Morgunblaðið - 27.10.1929, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 27.10.1929, Blaðsíða 9
Sunnudaginn 27. okt. 1929. 9 A morgun eða briðjudag fæ ieg heim: 1 HOFBERG-harraonium. Eikarkassi. 4 raddir. 16 stilli. 1 HOFBERG-harmonium. Hnotukassi. 3 radldir. 14 stilli. 1 MÚLLER-harmonium. Hnotukassi. 3 raddir. 15 stilli. Óvíst að sámbærileg hljóðfæri fáist annarsstaðar fyrir jafnlágt verð eða með betri greiðslukjörum. Elías Bjarnason, Sólvöllum 5. Veturinn er komlnn Frakka- og fataefni í mjög miklu úrvali. Nokkrir tilbúnir frakkar seljast afar ódýrt. Vetrarfrakkar og föt saumuð eftir máli frá kr. 90,00. Manchettskyrtur, náttföt, nærföt, hálstreflar í stóru og fallegu úrvali. Alt nýtísku vörur, verðið mjög lágt. Andrjes Andrjesson, Laugaveg 3. ÚTVARPSRÆKI frá M. P. Pedersen eru viðurkend fyrir gæði. Sömu- leiðis „Amplion“ hátalarar. GUÐM. SIGMUNDSSON, Sími 2238. Hafnarstræti 9. Spaðfcjðt. Höfum nú fyrirliggjandi úrvals spaðkjöt, vestan úr Dölum, bæði í heilum og hálfum tunnum. Dragið ekki lengur að kaupa kjöt til vetrarins. Eggert Kristjánsson S Co. Símar 1317 og 1400. Ef nslay g R@yk]avíkuv*« Laugaveg 32 B. — Sími 1300. — Símnefni: Efnalaug. Hreinsar með nýtísku áhöldum og aðferðum allan óhrein- an fatnað og dúka, úr hvaða efni sem er. Litar upplituð föt, og breytir um lit eftir óskum. Eykur þægindi! Sparar fje! Dr. Helgt Pieturss og Nýa I. í síðasta sunnudagsblaoi Morg unblaðsins (20. þ. m.) hefir dr Helgi Pjeturss helgað mjer langa grein með fyrirsögninni „Próf Ágúst Bjarnason og Nýall.“ Jeg verð víst að svara grein þessar Htillega. Dr. Helgi tilfærir málsgrein úr „Himingeimnum“, er hann segir vera linútu til Nýals. Þetta er ekki alveg rjett. Jeg hefi ekki enn le'sið Nýal allan, aðeins kafla úr honum. En auðvitað hefi jeg við og við lesið pistla dr. H. P. í blöðunum og rekist þar bæði á ,,lífgeislan“ og „liugsanaflutning11 og fleira þessháttar. Skal jeg ekki synja fyrir, að mjer hafi flogið þetta og annað í hug, er jeg reit hin tilvitnuðu ummæli. Jeg stend því við það, sem jeg hefi sagt í þessu efni, skal aðeins taka það fram, að þegar jeg á orðaskifti við jafngáfaðan mann og dr. H. P., mundi jeg fremur vilja nota orðið „fjarstæða“ um þá fullyrðingu, að „lífgeislan11 og „hugsanaflutningur“ eigi sjer stað millli íbúa hinna fjarlægustu hnatta. Dr. H. P. segist hafa þagað í 3 ár yfir þessari „hnútu“, en nú þykist hann hafa þau vopn í hönd- um, að hann geti afsannað þessi ummæli mín, og einkum eru það þá tilraunir dr. Alrutz á dáleiddu fólki, sem liann gerir mikið úr. Mjer þykir nú fyrir að þurfa að segja dr. H. P. það, að þessar tilraunir dr. Alrutz liafa við nán- ari prófun þar til kvaddra sjer- fræðinga reynst með öllu ófull- nægjandi. Dr. Alrutz þóttist með þeSsum tilraunum sínum geta sannað hina gömlu tilgátu Mesmers, að dá- leiðslan stafaði ekki af hugrænum, heldur af lífrænum orsökum, af einskonar útflæði frá taugum dá- valds. Gerði hann ýmsar tilraunir, er virtust benda í þessa átt. Gustaf Wallenius var aðstoðarmaður hans við tilraunir þessar, og er dr. Alrutz dó, lijelt Wallenius tilraun- unum áfram og virtist jafnvel komast feti lerigra en sjálfur dr. Alrutz. Frú Alrutz var umhugað um, að þessar tilraunir manns hennar kæmust á framfæri. Þess vegna lagði hún þær fyrir 8. alþjóðaþing sálarfræðinga í Gröningen á Hol- landi árið 1926 með tilmælum um að fá þær sannprófaðar. Viðstaddir voru margir fræg- ustu sálarfræðingaí og lífeðlis- fræðingar, sem nú ei’u uppi, svo sem próf. Pierre Janet og próf. Mac Dougall. Endurtók Wallen- ius þar úrslitatilraunir dr. Alrutz i viðurvist ])essara og annara sjer- fræðinga á manni, er Alrutz hafði sjálfur gert tilraunirnar á. En viti menn, tilraunirnar sýndu alls ekki það, sem þæv áttu að sýna, hvort sem um handstrokur eða bendiug- ar dávalds var að ræða. Ljetu allir víðstaddir það uppi, að niðurstaða tilxaunanna væri algerlega nei- kvæð (negativ). Árangur þeirra bénti frelcar í þá átt, að dále'iðslu- fyrirbrigðin stöfuðu af hugræn- um orsökum, af sefjan, en