Alþýðublaðið - 01.04.1958, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 01.04.1958, Blaðsíða 4
4 A1 þ ý 8 n b 1 a 511 Þriðjudag 1. apríl 1958. ÉG HEF OFTAR en einu sinni lagt til að efnt væri til þjóðaratkvæðagreiðslu um varn armálin. Alþingi hlýtur að geta komið sér saman um orðalag, sem lagt yrði fyrir þjóðina við allsherjaratkvæðagreiðslu. Efni spurningarinnar, hvort sem hún væri ein eða fleiri, hlyti að veroa í þá átt, livort þjóðin vili að íslancl sé í Atlantshafsbaada- l.aginu og hvort hún vill að gerð ur sé samningur um varnir lands íns við það. ÉG MINNIST Á ÞETTA NiJ vegna þess að enn einú sinni er efnt til fundahalda og umræöna um þetta mál og ef ráða má af- stöðu flokkanna af því, sem stendur í blöðum þeirra, þá ligg xir málið ekki hreint fyrir. Það •rer öllum ljóst að jafnvel þeir sem sízt skyldi og mest eru grunaðir um græsku, reyna hvað eftir annað að fiska í gruggugu vatni út af þessu stórmáli og.nú jtiafa nokkrir menn, sem kalla sig „samtök rithöfunda“ efnt til fundahalda. Þar eiga rithöfunda félögin enga aðild að og helztu Æramámenn eru fyrst og fremst Jþeir undirróðursmenn, sem tielzt vilja fara að vilja erlendra .irn lausn málsins. MEÐ ÞJÓÐARATKVÆÐA- GREIÐSLU um það yrði skorið núr þessu deilumáli um langa framtíð. Ég sé því ekki betur en ,ið það sé fyrst og fremst hag- kvæmt fyrir þjóðarheildina að þjóðaratkvæðagreiðgla fari fram um það, — og í raun og veru er engin betri lausn á deilunum lyrir hendi. Með þjóðaratkvæða .greiðslu yrði skorið úr því svo að ekki yröi um að villast. Þjóðin hefur þegar gert sér grein fyrir þessu. Það stendur áðeins á stjórnmálaflokkunum að leggja málið fyrir hana til úrskurðar. TVEIR PILTAR hafa tekið upp þátt í útvarpinu, sem þeir tileinka ungu ljóðskáldunum, Svo virðist sem þessir þættir, ‘þeir munu vera orðnir tveir, haíi .vakið nokkra athygli og kátínu. Hvers vegna ekki þjóðar- atkvæðagreiðslu um varnarmálin. Enn reynt að fiska í grugg ugu vatni. Þættirnir um ungu Ijóðskáldin. Merkilegheit og goðsvör eða . . ? Ég.hef því miður ekki hlustað á þá, en af bréfum að dæma, sem ég hef fengið um þá, munu þeir vera nokkuð nýstárlegir. Um þetta segir B. K. í bréfi til mín: „TVEIR HÁSKÓLAPILTAR hafa tvívegis staðið fyrir ung- skáldaþáttum í útvarpnu. Sá fyrri var um Jón Óskar, en hinn síðari um Matthías Johannessen. Jón Óskar ér orðinn nokkuð kunnur, en Matthías er nýr af nálinni. Ég vil segja það strax, að ljóð þessara pilta eru betri en .speki þeirra í útvarpinu, enda bættu piltarnir tveir, sem tekið hafa saman þættina, sann- arlega ekki úr með hátíðleik sín- um og merkilegheitum. VITANLEGA má ekki taka hart á ungum mönnum, þó að þeir komi einkennilega fyrir sjónir og veki taros. En merki- legheitin voru svo óskapleg að engu tali tekur. Það var eins og verið væri að spyrja sjálfan Búddha og svörin voru eins og véfréttir. Það var helzt að heyra að ungu skáldin vissu svör við öllum spurningum lífsins. Það var ómögulegt að heyra annað en að þeir teldu sig báða afburða FUNDUR til að ræða og ganga frá stofnun alls- h.erjakþélags íþiienzkra lcgfræðinga verður haldinn í 1. kennslustofu háskólans í dag, þriðjudaginn 1. apríl kl. 17. Undirbúningsnefndin. _ Hjartans þakklæti viljum við færa hinum mörgu. nær og fjær, er sýndu okkur innilega hluttekningu með blómum, rninningarspjöldum og nærveru sinni, við andlát og jarðarför MAGNEU HALLDÓRSDÓTTUR FRÁ STOKKSEYRI. Við biðjum góðan guð að blessa y'kkur og launa, af rík- lómi sínum. Guðmundur Pálsson, Halldór Guðmundsson, ; 4*_ Guðríður Guðjónsdóttir, A Sigurður Jónsson, Sigrún Guðmundsdóttir, Páll Guðmundsson, Jóna Alda Illugadóttir. menn og hið sama var álit stjórn endanna á þeim. í SANNLEIICA SAGT kom mér þetta á óvart. Þessi merki- legheit og goðsvaratildur finnur maður ekki í ljóðum þeirra. Jón Óskar sagði eitthvað á þá leið, að hann varðaði það engu hvaða álit fólk hefði á ljóðum hans. Það má vel vera. En almenning- ur hefur sannarlega ákveðnar skoðanir á þáttum eins og þess- um í útvarpinu." ER ÞETTA EKICI of mikil viðkvæmni? Ungu skáldin bera nýjan tíma í fangi sínu og brjóta nýjar leiðir. Menn geta deilt um þær. Ung skáld, sem brotið liafa nýjar brautir, hafa alltaf verið sögð merkileg með sig. Eins og kunnugt er vita ungir gáfaðir menn svör við flestu milli him- ins og jarðar. Og ég held að þeir megi segja skoðanir sínar. Hannes á horninu. YFILSBUBI FLOA-STERKUR SMUROSTUR FLÓA-HANGIKJÖTSOSTUR FLÓA-RÆKJUOSTUR FLÓA-GRÆNN ALAPAOSTUR FLÓA-TÓMATOSTUR Ennfremur KJARNAOSTUR ITUPUM. Flóaostar eru ómissandi i ATLi MAR ........ MJÓLKURBÚ FLÓAMANNA. Dregið í 4. flokki 10. apríl, Endurnýið sem fyrst. Ath. Aðeins 2 söludagar eftir páska.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.