Tíminn - 07.04.1965, Page 14
14
TÍMINN
MIÐVIKUDAGUR 7. apríl
SKILUÐU 33%
Framhaia al 1 síðu
gagnkvæm félög, eins og t. d.
Brunabótafélagið, sem er að byrja
að greiða tekjuafgang. Og verði
ágóði £. þessu ári, kemur hann
fram í endurgreiddum tekjuaf-
gangi 1966.
^ Varðandi greinargerð FÍB sagði
Ásgeir: —Þeir segja að greinar
gerð tryggingafélaganna sé alls-
endis ófullnægjandi. Það er því
vert að skýra nokkuð nánar hvern
ig árið 1964 hefur komið út, og
hvemig við höfum reiknað þá'
hækkun, sem við teljum okkur
þurfa að fá.
Bifreiðatryggingafélögin í
Reykjavík að undanskildu Ábyrgð
h. f., hafa greitt og áætlað ábyrgða
tryggingatjón á árinu 1964 að upp
!hæð 65.898.000 en iðgjöld, sem
sömu vátryggingafélög höfðu til
ráðstöfunar á árinu 1964 námu
Skarðið opnað
BJ-Siglufirði, þriðjudag.
Siglufjarðarskarð var opnað í
dag, og hefur það aldrei verið
opnað jafnsnemma áður. Unnið
hefur verið að því að ryðja skarð-
ið í tæpa viku, og mun færð um
það vera sæmileg, en þó nokkuð
þungfær Fljótamegin.
65,894.000, en sú tala kemur þann
ig fram: Iðgjaldasjóðir í ársbyrj
un 19.713.000., greidd iðgjöld á
árinu 76.968.000, og gerir þetta
samtals 96.681.000. Iðgjaldasjóðir
í árslok 1964 voru 30.787.000, svo
eftir standa til ráðstöfunar á árinu
1964 fyrrgreindar 65.894,000.
Þegar talað er um iðgjaldasjóð
í þessu sambandi, sagði Ásgeir,
þá er átt við þau iðgjöld, sem
greidd eru á einu ári en tilheyra
næsta ári á eftir, þ.e.a.s. að ið-
gjaldasjóður í árslok 1964 upp á
30.787,000 eru iðgjöld greidd á ár
inu 1964 til að mæta tjónum á
tímabilinu 1. janúar til 1. maí
1965.
Samkvæmt fyrrgreindum tölum
er tjónaprósentan miðuð við ið-
gjöld nær 100%. En til þess að
tryggingafélögin hefðu átt fyrir
kostnaði hefði tjónaprósentan ekki
mátt fara upp fyrir 75%, þar sem
tryggingafélögin áætla að 25% af
iðgjöldum fari í kostnað vegna
trygginganna.
Ásgeir skýrði frá því, að reynsl
an á árinu 1964 hefði sýnt, að
iðgjöldin þá hefðu átt að hækka
um 33% til að jafna metin. Með
hækkuninni nú er ekki verið að
jafna fyrir tap ársins 1964, held
ur er hækkunin einungis til þess
að reyna að tryggja að afkoma
ársins 1965 verði ekki hættuleg
fyrir tryggingafélögin og þá um
leið fyrir hina tryggðu, því þeir
ÚTIBÚSSTJÚRI
Oss vantar lipran og reglusaman mann, til þess
að taka að sér rekstur útibús vors á Vegamótum,
Miklaholtsshreppi, ásamt rekstri veitingahússins.
Nýtt íbúðarhús er til afnota fyrir útibússtjórann.
Starfið er laust frá 1. maí n. k.
Umsóknir og upplýsingar um fyrri störf, sendist til
kaupfélagsstjórans Þórðar Pálmasonar, fyrir 20.
apríl n. k.
Kaupfélag Borgfirðinga,
Borgarnesi.
TÓNLEIKAR í
HÁSKÓLABÍÓI
í tilefni af 15 ára afmæri Menningartengsla ís-
lands og Ráðstjórnarríkjanna mánudaginn 12.
apríl, 1965, kl. 21.
Ávörp: Halldór Laxness, forseti M. Í. R..
Gylfi Þ. Gíslason, menntamálaráðherra, N. Tupit-
syn, sendiherra Sovétríkjanna.
Einleikur á píanó Vladimir Viktorov, konsert-
meistari frá Stóra-Leikhúsinu í Moskvu.
Listdans: Elena Rjabinkina, frá Stóra-Leikhúsinu
í Moskvu, þjóðlistamaður Sovétríkjanna.