ekki af neinu iitflæði frá taugum dávalds. Um þetta hefi jeg skýrslu tveggja viðstaddra manna í Proceedings Sálarrannsóknafjelagsins breska, júrií 1927, og er velkomið að jeg láui dr. Helga hana. En ef svo fer urn svonefnda „lífgeislan“, þegar um östutt bil rnilli handar dávalds og hörunds dáleiddra manna er að ræða, þá má næi’ri geta, hvort slík „lífgeisl- aiu“ eigi sjer stað um fjarlægðir, sem nema billxónum mílna. Virðist mjer allmikil fjarstæða að fullyrða slíkt. Þá er „hugsanaflutningurinn‘ ‘ hnatta í milli. Sjálfur hefi jeg leikið mjer að liugsun þessari löngu áður en dr. Helgi tók að skrifa Nýal sinn, en það var þegar jeg var að rekja sannanir Platós fyrir ódauðleika sálarinnar (sbr. Iíellas, bls. 265—66).. Man jeg ekki betur en að sjálfur H. P. dáði það, sfcm þar var sagt. En það er sitt hvað að henda fram einhverri heimspekilegri tilg'átu og halda lienni fram sem óyggjandi sann- leika. Jeg mun og hafa. getið þess fyrstur manna á íslensku (í And- varagrein 1914), að hugsanaflutn- ingur virtist hafa gerst á nokk- urra kílómetra færi, þar sem próf. Janet sat við annan endann, en Fredrick Myers við hinn. Til- raunin var gerð á dáleiddri konu og hefir mjer síðar komið í hug, að henni í fyrri dáleiðslu hafi ver- ib sagt að gera það, seiu hún gerði, að leita uppi dávald sinn á löngu færi. En jafnve’l þótt hugsana- fiutningur á skömmu færi hefði margsannast, og til þess benda helst tilraunir prófessors Gilberts Murray á sjálfum sjer (sbr. Pro- ceedings, 1924), er þar með alls éltki sagt nje sannað, að hugsanir xrianna geti borist óravegu milli fjai’lægustu hnatta. Eigi hugsanirnar að flytjast hnatta í milli, verða þær að flytj- ast með einliverskonar bylgjum. Nú eru ljóssveiflurnar einu skeyt- in, það vjer vitum, sem berast hnatta í milli. Og ljósið er mesti hraðboðinn, sem vjei’ þekkjum; fer þrjú hxmdruð þúsund kíló- metra á sekúndu. Það er ekki ómerkari maður en Einstein, sem liefir sagt, að þetta sje sá mesti hraði, er mögulegur sje á fýsiska vísu. Nú er ljósið liðlega 1 sek- úndxx frá tungli til jai’ðar, 8 mín- úlur frá-sólu, 8 stxxndir út xir sól- lcerfi voru, liðug 4 ár til næstu sólai’, 10 ár til Procyons og' yfir 300 ár alla leið til Óríons, svo að ekki sje lengra farið. Segjum nú að hugsanir geti flutst hnatta í milli með ljóssins hraða — en meiri hraði þekkist ekki — livernig getur þá dr. H. P. fengið svör af miðiísmunni frá Jónasi Hallgrímssyni, sem H. P. fullyrti hjer um árið að lifði í holdinu, ekki í okkar sólkerfi, heldur í alt öðru sólhverfi, — hvernig getur liann, spyr jeg, feng- ið svörin frá honurn svo að segja á samri stund! Sjexx hugaröldurn- ar „fýsiskar“ öldxxr, sem þær hljóta áð vei’a eftir kenningnm H. P., þá leyfi jeg mjer að ne’fna það fjarstæðu, að þær fari það á 10 sek. eða jafnvel 10 mín., sem ljós- ið, mesti hraðboðinn sem við þekk- jum, fer minst á 4—10 árum. BÁTAR10T0R1NN Smábáta eigendur athugið hvaða vjelar reynast best- / ar á sjóin, athugið Kermath vjelarnar og leitið yður upplýsinga um hvort önn- ur reynist betur Upplýsingar geíur umboðs- maður verksmiðjunnar Kristim Ottason skipasmiður Rvik. Símar 985 og 1585 Reiðtij lalugtir. j Dynamolngtir, margarteg. : Carbidlngtir, Batarilngtir. Vasaljðs og Battarí • i miklu úrvali. * Heildsala. Smásala. • Fálkinn! simi 670. • Jeg vildi óska, að dr*. H. P. ljeti sjei' skiljast það, að það er ekki af neinum persónulegum kala til hans eða ,,fyrirframsannfæringu“. ems og hann sjálfur orðar það, þótt menn geti ekki fallist á allar kenningar hans, heldur beinlínis af því, að rökrjett, heil- brigð hugsun bannar manni það. Og það ætla jeg að segja honum síðastra orða, að það er enginn moldvörpuháttur, þótt maður vilji ekki fara með staðlausa stafi, þaR ber frekar vott um andlegan heið- arleik. Hinu skal hann ekki bera neinn kvíðboga fyrir, að jeg byrgi nem- endum mínum sýn á nokkuð það, sem hefir einhvern möguleika í sjer fólgixiu til þess að reynast satt og rjett. Ágúst H. Bjarnason.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.