Alþýðublaðið - 01.04.1958, Síða 6

Alþýðublaðið - 01.04.1958, Síða 6
AlþýBnblaðtS Þriðjudag 1. apríl 1958. t 6 rifari Stórt fyrirtæki í Reykjavík óskar eftir að ráða einkaritara. Kunnáíta £ ensku, norðurlandamálum og 1. flokks vél- ritunarkunnátta nauðsynleg. Gott kaup. Tilboð merkt: Einkaritari, ásamt mynd, sendist afgreiðslu blaðsins fyrir 10. þessa mánaðar. áygifsing nr. \, 195S frá fnníluíningsskrifstofunni. Samkvæmt heimild í 22. gr. reglugerðar frá 28. desember 1953 um skipan ínnflutnings- og gjaldeyris- mála, fjárfestingarmála o. fl. hefur verið ákveðið að út- hluta skuli nýjum skömmtunarseðlurn. er gildi frá 1. apríl til og með 30. iúní 1958. Nefnist hann „ANNAR SKÖMMTUNAÆSEÐILL 1958,“ prentaður á hvitan pappír með brúnum og grænum lit. Gildir hann sam- kvæmt því, sem hér segir : REITIRNIR.: Smjörlíki 6—10 (báðir meðtaldir gildi fyrir 500 grömmum af smiörlíki, hver reitur. REITTRNIR: SMJÖR gildi hvor fyrir sig fyrir 250 grömmum af smiöri (einnig bögglasmjöri). Verð á ‘bögg1asmjöri er greitt niður jafnt og mjólkur- og rjómabússmjör, eins og verið hefur. „AJSTNAR SKÖMMTUNARSEÐILL 1958“ afhendist aðeins gegn pví, að úthlutunarstióra sé samtímis skilað stofni af „FÝRSTI SKÖMMTUNARSEÐHLL 1958,“ með árituðu nafni og heimilisfangi, svo og fæðingardegi og ári eins og form hans segir til um, Reykjavík, 1, apríl 1958. INNFLÚTNINGSSKRIFSTOFAN. KRON ASaffundir deítdanna verða sero hér segir: 1. deild Búðin Skólavörðustíg 12. Þriðjudag 8. apríl 2. deild Rúðin Grettisgötu 46 Miðvikudag 9. apríl 3. deild Rúðin Vesturgötu 15 Fimmtudag 10. apríl 4. deild Rúðin Skeriafirði Föstudag 11. apríl 5. deild Rúðin Vegamótum Mánudag, 14. apríl 6. deiid Búðin Fálkagötu 18 Þriðiudag 15. apríl 7. deild Rúðln Nesvegi 31 Miðvikudag 16. apríl 8. deild Búðin Barmahlíð 4 Fimmtudag 17. apríl 9. deild Búðin Bræðraborgárst. 47 Föstud. 18. apríl 10. deiid Búðin Hverfisgötu 52 Mánudag 21. apríl . i “ 11. deild Búðin Langholtsvegi 136 Þriðjudag 22. apríl 12. deild Búðirnar í Kópavogi Föstudag 25. apríl 13. deild Búðin Hrísateigi 19 Mánudag 28. apríl 14. deild Búðin Langholtsvegi 24 Þriðiud. 29. apfíl 15. deild Smáíbúðahverfi-Fössvogur Miðv.d. 30. apríl Fundirnir verða allir haldnir í fundarsal félagsins á S'kólavörðustíg 12 nema fundur 12. deildar, sem verð- ur í Barnaskólanum í Kónavogi. Fundirnir hefjast kl. 8,30 e. h. Til’ögur deildarstjórna um fulltrúa á aðalfund liSgja fammi í skrifstofu félagsins l'ögum samkvæmt. DEILDAR ST J ÓRNIRN AR. Ballettsýningaratriði. BALLETTINN er enn svo ung list með okkur, að ballett- sýningar eru yfirleitt ekki fjöl- sóttar, nema þær veiti um leið tækifæri til að skoða útlend- inga, sem gaman. er að geta sagt að maður hafi séð á sviðinu. Engu að síður hefur orðið meiri og heillavænlegri þróun í þeirri listgrein hér að undanförnu en flestum öðrum íyrir atbeina Þjóðleikhússins, og það mun eiga eftir að sýna sig enn betur er frá líður að þar var rétt og hyggilega af stað farið, er þau hjón, Erik Bidsted og Lise Kæregárd voru ráðin hingaö til að leggja þar grundvöllinn. Danskur ballett stendur jafn- fætis því sem bezt þekkist í heiminum á því sviði og á sér langar og frægar erfðir. Og þau hjón eru þar engir liðléttingar, hvorki sem listamenn né kenn- arar. Það er leitt ef þessi ball- ettsýning Þjóðleikhússins verð ur ekki sæmilega sótt; hún er vel þess virði að almenningur veiti henni athygli og fylgist um leið og hann nýtur listar þeirra, sem lengst eru komnir, með þeim tframförum, sem þeir yngri hafa