Morgunblaðið - 31.12.1928, Page 3

Morgunblaðið - 31.12.1928, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ 3 \ Frá stiórnmálunum 1928 Eftir Jón Þorláksson, Stjórnmálasvipur ársins 1928 er, «ins og' vænta mátti, fyrst og iremst mótaður af samvinnunni og bandalaginu milli Alþýðuflokks- ins og Framsóknarflokksins. Ann- ar þessara flokka telur sig aðal- lega verlcamannaflokk, hinn telur «ig aðallega bændafloltk. Cáðir •eiga þeir sanmierkt í því, að þeir setja markið ekki hærra en það, að telja sig fyrirsvarsmenn sjer- hagsmuna eða stjettarhagsmuna innan þjóðfjelagsins. Hið göfugra verkefnið, að vinna fyrlr heill og hagsmunum alþjóðar — það eftir- láta báðir þessir flokkar góðfús- lega andstæðingum sínum, ihalds- flokknum og þeim Frjálslyndu. Hið langmerkasta, sem fram hefir komið í þessari sambúð frá Alþýðuflokksins liálfu, eru hinar skýru yfirlýsingar, sem hr. Har- aldur Guðmxuidsson flutti af flokksins hálfu á landsmálafund- unum í haust., þess efnis, að Al- þýðuflokkurinn vill taka eignar- rjettinn að jörðunum af bændum, hefir þetta beinlínis á sinni stefnu- skrá og ætlar sjer að vinna að því. Formaður flokksins Jón Baldyins- son, var á þessum fundum, tók þar til máls og galt þessu samþykki. Menn vissu nii áður, að Alþ.flokk- urinn hefir það á stefnuskrá sinni, að „þjóðnýta“ öll framleiðslu- tæki, og meðal þeirra eru vitan- lega jarðirnar. En samt hefir ekki fyr en á þessu ári verið unt að fá alveg hrein svör um þetta frá ýms- um af helstu mönnum flokksins. Jeg minnist þess til dæmis, að á ’landsmálafundi á Akureyri fyrir 'fám árum var hr. Erlingur Frið- jónsson spurður um það, hvort skilja bæri þetta stefnuskráratriði þeirra svo, að flokkurinn vildi taka túnin af bændunum. Eftir ofurlitla umhugsun svaraði hr. E. Fr. eitthvað’ á þá leið, að þeir vildu ekki taka túnin af bændun- um, nema að því leyti, sem þau væru stærri en þörf bóndans krefði. Nú liggur þetta atriði skýrt fyrir frá flólcknum. Bænd: urnir eiga að fá að verða. lands- sjóðsleiguliðar á jörðum sínum, j>egar búið er að taka af þeim <eignarrjettinn. Váldhafamir eiga 'svo að skamta stærð túnanna og velja ábúenduma. Ekki er auðvelt að sjá hversu þessi endurnýjun á harðstjórn Haralds hárfagra gæti orðið verka mannastjett landsins sjerstaklega að liði, eða bætt hennar hag. Miklu fremur er hætt við að svifting eignárjettarins mundi draga stór- irm úr áhuga bændastjettarinnar á jarðrækt og hverskonar býlabót- um, og þá um leið að draga úr þeirri atvinnu fyrir verkamenn, sem þessar endurbætur hljóta að veita. Sannleikurinn er víst sá, að þetta stefnuskráratriði Alþýðu- flokksins er útlend kreddukenn- ing, sem leiðtogarnir liafa tekið ástfóstri við, og engum getur orðið ■ ti- gagns í framkvæmdinni. öðrum en þeim valdhöfum, sem fá í sín- ar hendur þann rjett,, sem sjálfs- eignarbændur landsins eiga nú. — Ennþá erfiðara mun þó verða að 'koma bændastjettinni í skilnipg um það, að þessi rjettarmissir mimi verða henni sjálfri til blessunar. Af hálfu Framsóknarflokksins hefir sambúðin við bandamennina mótast aðallega af eftirlátssemi, bæði í stefnumálum og smámálum. Eins og kunnugt er hefir Fram- sóltnarflokkurinn haldið mjög fr'am samvinnumálum, og jafnvel stTmdum talið samvinnustefnu vera nokkiirskonar þungamiðju flokks- ins. Nú bauðst á árinu sjerstaklega hentugt tækifæri til þess að vinna samvinnustefnunni lijer nýtt land, meðal sjávarútvegsmanna, með ríkisstuðningi til stofnunar sam- vinnu-síldarbræðslu meðal smærri síldarútvegsmanna. En í þessu máli flúði flokkurinn frá i’yrver- andi stefnu sinni, undir forystu dómsmálaráðherra Jónasar Jóns- sonar, og yfir á þjóðnýtingarstefnu Alþýðuflokksins. Lögin um síldar- bræðslustöð heimila ekki að ríkis- stuðningur sje látinn í tje sam- vinnufjelagi síldarveiðimanna, heldur einungis að versksmiðjan verði stofnsett sem hreint ríltis- fyrirtæki. Annað stórmál kom fyrir á ár- inu, sem ekki