Alþýðublaðið - 22.05.1958, Page 3

Alþýðublaðið - 22.05.1958, Page 3
Fimmtudagur 22. maí 1958 Alþýðublaðiö 9 Alþgúublaðið Útgefandi: Ritstjóri: Fréttastjóri: Auglýsmgastjóri: Ri tst j órnarsímar: Auglýsingasímú Afgreiðslusími: Aðsetiiír: Alþýðuflokkurinn. Helgi Sæmundsson. Sigvaldi Hjálmarsson. Emilía Samúelsdóttir. 14901 og 14902. 1 4 9 0 6 1 4 9 0 0 Alþýðuhúsið Prentsmiðja Alþýðublaðsins. Hverfisgötu 8—10. Samstaða í landhelgismálinu STJÓRNMÁ'LAFLOKKARNTR hafa undanfarin dæg'ur setið á rökstólum og reynt að samræma sjónarmið sín i landhelgismájinu. Er það vei farið, Það er þjóðimii lífs- nauðsyn, að landhelgisdeilan v.erði á þann veg til lýkta leidd, að samstaða sem flestra fáist um lausnina. Sum mál - eiga skilyrðislaust að vera hafin yfir allan flokkaríg og togstreitu stjórnrnálanna. Svo er um landhelgismálið. Þar - eiga öll annarleg flokkssjónarmið að víkja fyrir þjóðar- nauðsyn. Landhelgin er fyrst og fremst sjálfstæðLsmá[ íslendinga. Víkkun hennar er ekki gerð af þjóðarremlbingi til að gera sig gildandi í aueum annarra þióða, heldur er hér um að | rasða nauðsynja- og hagsmunamál, sem úrslitum ræður um iíf, starf og framkvæmdir í landinu á ókomnum áfrum. Aðrar þjóðir verða að læra að skilja þessar staðreyndir. Þær verða að skilja, að íslenzk þjóð vill ekki sýna nokk- urri þjóð óbilgirni, frekju eða yfirgang, en henni ber nauð- , syn tiJ að tryggja framtíð sína. Öðru verður ekki með ré'ttu haldið. fram en aðstaða íslendinga hafi stórum batnað í þessum efnum eftir Genf- arráðstefnuna. Fulltrúar margra þjóða fengu þar að heyra málflutning íslenzku fulltrúanna, og enginn efj er á þvi, að sjónarmið íslendinga máttu sín mikils. Þess vegna er það nauðsynlegt, að íslendingar standi saman í þessu móli, gæti varkárni i fullyrðingum, en lát[ engan bilbug á sér finna, þegar ákvarðanir eru teknar. ( tltari úr heimi ) JAFNAÐARMANNAFLOKK URINN sænski er í sókn í þeirri kosningabaráttu, sem nú fer fram í Svíþjóð. Kosningar eiga að fara þar fram 1. júní, og hafa hægri blöðin fullvrt að á þeim tíma verði íhaldsmenn komnir í sókn! Eftirlaunamálið er og verður aðalmál kosninganna. Það varð til þess, að þing var rofið og gengið til kosninga, og um það verður kosið hvort sem stjórn- arandstöðunni líkar betur eða ver. í „Dagsns Nyheter” hafa jafnaðarmenn verið ávítaðir harðlega fyrir að hafa ellilauna málið á oddinum, og að gei'a það að baráttumáli „stéttanna“ í þeirri von að tryggja sér með því meirihluta á þingi. Jafnaðarmenn ætla sér að vinna kosningarnar, og þá auð- vitað eftirlaunamálið til hins ítrasta, en þei- hafa yfirburði yfir hinai þrískiptu stjórnar- andstöðu einkum vegna þess, að þeir hafa upp á fastmótaða stefnuskrá að bjóða. Þjóðflokkurinn, hægri menn og miðflokkurinn eru andvígir tillögum stjórnarinnar í eftir- launamálinu, en innbyrðis ó- sammála um breytingartillög- ur og leiðréttingar á frumvarp- inu. Hér er því um að ræða r stjórnarandstöðu, sem er sam-< mála í andstöðu sinni, en getur ekki komið sér saman um gagn tillögur. Það eru því enga- lík- ur til bsss, að þeim takizt að bera fram víðtækar stefnu- skrár. Tage Erlander Allt frá síðustu kosningum hafa þjóðílokkurinn og Hægri fiokkurinn reynt að ná sam- komulagi við Miðflokkinn (Bændasam'bandið) um sam- vinnu í því skyni að mynda borgaralega ríkisstjórn. Um það er einnig rætt í yfirstand- andi kosningabaráttu, en ekk- irt það hefir gerzt, sem bendi til að flokkar þessii* hafi nokkra möguleika á því að ná samkomulagi. Þiessir