Morgunblaðið - 13.09.1914, Qupperneq 2
1442
MORGUNBLAÐIÐ !
verða í sepfember öíí
B Æftw og undatifariti ár
Sjöí
ötmur etí cacfjemiresjöf — seíd með
15% afsfætfi.
Verzíunin Björn Jirisfjánsson.
Kálmeti
og
Kartðilur
nýtt í
Liverpool.
og bjuggust við að hann mundi þeg-
ar leggja undir sig landið. En kon-
súllinn svaf svefni hinna réttlátu til
morguns, því honum lá ekkert á í
land.
Oss veittist sá heiður f gær, að
eiga viðtal við Mr. Cable, skömmu
eftir komu hans á land. Hann er
ungur maður, grannnr, svarthærður
og hinn prúðmannlegasti i allri fram-
komu — enskur gentlemaður í húð
og hár.
— Hvernig lízt yður á Reykja-
vík?« spurjum vér til þess að byija
ekki undir eins á aðalerindi voru.
— Þökk, »very well«, segir kon-
súllinn og brosir. Það er ætíð
skemtilegt að kynnast nýjum lönd-
um og nýjum þjóðum — og hér
er alt nýtt fyrir mér. .
— Haldið þér að yður finnist
ekki lifið dauflegt og tilbreytingar-
lítið hér í vetur? —
— Það er ætið tilbreyting í því
fólgin að koma til ókunnra landa,
svarar mr. Cable, og þótti oss það
eigi óræðismannlega svarað. —
— Hvert er erindi yðar hingað?
Er það í sambandi við ófriðinn ?
— För mín hingað er í sambandi
við ófriðinn að svo miklu leyti sem
Exports-kaffl
(Kaffikvörnin)
komið aftur í
Liverpool.
allflestar stjórnarráðstafanir á þessum
tímum að einhverju leyti eru afleið-
ingar styrjaldarinnar. —
Þetta var kænlega svarað og þótti
oss bezt að fara sem minst út í þá
sálma.
— Fjöldi brezkra ræðismanna hefir
verið kallaður heim frá Þýzkalandi
og Austurriki og af þeirri ástæðu
hefir stjórnin nógum mönnum á að
skipa til annara landa. Eg var i
Hamborg þegar ófriðurinn hófst en
var þá sendur til Rotterdam. Þaðan
kem eg hingað. Farþegaskipið
»Oceanic« var sent með mig til
Færeyja, og strandaði það, eins og
þér vitið á norðurströnd Skotlands
á leið frá Færeyjum. Hafði það fall-
byssur og var rúmar 17 þús. smá-
lestir.
— Hve lengi búist þér við að
dvelja hér?
— Vér vitum aldrei hvert vér
verðum sendir og hve lengi vér
dveljum á hverjum stað. Það er
undir mcrgu öðru komið. En eg
býzt við að dvelja hér meðan ófriður-
inn stendur og ef til vill lengur.
Eg hefi heyrt margar sögur um
komu mína hingað í dag. En eg
get fullvissað yður um, að hún er að
engu leyti í sambandi við stríðshættu
fyrir Danmörku eða yðar land.
— Hvar hafið þér áður verið
sem ræðismaður?
— í Helsingfors, Hamborg og í
Rotterdam. —
— Hve lengi hyggið þér að
ófriðurinn muni standa.
— Það getur enginn sagt. En
Bretland er reiðubúið til þess að
heyja ófrið í mörg ár ef þess gerist
þörf. Og vér hættum ekki fyr en
vér höfum sigrað.
— Samtalið barst nú að siðasta
afreksverki Þjóðverja i Norðursjón-
um — um beitiskipið »Speedyc,
sem getið er um í blaðinu i dag að
hafi rekist á tundurdufl. Hafði Mr.
Cable'ekkert um það heyrt. —
— Speedyc var ekki beitiskip,
segir konsúllinn og flettir upp lítilli
bók sem hann hefir í vasanum.
Eru þar nöfn allra herskipanna
brezku. Speedy var tundurbátur,
810 smálestir að stærð, bygður árið
1894 og flutti að eins fáar fallbyss-
ur. —
— Mr. Cable er óvanalega mikill
málamaður af Breta að vera. Hann
talar þýzku, frönsku, sænsku, finsku
og dálitið rússnesku og hollenzku.
