Morgunblaðið - 21.09.1930, Qupperneq 3
MORG UNBLAÐIÐ
1
«mi!iiiii!iii!iiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiii]ii!imiiiii!iiiiiiiiii]iiiiiiiium.
1 . i
Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavík =
Rltstjórar: J6n Kjartansson.
Valtýr Stefánsson.
Ritstjórn og- afgreiBsla:
Austurstræti 8. — Slmi 600. =
Auglýsingastjóri: E. Hafberg. =
Auglýsingaskrifstofo: S
Austurstrætl 17. — Slmi 700. S
Heimaslmar: S
Jón Kjartansson nr. 74Í. =
Valtýr Stefánsson nr. 1220. S
E. Hafberg nr. 770.
Áskrittagjald:
Innanlands kr. 2.00 á m&nuBl. =
Utanlands kr. 2.60 á mánuSi. S
1 lausasölu 10 aura eintakiö,
20 aura metS Lesbók. =
Smiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiimiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiuiimiiiiiiim
Beasía B. P.
Frá uppliafi var mörgum illa
við olíustöð B. P. á Klöpp við
Skúlagötu. Stöðin þótti svo ná-
lægt miklu timburhúsahverfi. —
Timburverksmiðja og timbur-
geymsla Völundar er gegnt stöð-
inni við sömu götu.
En það þótti mikil bót í máli,
uð svo var til æltast í upphafi,
úð enginn bensíngeymir yrði þarna
— aðeins olíugeymar. Þannig litu
bæjarfulitrúarnir á málið.
Síðar var smeygt inn í samn-
inginn við hafnarnefnd orðinu
^steinolíuafurðir'. Síðan var bygð-
tir bensíngeymir. Og bæjarbúar
hafa látið sjer þetta lynda. Ben-
síngeymirinn stendur á Klöpp við
Skúlágötu.
Nú hefir umboðsmaður B. P. á
Islandi ratað í þá ógæfu, að verða
‘til þess, að alt þetta mál er rifjað
upp. Nú eftir tvö ár þykir „Brit-
ish Petroleum“ stöð sín á Klöpp
vera orðin of lítil. Það sækir um
stækkun á lóðinni undir stöðina
— þrátt fyrir hinn vafasama ben-
síngeymir, sem þar stendur. Og
þ>að er marið í gegn í bæjarstjórn
að stækkunin fáist. B. P. sam-
þ>ykkir leiguskilmálana á viðbótar-
lóðinni. En hafnarnefnd á að sjá
um varúðarráðstafanir gegn elds-
voða vegna stækkunarinnar á
stöðinni.
Felt var í bæjarstjórn að bruna-
málanefnd yrði falin sii umsjá. —
Þar kom annað óhapp fyrir um-
boðsmenn B. P., því ekkert er
málefnum þeirra eins óhentugt
-eins og það, ef einhver tauga-
sístyrkur sýnir sig í sambandi við
%
afgreiðklu þessara olíumála.
Því ómögulegt er að neita því,
að það stafar eldhætta af olíu-
stöðinni á Klöpp, eldhættan vex
við það, að bensín er þar geymt,
að bæjarstjórn ætlaðist í upphafi
ekki til þess að þar yrðj. bensín,
að eldhættan vex enn, ef stöðin er
stækkuð.
Spurningin er sú, hve eldhætta
þ>essi er mikil. Á það er bent, að
vátryggingarfjelagið Albingia hafi
«ckki haft neitt að athuga við olíu-
stöðina, eins og hún var þegar
það fjelag tók að sjer vátrygging
á húseignum bæjarins. En ekki er
til mikils mælst, þó bæjarbúar fái
skýlausa umsögn vátryggingarfje-
lagsins um stöðina, eins og hún á
a,ð verða eftir stækkunina. Og því
má brunamálanefnd ekki hafa slík
mál með höndum?
Bensíngeymirinn við Skúlagötu
var settur þar í óþökk bæjar-
.stjórnar. Hann var settur þar í
óþökk bæjarbúa. Nú vill B. P.
Ruka eidhættuna af stöð sinni.
StjðrnarkjiStið,
Þegar Tryggvi Þórhallsson for
sætisráðherra fór utan, skömmu
eftir þinglausnir í vor, var erindi
hans að sækja 12 milj. krónur
handa ríkissjóði, svo að stjórn-
in gæti haldið áfram bitlinga- og
beinagjöfum til pólitískra flokks
bræðra. — En forsætisráðherr-
ann kom heim peningalaus, því
að hann gat hvergi fengið lán
með aðgengilegum kjörum. For-
sætisráðherrann fór samt ekki
erindisleysu utan. Hann kom með
miklar birgðir af dönsku kjöti.