flokkar eiga vafalítið jafn erfitt með að ná samkomulagi um alhliða stjórnarsamvinnu og þeim hef- ir tekizt böslulega að samræma skoðanir sínar í eftirlaunadeil- unni. Tilfærslur milli flokka hafa ekki verið miklar við undan- farnar kosningar í Svíþióð, og ekki er heldur búizt nú við mikl um breytingum á styrkleika- hlutföllum flokkanna S'amt eru mörg kiördæmi talin all- vafasöm, og bar má ekki miklu muna, að þingsæti skiptizt á annan veg en við síðustu kosn- 'ngar. Jafnaðarmenn þurfa að únna sjö þingsæti frá borgara- "'okkunum til bess að ná meiri 'luta á bingi, til þess að koma '"am eftirlaunafrumvarpi sínu, 'g er bá ekki reiknað méð bingmönnum komröúnista, én úeir ct' ^ :a f 'umvarpinu at- kvæði. í. Við síðustu kosningar fengu Jafnaðarmenn 44,6 af hundraði atkvæða og 106 þingsæti, Þj óð- flckkurinn 23,8 %, og 58 sætí, Hægrimenn 17,1% og 42 þing- menn, Bændasambandið 9,4% og 19 þingsæti og Kommúnist- a- 5,0% og 6 þingmenn. Að undanförnu hafa orðið allmikil blaðaskrif um þessi mál, og er vaifasamt, að þau hafi öll verið til góðs. Stundum er nauðsynlegt að gæta hófs, þótt rétturinn sé skýlaus og málstaðurinn ótvíræður. Enginn græðir á úlfúð í máli sem þessu. Því er nauðsynlegt að reyna til þrautar allar sam- komulagsleiðir, áður en hnútum er kastað opinberlega og leikur gerður að því að spilla málum. ísland hefur svo fáa ve«u til lífs og framdráttar þegn- um sínum, að rétturinn til fiskimiðanna umhverfis landið er óumdeilanlegur. Enda hefur því ekki verið mótniælt. Verndun fiskimiðanna eftir að skip stækkuðu og veiðar- færi urðu fiskrari og haldkvæmari hefur með hverju ár- inu, sem líður, reynzt meira nauðsvnjamál. Enginn getur skilið þetta betur en þjóðin sjálf. Þar með er þó ekki sagt, að við eigum ekki að hafa frið við aðrar þjóðir um málið. Réttur okkar byggist fyrst og frentöt á því, að auðn fiski- miðanna þýddi fátækt og iafnvel tortímingu þjóðarinna: í ' náinni fra.m|t;íð. Því verður ekk; frúað fyrr en í fulla hnef- ana, að aðrar þjóðir, sem meiri hafa möguleika til fanga og framleiðslu, skilji ekki þessa nauðsyn. Að vísu er það rétt, að stórveldi í austri og vestri hafa enn ekki stutt íslendinga í málinu. En vonandi átta þau sig fliótlega, enda er þetta m‘ál íslendinga fyrst og fremst, þótt aðrar fi.skveiðiþjóðir hafi að sj álfsögðu sitt álit. En um fram allt er það nauðsynlegt fyrir íslendinga sjálfa að standa saman í málinu og stófna ekki tij ýfinga að ástæðulausu. Það veikir málstaðinn út á við og gerir þjóðinni erfiðara fyrir um alla fram/kvæmd málsins. Hér þarf að vinna að með festu, viti og öryggi, því hér er verið að leggja grurminn að framtíð þjóðarinnar. ÓEIRÐIRNAR í Líibanon hóf ust er tveir menn skutu Nassib Metui til bana í Beirut. Metui var ritstjóri blaðs, sem réðst á stjórnina fyrir að vera of hlynnta Vesturveldunum. Cha- moun forseti fól utanríkisráð- herranum Oharles Malik, að færa ekkju Metuis samúðar- kveðjur sínar, og ríkisstjórnin fordæmdi mörðingja hans. Stjórnarandstaðan hvatti samt sem áður til allsherjar- verkfalls jarðarfarardaginn. Eftir jarðarförina kom til upp- þota og árekstra við lögreglu- liðið. Verkfallið mistókst í Bei- rut og yifirvöldin höfðu vaid á ástandinu. En í hafnarborginni | Tripoli kom til alvarlegra á-1 taka, féllu þar fimmtán manns og yfir hundrað særðust í bar- dögum milli lögreglunnar og kröfugöngumanna. Lýst var yf ir hernaðarástand.i í borginni ög útgöngubann sett á. íbúar Beirut eru flestir kristnir, en í