Morgunblaðið - 24.03.1929, Qupperneq 2
2
MORG UNBLAÐIÐ
l!ID HafHaM & Olsiem
Glrðingarefnl.
Þeir, sem þurfa girðingarefni í vor, ættu að tala við
<okkur áður en þeir festa kaup. Seljum aðeins viðurkent
fyrsta flokks efni, en þó með samkeppnisfæru verði.
Útboð.
Þeir, sem gera vilja uppdrætti að hinni fyrirhuguðu nýju kirkju
í Reykjavík, vitji sem fyrst upplýsinga hjá undirrituðum formanni
kirkjubyggingarnefndarinnar. — Heima virka daga kl. 4—7 síðd.
Reykjavík, 23. mars 1929.
Sigurbjöm Á. Gíslason.
Ný-
komnar
Mikil verðlækkun á kopieringu.
Hans Petersen.
Bankastræti 4;
Flskðbrelðnr.
(Vaxíborinn dúkur.)
Besta tegund. — Margra ára reynsla fengin fyrir
ágætis endingu. ,
Saumum allar stærðir eftir því sem menn biðja um.
I heildsölu hjá
Veiðarfæraverslnnin „Geysir".
Móðir rriín, Hugborg Ögmundsdóttir, verður jarðsungin frá heim-
ili hennar, Aðalgötu 4, miðvikudaginn 27. þ. m. kl. 1 e. h.
Keflavík, 22. mars 1929.
Þóra Eiríksdóttir.
Innilegt þakklæti til þeirra sem vottuðu okkur hlutteknmgu
við fráfall og jarðarför drengsins okkar.
Anna Þ. Magnúsdóttir. Skarphjeðinn Benediktsson.
Freyjugötu 4.
Jarðarför okkar elskulegu dóttur og stjúpdóttur, Jónasínu
Halldórsdóttur, fer fram þriðjudaginn 26. þ. m. og hefst með hús-
kveðju á heimili okkar Hvérfisgötu 92 kl. 1 y2 e. m.
Sigríður Sighvatsdottir. Halldór Jónsson.
Hjartans þakkir til allra þeirra, sem auðsýndu mjer margs-
konar hjálp og hluttekningu við andlát og jarðarför móður minnar,
Sigríðar Einarsdóttur.
Aðalbjörg Sigurðardóttir.
Innilegt þaklæti fyrir auðsýnda hluttekningu við fráfall og
jarðarför móður minnar Þóru Þórarinsdóttur frá Keldum.
Svava Símonardóttir.
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda hluttekmugu við andlát og
„jarðarför Guðrúnar Þúrarinsdóttur frá Keflavík.
Aðstandendur.
Quðjón Samtielsson
og Snndhölliii.
Er Guðjón Samúelsson kom heirn
úr utanför sinni hjer á dögunum,
birtist grein eftir hann í Vísi, þar
sem hann afsakar afgreiðslu sína
í Sundhallarmálinu. Hreytir hahh
úr sjer nolckrum ónotum til Morg-
unblaðsins, vegna þess, að hjer
birtist frásögn um aðfinslur bæjar-
verkfræðings og bæjarstjórúar við
afgreiðslu hans á málinu. Morgun-
blaðið leiðir ummæli G. S. alger-
lega hjá sjer, því enn hefir engin
opinber tilkynning verið gefin út
um það, að eigi megi skýra frá
því, er bæjarstjórn Reykjavíkur
vítir gerðir húsameistara.
En bæjarverkfræðingur, Valgeir
Björnsson, hefir beðið Morgunbl.
fyrir eftirfarandi orðsendingu:
Það er tvent í grein húsameist-
ara Guðjóns Samúelssonar, er birt-
ist í „Vísi“ 20. þ. m., er jeg vil
gera nokkrar athugasemdir við.
Húsameistari virðist kenna mjer
um drátt þann á uppdráttum sund-
hallarinnar, sem orðinn er, þar níem
hann hafi ekki fengið uppdrátt af
lóð og hallamælingu fyr en 9. okt.
s. 1. ár.
Mánaðardagur sá, er húsameist-
ari tilgreinir, er óefað rjettur. En
hann gleymir að fræða lesendur
sína um hvenær hann bað um
þennán uppdrátt. Það var milli
viku og hálfum mánuði fyrir 9.
okt. Uppdráttinn gat hann fengið
hvenær sem hann hefði beðið um
hann, talið frá þeim tíma er hann
— ásamt meðnefndarmönnum sín-
um í skipulagsnefnd — ákvað
snndhöllinni stað.
Þess má líka geta, að um miðj-
an júní s. I. ár spurði húsameist-
ari mig í síma um, hver væri halli
á fyrirhugaðri götu með aðalvegg
sundhallarinnar og hver væri halli
á landi. Þetta ljet jeg hann sam-
stundis vita og ennfremur hvað
djiipt væri á klöpp.
Húsameistari getur um það sein-
ast í grein sinni, að það sje ekki
sitt starf heldur bæjarverkfræð-
ings að „reikna út vatnsmagn og
leiðslur í Iaugina“.
. Þetta er rangt. Að vísu er það
ekki starf húsameistara að „reikna
þetta út“. Það væri til of mikils
mælst. En þeim manni, er tekur
að sjer að teikna sundhöllina, ber
að sjá um, að þetta sje gert og
það áður en gengið er til fulls frá
teikningu.. Það er engan veginn
nauðsynlegt, að hæjarverkfræðing-
ur framkvæmi þetta. Endá man
jeg það úr einu af brjefum dóms-
málaráðherra til bæjarstjórnar
máli þessu viðvíkjandi, að hann
telur rjett, að verkfræðingar í
þjónustu landsins framkvæmi verk
fræðingsstörf sundhöllinni viðvíkj-
andi.
