Morgunblaðið - 24.12.1925, Page 2
VORGUNBLAÐIÐ
8 Ð. S.
Nova
fer hjeðan annan jóladag 26. þ, m. kl. 4. sið.
lfestur og norð r um iand, samkvæmt
áætlun.
Nic. Ðjarnason.
Tóbaksvörur
med niðursettu verði, verða
seldar verslununt, 28-30 þ. m.y
gegn gpeiðslu við móttöku.
Lindsv? sl <n
Til afhusunar
Fólki, sem notar rafmagnskerti á jólatrje er hjer-
með bent á að gæta þess, að nota ekki „englahár“ úr
málmi á trjen, eða að minsta kosti ekki svo, að „hárin“
geti legið við kertin, því það getur sett fulla spennu á
trjen, og jafnvel kveikt í þeim.
Rafmagnsvsiia ReyVjavikur.
hjeraði og telur víst, að þessi
bóiusetning verði talin jafn sjálf-
sögð og bólusetning gegn kúa-
bólu. *
Hvenær skyldum vjer verða svo
miklir menn að geta hagnýtt oss
þessá nýju þekkinguf Líklega
verðum vjer að bíða þangað til
nágrannarnir hafa riðið á vaðið.
G. H.
Aðgerðir Svía gegn mænu-
sótt.
HeHbrigöistíöinÖi.
Nýjar krabbameins
rannsóknir
Sú fregn gaus upp fyrir nokkru,
að tveir Englendingar hefðu fund-
ig orsök krabbameins og átti hún
að vera einskonar örsmár sýkill.
Annar þessara manna var hatta-
smiðnr og mátti það heita furðan-
legt. Hinn var kunnur vísinda-
maður. Fregn þessi flaug um all-
an heim í blöðunum, en bæði var
hún að ýmsu leyti ólíkleg, og ekki
gaf uppgötvun þessi að svo
stöddu nein hjálparráð við veik-
inni. Er nú lítið. um hana talað
og óvíst að hún komi að nokkru
haldi.
Alveg nýskeð hefir próf. Blair
Bell í Liverpool skýrt frá mikl-
um tilraunum, sem hann hefir
gert til þess að lækna krabbamein
með blýlyfjum. Hefir hann reynt
lyf þetta við 58 sjúklinga og
tekist ótrúlega vel á mörgum. Má
tclja víst, að þessi aðferð verði
• óðara reynd víðsvegar og ekki
ómöguiegt að hún komi að gagni.
Pó fylgir henni sá mikli ókostur,
iað lyfið er mjög eitrað, og segir
próf. Blair Bell, að sem stendur
geti almennir læknar alls ekki
hagnýtt sjer það, enda lætur
hann * ekki nákvæmlega uppi
hversu þnð sje búið til. Þetta er
þá enu á tilraunastigi, en Blair
Bell vonar,. að sjer takist að end-
urbæta. þessa lækninga-aðferð svo,
að hún komi almenningi að gagni.
Hann hefir ekki trú á því, að
krabbainein stáfi af sýklum.
G. H.
,,Lömunarveikin“ hefir gert
töluvert vart við sig síðustu miss-
irin í Noregi og Svíþjóð, og ekki
síst í norðurhluta Svíþjóðar. —
Hvað gerðu Svíar gegn þessu
fári ?
peir sendu meðal annars æfðau
scttkveikjufræðing með öll nauð-
synleg tæki til þess að rannsaka
veikina, því hjeraðslæknunum
væri það ofvaxið, enda kæmust
þeir ekki yfir það. Fyrsta verk
sóttvarnalæknisins var að fara
bæ frá bæ á veikindasvæðinu og
rannsaka heilsufarið. Komst hann
að raun um, að fjöldi manna
hafði fengið snert af veikinni, þó
slóppið, hefðu flestir við lamanir.
Höfðu' t- d. öll börnin sýkst á
rhörga^i heimilum, þó lítið hefði
a því borið.
Ekki treystist læknirinn t.il þess
að taka upp samgöngubann, en
aftur reyndi hann bólusetningu,
eða öllu heldur blóðvatnslækn-
ingti. Tók hann möntium blóð,
sem höfðu haft veikina eða reynst
ónæmir fyrir henni, náði blóð-
vatninn út úr því, varðveitti það
í lokuðum glösum og dældi því
ir;n í menn, sem sýkingarhætta
vofði yfir. Þannig bólusetti hann
helming íbúa í dálitlu þorpi, áður
en veikinnar varð þar vart. Þetta
virtist hera góðan árangur, því
af bólusettum sýktust nálega eng- j
ir, en allmargir af óbólusettum.1
Þó er erfitt að dæma um svo
dutlungafulla veiki eins og mænu-
sóttin er.
Enginn efi er á því, að Svíar
hafa gert miklu fullkomnari gaug
skör að því, að rannsaka veikina
og leita ýmsra bjargráða en vjer
höfum gjört. Orsök þessa er eðli-
lega sú, að þeir hafa æfðum sjer-
fræðingum á að skipa, hafa öll
nauðsynleg tæki og leggja fram
það fje sem með þarf. Vjer höf-
um úr engu þessu að spila, og
er það ekki vansalaust á vorum
dögum.
