Morgunblaðið - 13.09.1914, Blaðsíða 8
1448
MORGUNBLAÐIÐ
Þeir sem nota blaut-
asápu til þvotta kvíða
einlægt fyrir þvotta-
deginum.
Notið Suniight sápu
og hún mun flýta
þvottinum um helming.
Þreföld hagsýni—
tími, vinna og penin-
gar.
Fariö eftir fyrirsögninni, sem
er á tillum Sunlight sápu
umbúöum.
;:sSS3
Jlýjar vörur.
JSampar og JSampaafíoló
og aíís fíonar Cíófíúsgögn,
þar á meóaí c£rimus~ og sfeinolíuvélar.
cfflifílar öirgóir fíomu meó cBcfniu. ®
Laura Jlielseti.
(Jofjs. Jiansens Enke)
I»eir sem kunna að hafa fisk eða aðrar vörur að senda frá
Norður- og Austurlandi til Leith,
geta fengið flutning með S.8 >Vistula< er liggur nú ferðbúið á Akureyri.
Þýzkar fregnir.
Marconi-stöðvarnar á Englandi ná
•stöðugt í fréttir sem Þjóðverjar senda
frá sér. Englendingar birta þær í
blöðum sínum en taka auðvitað ekki
ábyrgð á að þær séu sannar. Hér
koma nokkrar.
Tiu herdeildir (um 3 jo,ooo manns)
Frakka, þar á meðal miðfylkingar
þeirra, voru sigraðar milli Reims og
Verdun 2. sept. Næsta dag rak her
vor flóttann. Frakkar hafa gert út-
rás úr Verdun en árangurslaust.
Keisarinn var með liði krónprinsins
meðan á orustunum stóð og var hjá
.hermönnunum um nóttina.
Yfirhershöfðingi Austurrikismanna
tilkynnir að Austurríkismenn hafi
Rennenkampf
yfirhershöfðingi rússneska hersins, sem
réðist inn í Anstnr-Prássland.
unnið algeran sigur á Rússum við
Zamosc og Tyszoce. Þeir tóku þar
160 fallbyssur. Liðinu sem hefir ráð-
ist inn í Lublin farnast vel. í Aust-
ur-Galicíu gengur ver sakir ofureflis
óvinanna.
Ósigri Rússa við Ortelsburg, lýsir
þýzkur blaðamaður á þessa leið. Það
var ekki hægt að hafa fylkingar vor-
ar í beinni röð sakir þess hve or-
ustusvæðið var stórt og hversu landi
var háttað. Rússum tókst að brjót-
ast gegnum miðju hersins, en hægri
og vinstri fylkingararmur vor gekk
á snið við Rússa og kom þeim f
opna skjöldu og króaði þá inni, svo
Rússar urðu að gefast upp.
Keisarinn hefir sæmt Hindenburg
hershöfðinga, sem stýrði liði voru,
járnkrossinum þýzka og veitti hon-
um meiri tign.
í orustu þeirri voru 80,000 Rúss-
ar teknir til fanga, þar á meðal tveir
hershöfðingjar (generalar).
í þýzkum blöðum er mikið rætt
um Kaiser Wilhelm der Grosse.
Segja þau að Rretar hafi brotið al-
þjóðaréttinn með því að sökkva hon-
um, þar sem hann hafi verið f land-
helgi við spánska nýlendu, Rio de
Oro.
Mikið var um dýrðir í Þýzkalandi
2. sept. (Sedan-daginn), einkum þó í
Berlín. Þar var gengið f skrúðgöngu
um borgina með franskar, rússnesk-
ar og belgískar fallbyssur, sem Þjóð-
verjar höfðu tekið í ófriðnum.
Mörg blöð í Bandaríkjunum hafa
tekið sig sarr.an um að birta ekki
•ófriðar-fréttir* þær, sem þær fá frá
sendiherra Þjóðverja í Washington
og hann segir vera loftskeyti frá
Berlín. Segja þau að þessi skeyti
séu að mestu búin til vestan hafs
og átelja sendiherrann fyrir. Hann
hefir reiðst af þessu og svarað með því
að birta loftskeyti frá Berlín, þar
sem London erkölluð »lygasmiðjan«.
Otna, eldavólar
og alt sem þar til heyrir
selur enginn ódýrar og vandaðra en
Kristján Þorgrímsson.
G. Gíslason & Hay.
Joseph A. Grindstad
áöur L. H. Hagen & Cos. útbú
Bergen.
Vopn, Skotfæri, Hjólhestar, Veiðiáhöld, Sþortsvörur, Rakaraáhöld,
Barnavagnar, Barnastólar.
Skíði, Sleðar, Skautar.
Púður, Dynamit, Hvellhettur, Kveikiþráður o. m. m. fl.
A.|s. Rosendahl <£ Co. Bergen, Norge
Fane Spinderier, Keberbane & Notfabrik.
Stofnuð árið 1845.
Fisknetjagarn og nótagarn úr rússneskum, frönskum og ítölskum
hampi. Sildarnetjagarn. Bómullargarn. Nætur og garn. Kaðlar úr
hampi, manilla og kokus. Linur og færi, þræðir og öngultaumar. Til-
búnar botnvörpur.
Glerdufl — Onglar — Korkur o. m. fl.
KOLAVERÐ
okkar er fyrst nm sinn fyrir heimkeyrð til kaupenda:
Kol, bezta tegund (Nödekul) pr. 1 skpd. kr. 5,00
Koks bezta tegund pr. 1 skpd. kr. 5,75
Koks er ódýrara sé keypt meira en 1 tonn í einu.
éCj. <Jim6ur~ og eXoíaverzí. cfteyfíjavifí.