Tíminn - 07.04.1965, Page 8

Tíminn - 07.04.1965, Page 8
MIÐVIKUDAGUR 7. apríl 1965 3__________________________TÍMINN HESTAR OG MENN Vegna orðsendingar Gunn í ars Oddssonar í síðasta þætti, (24. marz), þykir rétt að gera nánari grein fyrir því helzta. sem þar skiptir máli. Á síðasta ársþin'gi L.H. og víðar ,hefur verið um það rætt, að nauðsyn bæri til að kapp- reiðar hinna einstöku hesta- mannafélaga yrðu skipulagðar þannig, að hvert félag hefði sinn ákveðna kappreiðadag um sömu helgi ár hvert. Með þvi yrði komið í veg fyrir, áð fé- lögin drægu aðsóknina hvert frá öðru og þátttaka því verða meiri hjá hverju félagi en ann ars yrði. í þættinum „Hestar og menn“ 17 febr. s.l. var sér- staklega um þetta rætt og vegna einhverra ummæla þar er þessi orðsending G.O. fram komin. Yfirleitt heíur þessari skipu- lagshugmynd verið vel tekið og talið að þetta fyrirkomuleg gæti orðið öllum aðilum til nokkurs ávinnings. Jafnframt var á það bent. að Landsmótin og jafnvel Fjórðungsmótin gætu þó vald ið nokkrum nauðsynlegum frá- vikum, aðallega vegna tíðar- fars. En með góðum vilja ætti að vera hægt að komast hjá árekstrum í þeim fáu tilfellum sem taka yrði afstöðu til. Gunnar Oddsson segir, að hestamannafélagið Stígandi hafi nú um 20 ára skeið jafn an haldið kappreiðar sínar á Vallabökkum um 13. sumar- helgina, með þeim einum und- antekningum að .,L.H. hefur þrátt fyrir mótmæli Stíganda oftar en einu sinni haldið lands mót sín um þessa helgi.“ Það skal fúslega játað, að með þessu hefur Stígandi áunn ið sér mikinn rétt til 13. helg- arinnar og mun stjórn L.H. viðurkenna þá hefð, sem hér hefur skapazt. Ráðleggingin til L.H. „til íramvegis eftir- bréýtni" er því óþörf. Hitt er annað mál, að stund- um getur svo farið, að frávik þurfi að gera frá settum regl- um. Og svo.mun hafa verið i þau skipti, sem G.O getur um. Það gegnir nefnilega að nokkru öðru máli um lands- mót en önnur hestamannamót, hvenær heppilegast er að halda þau. Að sumu leyti er heppi- legast að halda landsmótin svo snemma sumars sem unnt er. En þar um ræður tíðarfarið miklu, því að landsmót er helzt ekki hægt að halda fyrr en sæmilegur gróður er kom- inn á hálendið. en það er oft ekki fyrr en um 13. helgi sum- ars og jafnvel ekki svo snemma. Svo mun hafa verið a.m.k. í annað skiptið, sem landsmót var haldið um 13. helgina. Annars var mér kunnugt um þessi mótmæli Skagfirðing- anna. En sjálfsagt eru þau skjalfest og geymd á vísum stað. Síðan L.Il. var stoínað, hafa aðeins veríð haldin 4 landsmót tvö um 12. helgina og tvö um þá 13. En auðvitað er tvisvar „oft- ar en einu sinni.“ G.Þ. Að gefnu tilefni Tryggið reiðhestana! Óhugnanlegur atburður gerð ist aðfaranótt 31! marz, er sex hestar köfnuðu af reyk og margir fleiri vonj hætt komn- ir, er eldur kom upp í hest- húsi í einu úthverfi Reykjavík- ur. Þarna voru um 20 hestar í sambyggðum húsakynnum og munaði litlu áð fleiri færust. eða jafnvel allir. Sumar þess- ara hesta voru hreinir gæðing- ar og er því tjón eigandanna bæði mikið og tilfinnanlegt. Þetta atvik gefur tilefni til ýmissa hugleiðinga, en þó eink um um það, hve nauðsynlegt sé að vátryggja hesta, bæði gegn eldsvoða og öðrum áföll- Um. Sérstaklega er þetta nauð- synlegt í Reykjavík og-öðrum kaupstöðutn, því að þar er hætt an af eldi og margvíslegum slysförum miklu meiri en á einstökum býlum út um land. Margir þessara hesta eru þeir dýrgripir, að sumir þeirra verða seint bættir að fullu og yfirleitt er hér um mikið verð- mæti að ræða. En betri er hálfur skaði en allur — ef illa fer. Vátrygging á hestum og öðr- um gripum er ekki óþekkt