Morgunblaðið - 13.10.1929, Side 9
Sunnudaginn 13. október 1929.
9
PorgimbM
Btofnandi: Vllh. Finaen.
Otjs^fandi: FJelag i ReykJaTlk.
iUtatJörar: J6n KJartanason.
Valtýr StefAnaaon.
.ft.ujtlí’alngastjöri: E. Hafber*.
Skrlfatofa Auaturstrœti 8.
•iasi nr. 600.
AnelýsinKaakrifstofa nr. 700.
Helmaalmar:
J6n KJartanaaon nr. 742.
Valtýr StefAnsaon nr. 1120.
E. Hafber* nr. 770.
JiSkriftaeJald:
Innanlanda kr. 2.00 A atAnuði.
nlands kr. 2.60 - ----
sölu 10 aura elntaklil.
Erlendar símfregnir.
Khöfn, PB 11. okt.
Bretum ofbýður ágengni
Norðmajma.
Frá London er símað: Sir Maw-
son hefir símað til blaðsins Daily
News, að Norðmenu ha'fi mikla
ákefð á því að lfegigjá undir sig
Suð.urpólslöndin.
1 ritstjórnargrein í Dáily News
er því haldið fram, að Norðmenn
liafi engan rjett til þess að leggja
undir sig Suðurpólslöndin. Hins-
vegar verði Bretar, segir blaðið, að
gæta hagsmuna sinna í Suðurpóls-
löndum, vegna bresku nýlendanna,
t. d. Ástralíu.
Blaðið óttast, að Norðmenn muni
' X
útrýma hVölimum úr suðurhöfum,
netaa hvalveiðistarf Norðmanna
verði takmarkað.
Rausnarleg
Slysavamafjelag íslands fær 1000
króna gjöf frá Sjóvátryggingar-
fjelaginu.
1 gærdag færði framkvæmda-
stjóri hr. A. V. Tulinius, Slysa-
varnafjelagi fslands 1000 krónur
að gjöf frá Sjóvátryggingarfjelagi
íslands.
Þdssa höfðinglegu og kærkomnu
gjöf, þakka jeg kærlega fyrir, í
nafni Slysavarnafjelagsins.
Það er ekki lítil uppörfun fyrir
fjeiagið ,að fá slíka gjöf, sem
þessa, frá Sjóvátryggingarfjelagi
íslands. Það er meira en peninga-
upphæðin sem um er að ræða. í
gjöfjnni, og öllum gjöfum, sem
fjelaginu berast, felast ste'rkar
vonir gefendanna, um það. að fje-
iagsskapurinn verði landi ög lýði
t.il blessunar og gagns; þær eru
einskonar yfirlýsing til fjelagsins.
„Sýnið ungmennunum traust, og
Þeir munu géra sjer far um að
verðskulda það“, stendur einhvers-
staðar.
Slysavarnafje'lag lsland|s mun
gera sjer far um að verða þess
trausts maklegt, sem því er sýnt.
Það langar til þess að endurgjalda
i>'lum gefendum sínum og styrkt-
ai'mönnum traustið, með því að
verja gjöfum þe'im, sem því berast,
1 sem mestu samræmi við óskir og
vilja gefe'ndanna. Það vill leitast
að forða sem flestum frá slys-
Ulu °g duknunum.
/ e*r> sem gefa fje i þessu augna-
miðj eril örautryðjendur. Þeir eru
1 -f'®-3a menningunni og mann-
Iwi i leikanum braut urn leiðir sem
áðiu hafa verið órnddar hjer á
larnii- Það er þar.ft og gott ve'rk,
sem engan mun iðra.
Kærar þakkir til allra styrktar-
manna fjelagsins, og í þetta skifti
sjerstaklega til stjórnenda Sjóvá-
tryggingarfjelags Islands, fyrir
hina höfðinglegu gjof, sem að ofan
getur.
Reykjavík, 12. okt. 1929.
