Morgunblaðið - 13.09.1914, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 13.09.1914, Blaðsíða 4
1444 MORGUNBLAÐIÐ ('&'KfÆ'KK-lWK-í.Wgi.'iiftai; mM //4// paftnn mmmm œtitipi (^ZMií^ZMZ Páfafjöílin (Datikanið) og St. Péturskirkjan í Hóm. Sannar sag-nir af Titanic. Eftir Archibald Gracie ofursta. Frh. 21 Mrs. Imanita SheHey. Hún og móðir hennar, frú L. D. Parrish, voru farþegar á öðru far- rými. Frú Shelley hafði verið veik og drógst með veikum burðum upp á þilfarið og var henni fengið þar sæti. Litlu síðar kom þar sjómað- ur og hvatti hana til þess að stíga á bátinn, sem þá átti að hleypa niður. Það voru eitthvað fjögur eða fimm fet frá þilfarinu og niður í bátinn. Sjómaðurinn tók frú Parrish og kast- aði henni niður í bátinn en frú Shelley stökk sjálf niður í hann. Það voru látnar svo margar konur og börn í þenna bát, sem hann framast gat borið, án þess að slys hlytust af. í sama bili og báturinn nam við sjó, stökk ítali nokkur ofan af þil- farinu niður í björgunarbátinn. Kom hann niður á frú Parrish og meiddi hana mikið bæði á hægri síðunni og handleggnum. Bátsmönnum var skipað að missa ekki sjónar á hinum bátunum. Skip- verjar höguðu sér svo vel, frá því að skipið fyrst rakst á ísinn og þang- að til það sökk, að framkoma þeirra var hin fegursta fyrirmynd. Enginn einasti þeirra reyndi að fara á bát- ana nema hann hefði fengið skipun til þess, og sumir fóru úr yfirhöfn- um sínum og vöfðu þeim um kon- ur og börn sem komu hálfklædd upp á þilfarið. Frú Shelley segir að engir menn hefðu getað sýnt meira drenglyndi en þeir gerðu. 12. bátur. F. Clench sjómaður. Annar stýrimaður og eg stóðum við borðstokkinn og hjálpuðum kon- um og börnum niður í bátana. Við fyltum þrjá báta og létum nær fimtíu manns i hvern þeirra. Þegar við höfðum fullhlaðið ié. bátinn, gekk eg íftur til 12. bátsins. »Hvað margir sjómenn eru á þessum báti ?« spurði yfirstýrimaður. »Áðeins einn, Sir«, svaraði eg. »Farið þér á bát- innc, mælti hann. Eg gerði það. Poigndestre sjómaður var stýrimað- ur á bátnum og hann var ágætur sjómaður. Okkur var skipað að missa ekki sjónar á hinum bátun- um og reyna að halda saman. Það var aðeins einn karlmaður af farþegum á þessum báti. Það var Frakki, sem stökk leyfislaust í hann og faldi sig undir þóftunum, þar sem kvenfólkið sat, svo við gát- um ekki fundið hann. Love stýri- maður lét nokkra menn af sinum báti koma í okkar bát, svo á hon- um voru þá nær 6o manns. Þegar Love var róinn á braut, heyrði eg kallað á hjálp. Eg litaðist um og sá þá Engelhardtbátinn B sem hafði hvolft. Á kili hans voru nær tíu manns. Við tókum helming þeirra á okkar bát. 14. bátur. H. G. Lowe, fimti stýrimaður. Bátarnir nr. 12, 14 og 16 voru allir settir á flot nær samtímis. Eg sagði M. Moody að þrír bátar væru að leggja frá borði og einhver fyrir- liðanna yrði að fara með þeim. Hann mælti: »Farið þér þá«. Eg lét bátinn síga hér una bil fimm fet, því eg vildi ekki eiga það á hættu að nokkur stykki ofan í hann. Meðan eg var uppi á bátaþilfarinu ætluðu tveir menn að stökkva ofan í bátinn, en eg rak þá á braut. Við létum konur og börn koma á 12. og 14. bátinn. Moody var við 16. bftinn og eg við hina. Lightoller var þar og nokkra hríð. Þar komst enginn karlmaður með nema ítali nokkur setr. klæðst hafði kvenmannsfötum. Annan karlmann, C. Williams, setti eg og í bátinn og Sagði honum að róa. Þegar bátnum var hleypt niður, bjóst eg við því á hverju andartaki að hann mundi