Morgunblaðið - 27.04.1930, Síða 3
a
* JtíVihA %i, íl * ',-í t ' J. -u
MORGUNBLAÐIÐ
■ --1 1 - -----. 1 '" ... ..... - —■ _
S)
mm
Allstaðar
er borft með aðdánn
á NASH bifreiðarnar.
Og óðum lærist mönnum að meta hina fjöl-
mörgu kosti þeirra. Allur sanngjarn saman-
burður verður þeim í vil.
Síðustu framfarirnar á sviði bifreiða-iðnaðar-
ins hjálpast að því að gera NASH bifreiðarnar
svo vel úr garði sem raun er á.
Fallegar línur og fagrir litir auðkenna þær
hið ytra, en hið innra, hin óviðjafnanlega
NASH vjel, sem vinnur svo framúrskarandi.
Signrþir Jónsson,
aðalumboðlsmaður NASH Motors á íslandi.
* íL
ai-uwöj
^ltoröunblatti
Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavík
Ritstjórar: Jón Kjartansson.
VaRýr Stefánsson.
Ritstjórn og afgrjitSsla:
Austurstræti 8. — Simi B00.
Auglýsingastjðri: E. Hafberg.
Auglýsingaskrifstofa:
Austurstræti 17. — Simi 700.
TTpi.nasinlar:
Jón ICjartansson nr. 742.
Valtýr Stefánsson nr. 1220.
E. Hafberg nr. 770.
Áskriftagjald:
Innanlands kr. 2.00 á mánuSi.
Utanlands kr. 2.50 á mánuSi.
f lausasölu 10 aura eintaklS,
20 aura með Lesbók.
irlsndar síinfrninir.
Frá frelsisbaráttu Gandhis.
Skæra við lögregluliðið.
London (UP) 26. aríl FB.
Frá Rangoon er símað: Lög-
reglan hefir handtekið átján
Bengalibúa, sem komu á skipinu
Chakdara frá Chittagong. Hand-
tökurnar standa í sambandi við
óeirðir þær, sem nýlega urðu í
Chittagong. Skip þetta hafði far-
ið frá Chittagong skömmu eftir
að óeifðirnar hófust.
Fregnir hafa borist um það
frá Diamond Harbour í Bengal-
ríki, að lögreglan hafi verið til-
neydd að skjóta á múg manna
sem veittist að lögreglunni með
grjót og stafi að vopnum, er lög-
reglan gerði tilraun til að stöðva
saltframleiðslu. Lögreglan
hleypti af nokkrum skotum, en
engir særðust, þar sem þess var
gætt að mi 5a hátt og var skotið
yfir höfuð lýðsins. Bar það til-
ætlaðan árangur, því árásar-
menn dreifðust. Þeir voru um
fjögur þúsund að tölu.
Ghandi hefir sent fimm sjálf-
boðaliða, sem hann hefir sjálfur
valið, að því er fregn frá Kar-
achi hermir, í stað þeirra fimm
leiðtoga, sem nýlega voru hand-
teknir.
Farþegaskip ferst. Leitað að
skipsmönnum.
Frá Grenwwich, Connecticut,
er símað: Vjelbátar og flugvjel-
ar hafa leitað meðfram ströndum
Long Island í allan gærdag og í
morgun að sextán sjómönnum af
farmskipinu Thames, sem kvikn-
aði í á fimtudagskvöld. Urðu
skipsmenn að yfirgefa skipið.
Skipstjóranum og níu mönnum
var bjargað, en sextán fóru í
björgunarbátnum, og óttast
menn, að honum hafi hvolft og
mennirnir druknað-
frá Vestmannaeylum.
Vestmannaeyjum. FB. 26. apr.
AfJi er mjög að verða treg-
ari. Bátar taka alment upp net
sín. Síld hefir veiðst lítilsháttar
til beitu. Fiskur yfirleitt tregur
á' hana. Mestur afli 800 af
þorski. —- Blíðviðri seinusjtu
daga.