Jón E. Bergsveinsson.
-------------
Að norðao.
Frjettabrjef.
29. sept. 1929.
Tíðarfar. Sumarið má telja igott.
Grasspretta var í meðallagi, þeg-
ar fram á sumarið kom, en kuld-
arnir í vor gerðu það að verkum
að seint spratt. Heyskapur hefir
gengio vel og nýting heyja víðast
hvar góð. Að vísu voru þurkar
heldur stopulir seinnihluta ouir-
arsins, en þó ekki svo, að hey
hre'ktust tii skaða. Nú munu allir
vera búnir að hirða hey og hey-
fengur í góðu meðallagi. Þar að
auki voru fyrningar miklar s. 1.
vor, svo að bændur eru vel birgir
af heyjum, og er slíkt vel farið,
því að góð og mikil hey eru liyrn-
ingarsteinninn undir velmegun okk
ar, bændanna.
Jarðabætur. Mikill áhugi er í
bændum hjer að auka og sljetta
túu sín. Síðan að dráttarvjelarnar
komu til notkunar, hafa stórkost-
le'gar sljettanir og túnaukningar
átt sjer stað bæði í kringum Húsa-
vík og fram um allar sveitir. Jafn
framt túngræðslunni hafa menn
steypt safnhús og safnþrær all-
víða, en þó þyrfti það að verða
enn almennara, því að slíkar jarða
bætur ættu að vera á hverjum bæ
og ganga á undan öðrum jarða-
bótum, því þó útlendi áburðurinn
sje góður og sjálfsagður við aukna
ræktun, er það þó ekki síður á-
ríðandi að notfæra sjer vel þann
áburð, sem til er á hverju he'imili.
Þurfa menn alvarlega að gæta
þess að auka ekki tún sín meira
en það, sem þeir igeta vel komist
yfir að koma í góða rækt. Því það
væri vottur um menningarleysi, ef
á næstu árum sæjust túnaukar í
órækt, en margir eru það, sem ótt-
ast, að svo muni fara.
Vega- og brúagerð. Hreppaveg-
irnir lengjast ár frá ári og bílarnir
kómast með hverju árinu, sem líð-
ur, lengra inn í sveitirnar og er
þhð niikill kostur. Vaðlaheiðar-
veginum miðar vel áfram, og líð-
ur nú ekki á löngu áður en bílfært
verður milli Húsavíkur og Akur-
eyrar, og um leið kemst megin-
Idiiti sýsluhnar í yerslunarsam-
band við Akure'yri. Og þó verslun
á Husavík megi kallast góð, er því
ekki að neita, að samband við Ak-
uí'eyri mundi verða til hagsbóta
fyrir sýsluna. Brúin á Skjálfanda-
fljóti er nú að verða fullgerð, og
ei það mikið mannvirki. Auk þess
hafa. nokkrar minni brýr verið
býgðar í vor og sumar. Alt þetta
hjálpast að því að gjöra samgöng-
uniar betri. En samgöngurnar eru ,
lífsskilyrði fyrir öllnm búnaðar-
ýramförum.
Hrútasýningar. í haust er ákveð-
lið að halda hrútasýningar í öllum
búnaðarfjelögum gýslunnar, þeim
se'm eru í Búnaðarsambandi sýsl-
unnar. Hefir Búnaðarsambandið
forgöngu málsins og mun það vera
mest að þakka formanni Sam-
bandsins, Jóni H. Þorbergssyni á
Laxamýri. Eru slíkir menn sem
hann þarfir menn fyrir búnaðinn,
enda skortir Jón ekki áhuga á
þeim málum, eða dugnað, að starfa
eitthvað í þarfir þeirra. Er það
spá mín, að Jón eigi eftir að gera
mörg nytjaverk í þarfir landbún-
aðarins hjer í sýslu og víðar, því
áhuginn er mikill og starfskraft-
arnir.
