Morgunblaðið - 16.12.1928, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ
I
Tðar vegna!
Þessi auglýsing segir yður hvað og hvar þjer
eigið að kaupa til jólanna, og eftir henni eigið
þjer að fara yðar vegna, því hjer skal aðeins
talið það, sem þjer getið ekki keypt jafn gott og
ódýrt annarstaðar. Ef þjer hafið vit á vöru og
viljið bera saman verð, þá getið þjer gengið úr
skugga um, að þetta er rjett.
A 1 d i n i ; ný.
hvergi á landinu annað eins úrval,
E p 1 i, „Occidental“, eru heimsins bestu jólaeplL
Jonathan, kassinn ...... .. 18.50
Macintosh, kassinn........ 21.50
Bjúgaldin, Jamaica 1.12 pr. y2 kgr.
Vínber, fullþroskuð stór og sæt 1.25.
Jaffa-glóaldin mjög stór .. 0.30
Valencia-glóaldin, mjög stór 0.20
Gullaldin (Mandarinur) .. 015
Perur koma með Gullfossi.
Aldini þurkuð: Epli, Ferskjur, Eiraldin, Perur,
Blandað, Rúsínur, Sveskjur, 4 teg. frá
50 aura. — Alt ný uppskera, stærri og
betri en gerist. Aðal-Fíkjur, Döðlur
og Rúsínur í miklu úrvali.
Áldini löguð allar teg. 1 kgr. dós. frá 2 kr.
Hnetur: Valhnetur, Heslihnetur, Brasilhnetur,
Jólamöndlur, varan ný og verðið mun
lægra en áður.
í jólakökurnar: Hveiti í smápokum, Millenium.
Gold Medal, Imp. Queen o- fl. Aldin-
mauk í glösum og lausri vigt. Syrop,
dökt og ljóst, mjög ódýrt. Alt krydd,
hverju nafni sem nefnist.
Egg, glæný 17 aura.
Hangikjöt lkr. — afbragðsgott. —
Grænar ertur frá 60 aurum dósin.
Sælgæti: Þar er um svo auðugan garð að gresja,
að ógerningur er upp að telja: Minnum
aðeins á Reichards-vörur: t. d. Mun-
æti í skrautöskjum, Orange Grene, Vín-
konfekt. Silkibrjóstsykur, fyltan og ó-
fyltan, Súkkulaðitöflur o. fl.
Cigarettur: De Reszke: Turks, Tenor, Sopran,
Russian Blend. Army Club, Kensitas,
Salem Gold o. fl-
Wulffs-vindlar eru þeir bestu fáanlegu að dómi
smekkmanna, um 30 tegundir í alskon-
ar umbúðum, hentugum til jólagjafa.
í jólagrautinn er Karoline-hrísgrjón tilvalin.
1 jólabollann: Mocca, Jafa eða Liverpool-kaffi.
Diessen-Súkkulaði — Consum-súkkulaði o.
fí. Tetleys-te. —
Jólatrje og alskonar sælgæti í jólapokana.
Jólakerti, hv. og misl, sterin og sterinblanda.
Jólaspil, þau skemtilegustu og bestu sem flytjast.
Kex, sætt og ósætt. Ostastengur. fskökur í miklu
úrvali---Ostar: Ekta svissar, gráða, danskur
svissar, Gouda, Steppe, Mysu- og ýmsar teg-
undir í dósum.
5000 Handsápur af 10 tegundum seljast hræódýrt.
[Verslunin hefir aldrei verið betur byrg af
jólavörum en nú, varan aldrei betri og verið
ekki lægra síðan fyrir stríð.
Það er gamall og góðar siðnr að halda til jólanna.
Það er gamall og góður siður að karupa tál jólanna í
Baldursgötu 11. yestuj*götu 3. LaugaVeg 49
Sími 1668. Sími 43. Sími 1393.
Bðlfðr
Magnúss Kristjánssonar.
(Tilkynning frá sendiherra Dana).
Lík Magnúss Kristjánssonar
fjármálaráðherra var borið á bál á
föstudaginn á Bispebjerg. Var það
mjög hátíðleg athöfn. í blómum
skreyttri smáhvelfingu inst í kap-
ellu bálstofunnar, stóð kistan,
sveipuð íslenskum fána og skreytt
ótal blómsveigum. Þar voru m. a.
blómsveigar frá konungi, íslensku
stjórninni, Alþingi, sendiherra ís-
lands, íslandsbanka og bankaráði,
Eimskipafj elagi íslands, forsætis-
ráðherra Dana, ráðgjafarnefnd-
inni og Dansk-islandsk Sámfund.