hér á landi. en aldrei hafa þessar öryggisráðstafanir orðið al- mennar. Margir hestaeigendur hafa þó reiðhesta sína tryggða, en því miður munu þeir vera fleiri, sem hafa þá ótryggða. Hestamannafélagið Fákur hefur sýnt lofsverða fyrir- hyggju með því að tryggja alla hesta, sem eru á vegum félags ins gegn bruna og öðrum áföll um. En í hesthúsum Fáks eru nú yfir 400 hestar á fóðrum. Þetta er gott fordæmi og þess vert að um sé getið, Síðasti hesthússbruninn ætti að verða öllum hestaeigendum þörf áminning um að hafa ekki hesta sína ótryggða. Róbert Abraham Ottóson æfir sinfóníuhljómsveitina fyrir hljómleikana. Ljósm.: Timinn-GE BACH-STRA VINSKY Þrátt fyrir þær andstæður, sem Bach og Stravinsky eru mynduðu tvö öndvegisverk þessara meistara mjög hald- gott jafnvægi á síðustu tón- leikum Sinfóníuhljómsveitar- innar, er söngsveitin Filharm- onia og hljómsveitin fluttu und ir stjórn Róberts A. Ottósson- ar, Magnificat Bachs og sálma- sinfóníu Stravinskys. — Magnificat er samið við texta úr Lúkasargupspjalli 46—55 vers, og ber allt handbragð verksins, vitni snilli hins mikla meistara, þær sem hver tónn og laglina er hnitmiðuð og engu ofaukið. Verkið er nærgöngult í flutningi og krefst alls af sínum flytjend- um, hvort heldur er um að ræða kór, einsöngvara eða hljóðfæraleikara. Kórinn er nú mjög mannmargur og í honum margt nýrra krgfta, sem lofa góðu, en í túlkun þessa erfiða verks, er reynir mjög á, nýttist fjöldinn ekki sem skyldi, þrátt fyrir hina ágætu stjórn Ró- berts A. Ottossonar, var ekki sú birta og breidd á heildarsvip söngsins og kom fram í seinna verkinu Sálmasinfóníunni. — Einsöngvararnir, sem allir höfðu erfið verkefni með hönd um voru Hanna Bjarnadóttir, sem átti þarna gullfallegar arí- us sem hún fór bæði vel og smekklega með. Aðalheiður Guðmundsdóttir fór nú í fyrsta sinn með mjög vanda- samt hlutverk, hefur áferðar- fallega rödd en skortir eryggi og reynslu á svo erfiðu verk- efni. Guðmundur Guðjónsson og Kristinn Hallsscn, gerðu síh um hlutverkum mjög svo lýta- laus skll. Undirbúningur sá og vinna er stjórnandinn Róbert A. Ottósson, hefur hér lagt að mörkum, er glæsileg, og stjórn hans staðföst og einkenndist af ást og virðingu fyrir göfugu verkefni. Sálmasinfónían er samin 1931 yíir texta No. 39—40 og 150 úr Davíðssálmum. Þetta er ekki kirkjulegt verk í því hefð bundna formi sem títt er, en trúarlegs eðlis, og rís list höf., mjög hátt í þessu verki, þar sem langar iaglínur rísa tign- arlega í stað þeirra knöppu og stuttu, sem ella fylgja. Stravin sky. Hinn rússneski uppruni höf. og tilhneiging til Recitant tóns hinnar grísk-katólsku kirkju setur sterkan svip á verkið. Túlkun stjórnandans á þessu verki, var skýr einföld og áhrifamikil. Nýttist nú hið mikla raddmagn kórsins til fullnustu í sérlega áferðarfalleg um blæbrigðum. Undirleikur blásara hljómsveitarinnar í verki Baehs var sérdeilis • fal- legur. Róbert A. Ottósson á miklar þakkir fyrir góða og örugga stjórn og forráðamenn sveitarinnar fyrir prýðis vek efnaval. Unnur Arnórsdóttir. f HLJÓMLEIKASAL Bernharð og bókin hans Bernharð Stefánsson segist bera hönd yfir höfuð sér í Timanum 25. marz og kallar það, sem ég skrifaði í blaðið 14. marz um hlunnindaáfengi og ágengni við opinbert fé ýkingar við sig. Fá- ein orð vil ég ségja vegna þess. Berharð segir að ég sé skáld. Hvað sem um það er þá er hitt víst, að enn sem komið er hef ég þó unnið stærri verk á sviði sagnfræðinnar. Þeir sem fást við sagnfræði verða að skilja heimildir. — skilja það sem þeir lesa — ef vel á að fara. Ég sagði 1 Tímanum 14. I marz: „Vel þykist ée