Heilsufar og maimalát. Heilsu-
far hefir verið mjög gott hjer í
sýslunni í sumar. Engar farsóttir
gengið. Að vísu bárust hingað
mislingar á þrjú heimili með ferða
mönnum vestan af landi, en þeir
breiddust ekkert út og gerðu ekk-
ert tjón svo að orð sje á gerandi.
Hjeraðslæknirinn í Húsavík, Björn
Jósefsson, fór til útlanda senni-
hluta vetrar, til að hvíla sig frá
hinum miklu störfum, sem á hon-
um hvíla, og svo til að fullkomna
sig í list sinni. Kom hann heim
aftur nm mitt sumar. Fáir hafa
dáið og engir nafnkunnir, nema
frú Ásta Þórarinsdóttir, ekkja sr.
Benedikts Kristjánssonar frá
Grenjaðarstað. Hún andaðist á
heimili stjúpsonar síns Bjarna
Benediktssonar kaupmanns í Húsa-
vík, 22. ágúst Og var jarðsungin
í Húsavík að viðstöddu miklu fjöl-
menni 31. s. m. Yfir moldum henn-
,ar töluðu þeir Guðmundur á Sandi
og sjera Knútur Arngrímsson. Frú
Ásta var sæmdarkona í hvívetna
og mjög vinsæl hjer í sýslunni,
ekki síst í igrend við Grenjaðar-
stað, ]iar sem hún stjórnaði stóru
og mannmörgu heimili tugi ára,
með mikilli rausn og skörungs-
skap. Munu margir minnast þess
heimilis sem eins af hinum glæsi-
legustu sveitarheimilum sýslunnar.
GarÓræktarfj elag Reykhverf-
inga. Það hjelt aðalfund sinn 21.
júlí og varð það þá 25 ára. —
Stofnað 1904. Leggur það aðallega
stund á jarðeplarækt og túnrækt
og á það land í kring um hverina
í Re'ykjahverfinu. Oft hefir fjár-
hagur þess verið þröngur, en þó
hefir það altaf haldið í horfinu
og oftast borgað vexti af hlutafje
sinu. En það mun vera um 12 þús.
Á seinustu árum hefir það aukið
allmikið túngræðsluna, en frekar
minkað jarðeplaræktina, því að
hún hefir oft brugðist og aðallega
fyrir frost. Reykjahverfi liggur
hátt og koma þar oft næturfrost
um mitt sumar svo að jarðeplagras
fellur. Fyrir nokkrum árum ljet
það re'isa gott íveruhús úr steini
handa framkvæmdarstjóranum og
er það hitað upp með hveragufn
og reynist mjög vel. Er nú hagur
fjelagsins allgóður og er óskandi
að það eigi mikla framtíð fyrir
höndum. Er ekki að efa það, að
í framtíðinni verður eign fjelags-
ins — hveralandið — stórmikils
virði, þegar menn fara að nota
þá ótæmandi orku, sem þar er fal-
in í öllum hverunum. Formaður
fjelagsins er nú Sigurður Bjark-
lind í Húsavík, en framkvæda-
stjóri Baldvin búfræðingur Frið-
laugsson á Hveravöllum og hefir
hann verið það síðan fjelagið
var stofnað. — Á aðalfundi í
sumar var Árni Jónsson bóndi á
Þverá kosinn lieiðursfjelagi. Hefir
hann setið í stjórn þess síðan það
,var stofnað.
Nýjajr bækur. Af nýjum bókum
sem hingað hafa borist norður, er
vert að geta tveggja. Er það
Stefnir hið nýja tímarit. Þykir
mönnum það vel úr garði gert oig
margt læsilegt í því, e'kki síst hin
ve'l ritaða grein Jóns Þorlákssonar.
