Morgunblaðið - 18.07.1915, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 18.07.1915, Qupperneq 3
253- tbl. MORGUNBLAÐIÐ 3 18. jaii Steinolía í Norðursjó. ^ýlega kom seglskip til Seyðis- ^arðar frá Bretlandi. Skipstjóri sagði ^a sögu að er skipið var komið S^arnt norður fyrir Aberdeen hafi siglt J gegnum steinoliu all- m'Wa sem fiaut ofan á sjónum. Stilli- var og gerði skipstjóri það að gamni sínu að mæla þykt olíunnar. ^a8Íð var um þumlung á þykt. í sjómílur sigldi skipið gegnum °''una, sem smádreifðist og varð í’ynnti. Vafalaust mun stóru olíuflutninga- skiPÍ hafa verið sökt þarna á þess- ötn stað skömmu áður en seglskipið l’31' að. En einkennilegt hlýtur það atl vera að sigla skipi sínu gegnum °1'D htí í miðjum Norðursjó. Fimmfættur hestur. Eyþór bóndi Benediktsson á Hamri 1 Svinavatnshreppi á jarpan hest, 6 Vetra gamlan sem er metfé að því leyti að á honum eru fimm fætur. ^otar þó hesturinn eigi fimta fót- ltln til neins og er hann honum Mdur til trafala. Sigurður Einarsson dýralæknir á ■^kureyri hefir skoðað hestinn og ^ykir hann vera mesti kjörgripur. Brezku póstskipi sökt, I. þ. m. sökti þýzkur kafbátur kfezka póstskipinu »Armeniant við Suðvesturströnd Englands. Það var ^ leið til Bandaríkjanna. Skipið reýndi fyrst að flýja undan kafbátn- er hann var hraðari og skaut á skipið með fallbyssum sínum. Skips- Eöfnin fór þá í bátana, en kafbátur- lnn sökti skipinu með tveim tundur- skeytum. Nokkrir af skipshöfninni Wa ekki komið fram. Hún var alls 50 fnanns, þar af 11 Banda- rlkjamenn. Utlendingar í Bretlandi. Svo sem getið hefir verið um áð tlr< hafa yfirvöldin á Bretlandi látið e'nangra fjölda þýzkra, austurrikskra °8 týrkneskra þegna sem dvöldu á ’ ^retlandi þegar ófriðurinn hófst. Þar a® auki eru allmargir undir eftirliti ýfirvaldanna, þeir, sem eru þýzkrar e^a austurríkskrar ættar, en hafa engið borgararéttindi i Bretlandi. , ksTýlega gerði þingmaður fyrirspurn Þ’nginu til stjórnarinnar um hve ^arRÍr væru nú einangraðir. Til ý°ti ráðherrann þá að alls væru menn einangraðir en um ^ °° konur og börn hefðu verið Send ár landi og flutt yfir til Hol sj s °R þaðan heim til ættlands Manntjón Þjóðverja og bandamanna þeirra. Það er ekki auðvelt að henda reið- ur á hve mikið manntjón Þjóðverjar og bandamenn þeirra hafa beðið í ófriðnum. Þessar þjóðir birta ekki manntjónslásta sína, eins og Bretar gera. Ýmsir hafa þó gert áætlanir um tjónið. Meðal annara fréKa- ritari enska blaðsins Telegraph. — Hann segist hafa það eftir áreiðan- legum heimildum, að manntjón óvin- anna frá ófriðarbyrjun til 25. apríl hafi verið: Þýzkal. 1.636.000 fallnir, 1.880.000 særðir, 490.000 herteknir. Austurríkis og Ungverjal. 870.000 fallnir, 885.000 særðir, 810.000 her- teknir. Tyrkl. 110.000 fallnir, 140.000 særðir, 95.000 herteknir. Þetta verður samtals 6.916.000 manns. Oleyfileg bréfskoðun. Brezka utanríkisstjórnin hefir gef- ið út svolátandi tilkynningu: Bréf, sem til Englands hafa bor- ist með skoðunarmerki Þjóðverja, sýna það ljóslega, að þegar Þjóð- verjar lögðu hald á sænsku skipin Björn og Thorsten, hafa þeir látið skoða allan póst, sem kominn var frá Rússlandi eða Svíþjóð. Þetta er algerlega bannað í Haag-samþyktinni 18. október 1907, sem Þjóðverjar hafa sjálfir ritað undir. í fyrstu grein stendur svo: Bréfapóstur hlutlausra þjóða og ófriðarþjóða er friðhelgur, hvort sem hann er frá stjórnum eða einstökum mönnum, og hvort heldur hann er fluttur á skipi ófriðarþjóðar eða hlutlausrar þjóðar. Það er æskilegt að þetta berist sem víðast, því Þjóðverjar hafa látið það boð út ganga frá sér, að allur pósturinn hafi verið sendur óopnað- ur aítur til Svíþjóðar. Gibraltar. »The Continental