Að sögn stjórnarblaðsins voru
þessar birgðir 16000 pund og
átti að nota lcjöt þetta í veitslur
Alþingishátíðarinnar. Að vísu
voru til lög í landinu, sem bönn-
uðu innflutning á þessári vöru;
en forsætisráðherrann sá um,
að þau lög yrðu að engu. Hann
flutti inn kjötið í forboði laga
og gerðist um leið brotlegur við
iög landsins.
Stjórnin hefir enn ekki feng-
ist til að gefa skýrslu um þenn-
an óleyfilega kjötinnflutning. En
eftir því, sem vjer höfum kom-
ist næst, munu birgðir þessar
hafa verið 3 smálestir af dönsku
alifuglakjöti og 5 smáiestir af
öðru dönsku kjöti, nautakjöti,
svínakjöti og alikálfakjöti. Kjöt-
birgðir þessar munu hafa kostað
ríkissjóð um 40—50 þús. krónur.
Dálaglegur skildingur það, og
hefði vissulega verið nær, að því
fje hefði verið varið til þess að
kaupa fyrir kjöt af íslénskum
bændum.
Fjöldi íslenskra bænda sendi
gripi hingað til slátrunar fyrir
Alþingishátíðina, í þeirri von,
að þeir fengju sæmilegt verð fyr-
ir. Sambandið átti að sjá um
sölu á miklu af þessu kjöti
Sumt af því kjöti mun óselt enn,
og bændur vita ekkert, hvað þeir
fá fyrir það. Þetta kjöt íslenskra
bænda hefir sennilega ekki þótt
nógu „fínt“ í veitslur Alþingis-
hátíðarinnar.
Þegar stjórnin leyfði innflutn-
ing á þessu danska kjöti fyrir
Alþingishátíðina, var því borið
við, að hjer mundi verða kjöt-
skortur um hátíðina. En stjórn-
in gerði ekkert til þess að kynna
sjer þá hlið málsins til hlítar.
Meira að' segja kom henni ekki
til hugar að leita upplýsinga hjá
forráðamönnum kjötverslana og
sláturhúsa. Ef hún hefði spurt
þessa rjettu aðila ráða, hefði
hún fljótt komist að raun um,
að hjer voru ekki of litlar birgð-
ir af kjöti, heldur of miklar. Það
kom og brátt í ljós^ því eftir há-
tíðina voru hjer um 50 smálest-
ir af kjöti fyrirliggjandi. Þess-
ar birgðir hafa svo verið á R-
víkur markaðinum í alt sumar,
og spilt stórum fyrir sölu á dilka-
kjöti bænda.
Fullyrt er, að stjórnin eigi
enn miklar birgðir fyrirliggjandi
af hinu forboðna danska kjöti.
|Verður þetta fræga kjöt orðið
dýrt að lokum, því altaf fellur
|á það nýr kostnaður. Væri ekki
heillaráð, að stofna til allsherjar
| stjórnarveitslu, og bjóða þangað
öllum þingmönnum stjórnar-
flokkanna og kosningarsmölum
og setjast síðan að krásinni? T—
Þa'ð verður hvort sem er án efa
(hlutskifti þessara manna, að
ihalda hlífiskildi yfir þessu lög-
l>roti stjórnarinnar.
ll bilreið yfir Svínaskarð.
Einhver mesta glæfraför er enn
hefir verið farin á bifreið hjer á
landi, er för sú, er fjórir bifreiðar-
stjórar fóru á sunnudaginn var
í lokuðum Overlandbíl (drossíu)
hringinn í kring um Esju, um
Svínaskarð.
Þeir lögðu af stað hjeðan
klukkan 9 að morgni. — Ætl-
un þeirra var í fyrstn að reyna að
komast svo langt upp og yfir
Svínaskarð er vegurinn og bíllinn
entust.
Gekk ferðin vel upp skarðið að
vestan en er upp var komið og þeir
litu niður brattann er fyrir þeim
lá, fóru að renna á þá tvær grímur.
Þó varð það úr að þeir lögðu á
hallann og þegar þeir á annað borð
voru komnir af stað varð ekki aft-
ur smiið. Svo snarbratt var niður
skarðið að nota varð báðar höml-
urnar, „afturábakgírið“, og auk
þess ljetu þeir nokkra steina í bíl-
inn. Oft urðu þeir að stíga úr bíln-
um til þess gera að veginum og
stundum voru þeir hætt komnir.
