Forvitin rauð - 01.05.1973, Side 4
Stúl
il*tur
ens^' °* me8 V
0«'S6V-t' .(í,r W*>v
(Wtw
lnO"‘n ’
l<e« opP ÍUv
sen«
d'S'
aW-
Skrifsfofus túlka
(Vl._ "•
°”,"*n •«» að rá*. . .
ritunor. ’*n"»«lustálku til
•‘moviírtlu
CTARFSAuGLysiNGAKðNNUN
Starfshópur sá, sem sendir þessa greinargerð ■
frá sér, ætlaði í upphafi að gera allsherjar-
úttekt á auglýsingum.. En hann gerði sér grein
fyrir, að slíkt var einum litlum starfshóp,
skipuðum vinnandi fólki, ofviða á þeim tíma
sem skammtaður var. Hann ákvað þess vegna að
einbeita sér að auglýsingum eftir starfsfólki.
Þar sem sá hópur auglýsinga opinberar afstöðu
atvinnurekenda gagnvart kynferðisgreiningu
fólks í störf, var hann hvað forvitnilegastur
til umfjöllunar fyrir rauðsokka.-
Við athugun á auglýsingum kom í ljós, að lang-
mestur hluti þeirra krafðist skriflegra um-
sókna. Eina leiðin til að ná sambandi við
þessa auglýséndur var því að skrifa þeim.
Og við sendum þeim bréf, þar sem leitazt
var við að finna ástæðuna til þess að kynferði
umsækjanda skipti þá máli. Bréfið gerði stutta
grein fyrir starfshópnum og könnuninni,
síðan komu 5 krossaspurningar um ástæðuna fyrir
ósk þeirra.-
I stuttu máli, þessi aðferð brást. Þrátt fyrir
einfalda framsetningu og að við sendum með
bréfinu utanáskrifað og frímerkt umslag,
þá svöruðu aðeins 9 af þeim 50, sem við sendum
bréfið til, og af þessum 9 reyndu nokkrir að
snúa sig út úr spurningunum. En þrátt fyrir
þessa slöku frammistöðu auglýsenda, kom fram
eitt forvitnilegt atriði. Við sendum auka-
spurningar með sumum bréfanna varðandi
merkingu orðsins maður. Og spurðum við, hvort
það þýddi a) karlmaður, b) kvenmaður, eða
c) saimheiti fyrir bæði kynin. Fimm svör bárust
við þessari spurningu, í þremur þeirra var krossað
við lið c, í tveimur við lið a, og öðru þeirra
fylgdu nokkur vel valin orð sárhneykslaðs auglýs-
anda á kunnáttuleysi okkar í íslenzkri tungu
”því kynin heita maður og kona".-
Eftir þessa misheppnuðu tilraun ákváðum við að
hringja til þeirra auglýsenda, sem gáfu upp síma-
númer. Vesalings auglýsendurnir fóru flestir
í varnarstöðu og sumir virtust beinlínis hræddir,
eins og þeir hefðu slæma samvizku. Aðrir voru
mjög áhugasamir og hvöttu til breyttra viðhorfa.
En niðurstöðurnar vóru vægast sagt uggvænlegar,
því í 21 tilfelli af 31 réði hefð auglýsingu
þeirra eftir öðru kjminu. "Strákar láta ekki
bjóða sér að þvo gólf/þvo uppv’.1 "Strákar geta
ekki borið fram kaffi án þess að skvetta á við-
skiptavininn." "Karlmenn eru sóðalegri en konur."
"Já, en karlmenn fást ekki til að vélrita og
svara í síma." "Konur hafa ekkert vit á vélum."
"Starfið er of flókið fyrir konu." Upplífgandi jj.
«55-
Starfsfólk óskast
Stórt iðnfyrirtæki óskar að ráða eftirtalið
starfsfólk:
• SKRIFSTOFUMANN
með verzlunarmenntun, möguleikar á etöðuhækkun fljótlega.
• INNHEIMTUSTJÓRA
Verzlunar- og bókhaldaþekking nauðsynleg.
• SKRIFSTOFU STÚLKA
með verzlunarmenntun.
• SKRIFSTOFUSTÚLKA
Með gagnfræða- eða verzlunardeildarmenntun.
^4
*Bh
Æskilegt að umsækjendur gætu hafið
störf fljótlega.
^nir ásamt upplýsingum sendist
jjit: „Góð laun — 5577“ fyrir
. janúar.
Vön skrifstofnstúlka óskast
S/,:
'°0,
SkrrfstofustúOta vön enskum bréfaak*»**“~i
fljótlega til stórfyrírtækis miðsvæði
Tilboð óskast sent afgr. Mbl.
frant^rsff^
Mo>9“"b
netra-
’ 3 6^.
I. 11
Ritarastarf
Opinber stofnun vill réða rítara.
Góð vélritunar- og islenzkukunnátta nauðsynleg
Próf frá Kvennaskólanum í Reykjavík, Verzluna
önnur hliðstæð menntun æskileg.
Launakjör samkvæmt kjarasamningum ríkisstarfs
5. jar
úno
tilfellum var samt hægt að tala auglýsandann
inn á að hægt væri að brjóta hefðina. 6 voru
ósköp hreinskilnir og viðurkenndu beinlínis að
hægt væri að greiða konum lægri laun en körlum
þótt það hafi sjálfsagt verið ástæðan í fleiri
tilvikum. Og sýnir það okkur ótvírætt að full-
yrðingin um að konur séu lægra launaðar en karlar,
er sönn.-
Síðast komum við að spurningunni um sérhæfileika
kynjanna og töldu 7 auglýsendur það vera ástæðuna.
Virtust likamlegir kraftar ráða þar mestu um,
og lýstu sumir auglýsendanna sig fúsa til að
leyfa konum að spreyta sig, því vissulega eru
til konur með krafta í kögglum.-
Starfshópurinn telur að þessi, ekki nærri því
nógu víðtæka könnun leiði í ljós, að við þurfum
að glíma við tvo drauga. Annars vegar við hefð-
bundinn hugsunarhátt og úrelta skiptingu kynjanna
í starfsgreinar, og hins vegar þá staðreynd, að
konur láta bjóða sér lægra kaup en karlar.
Orslit þeirrar glímu- er komin undir okkur öllum.
Leggjumst því á eitt og sigrum.
Eiríkur Guðjónsson
Kristín Ingvarsdóttir
María Bergmann
María V. Kristjánsd.
Herdís Steingrímsd.
Ragnheiður Hrafnkelsd.
siöi
V.O"0
6"
,VW»-
'reVt® * eft«
9»
#l)ö'
6'"""
,6\
,6V.""
aefö
16»'m9
, 09
,0to»6s'