snertir beint sam- búðina við Alþýðuflokkinn, en varpar skýru ljósi á hina raun- verulegu afstöðu Framsóknarfor- kólfanna til bændastjettarinnar og samvinnufjelagsskapar bænda. — Sláturfjelag Skagfirðinga hafði sótt um lán úr Viðlagasjóði, sem heimild var fyrir í fjárlögum, til þess að koma upp frystihúsi á Sauðárkróki. Tilætlunin auðvitað sú, að nota sjer kæliskip Eim- skipafjelagsins til þess að flytja nokkuð af kjöti Skagfirðinga út kælt eða frosið. Sýslunefnd hafði lcfað ábyrgð sinni, og alt virtist vera í lagi. En þegar til lands- stjórnarinnar kom, þá neitar hún þessu samvinnufjelagi, Sláturfje- laginu, um lánið, en veitir það ICaupfjelagi Skagfirðinga, sem ekki hafði ábyrgð’ sýslunefndar. Með þessu móti tókst stjórninni að útiloka þann hluta bændastjettar- innar í Skagafirði, sem ekki kaup- ir erlendar nauðsynjar sínar hjá Kaupfjelaginu, frá þeim fríðind- um, sem Viðlagasjóðsláninu fylgja. í Sláturfjelaginu geta allir verið, sem framleiða sláturfje, hvort sem þeir kaupa erlendar vörur hjá kaupfjelaginu eða annarstaðar. — Meira að segja var fult samkomu- lalc iim það innanhjeraðs, að t.iýggja einnig kaupfjelaginu sjálfu afnot frystihússins fyrir það fje, sem kynni að ganga beint þangað frá kaupfjelagsmönn- um. Ekki er annað sjáanlegt, en að frá stjórnarinnar hálfu sje hjer á ferðinni tilraun til þess að kúga bændur inn í Kaupfjelagið, og eyðileggja Sláturfjelagið. Og skýr- ingin sú, að vonast sje eftir stjórn raálastuðningi frá leigtogum Kaup- fjelagsins, en ekki frá Sláturfje- laginu. Auðvitað mistekst lcúgun- artilraunin. Islendingar eru nú orðið ekkert hneigðir fyrir að láta kúga sig. En afleiðingin verður m. a. sú, að á þess\im stað verða fryst.ihúsin tvö, með meiri stofn- kcstnaði og rekstrarkostnaði held- ur en þörf var á, þar sem komast mátti af með eitt. Og landsstjórn- inni hefir með þessu tekist að sýna það ómótmælanlega, að það er ekki hagur bændastjettarinnar í heild, sem hún ber fyrir brjósti, og ekki samvinnufjelagsskapur bænda alment, heldur aðeins flokkshagsmunir. Af sama tæi er vitanlega hin smásálarlega hlutdrægni í veit- ingum embætta og sýslana, og stofnun nýrra sýslana handa flokks bræðrum, sem sjerstaklega hefir einkent feril hr. Jónasar Jónsson- ar, síðan hann varð dómsmálaráð- herra, og ennfremur misbeiting þingvaldsins og ráðherravaldsins til þess að bola andstæðingum burt frá störfum, sem þeir voru löglega til kjörnir, svo sem gert var við bankaráð Landsbankans. Þingræðistilhögunin hefir það í för með sjer, að þegar stjórnar- skifti verða, þá taka venjulega forystumenn einhvers eins flokks við völdunum. í öllum löndum, þar sem þessi stjórnmálatilhögun hefir náð nokkrum þroska, er sú krafa gerð til slíkra floltksfor- ingja, að um leið og þeim eru fengnir stjórnartaumarnir í hend- ur, þá skilji þeir það, að nú eru þeir ekki lengur' aðeins flokksfor- ingjar, heldur eru þeir stjórnend- ur allrar þjóðarinnar, liafa jafn- ar skyldur til að styðja alla heil- brigða framfaraviðleitni, hvort sem hún er borin fram af stuðn- ingsmönnum eða andstæðingum, og hafa umfram alt skyldur til að fara alveg hlutdrægnislaust með þau umráð yfir ríldsfje, sem þeim er fengin í hendur. 1 sæmilega fjölmennum ríkjum hefir þetta níi yfirleitt reynst svo, að ekki hafa aðrir komist það langt, að verða forystumenn stórra stjórn- málaflokka, en þeir, sem svo mik- ið er í spunnið, að þeir hafa get.að vaxið með verkefninu, þ. e. orðið bærilegir þjóðarleiðtogar þegar þeir voru kvaddir frá flokksfor- ustunni til hins verkefnisins. Og þá sjaldan út af þessu hefir brugð- ið, og ráðherrarnir hafa ekki get- að vaxið upp úr því að vera fiokksforingjar eingöngu, þá fiafa þeir orðið skammlífir i völdunum, því að í sjerhverjum stórum stjórnmálaflokki er alls- staðar mesti fjöldi kjósenda, sem skilur það alveg rjett, hverjar kröfur á að gera t.il ráðherranna, og lætur flokkinn gjalda þess við fyrsta tækifæri, ef