Einsöngur: Alexei Ivanov, bassasöngvari frá Stóra
Leikhúsinu þjóðlistamaður
Aðgöngumiðar í bókaverzlunum Sigíúsar Ey
mundssonar, Lárusar Blöndal oo M Menning-
ar. M. i R.
eiga að fá sitt tjón bætt.
Þegar blaðið spurði hvort ekki
væri um það að ræða, að færa
á milli trygginf|-,flokka, sagði Ás-
geir, að ekki kæmi til annað en
greiða tjónin af því fé sem inn
kæmi fyrir iðgjöld sömu trygging
argreinar. Hann sagði að trygging
arnar leggðu á það sérstaka á-
herzlu, að ein trygging væri ekki
látin standa undir annarri, þann
ig t. d. að brunatrygging væri
ekki látin standa undir bílatrygg
ingu og öfugt.
Um hækkunina í ár, sagði Ás-
geir, að hún lægi í auknum bíla-
fjölda og auknum kostnaði vegna
viðgerða á bifreiðum. .Þá hefði
tjónabætur til slasaðra stöðugt
verið að hækka, enda miðaðar
við kaupgengi á þeim tíma, þeg
ar slysið er gert^upp, sem er oft
nokkrum árum eftir að slysið verð
ur. Slíkt getur oft breytt miklu
þegar verðlagsbreytingar eru eins
örar og hér.
Ásgeir endurtók að þau 33%
sem vantaði upp á árið 1964 hefðu
ekki verið tekin með nú. Þau voru
skilin eftir þegar áætlunin fyrir
1965 var gerð. En til marks um
það, við hvað er að stríða, þegar
gerðar eru áætlanir yfir kostnað,
sem greiddur er að stærstum
hluta fyrirfram, má benda á, ac5
árið 1963 Komu 128 tjón til af-
greiðslu hjá Samvinutryggingum,
sem vörðuðu slys á fólki. Fyrir
þau greiddu tryggingarnar 10,6
milljónir. Árið eftir urðu samskon
ar tjón 165 að tölu og eru bæturn
ar áætlaðar 16.2 millj. og sýnir
þetta dærni hvað aukningin er í
raun og veru hröð.
Þegar iðgjaldið í ár var ákveðið
var 18% hækkun með talin vegna
aukins kostnaðar 1965. Ómögulegt
er að segja nema þéssi kostnaður
aukist mikið meira. Þá var 10%
hækkun meðtalin vegna hækkun-
ar á tryggingarupphæð úr hálfri
milljón í tvær milljónir. Hér er
um hreina ágizkunartölu að ræða,
enda engin reynsla fengin fyrir
því hvaða þýðingu þessi hækkun
hefur. Hún gæti alveg eins gilt
5% eða 30%, úr því verður
reynslan að skera.
Menn þekkja, jafnvel af einföld
um heimilisrekstri hve erfitt reyn
ist að gera áætlanir fram í tímann,
eins og öllu er háttað hér á landi
þessi árin. Og reynsla Samvinnu
trygginga frá árinu 1964, þegar
33% vantaði upp á að eudarnir
næðu saman í bílatryggingadeild-
inni, sýna við hvaða erfiðleika er
að etja á þelm vettvangi.
Ásgeir sagði að lokum, að hann
áliti að fleiri tryggingafélög í land
inu myndu ekki minnka trygg-
ingarkos'Aaðinn, heldur auka hann
en sá kostnaður myndi svo lenda
á tryggjendum.
ÍBÚÐIR ÓSKAST
KAUPENDUR
r
A
BIÐLISTA
SALAN í
FULLUM GANGI
FASTEIGNASALAN
HÚS og EIGNIR
BANKASTRÆTI 6
SÍMAR 16637
OG 18828
HEIMASÍMAR
40863 OG 22790
KREFJAST 810 ÞÚS.
Framhald ai 16 síðu
Royce 400 og stjórnar Loftleiða
og varð þá að samkomulagi að
greiða skyldi vegna Rolls Royce
400, 100% álag á flugstundagjald
DC 6B flugvélanna, sem var kr.
92.— flugstjórum til handa en kr.
46.— til aðstoðarflugmanna. Þetta
var gert vegna þyngdarhlutfalla
milli þessara flugvélategunda, en
auk þess bættust 40% á sama
grunngjald vegna aukins hraða.
Samkvæmt þessu varð flugstunda-
gjald flugstjóra á Rolls Royce 400
kr. 220.80 og nemur sú árleg kjara
bót rúmum 100 þúsundum króna
miðað við sama flugstunda-
fjölda og gildir nú -á DC 6B.
Þar sem fulltrúar flugmanna
óskuðu eftir að fresta samningum
um hámark flugstundafjölda og
flugstundatryggingu þar til síðari
námsflokkur flugmanna kæmi
lieim frá Canada í lok október-
mánaðar, þá varð það að samkomu-
jlagi, en um önnur. atriði,.var_eng-
inn ágreiningur.