Beygjur eru margar krappar í hall
anum, svo krappar að kunnugir fá
vart sldlið hvernig mögulegt hafi
vcrið að fara með bifreið þar um.
Einnig er djúpt gil neðst í skarð-
inu og vegurinn svo mjór þar, að
það er rjett aðeins að bifreið kemst
þar. En þegar fram hjá gili þessu
var lcomið, fór vegurinn að skána.
Ferðin niður skarðið liafðist af á
20 mínútum. Hjeldu þeir síðan á-
fram að Möðruvöllum í Kjós, höfðu
þar einhverja viðdvöl og komu
liingað til bæjarins kl. 1 um nótt-
ina, og höfðu þá farið norður fyr-
ir Esju og fyrir neðan hana á
heimleið. Er þetta í fyrsta skifti
að farið er á bíl þessa leið, en ekki
munu þeir fjelagar hvetja aðra
til þess að leika það eftir.
Bifreiðinni stýrði Guðm. Finn-
bcgason járnsmiður, en með honum
voru fjelagar hans Gunnar Bald-
vinsson, Vígmundur Pálsson og
Þorgrímur Ingimundarson.
Ailir eru þetta ungir menn og
framgjarnir, sem ekki láta sjer alt
fyrir brjósti brenna.
Verkfall í málmverksmiðjunum
þýsku yfirvofandi.
Berlín: Sáttatilraunir milli
iðjuhölda málmiðnaðargrein-
anna og verkamanna eru byrjT
aðar. Fulltrúi iðjuhöldanna til-
kynti þegar í byrjun umræðn-
anna um breytt launakjör, að
laun verði að lækka a. m. k. um
15%. Fulltrúar verkamanna
fóru hinsvegar fram á 7 % launa
hækkun. Er búist við verkfalli,
uns sættir takast, en sáttahorfur
eru síst vænlegar eins og sakir
standa.
Úr dagbók Rndróe.
Stokkhólmi: Stjórnin hefir
birt skýrslu, sem byggist á dag-
bók Andrée, frá því er flugið
hófst, 11. júlí 1897, til 2. októ-
ber sama ár. í dagbókinni seg-
ir, að loftfarið hafi lent á ísn-
um þ. 14. júlí, eftir að kvikn-
að hafði lítilsháttar í belgnum.
Þeir lentu á 83° nl. br. og 30°
austl. br. Hjeldu þeir því næst í
áttina til Franz Jósefslands, en
hættu síðar við að komast þang-
að, vegna matvælaskorts. Þann
4. ágúst voru þeir staddir (L
82,17° nl. br. og 2.9.43° austl.
br. Síðar komust þeir loks til
Hvíteyjar og bygðu sér þar
kofa, sem þeir kölluðu „Nýja
ísland“. — Seinustu orðin, sem
Andrée skrifaði í dagbók sína,
voru á þá leið, að með jafn góð-
um og dugandi félögum ætti að
vera kleift að vinna sigur á öll-
um erfiðleikum.
—-—-<-'*>>—---
\
Afkoma bænda.
Það er dapurlegt framundan hjá
mörgum sveitabóndanum um þess-
ar mundir .Mikið af heyjunum
liggur fyrir stórskemdum. Sums
staðar er nokkuð af töðunni úti
ennþá og meiri parturinn af út-
lieyjum; en mikið af þeim heyjum,
sem náðst hafa, eru stórskemd.
Er bersýnilegt, að til stór-
vandræða horfir víða í sveitum
landsins. Og þar sem nú er orðið
mjög áliðið sumars eru því miður
engar líkur til þess, að full bót
fáist. Er því ekki annað sjáan-
legt, en að bændur neyðist alment-
til þess að eyða fjenaði í stórum
stíl á komandi hausti.
En hvernig eru þeir við þeim
niðurskurði búnir ‘í
Aðal framleiðsluvörur bænda er
ullin og kjötið Ullin er mikið til
óseld ennþá, því enginn vill hana
kaupa. Markaðsverðið mun vera
riálægt helmingi lægra en síðast-
liðið ár.
•Ennþá er alt í óvissu um kjöt-
verðið. Má vera að það verði svip-
að og í fyrra, en þess ber að
gæta, að gærur eru í mjög lágu
verði og rýrir það mjög afkomuna
hjá bændum.