Væri oskandi að fleiri greinir um
lík efni kæmi frá höfundinum. Hin
þókin er æfisaga Jóns Sigurðsson-
ar, I. bindi. Hefi jeg aldrei lesið
æfisögu nokkurs manns með
meiri , ánægju en hana. Fer þar
Við höfum fengið einkasölu fyrir hinar viS-
urkendu
Parisar-Vigny-vfirur,
en frá Vigny eru einhver þau bestu Ilmvötn,
Cream, Púður og fl., sem fáanleg eru.
Athugið, að merkið
CHICK-CHICK
GOLLIWOGG
GUILI-GUILI
eru þær tegundir, sem eru notaðar af þeim, sem.
gera miklar kröfur.
Verslunin Egill Jacobsen.
VIGNV
Gólfteppi.
Oúlfteppaefni. Qólfdreglar.
nýkomiö.
Jób BfömssoB A Co. g
Tæiiiærisoiafir.
Úr og klukkur, Silfurvörur, Silfurplettvörur og alls-
konar Gullvörur nýkomnar í miklu úrvali.
Ennfremur eru ávalt fyrirliggjandi hinir frægu og
fallegu Trúlofunarhringir.
SiiBrþór Jóbssob.
saman nákvæm lýsing á Jóni og
samtíð hans og leikandi stíll höf-
undarins. Ritar líkle'ga enginn
maður betur æfisögur, sem nú er
uppi hjer á - landi, en Páll E.
Ólason. Fer þar saman nákvæmni
vísindamannsins og leikni sagn-
fræðingsins að gera efnið aðlað-
andi og lifaudi fyrir lesendur. Er
þarna mikið þrekvirki af hönd-
um leyst og hefir þurft geysi
mikinn tíma og elju að safna sam-
an öllum þeim gögnum og þráðum
sem æfisagan er ofin úr, og gert
það alt jafn vel eins og þarna
virðist vera gert. Stendur þjóðin
öll í mikilli þakkarskuld við höf-
undinn að leysa þetta þjóðþrifa
verk af liöndum. Ætti bóltin að
Vera keypt, og lesin á hverju bygðu
bóli landsins.
Þingeyingur.
Nýjan liðsmann, ekki óe'fnileg-
an í sorpblaðamensku, hefir Jónas
Þorbergsson nú tekið í þjónustu
við sorphlað sitt. Hinn nýi liðs-
maður párar niður klúrar iríðkl«íis
ur um ritstj. Mbl., og er óþverr*ti-
um dreift um dálka Tímans. Marg-
vísleg dulnefni eru sett undir, til
þess að reyna að skýla mannræfl-
inum, er að baki stendur. Má Jón-
as Þorbergsson vera montinn af
þessum nýja liðsmanni’, e'kki- feíst
ef bak við grímuna er sjálfur full-
Silfurplettvörur
fáið þjer bestar og ódýrastar I
Versl. Goðatoss
Laugaveg 5,
svo se'm: Kaffistell, Blekstativ,
Vasa, Konfektskálar, Rjómaskál-
ar, Rafmágnslampa, Kryddílát,
Ávaxtaskálar, Matskeiðar, Gaffla.
Dessertskeiðar, Hnífa, Kökuspaða,
Fiskspaða, Rjómaskeiðar.
Leðurvörur:
Dömutöskur og Veski í stóru
úrvali, Leðurveski, Peningabudd-
ur, Samkvæmistöskur, Nagla-
áhöld, Burstasett, Ilmvötn, Ilm-
sprautur, Hálsfestar, Eau de Col-
ogne, Púður og Crem, Varasalver
Naglacrem, Vasagreiður, Sápur,
Hárspelinur og Eyrnahringir frá
Spáni.
trúinn riýbakaði í dómsmálaráðu-
neytinu.
Hjónaband. í gær voru gefin
saman í hjónaband af síra Bjarna
Jónssyni ungfrii Unnur Ólafsdótt-
ir og Jóhann Karlsson kaupmaður.
Heimili hjónanna er á Vesturgötu
17. —