
skólanna á Laugarvatni, íþrótta
skólans og menntaskólans, þar
sem þið eruð nú virkir aðilar.
Þægileg tilbreyting 2
Þægileg filbreyfni
Framhald af 6. síðu.
um út í sýningarkassa við eina
fjölförnustu götu bæjarins.
Var a. m. k. ein myndin svo vel
heppnuð, að gerla sást djarfa
fyrir líki mannsins gegnum bíl
rúðuna,
Ég held, að enn sem komið
er þurfi ekki æsifregnir né
merkilegar liósmyndir af feikn
legum atburðum til að halda
mönnum frá svefni. Hins veg-
ar getur slík ágætis þjónusta
orðið til að slæva svo skynjun
manna, að þeir þurfi sífellt að
hafa eitthvað slíkt fvrir aug
unum til að halda sér vakandi.
(Það er eins og með menn,
sem byrja á því að nota hægða
pillur og geta síðan ekki án
þeirra lifað). If t þins vegar
þróunin stefnir í þessa átt,
finnst mér engin gustuk að
ýta undir hana. Láta hana held
ur hafa sinn gang af sjálfs-
dáðum og geyma merkilegar
Ijósmyndir, þar til þeirra er
raunverulega þörf, svo að það
verði ekki almannarómur á ís
landi í náinni framtíð, að það
sé ekki nema þægileg , til-
breyting fvrir fólk,. ef maður
rekur hníf í kærustuna sína
eða hafnar í höfninni.
Sigurður Pálsson.
Iþróllir
Framhald af 9. síðu.
KFR skoraði hverja körfuna á
fætur ánnarri og sigraði með
45:41.
Blið KFR er alltaf að styrkj
ast ,eftir því sem líður á mótið
og í gær sigraði það KR me®
töluverðum yfirburðum eða
44:28. í
Ennþá hafa 4 félög mögH-*
leika á að sigra í mótinu (meisí
araflokki karla), en það eru
ÍKF, ÍS, ÍR og KFR (a), óneit-
anlega eru möguleikar ÍKF
samt mestir. Á föstudagima
leika ÍKF og KFR (a) og ílt
og KFR (b) og verður fyrri
leikurinn áreiðanlega m.iög
spennandi.
j
Fjöldafundur lögreglu
í Amsterdam.
AMSTERDAM, þriðjudag.
(NTB—AFP.) Lögreglan í Am-
sterdam hélt í dag fjöldafund
undir beru lofti til að leggja
áherzlu á óánægju sína og ki öl;
ur um hærri laun. Óánægjaa
innan hollenzku lögreglunnair
hefur breiðzt stórkostlega úl
eftir verkfall lögreglumgnna í
Osló og .mótmælafund Parísar-
lögreglunnar. Rúmlega 600 jög
reglumenn tóku þótt í fundin-
um í dag, sem kallaður var
saman undir slagorðunum;
„Við látum ekki visa okkur á
þug með drykkjupeningum.‘e
Ræðumenn héldu því fram, að
síðasta launahækkun um 3 %
væri ekki nægjanleg vegna
hækkandi lífskostnaðar. Æsing
ríktj og oft var vitnað tíl lög-
regluverkfallsins í Osló.
Syngjandi páskar
Framhald af 12. síðu.
Ólafur Magnússon: „Smíða-
söngur.“ 3. Guðmundur Guð-
jónsson, Gestur Þorgrímsscn,
Ketill Jensson: „Söngkennsla
Maestro Óólanó.“ 4. Allir í kór:
,Drykkjusöngur‘. 5. Guðmunda
Elíasdóttir: „Ég hata menn“,
úr „Kiss m;e Kate“ eftir Cola
Porter. 6. Árni Jónsson: „Mat-
tinata“ eftir Leoncavallo. 7,
Þuríður Fálsdóttir, Jón Sigur-
bjrnsson: „Anne get your gun.‘s
8. Kristinn Hallsson: „Soiné en-
ehanted evening.“ 9. Guðrún Á.
Símonar: „Granada“ eftir Ag-
ustin Lara. 10. Guðmundur
Guðjónsson og kór: Atriði úr
„Alt Heidelberg." 11. Hljóm-
sveit Björns ÍR. Einarssonar:
„Skiffle". 12. „Hraustir menn.“,
13. Sigurveig Hjaltested, Einar
SturjuHón: „Nótt í Feneyjdm.“
14. Sigurður Ólafsson: „Poka-
tízkan.“ 15. Guðrún Á. Símon-
ar, Kristinn Hallsson: „Fallandi
lauif.“ 16. Jón Sigurbjörnsson:
„Going Home.“ 17. Kaxi Guð-
mundsson: . „Skemmtiþáttur,.“.
18. Guðmunda Elíasdóttir, Árni
i Jónsson: „C’armen Bizetdóttir.“'
19. Ketill Jensson: „O, sole
mio.“ 20. ÞuxTður Pálsdóttir og
kór: ítalskur götusöngur úr óp-
erettunr.i „'Naughty Marietta15
eftir Victor Herbert.
Lárus Salómonsson.
Hiartkær eiginkona mín og móðir okkar,
STEFANÍA TII. BJARGMUNDSDÓTTIR
andaöist í sjúkrahúsinu Sólvangi mánud. 17. þ. m.
Fvrir rnína hönd, barna og tengdabaxna.
Hallmundur Sumarliðason.