Gísli J. Ólafson landsímastj.
fer um næstu mánaðamót ti!
Stokkhólms til þess að sitja þar
fund er símastjórar Norðurlanda
halda. Slíkir fundir hafa verið
haldnir nokkrum sinnum áður,
án þess að þátttakendur hafi ver
ið hjeðan.
Sparsemi_- óhóf.
Bændur og ríkisstjómin.
Nýlega kom hingað til bæjarins
ungnr e'fnilegur béndi austan úr
sveitnm. Erindið var að leita lyrir
sjer um lán til byggingar á jörð-
inni. — Bóndinn er einyrki, eins
og tíðkast nú á dögum. Hann býr
í gömlum bæ og hrörlegum, svo
hrörlegum, að ef sá bær væri hjer
í Revkjavík, mundi hann dæmdur
óhæfur til mannabvistaðar.
Bóndinn lagði leið sína í Bygg-
ingar- og landnámssjóð, og hitti þar
að máli Pjetur Mágnússon, banka-
stjóra. Hið fyrsta, sem hann spyr
um þegar þangað kemur, er hvað.
kosti ódýrustu íbúðarhúsin, se'm
sjóðurinn láni iit á. Honum er sagt,
að þau kosti 6—7 þús. krónur.
— Er ekki unt að fá þau enn
ódýrari, spyr bóndinn.
Bankastjórinn skýrði frá því,
að ódýrustu húsin, sem sjóðurinn
hefði hingað til veitt út á Táh,
hefðu kostað um 6—7 þiis. kr.
Hinsvegar yrði reynt að fá enn
ódýrari byggingar, því mörgum
bóndanum þætti þessi íbúðarhús
of dýr.
Bóndinn sneri sjer þvínæst til
Jóhanns Kristjánssonar bygging-
armeistara, sem er fastur ráðu-
nautur Byggingar- og landnáms-
sjóðs, sjer um te'ikningar allar
og leiðbeinir bændUm við bygg-
ingarnar. — Bóndinn sjer þarna
margar teikningar af skrautlegum
bændabýlum og glæsilegum. En
þessi hús voru dýr —of dýr fyrir
einyrjann. — Bóndinn spyr strax
um ódýrustu íbúðarhúsin, sem
teikning sje til af. Byggingarmeist-
arinn sýnir honum teikningu af
litlu húsi (eldhús, baðstofa, smá-
stofa og geymsla). Verð liússins
var áætlað 6 þús. krónur. Við
þe'ssa teikningu staðnæmdist bónd-
inn, því ekki mátti hann heyra
nefnt, að byggja dýrara.
Þessi ferð hins unga bónda er
eftirtektarverð og lærdómsrík. —
Hún sýnir, að enn eru þó til í
voru landi menn með heilbrigðri
hugsun — þrátt fyrir alt mold-
viðrið.
En aðferð bóndans er ekki lík
því, sem menn eiga að venjast
nú á tímum. Hann veit að efnin
eru lítil. Hann vill vita fótum
sínum forráð. — Hann vill forða sjer
frá að sökkva í botnlausar skuld-
ir. Hann þarf að koma sjer upp
íbúðarhúsi, og miðar alt við hið
allra mauðsynlegasta. Engin ó-
þarfa eyðsla kemst þar að. Ráð-
deild, hagsýni og sparsemi situr
hvarvetna í fyrirrúmi. Slíkur
hugsunarháttur er sjaldgæfur nú
á tímum.
Ef hugsunarháttur þessa unga,
efnile'ga bónda hefði verið ríkj-
andi hjá þeim mönnum. sem fara
með fje almennings (riivissjóðs) á
vorum dögum, þá færi hjer margt
öðmvísi og betur en nú.
Ríkisstjórnin hefir sóað um 100
þús. lcrónum í ýmiskonar nefndir,
sem hún , hefir verið að unga út
♦
undanfarið. Fyrir þetta sama fje
he'fði mátt reisa um 16 íbúðarhús
á bændabýlum.