G. H.
Landsmálafunili
höldum við undirritaðir:
1 Hafnarfirði mánudaginn 28. þessa mánaðar,
klukkan 8 síðdegis,
í Keflavík þriðjudaginn 29. þessa mánaðar, klukk-
an 8 síðdegis,
í Sandgerði miðvikudaginn 30. þessa mánaðar, kl-
2 síðdegis, og
í Garði sama dag klukkan 8 síðdegis.
Eftir áramótin verða auglýst önnur fundahöld
okkar- —
Reykjavík 24. desember 1925.
Ólafur Thors. Haraldur Guðmundsson.
Mjólkurbúðir okkar
verða opnar á aöfangaöag til kl.
5 e. m., á jólaöag kl. 9^ til 11|2 f. m.,
á annan jólaðag kl. 9 |2 f. m. til kl. 2.
e. m. og þriöja jólaöag kl. 9% f.m.
til kl. 2 e. m.
Mjólkupfjelag Reykjavikup.
Bólusetning
gegn barnaveiki.
Leiðrjetting.
í’ess hefir áður verið getið í
Heilbr.tíð., að fundin væri tiltölrl-
lega áreiðanleg bólusetning gegn
barnaveiki, og að einnig væri unt
að finna hver börn væru mót-
tækileg fyrir veikina og hver
ekki. Mest hefir þessi. nýja bólu-
setning verið notuð í Ameríku, en
lítið á Norðurlöndum, enn sem
kömið er.
Nú er barnaveikisbólusetningin
auðsjáanlega að ryðja sjer til
rúms í Englandi. Einn hjeraðs-
læknir þar hefir nýlega gefið
skýrslu um bólusetningu í sínu
t Morgunbl. í gær ritar herra
ríkisf jehirðir Jón Halldórsson
grein til herra lælrnis Gunnlaugs
Olaessen, út af tillögu hans á síð-
asta bæjarstjórnarfundi, um, að
fella niður ferðastyrk til söngfje-
lags K.F.U.M. Gefur J. H. það í
skyn, að G. Cl. hafi unnið mig
og Þórð Sveinsson til fylgis við
tillögu sína, með ýmsum óviðeig-
andi ummælum um söngflokkinn
og sig. Þetta er hinn mesti mis-
skiluingur, og er sannleikurinn
þessi: Á fjárhagsnefndarfundi
þeim, sem málið tók til meðferð-
ar, gátum við p. Sv. þess strax,
að við værum á móti ábyrgðar-
bciðni Jóns Leifs og sömuleiðis á
móti styrk til söngfjelags K.F.U.
M., ekki svo mjög vegna þess að
við hefðum nokkuð móti söng-
fjelagirlu, heldur vegna þess, að
Alþingi virðist vera að komast
inn á þá braut að binda ýmsar
styrkveitingar því skilyrði, að svo
og svo mikið komi úr bæjarsjóði
á rnóti; þetta álítum við mjög ó-
viðeigandi frá þingsins hálfu og
vildum fyrirbyggja að þetta geti
orðið fordæmi styrkbeiðendum
þeim, er síðar ikynnu að verða á
ferðinni. Við Þ. Sv. höfðum aldr-
ei lagt til, að styrkurinn yrði
veittur, heldur aðeins látið það
afskiftalaust; vildum ekki vinna
á rnóti honum nema með atkvæði
okkar. — Jeg skal taka, það fram
að jeg er ósamþykkur .vmsu því,
sem sagt hefir verið i garð fje-
lagsins.
Reykjavík, 22. des. 1925.
Jón Ólafsson.
Ath. Síðasta aiþingi veitti
Karlakór K. F. U. M. 4000 krónu
utanfararstyrk með því skilyrði-
að bæjarstjórn Rvíkur veitti
annað eins.
H v a r
ei* mest úrval
af jólagjöfum?
hm m
j a
Esll! liiilsm.
JÓLAKVEÐJA
frá sjómönnum.
23. des.
Jólablómin.
Ljómandi fagrir túlípanar og
Hyaeinthur hvítar, bleikar og
rauðar fást á Amtmannsstíg 5,
sími 141 og Vesturgötu 19. Enn-
fremur má panta í síma 780.
Pantið tímanlega.
Dansskóli Reykjavíkur.
Lokaæfing fjrrir nóvember og
desember verður sunnudag 27. þ.
m. (þriðja í jólum), klukkan 9 í
Bárunni.
Óskum ættingjum og vinum
gleðilegra jóla. — Góð líðan með-
al allra hjer um borð.
Skipverjar á Walpole.
Úrið og biblían.
Gamall Hindúi, sem var krist-
inn, fjekk eitt sinn að gjöf fvrst
hiblíu og því n.æst úr.
„Urið,“ sagði hann, „á að sýna
mjer, hvernig tíminn líður, og biblí-
an á að kenna mjer, hvernig jeg á
að nota hann.“