Times*, sem út er gefið í Berlín, eggjar Spánverja nú lögeggjan um það að hefjast handa og ná aftur Gibraltar. Segir blaðið Spánverja nógu lengi hafa þolað yfirgang Breta. Nú sé stund- in komin. Bretar séu í mestu vand- ræðum og eins bandafaenn þeirra — allir vígðir ósigri. Blaðið biður Spán- verja að líta suður til Hellusunds og sjá hve dæmalausa þýðingu það hafi fyrir Tyrki að eiga sjálfir vald á sundinu. Spánverjum sé jafnmikils — eða meir — um það vert að eign- ast aftur Gibraltar. Hvað er Danolit-málning? Það er nýjasta, bezta eo semt ódýrasta málningin til allrar útimálningar Jafogóð á stoin, tré og járn. Danolit er búinn til af Sadolin & Holmblad & Co’s Eftf., Kaupmannahöfn. Aðalumboðsmenn: Nathan & OlseD. BERGENS NOTFDRRETNING Nætur, Síldarnætur, Tilbúnar Stangarnætur, Snerpe- nætur fyrir kópsíld, síld, makríl. Fisknetjagarn, úr rússneskum, frönskum og ítölskum hampi. Færi, Lóðarfæri, Kaðlar. Öngultaumar, Segldiikar, Presenningsdúkar — tilbúnar Presenningar. Frá Serbum. Fregnir koma nokkuð á víð og dreif frá Serbum, og er þetta sein- asta opinber tilkynning þeirra, sem vér höfum séð: Síðari hluta júnímánaðar áttum vér í ýmsum mannskæðum orustum við óvinina hjá Dóná. Þessar skærur eru talsvert þýðingarmiklar, eigi ein- ungis vegna þess, að nú hefir verið langt hlé áður, né heldur vegna hins, hve mikið ofurefli vér áttum við að etja, heldur vegna þess hve oss hefir unnist á. Fyrsta viðureignin varð á Mold- avsko-eyju í Dóná. 18. júni réð- umst vér á óvinina, sem voru á eynni, í þeim tilgangi að ónýta birgðir þeirra þar og taka eyna. Ein liðsveit vor fór yfir til eyjunnar, og þrátt fyrir skothrið óvinanna gerði liðsveitin svo snarpa árás að óvin- irnir gáfust allii upp. Komumst vér aftur til sama lands, með alla herteknu mennina og allar þær birgð- ir, sem vér gátum komist með. Sið- an beindi stórskotalið vort skothríð sinni á stöðvar óvinanna á eynni, og kom þar upp eldur, sem eyddi þvi er eftir var. Til þess að hefna þessa tóku óvin- irnir tveim dögum seinna eyna Mic- haiska, sem vér eigum og handtóku þar nokkra menn. En vér guldum þeim það siðar með rentum og renturentum. 25. júni var barist um eyna Ogra- dina i Dóná. Vér sátum þá í eynni. Snemma um morgunin tókst óvin- unum að komast yfir á eyna og hófu þá þegar skothríð. Orusta stóð í 12 stundir, og voru óvinirnir hraktir með miklu manntjóni. Þýðingarmesta orustan stóð um eyna Micharska Ada. Óvinirnir höfðu haft þessa eyju á sinu valdi siðan í maí. Arla dags 27. júni réðumst vér yfir til eyjunnar og náðum henni brátt á vort vald með handsprengju og höggorustu. Handtókum vér þar 150 menn og náðum miklu her- fangi. í öllum þessum orustum hafa yfirburðir hermanna vorra svo greini- lega komið i Ijós, bæði í vörn og sókn. Huerta tekinn fastur. í öndverðum þessum mánuði hvarf einn af vildarvinum Huerta frá Banda- rikjunum og komust yfirvöldin á snoðir um, að hann hefði farið til Mexiko. Hann heitir Pascual Or- ozco og var áður hershöfðinga Huerta. Huerta var þá tekinn fastur og kærður fyrir það að hafa svivirt hlut- leysi Bandarikjanna með því að ætla sér að stýra þaðan nýrri uppreist í Mexiko. Kanadiskir liðsforingjar kallaðir heim. Tveir kanadiskir liðsforingjar, sem hafa jafnan verið þar, sem hríðin var hörðust í Flandern, hafa verið kallaðir heim til Kanada. Þar eiga þeir að dvelja um nokkurt skeið og kenna hersveitunum, sem verið er að æfa þar. Er það þeirra eigin reynsla, sem þar á að koma að góðu haldi. Kanadamenn fylgja i þessu dæmi Breta, því þeir hafa sent nokkra liðsforingja heim, til þess að kenna nýliðunum seinustn »lexiuna«. ---------- .■■■■■

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.