Forvitin rauð - 01.05.1973, Qupperneq 8
°o
<S»
Þróun
getnaðarvarna á undanförnum árum
sannar, að karlmenn hafa hingað til stjórnað
vísindarannsóknum. Áherzla hefur einkum verið
lögð á að finna upp getnaðarvarnir handa
konum, því að karlmenn álíta, að þar sem
konur verða barnshafandi, sé það þeirra að
annast getnaðarvarnir. Körlum líkar ekki, að
hróflað sé við eðlilegu líkamsástandi þeirra
og halda, að þá sé vegið að karlmennsku þeirra.
Þessir hleypidómar karlmanna hafa komið i veg
fyrir framleiðslu hentugra getnaðarvarna fyrir
karla. Sú áhætta, sem talin er sjálfsögð fyrir
þær konur, sem notaðar eru eins og tilraunadýr
við gerð getnaðarvarna, og þær, sem siðan nota
þessar varnir eftir að þær eru komnar á
markaðinn, eru í engu samræmi við þá áhættu,
sem vísindakarlmaður telur hæfilega fyrir
sig og kynbræður sína. Hér eiga áðurnefndir
hleypidómar einnig hlut að máli.
1 nýútkominni skýrslu um lykkjur og skyld tæki
er t.d. sagt frá því, að þessi tæki valdi
sárum 1 legi og legbólgum.
Oft er svo, að konur vita ekki, að verið er
að gera tilraunir á þeim. Úr því að tilraunir
á fólki eru nauðsynlegar til að árangur náist,
því eru þá konur frekar lagðar í þá hættu en
karlar? Uppfinning pillunar er nærtækasta
dæmið í þessu sambandi. Hún var reynd á
tiltölulega fámennxim hópij 200 konum frá
Puerto Rico. Rannsóknin beindist einkum að því,
hvort pillan kæmi í veg fyrir getnað, og hafin
var sala á henni áður en aukaverkanir hennar
höfðu verið kannaðar til fulls.
Hér á landi hafa ýmsar gerðir pillunar verið
í notkun undanfarinn áratug. Konur geta fongið
hana, jafnvel árum saman, án þess ac iæknir
athugi heilsufar þeirra. Engin viðvörun er
á umbúðunum við þeirri hættu, sem er samfara
notkun pillunnar, og þar er heldur
ekki nein hvatning til kvenna að fara
reglulega í skoðun.
En hvers vegna er ekki til nein pilla
fyrir karlmenn?
Árið 1968
sagði vísindakona, að framleiðsla
karlapillu væri möguleg, en fyrst þyrfti að
upplýsa karlmenn um líkamsstarfsemi þeirra,
því að flestir karlar vissu engan mun á
frjósemi og kyngetu.
Pilla fyrir karlmenn hefur verið fundin upp
og reynd á föngum. í ljós kom að hún var
örugg getnaðarvörn, en fangarnir veiktust,
ef þeir neyttu áfengis. Hvort skyldi nú vera
erfiðara að ganga í bindindi, eða að deyja úr
blóðtappa eða krabbameini eins og konur eiga
á hættu af sinni pillu?? önnur karlapilla
hefur komið fram, sem inniheldur testosteron
hormón. Hún veldur að vísu ekki bléðtappa,
en ef maður, sem notar hana að staðaldri,
hefur þegar sýkzt af krabbameini, getur
hormónin aukið og magnað sjúkdóminn, einkum
ef um er að ræða krabbamein í þvag- eða
kynfærum. Sú pilla sem konur hafa notað i
meira en áratug getur valdið krabbameini
í brjóstum og öðrum liffærum, en það hefur
ekki komið i veg fyrir sölu og notkun hennar.
Eins og stendur eiga karlmenn um fátt að velja,
ef þeir vilja annast sinar getnaðarvarnir
sjálfir eða hlifa konum við aukaverkunum
pillunnar eða þeim óþægindum, sem eru
samfara öðrum getnaðarvörnum kvenna.
Smokkurinn dregur úr ánægju af samförunum,
og vönun (sem er alls ekki það sama og
gelding) er ekki nothæf nema fyrir þá karlmenn,
sem ekki ætla að eiga fleiri börn.
Tiltölulega litlu fjármagni og fyrirhöfn er
varið til rannsókna á getnaðarvörnum karla,
og visindamenn gæta þar meiri varúðar en i
tilraunum sinum & komAm. Samt eru til
nokkrar aðferðir sem lofa góðu, en
þarfnast frekari athugunar, t.d. að
setja klemmur & sáðgöngin eða að sprauta
sæðisfrumum inn i blóðrásina og fá þannig