Forvitin rauð - 01.05.1973, Síða 18
ur
-bok;
nm
5 herbrögð til að komast á pólitlslca fundi
eða
aðferðir til að komast að heiman.
Hefðbundnar aðferðir:
Að ákveða á fjölskyldufundi að verja fé
til barnagæzlu öll þau kvöld mánaðarins,
sem pólit-ískir fundir eru fyrirhugaðir.
Ef fjárráð eru naum, þá verði komizt að
samkomulagi um, að hjónin fari til skiptis
á fundina.
Aðferðir byqgðar á samfélagskennd kvenna:
(Ætlaðar þeim konum, sem ekki komast að
samkomulagi við manninn sinn um ofangreindar
aðferðir,- einnig þeim, sem giftar eru mönnum
sem þegar hafa skipulagt öll sín kvöld, ein-
stæðum foreldrum, eiginkonum sjómanna, sölu-
manna, rithöfunda og listamanna, sem
krefjast frelsis til að þjöna innblæstri.)
Reyndu að komast að samkomulagi við
þær vinkonur þínar, sem hafa áhuga á
stjórnmálum, um að þið skiptist á um
barnagæzlu, þannig að allar komist á
sem flesta fundi. (sýndu skilning ef
einhverjar þeirra eiga menn, sem eru
mótfallnir því, að konur þeirra passi
börn annars staðar. Bjóddu fram íbúð-
ina þína, ef þú býrð ein.)
Leitaðu uppi mál, sem koma þínu hverfi
við, t.d.:
Hættulegar götur í grennd við skóla.
Skort á leiksvæðum fyrir börnin.
Gatnamót, sem þurfa lagfæringar við
vegna umferðar húsnaðra, barna og
gamals fólks.
Skort á dagheimilum.
Skort á atvinnu handa konum.
eða:
"Djarfar" aðferðir:
Ef þig langar á fund, þá segirðu manninum
þínum frá þvi. Segist ekki verða heima í
kvöld. Kærðu þig kollótta, ef hann verður
fúll við. Farðu rólega í kápuna. Ef til
vill hefur hann ekki trúað sínum eigin
eyrtim. Ef til vill kemur hann fram á
eftir þér og segir: "já en ég vil ekki
passa krakkana.." "Er það ekki," segir
þú þá. "En í kvöld ætla ég út og mér er
alveg sama um krakkana." 1 fyrstá skipti,
sem þú segir þetta, fær hann svo mikið
áfall, að hann heldur sig heima. Þegar
kemur að næsta fundi, verður hann vonandi
búinn að hugsa rækilega um ábyrgð og
frístundir, og þá gengur þér betur. bannig
getum við kennt karlmanninum félagskennd
gagnvart þér sjálfri og ábyrgðartilfinn-
ingu gagnvart börntinum. Þetta verður karl-
maðurinn að læra, og þú ert kennarinn.
Uppeldisfræðilegar aðferðir:
(Uppeldið tekur oft tímana tvo, og þú verður
að skipuleggja langt fram í tímann. Þetta
getum við nefnt:)
Hvernig á að kenna fjölskyldunni að borða
kvöldmatinn án þin
að lifa af þótt þú sért frá i nokkra klukkutima.
Reyndu ekki að verða ómissandi.
Það er kannski indælt við og við,
en það er ennþá yndislegra
að Xoka dyrum að baki sér
meðan sá sex ára sker brauð
(þykkar sneiðar eru mjög nærandi),
sá fjögra ára smyr sneiðarnar
(lifrarkæfa er jafngóð
í bitum) og sá tveggja
ára hellir mjólk í glösin
(kaupt\» nóg af herjni þessa
daga), pabbi veit hvar
gólftuskan er geymd!
Talaðu við konurnar, sem þú hittir í
verzlunum, á strætisvagnastöðvum, og á
heilsuverndarstöðinni. Reyndu að koma á
samtökum, þannig að frambjóðendur verði
varir við. Efndu til fundahalds og bjóddu
frambjóðendum.
/2
Dagsverk er dagsverk, hvort sem það er
unnið utan eða innan heimilisins. Því
getur þú með góðri samvizku sagt manni
þínum, að nú ætti störfum ykkar beggja að
vera lokið. (Margar kannanir hafa leitt
í ljós, að vinnudagur húsmóður með lítil
börn er afar langur og þreytandi.) Kvöldin
eiga að vera frítími. Þeim störfum, sem
þá eru óunnin, ber að skipta með hjónunum,
og nú eru þau hans verk.