Morgunblaðið - 13.09.1914, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ
I44S
Sjðl með I5í afslæHi I
verða seld fyrst um sinr hjá
fóni Björnssyni & Co. I
Bankasíræíi 8.
T»e British Dominions« tar»e co. m.
——.......... ....... London. .......■■■■■
hefir yfir 1 million króna höfuðstól, og er ódýrasta brunabóta-
félag, er vátryggir hér á landi.
Því má þakka breytingar þær, er orðið hafa hér á landi á iðgjalda-
töxtum nokkurra annara félaga í seinni tíð.
Hjá þvi ættu sem flestir að vátryggja:
---- hús, innbú og verzlunarvörur. -----------
Aðalumboðsmaður félagsins á íslandi:
Garðar Gíslason, Reykjavík.
KvikmyndaleikhúsÍD.
Nýja Bíó. Þar eru sýndar
tvær myndir núna, báðar góðar og
vel leiknar. »Sonur þjófsins« segir
frá því, hvernig ungu barni lánast
að snúa íöður sínum frá glæpsam-
legu líferni. Er myndin fögur og
átakanleg og hlutverk litla drengs-
ins svo vel leikið, að fáir fullorðnir
myndu gera betur. Þjófinn leikur
Vitagraph leikarinn alkunni, Costellov
»Ást og afbrýði* er gott dæmi
þess, hvernig ástin getur blindað
augu manna og gert að verkum, að
þeir hlaupi hroðalega á sig. Liggur
nærri, að slys hljótist af afbrýðinni
hér sem oftar og víst er það, að
ekki eru leikslokin altaf jafn ákjós-
anleg eins og í þessari sögu. Að-
alhlutverkin leika Elsa Frölich og
Robert Dinesen.
Z.
Gamla Bio. »Sæmd liðsfor-
ingjans« heitir nýjasta myndin. Það
er þýzkur liðsforingjasjónleikur í
þrem þáttum. Efnið er gott og
myndin vel og snoturlega úr garði
ger. Meðal annars er þar sýnd
danslist 7 hispursmeyja og glæfra-
listir manns nokkurs, sem riður bif-
hjóli. Er ákaflega »spennandi« að
horfa á það. Myndin endar þó vel,
þvi elskendurnir ná saman og fög-
ur framtíð blasir við þeim.
Herfang Þjóðverja.
Bylow hershöfðingi Þjóðverja
segir að herdeildir hans hafi tekið i
ágústmánuði 240 fallbyssur, 79
maximbyssur, 166 vagna og 12,934
fanga. Um herfang annara herdeilda
eru ekki neinar skýrslur komnar,
því Þjóðverjar skeyta ekki um að
safna herfanginu saman.
Bretar missa beitiskip.
Fréttastofan brezka tilkynti 4. þ.
m., að beitiskipið »Speedy« hefði
rekist á tundurdufl og sokkið.
Þetta er þriðja beitiskipið sem
Bretar missa. Tvö hafa rekist á
tundurdufl, þetta og Amphion, en
einu (Pathfinder) sökti neðansjávar-
bátur þýzkur.
Þjóðverjar taka enska
botnvörpunga.
28. f. m. sökti þýzkt beitiskip
2 enskum botnvörpungum á Doggers-
bank, og tók 11 með sér til Ham-
borgar. Skipið fór með botnvörp-
ungana fram hjá Jótlandsskaga og
suður Stórabelti. Frétt þessa hafa
norsk blöð eftir vélameistara, sem
var á einu af ensku skipunum.
Hann lét vel yfir meðferð Þjóðverja
á skipshöfnunum.
Ofriðarsmælki.
Belgadrotning hefir flutt börn sín
þrjú til Bretlands. Þykir þeim hjón-
unum sem þau muni þar öruggari
en i Belgíu.
225 skip hafa Bretar tekið her-
fangi af óvinum sínum. Áttu Aust-
urríkismenn ellefu þeirra, en Þjóð-
verjar 214. Skipin eru geymd á
höfnum Bretlands og í Port Said,
Gibraltar, Melbourne, Nigeria, Malta,
Colombo, Calcutta, Sydney, Brisbane
og Suður-Afriku.
Petrograd. Astæðan til þess að
' Rússakeisari hefir skirt St. Peters-
burg upp og nefnt hana Petrograd,
er sú, að Rússar mega ekki heyra
neitt eða sjá sem þýzkt er. »Burg«
er »grad« á máli Slava (sbr. Belgrad).
Sýningin í Leipzig. Ferðamenn,
sem koma til Ítalíu frá Þýzkalandi,
segja að brezka, rússneska og franska
deildin á bókagerðarsýningunni í
Leipzig séu brunnar. Þeir segja að
brunalið borgarinnar hafi ekkert gert
til þess að slökkva eldinn. Bretar
segjast hafa átt þar ómetanlega sýn-
isgripi.
Engin tundurdufl. Brezka stjórnin
hefir lýst yfir þvi að hún hafi hvergi
látið leggja út tundurdufl.
Keisaraskegg. Breskir menn,
sem hafa snúið efrivararskegg sitt
að sið Þýzkalandskeisara, eru nú
hættir því. Það þykir ekki »fínt«
lengur.
Frakkneskur flugmaöur flaug ný-
lega norður til Brússel og stráði yfir
borgina spjöldum, sem á var letrað:
» Verið huqrakkir. Bráðum verðið pið
k\stir«. Þjóðverjar skutu á hann
en fengu ekki grandað honum.
Hjöfseyði
nýsoðið, afbragðs gott, ómissandi til matar, í sósur o. fl.
Fæst nú fyrir lægra verð en dæmi eru til,
/ JTlatardeiíd Státurfétagsins
Ttafnarstræti.
~ LUX
Öllum ber saman um, að LUX-sápuspænir séu beztir til að
þvo úr ullarfatnað; fatnaðurinn hleypur aldrei ef LUX-sápuspænir
ern notaðir. Fylgið leiðarvísinum.
Gætið þess, að LUX standi á hverjum pakka.
Fæst hjá öllum kaupmönnum.
Fyrir húsmæður.
m
Hvaða rjðmi er beztur?
Rjömi D. M. C.
á fleskum er sá langbezti kaffirjómi sem markaður-
inn hefir að bjðða, laus við ell annarleg efni, heldur
sér bezt, er drýgstur.
Biðjið því ávalt um D. M. C.; fæst hjá kaupmönnum.
Borðið að eins
,Queen Maud' Sardinur
,Præsident‘ Fiskbollur
frá A|s. United Sardine Factories, Bergen.
Betri matur fæst ekki. — Aðalumboðsm. fyrir ísland
Nathan & Olsen.
BERGENS NOTFORRETNING.
Nætur, Sildarnætur, Tilbúnar Stangarnætur, Snerpe-
nætur fyrir kópsíld, sild, makril.
Fisknetjagarn, úr rússneskum, frönskum og itölskum hampi.
Færi, Lóðarfæri, Kaðlar.
Öngultaumar, Segldúkar, Presenningsdúkar — tilbúnar
Presenningar.