Þetta kemur fyrst inn undir
minn verkahring, er veganefnd á
fundi 15. jan. s. I. felur mjer þetta.
Þá fyrst sá jeg uppdráttinn í því
formi, er hann nú er.
Jeg spurði þá húsameistara
strax um þau aðalatriði, er leggja
varð til grundvallar þessu: Hvað
heitt ætti að vera laugar'vatnið og
hversu oft ætti að skifta um vatn?
Hvorugu atriðinu gat húsameist-
ari svarað mjer, enda get jeg um
það í skýrslu minni til veganefnd-
ar, að „jeg sje ófróður um kröfur
þær, sem gerðar sjeu til vatnsnotk-
unar í sundhöllum.“
En rjett er að geta ])ess, að
húsameistari hefir nú í seinustu
siglingu sinni öðlast nokkura vit-
neskju um þessi grundvallaratriði.
Hinum atriðunum, um legu laug
arinnar og gerð þaksins, mun jeg
ekki svara í blöðunum, nema liúsa-
meistari sjerstaklega óski eftir
því. Er það þá velkomið. Það’hefir
ekki verið tilætlun mín að gera
þau atriði að blaðamáli.
Jeg mun rökstyðja mál mitt
fyrir veganefnd og þykir mjer
rjett, að húsameistari geri hið
sama.
Reykjavík, 22. mars 1929.
Valgeir Björnsson.
Flokkaglíma Armanns
Hin árlega flokkaglíma Ár-
manns fer fram í Iðnó í dag
kl. 3. Er þetta nú fjórða árið
í röð að hún er þreytt og verða
keppendur 17. Er þeim skift í
tvo flokka eftir þyngd. í fyrra
flokki eru menn, sem vega 70
kg. og þar yfir, en í öðrum
flokki ljettari menn. Keppendur
eru þessir í fyrra flokki: Georg
Þorsteinsson, Hjörtur Gíslason,
Jörgen Þorbergsson, Marinó
Nordquist (U. M. F. B.), Sig-
urður Thorarensen og Þor-
steinn Einarsson.
í öðrum flokki eru: Alex-
ander Guðjónsson, Björgvin
Jónsson, Björn Bl. Guðmunds-
son, Geir Ásmundsson, Helgi
Kristjánsson, Hinrik Jónsson,
Ingimundur Guðmundsson (K.
R.), Jóhann Ingvarsson (K.R.),
Óskar Þórðarson (K.R.), Sig-
urjón Hallvarðsson (K.R.) og
(Svavar Eggertsson.
Keppendur eru 12 úr Ármann
fjórir úr „Knattspyrnufjelagi
Reykjavíkur“, og einn úr U. M.
F. Bolungavíkur, Marinó Nord-
quist, glímukongur Vesturlands.
Hefir hann glímt hjer áður og
gat sjer þá ágætan orðstír og
er það spá manna, að hann
muni verða mörgum skeinu-
hættur.
Þá má og nefna Björgvin
Jónsson frá Varmadal, sem fór
harðast út úr skjaldarglímu Ár-
manns í vetur þá er þeir Georg
Þorsteinsson hentust fram af
pallinum í *Iðnó. Hefir hann
ekki látið það slys á sig fá, og
er það spá vor, að hann missi
ekki oft fótanna í dag.
Vagn Jóhannsson getur því
miður ekki tekið þátt í glímunni
vegna þess að hann slasaðist
fyrir skemstu.
Vonandi tekst glíma ]>essi
ekki jafn slysalega og skjaldar-
glíman. Um óhöppin, sem þá
urðu, kendu menn gllímupallin-
um mest — hann var hallfleytt-
ur, klökkur og ósljettur. Nú
hefir verið settur nýr pallur
]>ar ofan á og bönd verða þvert
fyrir svæðið fram á pallbrún svo
að menn lendi ekki fram af pall
inum.
Enginn efi er á ])ví, að hjer
verður' um góða skemtun að
ræða og koímast sennilega ekki
allir í Iðnó, sem á vilja horfa,
vegna þess hvað húsið var lítið.
Sú varð raunin á um skjaldar
Dansplötur
nýjar:
I can’t give you anything
but love.
Coquette.
Ennfremur komnar aftur
My inspiration is you.
Serenade.
Last night I dreamed
o. m. fl.
Einnig er ungverska Rhap-
sodian komin aftur.
Hljóðfæraverslun.
Lækjargötu 2.
Hfkomli:
Hvítkál
Rauðkál
Gulrætur
Rauðjófur
Glóaldin
Gulaldin
Bjúgaldin
Epli
Laukur.
Nýlenduvörudeild
JES ZIMSEN.
|iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii^^^ljiiiiiiiuiiiiiimiimra
| POLVPHON PÁjjLil POLYDOR |
Þetta ern nýjnstn
| danslðgin: |
1 Saxophon-Susi
= Hör mig, o, lille Pige.
I Elsie med det döde Haar 1
1 Alaine. s
Í Mellem tusind Stjerner
|§ Bretagne.
1 Der blev saa stille
1 Mindernes Melodi.
| Apachens Sang,
Í Den skönne Værtinde.
| Juana sjmger til Maanen, 1
Í Blot, du vil smile lidt til mig. i
| Du er min egen lille Pige, 1
1 Madelaine,
§ Get out and get under
the moon,
| My Inspiration is you.
1 Nýju Polyphonplötumar hafa j§
| fallegustu hljóðin.
M Klest þessi lög fást einnig á i
1 nótum.
1 Hljóöfærahúsiö. I
^iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuuiR
glímuna. Mönnum er því ráð-
lagt að ná sjer sem fyrst í að-
göngumiða.
—---------------