tekið. Ballettinn er listgrein, sem krefst lengri þjálfunar en ef til vill nokkur önnur, og það er gleðiríkt að sjá hive örugglega miðar í átt- ina. Erik Bidsted hefur samið ballettverkin, sem sýnd eru, — Ég bið að heilsa, Brúðutoúðin og Tjakovskystef. Hér verður ekki lagður dómur á frammistöðu hvers og eins dansara sérstak- lega, til þess skortir mig alla þekkingu, en heildarsvipur sýn ingarinnar var fágaður og bar vitni frátoærri elju og smekk- vísi kennarans og þjálfarans Eriks Bidsteds. Og að sjálf- sögðu duldist jafnvel ekki þeim, sem aðeins verða að dæma eftir smekk sínum, að þau hjónin, hann og Lise Kjære gárd, báru mjög af öðrum dans- endum, ásamt hinum danska gesti, ballettdansaranuni Jchn Wöhlk. Það skal öllum dans- og leik- listarunnendum ráðlagt ao láta þessa sýningu ekki frarn hjá sér fará, þrátt fyrir páskaann- irnar. L. G. S s s s s s s s s s s s s S s s V V s s s s s s s s s s «®AMAN ■íWk. ©q Hlerað í síma. Vitanlega ætla ég á skíði um bænadagana . . . þó það nú væri, elskan, þú veizt hvað ég er agalega mikið fyr ir allt sport . . . Jú, jú, upp í skála . . . Þú ættir bara að sjá hve ég hef fengið mér agalega smart útstýr .... svefnpoka, jú, vitanlega, -4- og ég get sagt þér að hann er alveg draumur, með am- erísku patenti, skilurðu ... Og svo þessa agalega sjikku sportdragt með kokkteiífígúV um og öllu upp á svoleiðis symból, skilurðu . . . Og svo kvöldsloppurinn og náttföt- in, ef þú sæir þær spjarir þá er ég hreint bara viss um að þú lifðir það ekki af . . . Guð, ég hef aldrei séð neitt svo agalega kreisý, manneskja. . . . Ha, skíði . . . sagðirðu skíði? Ertu snarbrjáluð — manneskja . . . hvern fjand- ann sjálfan ætti ég að vera að dröslast með skíði, ég segi bara það ... HoIIráð. Annastu börn þín og verndaðu jafnvel betur en bílinn þinn, og minnstu þess að það fást ekki í þau nein- ir varahlutar . . . Og svo er það konan, sem spurði læknirinn þegar hann hafði lokið við að skoða eiginmann hennar, er lá sársjúkur uppi í rúmi: „Segðu mér eitt, læknir — ætli það sé nokkur þörf á því að ég haldi áfram með að prjóna þessa peisu handa honum . . .“ Orð uglunnar. Ójá, þeir eru til, sem sækj ast eftir sólinni . . . fara afn vel alla leið suður á Ítalíu og það fyrir eiginn pening. S s s s s s s s s \ s s s s s s s s s s s s s s s s s s s k Kammermúsik 'KAM'MERMÚSÍKKLÚBB URTNN hélt tónleika í Mela- skólanum sl. sunnudag við hin- ar ágætustu undirtektir. Flutt var fyrst sónata í A-dúr op. 69 eftir Beethoven af þeim Einari Vigfússyni og Jóni Nordal. •Verkið er gullfallegt og naut sín vel í meðferð þeirra félaga. Síðara verkið á efndsskránni var Trío í B-dúr op. 99 eftir Schubert, sem sömu menn fluttu ásamt Ingvari Jónassyni fiðluleikara. Flutningurinn tókst yfirleitt ágætlega og hið ágæta verk naut sín mjög vel. Það ber að lofa þann dugnað, sem forráðamenn Kammiermús- íkklúbbsins hafa sýnt í að breiða út kemmermúsik og gefa mönnum kost á að hlýða á þau yndislegu verk, sem kammer- músíkbókmenntirnar hafa upp á að bjóða. Þá er hlutur tón- listarmannanna ekki síðri, en þeir leggja á sig mikla vinn.u við æfingar, ásamt öðrum störf- um, fyrir lága greiðslu, en aðal lega af áhuga á verkinu. Menn sem ’áhuga hafa á hljómlist, ættu að flýta sér að gerast með- limir klúbbsins, á meðan færi, er, því að svo gott sem starfið hefur verið til þessa, á bað eft- ir að verða enn betra og marg- breytilegra, svo sem fram kom í fréttum um síðustu helgi. G. G.'

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.