muna eftir þessari ræðu Páls En sagan um wiskýið . . . kannast ég ekki við að hafa verið í ræðunni." I Bernharð segir út trá þessu-’ „I-Iygg ég það meira en vafasamt lað fullyrða, að maður hafi ekki Frá ráöstefnu bygg- ingarfulltrúa og sveitarstjórnarmanna A ráðstefnu byggingarfulltrúa og sveitarstjórnarmanna dagana 29, marz—1. apríl voru rædd helztu mál, er varða grundvöll starfa byggingarfulltrúa í landinu og byggingarnefnda, og löggjöf ásamt reglugerðum skýrð og rædd. Umræður hafa verið miklar og innbyrðis kynning fulltrúa ráð- stefnunnar gefur fyrirheit um nán ara samstarf milli þeirra hvers og eins í framtíðinni, og við þau stjórnarvöld, er með skipulags- og byggingarmálin fara í umboði rík- isvaldsins gagnvart hinum ein- stöku sveitarfélögum. í sambandi við erindi Haraldar Ásgeirssonar, verkfræðings, um byggingaefnarannsóknir kom fram almenn ánægja fulltrúa ráð- stefnunnar á því að bygging arefnarannsóknadeild Háskóla íslands væri nú aftur tekin til starfa og gæfi það fyrirheit um árangursríka aðstoð við byggingar iðnaðinn í framtíðinni. sagt tiltekin orð fyrir nærri 20 árum.“ Ég veit hvaða munur er á minni og öðrum heimildum. Því orðaði ég frásögn mína, sem hér var vitnað til svo, að ekki væri bein fullyrðing. Að kannast ekki við að orð hafi verið í ræðu er annað en fullyrða að bau hafi ekki ver- ið þar. Hitt er annað mál. og því skal nú bætt við, að ég er enn í dag sannfærður um að þau hafi ekki verið í ræðu Páls. Bernharð Stefánsson segir 25. marz: „Það er t. d. hreinn skáldskap- ur hjá houum, að ég hafi sagt honum i síma, að ég sæi mig til- neyddan að stefna honum!“ Þessi orð ber ég til baka. Hér er það Bernharð sem fer með ósannindi en ekki ég Hitt skal ég ekkert segja um fremur nú en áður hvor hafi hringt til hins, Framhald á 12. siðu Á ráðstefnunni vu,u efttr- farandi ályktanir gerðar: Að gefnu tilefni viíl ráðstefna byggingarfulltrúa og sveitarstjóm armanna haldin dagana 29. ma*z —1. apríl 1965 leggja áherzlu á að hún telur það lágmarkskröiu að öll greidd skipulagsgjöld renni framvegis óskipt til skipulagsmála. Ráðstefna byggingarfulltrúa og sveitarstjórnamanna haldin dag- ana 29. marz—1. apríl 1965 legg- ur áherzlu á að félagsmálaráðu- neytið hlutist þegar til um að sam in verðu reglugerð um gerð lóðar- skx-ár svo sem gert er ráð fyrir i 32. gr. skipulagslaga nr. 19/1964. Ráðstefna byggingarfulltrúa og sveitarstjórnarmanna haldin dag- ana 29. marz—1. apríl 1965 telur nauðsyn á að út verði gefin á prenti og send þátttakendum skýrsla um helztu atriði í erindum þeim sem sérfræðingar hafa flutt á ráðstefnunni. Ráðstefna byggingarfulltrúa og sveitarstjórnarmanna haldin dag- ana 29. marz—1. apríl 1965 færir Sambandi ísl. sveitarfélaga og skipulagsstjórn ríkisins þakkir fyr ir að hafa boðað til ráðstefnunn- ar og skipulagt hana með ágæt- um. Störf hennar hafa verið ánægjuleg og vænleg til árangui-s. Vænta fulltrúar ráðstefnunn- ar þess eindregið að sömu aðilar boði til fundar byggingarfulltrúa um land allt eigi sjaldnar en ann- að hvort ár. Þátttaka i bessari ráðstefnu sýnir þörfina Ráðstefna byggingarfulltrúa og sveitarstjórnarmanna haldin dag- ana 29. marz—1. apríl 1965 telur brýna nauðsyn á að hraðað verði endurskoðun byggingarlöggjafar. Ráðstefna byggingarfulltrúa og sveitarstjórnarmanna haldin .lag- ana 29 marz—1 apríl 1965 Dein ir þeim tilmæium til skipulags stjórnar að hún beiti sér fyrir þvi að endurskoðuð og samræmd bygg ingarsamþykkt verði hið fyrsta tekin í notkun á öllum skipulags- skyMum stöðum á landinu.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.