Forvitin rauð - 01.05.1973, Page 20
ull |<orn
úr
Sj ÚK JW)<ú551je)<jj í/íu m
©Jtlr Jncjtbj
Raunsæi
"Hún kunni ógrynni af sögum, og allar voru þær
fallegar, sögurnar hennar Sinu, og enduðu alltaf
með sigri þess góða í hverri einustu mannssál."
Bls.7.
Hvað gerðu mamma og pabbi?
ibiörC|u SCcjur^ardottur
Hvað skyldi það hafa verið?
"Hann brosir blítt, en það er eitthvað í sviþ
hans, sem Nínu fellur ekki í geð."
Bls. 23.
Tækni í kvennamálum.
"En sjálf veit hún ekkert af fegurð sinni og
reynir ekkert til þess að auka hana með þar til
gerðum tízkumeðulum. Hún er í öllu eins og
meistarahönd allífsins hafði gert hana."
Bls. 14.
Starfsfræðsla
"Vinnan í frystihúsinu þar sem Nína starfar,
stendur oftast lcingt fram á nætur, svo að hvíldin
er fremur lítil, og enginn tími til náinna kynna.
Nína er fljót að læra réttu handtökin við
fiskvinnsluna og vinnur ötul frá morgni til kvölds.
Hún vill ekki standa öðrum að baki, hvorki í
afköstum né skyldurækni. Og tíminn líður."
Bls.12.
Klíka, eða hvað?
"Viðar læknir er ungur maður og hefur nýlokið
námi erlendis í sérgrein sinni, sem er hand-
lækningar, og er mjög vel fær í sínu starfi.
Shemma á síðastliðnu hausti gerðist hann sjúkra-
hússlæknir í Faxavík og tók þar við nýbyggðu,
stóru og glæsilegu sjúkrahúsi, sem margir aðrir
læknar, eldri og reyndari en hann, sóttu um að
veita forstöðu, en hann varð hlutskarpastur, og
þar hyggst hann að starfa hinum sjúku til bless-
unar í framtíðinni."
Skilningsleysi■ Bls.15-16.
"En mynd þessarar litlu látlausu stúlku í dyrum
gamallar verbúðar í ókunnu sjávarþorpi, sem að-
eins ræddi við hann örfáar mínútur og vísaði
honum rétt til vegar, fylgir honum nú eins og
hlýr og bjartur geisli í ljúfri endurminningu
á þessum sólheiða vetrarmorgni. Hann skilur þetta
ekki þrátt fyrir sína miklu þekkingu á manninum."
Bls. 17.
P
"En það er líka bezt að halda ekki víninu frekar
að henni til að byrja með, heldur hefja dansinn
með henni og sjá svo til, er þau hafi dansað um
stund, hvort hún verður þá ekki tilleiðanlegri
að taka með honum "snafs", en það finnst honum
ómissandi hjálparmeðal, þar sem kvenfólkið er
annars vegar, til þess að koma sínum vilja fram
í skemmtanalífinu. Hann er farinn að þekkja
lagið á þessum stelpum."
Bls. 27-28.
Tvíræð spurninq?
"— Ert þú læknirinn minn?
- Já, svarar hann hiklaust án þess að hugleiða
það nokkuð í svipinn, hve tvíræð spurningin
getur verið."
Bls. 40.
Kólumbus hinn nýi■
"Aldrei hafa morgunstörfin á sjúkrahúsinu leikið
í höndum unga læknisins eins og að þessu sinni,
og aldrei hefir lífið átt dýpri fegurð og bjart-
ari ljóma, og aldrei hefir hann verið stæltari
né öruggari til stórra átaka en nú. Hann hefir
fundið innsta kjarna lífsins."
Bls. 52.
Starfsfræðsla 11.
"Að þessu sinni er fyrsta verkefni dagsins að
framkvæma stóran og vandasaman uppskurð, sem
þolir enga bið, og lækninnm tekst það með
miklum ágætum, enda orðlagður snillingur í
þeirri grein."
Bls. 59.
Eðli leyndarmála.
"Ó, hefði hún mátt iétta af hjarta sínu við
barm hennar núna, trúa henni fyrir öllu.
En það má hún ekki. Leyndarmál sín frá
þessu sjúkrahúsi verður hún að eiga ein og bera
ein. Þau eru þess eðlis."
Bls. 67.