kröfurnar eru ekki uppfyltar. í jafn sára-fámennu ríki, og ts- land er, verður' náttúrlega öllu meiri hætta á því, að til flokks- forustu kunni að veljast menn sem ekki er nægilega mikið í spunnið til þess að þeir geti vaxið frá flokksforustu upp í þjóðar- forustu. Að öðru jöfnu er hætt við að úrvalið verði rýrara þar sem úr fáum er að velja. En vjer höfum nú sett oss það mark, að fleyta landi voru og þjóð áfram i fullu sjálfstæði þrátt fyrir mann- fæðina. Þess vegna verða kjósend- ur hjer á landi að vera ennþá kröfuharðari en annarstaðar um það, að þola ekki að á fyrstu sjálf- stæðisárunum myndist illar stjórn- arvenjur. Yiðhald og varðveisla þjóðarsjálfstæðis vors er sjálfsagt T»re$tone Firestone’s 68 og 80 cm, egta svört og rauð sjóstígvjel, eru sjerstaklega þykk með ' slithlíf og hvítum sólum. Aðalumboðsmaður á íslandi: Benjamínsson, Pósthússtr. 7, Reykavik. Birgðir í Kaupmannahöfn hjá Bernhard Kjær, Gothersgadeý49, Möntergaarden, Köbenhavn K. Símnefni: Holmstrom. Snðnsnkknlaði, Atsnkkulaði, Cacao, er best og ödýrast. fremur öllu öðru undir því komið, að vjer sýnum sjálfum oss og öðrum, að vjer sjeum sjálfir færir um að stjórna oss vel. Dómur almenningjSálitsins um þá forustumenn Framsóknarflokks ins, sem nú fara með völdin, er á þessum áramótum sá, að ennþá sjeu þeir ekki vaxnir upp úr því að vera flokksforingjar og upp í það að vera þjóðarráðsmenn. — 1 utdrægnin rekur upp höfuðið svo að segja hvar sem litið er á undangenginn stjórnarferil þeirra. En þó segi jeg það satt, að marg- ir þeir af núverandi stjórnarand- stæðingum, sem þektu herra Þór- hall heitinn Bjarnarson, eiga bágt með að gefa upp allar vonir um það, að nokkuð af þeim stjórn- málamannkostum, sem prýddu þann m’ann svo ríkulega, komi fram hjá syni hans með vaxandi reynslu. Slðustu erlendar frjettir. Líðan Bretakonungs var hin sama í gær og undanfarna daga. Marta Hanljau, sem stóð fyrir fjársvikunum miklu í Frakklandi, var yfirheyrð á laugardaginn. — Las hún upp í rjettinum greinar- gerð úm starfsemi sína og taldi upp hve mikið fje hefði farið til aðstoðarmanna sinna. Fjárlög Frakka voru samþykt í þinginu á laugardaginn með 460 atkv. gegn 112. Stjórnarskifti í Jugo-Slafiu. Eft- ir að ráðherrafundur var haldinn í höfuðborg Jugo-Slafa í gærmorg- un, lýsti forsætisráðherra því yfir, að stjórnin segði af sjer. Er mælt, að stjórnarskifti þessi stafi m. a. af óeirðum þeim og óánægju, sem átt hefir sjer stað upp á síðkastið í Króatíu. Liðsforingij í spanska hernum í Marokko hefir nýlega verið myrt- ur. Morðingjarnir innlendir menn, er flúið hafa inn í franska svæðið í Marokko. Samkepnin milli Cunardlínunn- ar og Bandaríkjamanna í skipa- göngum milli New York og Hav- ana, vekur mikla athygli. Sagt var frá því hjer í blaðinu um daginn, að Bandaríkjamönnum mislíkaði stórlega, að Cunardlínan skyldi setja farþegaskip sín á siglingaleið ina milli New York og Havana, því þeir teldu þá leið innlenda siglingaleið, og Bretum óleyfilegt að keppa þar við Bandaríkja- menn. En Bretar sitja við sinn keip og telja öllum þjóðum frjálst að keppa um farþegaflutning á haf- inu. En á þessari leið eru þeir Bandaríkjamönnum skæðir keppi- nautar vegna þess að vínveitingar eru um hönd hafðar í hinum ensku skipum en amerísku skipin eru — „þur“. Þó að fargjaldið sje ekki nema 24 stpd. á amerísku skipun- um, en 36 stpd. á hinum ensku, sækjast amerískir efnamenn eftir því að ferðast með ensku skipun- um. Sein afgTeiðsla hefir verið und- anfarna viku í hinni pólsku höfn Gydina, er nýlega hefir verið stækkuð stórlega. Skip, sem þang- að hafa komið, hafa orðið að bíða vikum saman vegna þess m. a., að kol þau, sem þangað áttu að vera komin um miðjan desember, eru ókomin enn. Höfnin full af skip- um, sem bíða. — Skipaeigendur krefjast stórkostlegra skaðabóta. Yfir 20 stiga frost var í gær í Noi-ður-Svíþjóð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.