Forvitin rauð - 01.05.1973, Side 19

Forvitin rauð - 01.05.1973, Side 19
Reyndu aldrei að telja neinum, allra sízt börnum, trú um að uppvask og hreingerningar séu skemmtiverk. Þetta eru leiðindaverk en bráðnauðsynleg. Þess vegna verða allir að skipta þeim bróðurlega með sér. Bittu hendur þínar á bak aftur, þegar þú finnur hjá þér löngun til að vinna eitthvert verk fljótar og betur en þau litlu, óhagsýnu eða óvönu. Taktu ekki til náttföt og rýjur áður en þú ferð af stað. Það hefur enginn fært sönnur á það, að það sé óhollt að sofa á skyrtunni og með rýjuna skakka. Karlmaður, sem hefur með höndum ábyrgðarmikið starf, lærir áreiðan- lega smám saman að leita í skúffunum að þvi, sem hann þarfnast. 3. dæmi: Yngsti krakkinn fékk niðurgang þegar hún var i þann veginn að fara, og maðurinn var alveg uppgefinn þetta kvöld. MUNDU, AÐ ÞAÐ ER A ÞESSUM ÁRUM, SEM MENN FÁ HJARTAKÖST! 4. dæmi: Maðurinn verður samvizku sinnar vegna að neita. Rök sin. setur hann fram á eftirfarandi hátt: 1. Ef við hjónin eru sammmála i stjórnmálum, þurfum við ekki að vera bæði félagsmenn i flokknum - og greiða félagsgjöld. í þvi tilfelli verð ég fulltrúi fjölskyldunnar. 2. Ef konan min ætlar að ganga i annan stjórnmálaflokk en ég er i, get ég ekki samvizku minnar vegna látið hana hafa peninga til að greiða félagsgjöld þar. Þar með væri ég að styðja starfsemi andstæðinga minna i stjórnmálum. (Lesendabréf i dagblaði.) Þegar svona stendur á heimsækja margar gamla veika frænku sina. Láttu hann fara á annan hvern foreldrafund i leikskólanum og skólanum. Þar færðu sjálf næði nokkur kvöld og pabbi kemst að þvi, að hann á lika börn. Ef áætlanir ykkar á kvöldin rekast enn á, þá láttu hann útvega barnfóstru i annað hvert skipti. Örþrifaráð! Þau eru notuð - svo til samvizkulaust - eft konur komast að þvi, að menn þeirra lita öðrum augum á réttindi kvenna en karla. Karl- mönnum af þessari gerð var lýst i norskri könnun, sem gerð var 1969. 11% kvennanna, sem tóku þátt i henni, sögðust fegnar vilja starfa utan heim- ilisins, en gætu það ekki vegna þess að menn- irnir leyfðu þeim það ekki. Það er heldur ekki auðvelt fyrir þessar konur að komast út á kvöldin. Mótmælin eru ekki alltaf orðuð beinlinis, en það gerist alltaf eitthvað: fÞað sýnir svo indælan og kvenlegan eigin- leika, að karlmaðurinn getur bara hrósað þér.) nokkrar fara i saumaklúbb. (Hann getur verið viss um, að þar verður aðeins talað um hégómamál, sem ekki ógna valda- hlutföllum heima fyrir.) aðrar dansa djassballett. (Það er fint, og hún verður svo sexi og sæt.) það er lika hugsanlegt að láta kjósa sig i barnaleikvallanefnd húsmæðrafélagsins. (Það bendir til þess að hún sé sifellt að hugsa um velferð barna sinna.) Örfáar segjast ætla að leika fóbolta. Úr "Kvinnens lille röde" þýð. Silja Aðalsteinsdóttir. 1. dæmi: Pabbi gamli kemur i heimsókn. Hann verður sármóðgaður, ef hann fær ekki kaffi, inniskó og góða aðhlynningu. MINNSTU ÞESS SEM HANN HEFUR GERT FYRIR ÞIGf 2. dæmi: Maðurinn hafði nú búizt við að hún yrði heima þetta eina kvöld mán- aðarins, sem hann hafði ákveðið að vera heima. KANN HÚN EKKI AÐ META HANN? EÐA SKILUR HUN EKKI HVAÐ STÖRF HANS ERU MIKILVÆG? 19

x

Forvitin rauð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Forvitin rauð
https://timarit.is/publication/56

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.