Undanfarin ár hafa sunnlenskir
bændur getað selt talsvert af dilk-
um til Reykjavíkur um sumar-
mánuðina og fengið gott verð
fyrir. í sumar hefir Reykjavíkur-
markaðurinn verið yfirfullur. —
Kjötbirgðirnar um Alþingishátíð-
ina urðu meiri en nokkurn óraði
fyrir; ofan á þær birgðir bættist
stjórnarkjötið danslca, sem flutt
var inn í forboði laga. Sambandið
hefir við og við í sumar verið
að auglýsa „útsölu“ á kjöti og
er mælt að það hafi enn birgðir
fyrirliggjandi. Alt þetta hefir að
sjálfsÖgðu mjög- dregið úr sölu
á dilkakjöti til bæjarins.
Það getur því ekki talist glæsi-
legt fyrir bændur nú að verða
að lóga miklu af fjenaði sínum.
Stjórnin hefir ekki enn fengist
til þess að gefa skýrslu um hið
forboðna kjöt, sem hún flutti inn
í landið. Tíminn gat þess snemma
í surnar, að kjöt þetta væri 16000
pund og að það ætti að nota í
veislur um Alþingishátíðina. —
Heyrst hefir, að enn sjeu fyrir-
liggjandi birgðir af þessu kjöti.
Hvað er hæft í því? Mega bændur
ekki fá neina vitne.skju um þenna
veislumat stjórnarinnar? Nú vilja
bændur gjarna eitthvað um þetta
vita. Hvers vegna þegir stjórnin *
Hin gífurlega aukning atvinnu-
ieysisins í Þýskalandi.
London (UP) 20. sept. FB.
Berlín: í lok ágústmánaðar
var tala hinna atvinnulausu
2.875.000. Margt hefir hjálp-
ast að til að auka atvinnuleysið
nú, minkandi framleiðsla á öll-
um sviðum og sjerstaklega er
dauft yfir byggingaiðnaðinum,
því að nær ekkert er bygt, og
loks er atvinná minkandi eftir
því sem nær dregur vetri, en
venjulega fer atvinnan ekki að
minka fyr en lengra líður á.
Aðeins 72.2% af meðlimum
verklýðsfjelaga hafa nú fasta
atvinnu, sbr. við 82.2% 1929 á
sama tíma. — Fjögur hundruð
þúsund verkamanna, eða 14%,
sem eru atvinnulausir, eru ein-
kis stuðnings aðnjótandi, hvorki
frá ríkinu eða sveita- og bæjar-
fjelögum.
Stigamenn vaða uppi í \
Englandi.
London: Barátta lögreglunh-
ar við bifreiðabófana, sem hafa
upp á síðkastið tekið „stjettar-
bræður“ sína í Vesturheimi til
fyrirmyndar, fer harðnandi. 1
dag réðust þrír bófar inn á
Barkinstöðina í Essex, nálægt
London, kl. hálf-eitt, bundu og
kefluðu stöðvarþjónana, ljetu
greipar sópa um pehingahirsl-
una, og náðu um eiþt, hundrað
^terlingspundum. — Því næst
hjeldu þeir á brott í. bifreið,
sem þeir höfðu stolið. Fanst
hún hálfa aðra mílu vegar frá
stöðinni nokkru síðar. — Lög-
reglunni hefir ekki enn tekist
að ná í bófana.
| ■...........■■/B.MSMB'W-
Frá Þýskalandi.
Berlín: Hindenburg forseti
hefir skipað von Hammerstein
greifa höfuðsmann ríkisliðsins
(Reichswehr)frá 1. des. að telja
Tekur hann við af von Heye.
Þingkosningarnar
fara fram í Bandaríkjunum þ. 4.
nóvember. Kosningabaráttan er ó-
vanalega hörð, sem sumpart orsak-
ast af því hve erfiðir tímar eru í
landinu, atvinnuleysi hefir ekkert
minkað, og demokratar, andstæð-
ingar stjórnarinnar veitast mjög
að Hoover í sambandi við núver-
andi ástand. Hinsvegar er nokk-
ur ágreiningur innan demokrat-
iska flokksins, þó emi verði eigi
sjeð fyrir um hve víðtæk áhrif
það kann að hafa í kosningunum.
(Úr UP-frjettabrjefi).
Morgunblaðið er 12 síður í
dag, auk Lesbókar. Bíóauglýs-
ingarnar og venjulegar 1. síðu
auglýsingar eru á 4. síðu.