Tripol[ eru svo til eingöngu Múhameðstrúar- irienn og þar á stefna Nassers mestu fylgi að fagna, og stjórn- arandstaðan í Líbanon á þar öflugan stuðning'. Atburðirnir í Líbanon sýna ljóslega hversu áróður Nassei’s hefur haft mikil áhrif í lönd- unum fyrir botni Miðjarðar- hafsins. Líbanon er lítið fjallaland, í. búar þess eru hálf önnur millj- ón ,að tölu, og þótt þeir séu flest ir Arabar, þá hefur landið jafn an haft nokkra sérstöðu meðal Arabaríkjanna. Líbanon er mikið verzlunar land og Beirut er miðstöð við- skipta og fjármálalífs. Á seinni árum hefur landið haft miklar tekjur af olíuleiðslum frá írak og Saudi-Arabíu, sem ligg'ja til Tripoli og Sidon, en þar eru miklar útskipunarhafnir olíu. I Beirut býr fjögur hundruð þús. und manns og í Tripoli yfir hundrað þúsund. Landbúnaður er meiri og nýtízulegri í Líban- on en öðrum Arabaríkjum. Að alafurðirnar eru tóbak, bómuli, silki, ávextir og olívuolía. Frakkar urðu að veita Líban- on sjálfstjórn árið 1946, en frönsk og vestræn áht'if eru meiri í Líbanon en öðrum Ara- baríkjum. í landinu eru þrír háskólar, einn franskur, einn bandiarískur og einn libanonsk. ur, og Beirut er sú menningar- miðstöð Arabaríkjanna, sem er öflugast mótvægi hinum mú. hammeðsku rétttrúnaðarskól- um í öðrum löndum. Alþýðu- menntun er meiri í Iábanon en víðast annars st-aðar á þessum slóðum, meira en helmingur þjóðarinnar er læs og skriíandi. Helzta sérkenni Libanons er þó, að helmingur þjóðarinnar hefur verið kristinn um alda- ! raðir. JÞað voru hinir krist.nu í- búar þess, sem af mestum á- huga tengdu bönd menningar- legra og viðskiptalegra sam- skipta við Frakka og aðrar vest rænar þjóðir, og kristnir ir.eiin eru í flestum mikilvægustu stöðum landsins. Stjórnmiálakerfið byggist á nákvæmu jafn'étti trúarfLokk. anna. Forseti landsins er krist- inn, forsætisráðherrann er mú. hammeðstrúar. Kosningalögin eru miðuð við það, að allir trú- afhóparnir hafi fulltrúa á þing inu. Þetta kerfi er mjög fiókið, enda eru kristnir menn, mar- monnitarnir, skiptir í smærri hópa, og múhammeðstrúar- mann eru klofnir í sunníta og sjíta, hina tvo hópá trúarinnar, og auk þess býr merkilegur sér trúarflokkur í landinu. Nefnast þeir dnúsar og búa flestir. í fjállahéruðum landsins. Stjérn, málin þar í landi eru því eilíf refskák hinna ýmsu trúar_ flokka og atvinnustjórnmála- mannanna. Áður fyrr styrkti þetta stjóm málakerfi múhammeðstrúar- mennina, en nú eru þeir komu- ir í varnaraðstöðu gegn hinum kristnu. Nasser hefur notfært ^ér þetta ástand til hins ítrasta. En margt bendir til óróa meðal kristinna manna, og patriarkinn hefur opiniberlega lýst yfir and stöðu sinni við stjórnina. Af- staða prestanna er í rauninni aðeins bergmál af viðhorfum hinna kristnu bænda. Þeir eru flestir fiátækir og [ifa við sömu. kjör og þeir bændur, sem eru múhammeðstrúar, og þeir eru gjarnan í andstöðu við hina ev- rópiseruðu stjórnmálamenn. Þeir eru klofnir, — hvort- tveggja í senn kristnir og Ar- ábar. 1 Fjárhagslegar ástaéSur og ótti hinna kristnu við að verða gleyptir af múhammeðstrúar- mönnum hefur valdið mestu hversu hlynntir Líbanonsmenn hafa verið vestrænum áhrifum. Stjórnarardstaðan var lengi vel vanmegna og' sjáifri sér sundurþykk, en þegar stjórnin neitaði að slíta stjórnmálasam- bandi við England og Frakk- land þegar Súezdeilan stóð sem hæst, sögðu margir arabiskír ráðherrar af sér í mótmæla- skyni. Þegar svo Chamoun Framhald á 7. síðu.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.