Morgunblaðið - 11.12.1927, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 11.12.1927, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ 37. En moldvarpan var ekki á því að gefast upp. Hún elti þá fram og aft- ur um hólinn í ákafa. Dísa litla faldi •ig á bak við blöðkur, svo að mold- varpan sæi sig ekki. Alt í einu kom avala fljúgandi og flaug rjett hjá mýslingum. Þeir gripu þá sinn í hvorn fót á hénni óg — svo sveif hún í burtu með þá. „Vertu sæl, Dísa,“ kallaði ann- ar þeirra um leið, „og segðu mömmu og pabba frá því, hvað um okkur hef- ir orðið“. 41. Svo var það eitt kvöld, er Dísa litla var eftir venju að sópa göngin, að hún heyrði mannamál að baki sjer og heyrði sagt í hæðnisróm: „Ha-ha! Er þá ekki lafði mín, ljósálfurinn, orð- in að vinnukonu! Gættu að því að skemma ekki hendurnar á þjer! Ha- ha!“ — Dísa sneri sjer við og sá hún |>á hvar í veggjarholu sat hræðilega Ijótur dökkálfur, dinglaði þar fótum og teygði út úr sjer tunguna framan í hana. 45. Að lokum lagði Jeremías að landi inn í vik nokkurt í störinni. Þar á landi blasti við hátt og uppljómað anddyri. — „Þetta er nú höll froska- kóngsins,“ mælti Jeremías. Gamall þjónn kom nú fram í dyrn- ar, og hafði stórt ljósker í hendi. Jere- mías kastaði til hans langri festi, en gamli froskurinn dró skipið að landi og batt það. Síðan gengu þau Jeremías og Dísa á land. ísalfurinn litli. Bamasaga með 11Z mynðum eftir S Th. Rotman. 38. Þetta var ógætilega gert, því að nú kom hann upp um Dísu litlu, að hún var þarna. Dísa skalf á beinunum af ótta. Ö, guð minn góður! Þarna kom þá skessan rakleitt að felustað hennar! Tröllið ýtti blómunum til hliðar og þeir um handlegginn á Dísu. „Nei, sjáum til, hvað jeg fæ snotra vinnu- konu!“ hrópaði moldvarpan og dró svo Dísu með sjer inn í holu sína, læsti dyrunum og fjekk henni gríðarstóran sófl. 42. „Hypjaðu þig í burtu, óþokk- inn þinn!“ hrópaði Dísa og hún var svo reið, að hún hóf sóflinn á loft og rak hann beint framan í dökkálfinn. „Ó, ó, ó, mamma!" æpti dökkálfur- inn logandi hræddur. Svo skreiddíst hann aftur á bak inn í holuna og var horfinn áður en Dísa vissi af. Dísa hjelt nú áfram að sópa, en er hún kom niður að tjörninni, sá hún skrítna sjón. 46. „Humm, er þetta Ijósálfurinn, sem þú varst að segja frá?“ spurði þjónninn og virti Dísu fyrir sjer frá hvirfli til ilja. „Hún líkist ekki Ijós- álfi. Þegar jeg var ungur, þá hafði hvert almennilegt Ijósálfabam tvo vængi og stjörnu í hárinu! En það er skrítin þessi tíska og venjur nú á tím- um! Já, það er óhætt að segja — mjög skrítin!“ Og svo muldraði hann eitthvað í barm sinn og gekk inn í höllina og þau á eftir. 39. „Sópaðu nú gólfið mitt!“ grenj- aði moldvarpan. „Sópaðu!“ Og síðan varð veslings Dísa litla að sópa á hverjum einasta degi, sem guð gaf yf- ir, holu moldvörpunnar og alla rang- halana þar í kring, og þeir voru ekki fáir. Og á hverjum degi aðgætti mold- varpan sjálf það mjög gaumgæfilega, hvort Dísa hefði sópað öll göngin og skotin nógu vel. Dísu var engin undan- komuvon, því að moldvarpan Ijet bæj- ardyrnar altaf vera læstar. 43. Þarna sat ófreskja, sem hún hafði aldrei sjeð fyr. „Vertu ekki hrædd!“ sagði ófreskjan. „Jeg heiti Jeremías froskur og jeg er hingað kominn til þess að hjálpa þjer. Jeg var nærstaddur þegar moldvarpan rændi þjer. í nótt kem jeg hingað aftur á sjálfu skipi froskakongsins til þess að sækja þig. Vertu þá viðbúin!“ Að svo mæltu kútveltist hann niður í tjörnina aftur og synti burtu. 47. En sú dýrð, sem blasti þar við Dísu! Aldrei hafði hún sjeð annað eins! Gólfið var þakið lækjasóleyja- blöðum og öll höllin ljómaði af ótal mýraljósum. Á einum stað var hljóð- færaflokkur, sem ljek dillandi lag, en á gólfinu dönsuðu nokkur fiðrildi ný- tísku dansa. Höllin var full af boðs- gestum. — Þar voru brúnklukkur, brekkusníglar, rottur, froskar og sala- möndrur. 40. Á einum stað var þó opin gátt út úr völundarhúsi moldvörpunnar — út að vatnsbólinu, sem var tjörn. Þarna undi Dísa sjer best og þarna gat hún setið tímunum saman, og hún vonað- ist altaf eftir því, að þangað mundi einhver koma og bjarga sjer. Því að það var engin leið til þess að hún gæti flúið sjálf, því að tjörnin náði hyl' djúp alla leið upp að holumunnanurn og brattir bakkar voru að henni á alla vegu. 44. Um nóttina, þegar moldvarpaU var steinsofnuð og hraut, læddist Dísa ofan úr rúmi sínu og laumaðist niður að vatnsbólinu. Og þar beið þá Jere- , mías eftir henni með ljómandi falleg- an seglbát. „Gaktu á skipið!“ kallaði hann, „komdu út á hið konunglega lang- skip hans hátignar Hork-a-Bork XIII.“ Dísa gekk á bátinn og svo sigldu þaú á stað fyrir hægum næturandvara, í gegnum sef og stör og vatnasól- eyjar. 48. „Líttu þangað,“ sagði Jeremías við Dísu, „þarna á pallinum situr kon- ungur vor. Jeg hefi þegar sagt honum frá þjer“. Hamingjan góða, en hvað Dísa var feimin, er hún gekk þarna þvert ýfj1 gólfið 1 hinni skrautlegu höll, og allir gláptu á hana eins og tröll á heið- ríkju! Það var nærri því aðhenni ljetti, er hún loksins kom fram fyrir hásæti konungs.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.