Kvaðst hann nú mundi hefja ís-
lenzkunám, meðan hann dveldi hér
og áður langt um líður spáum vér
að hann tali mál vort lýtalítið. Og
með ósk um að honum megi Hða
sem bezt hér á landi, kvöddum vér
þenna nýkomna brezka »gentleman«,
sem oss er heiður að hafa á meðal
vor.
Carol.
Útflutningur
frá Bretlandi.
Skip hingað með matvörur.
ViOtal við Garðar kaupm. Gislason.
Fyrir nokkrum dögum birtum vór
símskeyti, sem stjórnarráðinu hafði
borist frá ísl. skrifstofunni i Kaup-
mannahöfn, þess efnis, að enn væri
bannaður útflutningur á vissum vöru-
tegundum frá Bretlandi, en að leyfi-
legt væri að flytja nokkrar út. í
sama blaði gátum vór og um að Garð-
ar kaupmaöur Gislason ætti von á
gufuskipi hingað frá Leith, að nokkru
leyti hlöðnu matvörum. Þessar fregn-
ir eru harla einkennilegar. Skrifstof-
an í Kaupmannahöfn segir vöruútflutn-
ingsbann enn vera á flestum vöruteg-
undum, en þeir fólagar G. Gíslason &
Hay hafa þó fenglö leyfi til að senda
vörur út úr landinu.
í tilefni af þessu fórum vér á fuud
hr. Garðars Gíslasonar og báðum hann
að segja oss nánar frá þessu skipi,
sem hann ætti von á.
— Eg fekk skeyti rótt áðan frá
skrifstofu vorri í Leith og segir það
skipið »Glen Tanar« vera farið áleiðis
til íslands. Skipið flytur hingað 127
smálestir af matvörum og öðrum nauö-
synjavörum [og töluvert af kolum að
auk. Þegar eftir að Bretastjórn hafði
bannað allan útflutning, sóttum vór
um leyfi til stjórnarinnar um að mega
senda vörur til Íslands. Leyfi þetta
var veitt, fyrst í stað fyrir nokkrar
vörutegundir, en síðar, þ. 8. þ. m.,
▼ar oss tjáð af yfirvöldunum að vór
gætum flutt allar vörur út úr
Kornmatur
allur
kominn aftur í
LIVERPOOL.
landinu. Vór höfðum áður gert ráð-
stafanir til þess að útvega skip til ís-
landsfarar og tókum skipið Glen Tanar
á leigu. Er það eign félags þess, sem
á Glen Gelder, Liverpoolskipið.
— Hvaða vörur eru það, sem þór
aðaliega eigið von á.
— Það eru alskonar matvörur. M.
a. eru, um 800 pokar af haframjöli í
skipinu.
Eg býst við að eitthvað af þessum
vörum hafi verið keypt eftir pöntun-
um er oss hafði borist frá viðskifta-
vinum vorum áður en útflutningur
var bannaður. En mesta hlutann mun-
um vór hafa keypt til að selja hór,
Vörurnar eru fluttar hingað algerlega
á vora ábyrgð og hafa verið borgaðar
með peningum í Bretlandi. Vér seijum
þá vörurnar hór eingöngu fyrir pen-
ingaborgun við móttöku.
— Hvenær búist þór við skipinu?
— Eftir 4—5 daga ætti það að vera
hér. Og að öllum líkindum munum
vór leigja annað skip til íslandsferðar
og halda áfram okkar innkaupum i
Bretlandi, eins og enginn ófriður væri.
En til þess að koma vörunum hingað
verðum við sjálfir að leigja skip, þvf
Sameinaðafélagið hefir tilkynt að það
væri ófáanlegt til þess að láta skip
sín koma viö í Leith. En það ætti
ekki að þurfa að hindra verzlunarsam-
band við Bretland, ef menn annars
alment vilja fá vörur þaðan. —
Vór þökkuðum Garðari kaupmanni
fyrir þessar ágætu upplýsingar og
óskuðum þeim fólögum Gislason & Hay
góðs gengis f þessum þarflegu ráð-
stöfunum.
Bygg, Mais,
Maismjöl,
bezt og ódýrast
í Liverpool.
Allar konur
Sjúkrasaml. Reykjavíkr
eru beðnar að mæta á fundi í húsi
K. F. U. M. annað kvöld, mánudag.
14. þ. m. kl. 9 síðdegis.
Fjölmennið! Áríðandi!