liðast sundur. Eg hafði hlaðin hann of mikið en eg vissi að eg varð að eiga nokkuð á hættu. Eg þóttist þess fullviss að ef einhver stykki niður í bátinn, mundi báturinn brotna. Og er við komum niður að hinu opna þilfari, sá eg fjölda fólks af rómönskum þjóðstofni standa víð borðstokkinn og stara á okkur með æðisgengnu augnaráði. Þar var hver maður bú- inn til stökks. Eg kaliaði til þeirra að þeir skyldu kyrrir og skaut með skambyssu minni með fram skipinu. í>að voru held eg þrjú fet milli báts- ins og skipsins, og jafnframt sem bátnum var hleypt niður, skaut eg án þess að hafa í hyggju að hitta nokkurn mann og eg er viss um að eg hitti heldur engan. Eg held eg hafi skotið þrem skotum. Seinna, þegar við vorum komin 150 yarðs á brautu, safnaði eg sam- an fimm bátunum og setti í tengsl. Eg beið þangað til mestu neyðar- ópunum linti og áleit þá að eg gæti róið aftur til slysastöðvanna án þess að bát okkar væri af þvFTiætta búin. Eg lét því farþega mína, 53 eða þar um bil, fara yfir í hina bátana fjóra og skifti jafnt á milli þeirra. Síðan spurði eg hvort enginn vildi koma yfir í minn bát og fara með mér þangað er skipið sökk. Þá sá eg ítalann fyrst. Hann hafði skýlu á höfðinu og eg held að hann hafi einnig verið í pilsum. En það er nú sama. Eg svifti skýlunni af höfði hans og sá að það var karl- maður. Honum var mjög umhugað að komast yfir í hinn bátinn svo eg tók í lurginn á honum og kast- aði honum milli bátanna. Smith rannsóknardómari: Köst- uðuð þér honum milli bátanna. Mr. Lowe: - Já, því hann átti ekki betri meðferð skilið. Smith: Köstuðuð þér honum á kvenfólkið, sem sat í bátnum? Mr. Lowe: Nei, Sir. Eg kastaði honum yfir i stafninn á bátnum. Smith: Urðu yður ekki nokkuð stór orð á munni við það tækifæri ? Mr. Lowe: Nei, Sir. Eg sagði ekki eitt orð við hann. Síðan reri eg aftur þangað er skipið sökk og bjargaði fjórum mönnum. Eg vissi ekki hverjir það voru. Þeir töluðu aldrei við mig hvorki fyr né síðar. Einn þeirra dó síðar. Þegar við höfðum tekið hann upp í bátinn, tókum við af honum línkragan til þess að hon- um veittist léttara að draga andann, en hann dó samt sem áður. Hann var orðinn of aðþrengdur þegar við náðum honum. Eg reri innan um alt rekaldið, og þótt merkilegt megi virðast, sá eg þar ekki lík einnar einustu konu. Eg hafði engin ljós- ker i mínum báti. Svo kom eg auga á Carpathia og hugsaði þá: »Það er gott að eg er á hraðskreið- asta bátnum« — því eg hafði segl. Báturinn skreið ágætlega. Svo kom eg auga á Engelhardt- bátinn »D«. Hann var svo illa staddur að eg afréð að hafa hann í eftirdragi. Það var bátur sá er Brights umsjónarmaður stýrði og í bátnum var einnig frú H. B. Harris frá New-York. Hún hafði handleggs- brotnað. En rétt er eg hafði tekið þennan bát í eftirdrag sá eg Engel- hardt-bátinn »A«, sem var enn hættar staddur. Eg komst á borð við hann nógu snemma til þess að bjarga mönnunum úr honum, en skildi eftir í honum þrjú lík. Það var ef til vill nokkuð illa gert, en en eg hugsaði sem svo: »Eg er ekki hér til þess safna líkum, held- ur til þess að bjarga lifandi fólki.* Mennirnir á bátnum sögðu mér að þessir menn væru löngu dauðir. Loftför yfir Paris. Þrjú þýzk loftför hafa flogið yfir París, eitt f hvert sinn, og varpað sprengikúlum í borgina. Þær gerðu lítinn sem engan skaða og sumar þeirra sprungu ekki, heldur voru teknar upp heilar. Geyma Parísarbúar þær nú til menja.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.