Viðræður um flugstundahámark
og flugstundatryggingu hófust að
nýju í nóvembermánuði síðast
liðnum og varð lokafundur um það
efni haldinn án þess að endanlegt
samkomulag næðist. Hins vegar
kusu Loftleiðir nefnd til fram-
haldsviðræðna, en þá vísuðu full-
trúar flugmanna málinu til Félags
íslenzkra atvinnuflugmanna. Hinn
26. febrúar s. 1. bar samninganefnd
F.Í.A. fram nýjar kaup- og kjara-
kröfur vegna flugmanna á Rolls
Royce 400, sem námu samkvæint
þeirra eigin útreikningi kr. 810
þúsundum á ári fyrir flugstjóra í
hæsta launaflokki, en það eru kr.
67.500 á mánuði. Er þá miðað við
verulega lækkun flugstunda og
gert ráð fyrir 60 klukkustunda há-
marksflugi á mánuði hverjum í
stað 105, sem gildir á DC 6B.
Þess skal getið, að samkvæmt
útreikningi Loftleiða eru kaup-
kröfurnar í rauninni hærri en flug
mennirnir hafa áætlað, og ber þar
m. a. á milli tryggingar, einkennis
búninga og önnur hlunnindi.
Hinn 21. marz s. L fór stjóm
Loftleiða til Norðurlanda til viku
dvalar þar og var samninganefnd
F.Í.A. um það kunnugt, enda ferð-
in ákveðin með löngum fyrirvara,
en sama dag boðaði stjórn F.Í.A.
verkfall frá og með 3. apríl á Rolls
Royce 400 flugvélum Loftleiða, og
gafst því mjög naumur tími til
samningaviðræðna.
Máli þessu var vísað til sátta-
semjara, sem hélt fyrsta fund með
deiluaðilum 1. apríl s. 1. Fundim-
ir hafa enn ekki borið árangur.
Að gefnu tilefni er rétt að upp-
lýsa, að kaup hinna bandarísku
flugstjóra, sem ráðnir em til
starfa hjá Loftleiðum í nokkra
mánuði, meðal annars vegna þjálf-
unar íslenzkra flugmanna í Can-
ada, nemur um 1250 dölum á mán
uði, miðað við 70 stunda flug.
Kostnaður Loftleiða vegna þjálf-
unar þessara flugmanna er sáralít-
ill og þeir munu fara héðan strax
og unnt er að fá íslenzka flugmenn
í þeirra stað. Hins vegar er þjálf-
unarkostnaður Loftleiða vegna ís-
lenzku flugmannanna í Montreal
mjög mikill, og allur greiddur af
Loftleiðum.
EIGNARSKATTUR
Framhald'af 16 síðu.
ur væru orðnar eins og krabba-
mein, sem sáir til sín um allan
þjóðarlíkamann.
Gerð er nánari grein fyrir af-
stöðu Framsóknarmanna til hús-
næðislagafrumvarpsins á bls. 7.
Beztu þakkir til allra þeirra, sem sýndu mér vinarþel
á sgxtugs afmælinu 23. marz. Lifið heil.
Anna Jónsdóttir, Setbergi.
Hjartans þakkir færum við ykkur öllum, nær og fjær, fyrir auð-
sýnda vináttu, samúð og hjálp j raunum okkar, vegna fráfalls og
jarSarfarar elginmanns míns og föSur okkar,
Jóns Kristins Sigtryggssonar
ByggSaveg 140, Akureyri.
Sigrún Gunnarsdóttir, SlgríSur Jónsdóttir,
Kristinn Jónsson, Hermann R. Jónsson,
GuSný J. Jónsdóttlr, Gunnar Jónsson.
I
Innilegar, þakkir fyrir alla þá vinsemd og samúS sem okkur var
sýnd viS fráfall míns elskulega elginmanns og föSur okkar,
Elíasar Þorsteinssonar
ÁsgerSur Eyjólfsdóttir,
GuSrún Elíasdóttir,
Marta Elíasdóttir,
Ingibjörg Elíasdóttir,
Jóhann Pétursson,
Þórarinn Haraldsson,
Ólöf Angantýs,
og barnabörn.
MóSurbróSir okkar
Þorvaldur Þorbergsson
frá Sandhólum,
andaSist j siúkrahúsi NeskaupstaSar 1. þ. m. — Útför hans verður
gerð frá Búðareyrarkirkiu n. k. föstudag, kl. 2 síðdegls.
Birna Steingrímsdóttir, Baldur Steingrímsson.
I