Ríkisstjórnin hefir sóað um 130
þúsund krónum í fjósbyggingu á
Hvanneyri. Fyrir þá upphæð hefði
mátt reisa um 20 íbiíðarhús á
bændabýlum.
Ríkisstjórnin hefir sóað um 100
þús. krónum í allskonar mála-
rekstur, Hnífsdalsmálið, Shell-
málið, Bjarnanesmálið, Brunabóta-
fjelagsmálið o. m. fl. Fyrir þetta
fje hefði mátt reisa íbúðarhús á
16 bændabýlum.
RJkisstjórnin hefir sóað um 600
þúsund krónum í allskonar húsa- og
jarðabrask, prentsmiðjukaup, rík-
isskrifstofur, jarðakaup í Olfusi o.
m. fl. Fjmir þetta fje' hefði mátt
reisa íbúðarlms á 100 bændabýlum.
Enn er þó ótalin þyugsta og
stórfeldasta synd núverandi stjórn-
ar í fjársukkinu, en það er hið
gegndarlausa bitlingaflóð, sem hún
hefir látið flæða til pólitískra sam-
herja. — Enginn hefir enn getað
talið þá fúlgu saman, dn sjálf-
sagt skiftir hún hundruðum þús-
unda.
Ríkissjóður leggur Byggingar-
og landnámssjóði 200 þús. kr. á
ári. Þeirri upphæð er varið til
þess að greiða mismuninn á milli
hinua raunverule'gu vaxta, sem
sjóðurinn þarf að greiða og vaxt-
arma, sem hann fær hjá bændum
fyrir lánin. Þegar þessi upphæð
er borin saman við hinar risa-
vöxnu fúlgur, er nefndar voru og
stjórnin hefir sóað í allskonar
bruðl, adti það að vera ljóst fyrir
mönnum, hvílíkt feikna gagn liefði
mátt verða af öllu þessu fje, ef
því hefði verið vel og viturlega
varið. Er ekki ósennilegt, að sú
upphæð, sem stjómin hefir sóað
í alskonar bruðl, hefði nægt til
að greiða vaxtamis’mun til bygg-
inga íbúðarhúsa á meginþorra býla
landsmanna.
Hvdrnig get jeg bygt ódýrast og
hvar get jeg sparað, er hugsunar-
háttur hins ráðsetta og hyggna
bónda.
En hvar get jeg næst fundið fje,
til þess að sóa í bruðl og bitlinga
til pólitískra samherja, er hugs-
unarháttur nviverandi valdhafa.
Hvílíkt regindjúp er hjer á
mil-li!
Og svo er ætlast til þess, að^
bændur fylgi bitHngastjóminni í
st jórnmálum!
Werslunarmannafjel. ,Merkúr‘
gengst fyrir námsskeiði í ensku
og þýsku (talæfingum) sem
hefst í byrjun næsta mánaðar.
Hjer er um þarfa nýjung að
ræða, sem fólk ætti að notfæra
sjer, ekki síst verslunarmenn
sem án efa þurfa mikið á þessum
málum i.ð halda nú í sumar, þeg
ar útlendu ferðamennirnir fara
að streyma hingað. Sjá nánar í
augl. í blaðinu í dag.
Morgunblaðið r 8 síður í dag.
og Lesbók.
Fasteignaeigenda
tjslagið.
Fundur mánudaginn 28. þ. m.
kl. 8y2 síðd. í Varðarhúsinu.
1. Brunabótagjöldin.
2. önnur mál.
Stjórnin.
Piltur eða stúlka.
sem taka vildu að sjer að ini>-
heimta reikninga hjer í bænum
um óákveðinn tíma frá næstu
mánaðamótum, sendi umsókD
sína, merkta „innheimta“, til
A. S. 1. og tilgreini þar í launa-
kröfu, vikulega eða mánr.ðar-
lega.
2 ðuglegir
hásetar óskast á góðan línuveið-
ara. Upplýsingar í dag kl.
1—3 í Hafr.arstræti 18. Sími
2370.
Úskar Halldðrsson.