Viðstaddir voru: Jón Sveinbjörns-
son konungsritari, allir starfsmenn
sendiherraskrifstofunnar með
sendiherra í broddi fylkingar, fjöld
inn allur af íslendingum í Kaup-
mannahöfn, forsætisráðh. Dana og
utanríkisráðherra, Petersen skrif-
stofustjóri, allir ráðgjafarnefnd-
armennirnir og margir sendiherr-
ar erlendra þjóða.
íslenskir stúdentar sungu fyrst
tvo íslenska sálma og síðan flutti
sjera Haukur Gíslason ræðu á ís-
lensku. Þá söng frú Dóra Sigurðs-
son „Kallið er komið“. Síðan var
rekunum kastað á kistuna og því
næst var hún látin síga niður í
bálið, en á orgelið var leikinn
þjóðsöngur íslendinga. Að lokum
þakkaði Sveinn Björnsson sendi-
herra með nokkrum vel völdum
orðum hluftekninguna, fyrir hönd
ættingja hins framliðna og stjóm-
ar íslands.
IWrœKCí Biskupstungum.
Á allra síðustu árum hefir ny-
ræktin farið mjög í vöxt á Suður-
landsundirlendinu, eins og víða
annarsstaðar.
í Biskupstungum vom í sum-
ar 70 dagsláttur teknar til rækt-
unar. Mest voru teknar 10 dagsl.
á einum bæ, Torfastöðum, hjá sr.
Eiríki Stefánssyni. En margir
bændur tóku þetta 2—3 dagslátt-
ur nýræktar.
Verkið var framkvæmt þarna á
mismunandi hátt. Sveinn Jónsson,
er keypti einn þúfnabanann,’ tætti
þarna; unnið var að herfingu með
Fordson dráttarvjel, og eins var
unnið með hestum. Mætti þarna
jfá glöggan samanburð á því, hver
vinsluaðferðin er ódýrust, þegar
öll kurl koma til grafar.
Áður. en jarðræktarlögin komu
til framkvæmda, var dauft yfir
ræktunarmálunum í Biskupstung-
um, sem víða annarsstaðar. Jarð-
ræktarlögin hafa þar ýtt undir
menn til framkvæmda, og er von-
andi að áframhaldið verði nú ein-
dregið.
Búnaðarfjelag hreppsins hefir
haft forgöngu í ræktunarmálun-
um. Hefir Þorsteinn Þórarinsson á
Drumoddsstöðum verið formaður
fjelagsins um langt skeið. Áður en
jarðræktarlögin komu til sögunn-
ár, með styrkveitingar sínar, var
Þorsteinn mesti jarðabótamaður-
inn þar um slóðir. Hefir hann á
undanförnbm árum unnið á 4. þús.
dagsverk að jarðabótum, auk húsa-
bóta. Hefir hann stórlega bætt
beeði tún og engjar. Áveituskilyrði
Borgarinnar lægsta uerð
á
Jólaskóiatnaði
Karlmannaskór.
Verð kr. 10,00, 11,50, 14,00, 15,00, 16,00, 18,00
o. s. frv.
Kvenskór, ljósir.
Verð kr. 8,50, 10,75, 11,00, 12,75, 13,50 o. s. frv.
Kvenskór, svartir.
Verð kr. 11.00. — Mismunandi tegundir.
; Samkvæmisskór:
Brocade, margar teg. Satin frá kr. 6,50.
Barnaskófatnaður,
mjög smekklegt úrval, lægst verð, kr. 2,75, 3,00
o. s. frv.
Lakkskór, með hælbandi, í stærðum 27—35.
Inniskór,
margar teg. nýkomnar, verð frá kr. 2,00.
Hlífarstígvjel,
nýkomnar margar teg., lægst verð, kr. 8,50.
Unglingaskófatnaður,
Drengja og Telpna, í stærðunum 31—39.
Notið tækifærið og gjörið hagkvæm
kaup á góðum og fallegum skófatnaði.
Skáverslnn
Jóns Stef&nssonar
Langaveg 17.
Látið ekki daglnn ifða
án þess að Uta f glnggana
hjá okknr.
Versl. Inglbfargar lahnsnn.
Edison Grammófúnar.
skáp-grammóiónar og
borð-grammóiónar
með endnrbættnm hljóðdósnm
fy r irlig b j andi.
Katrin Vlöar.
KljMfmrareitfna. Lakjargltn 2.