Morgunblaðið - 04.01.1931, Síða 8

Morgunblaðið - 04.01.1931, Síða 8
s MORuUKBLAÐIÐ Bolsanppþotið. Þeir fjórir bolsaforsprakkar, sem teknir voru fastir í fyrradag, eru enn í varðhaldi. Tveir þeirra, Haukur Björnsson og Guðjón Benediktsson voru yfir- heyrðir í gær. Jónatan Hallvarðs- son fulltrúi hefir málið með hönd- um. Yfirheyrslan stóð yfir frá kl. 10% f, h, með Htlum hvíldum og þangað til kl. 6 e. h. Að aflokinni yfirheyrslu var feldur úrskurður um, að þeim skuli haldið í gæslu- varðhaldi meðan rannsókn stendur yfir. Vitni verða leidd á morgun. — Býst fulltrúinn við því, ef rann- sókn gengur greiðlega, að henni muni geta verið lokið á þriðjudag. Hinir tveir, sem í varðhaldi eru, hafa ekki verið yfirheyrðir. Hefir lögreglan þá í haldi fyrst, til þess að þeir afpláni ógreiddar sektir, er þeir hafa fengið fyrir nokkru, og ekkert koma þessu máli við. í Verkamannaskýlinu var samblástur nokkur meðal bolsa í gær, og ræður haldnar um hand- töku bolsaforsprakkanna. Er Morg unblaðinu eigi kunnugt um hvað þar liefir borið á góma. Dagsbrúnarfundur var settur í Fjalakettinum kl. 8 í gærkvöldi. Margt manna var þar saman komið. Fyrstur ræðumanna (Bagnar Pjetursson?) talaði eftir rauðustu forskrift bolsa, og sparaði hvergi gífuryrðin. Úthúðaði hann öllum flokksmönnum sínum, sem eigi vildu vera samtaka í því, að halda óspektum áfram. Næstur talaði Brynjólfur Bjarna son ritstjóri Verkalýðsblaðsins, og skjólstæðingur Tímastjórnarinnar. Heimtaði hann af flokksmönnum súnumy að þeir færu þegar í stað Hvennagullið. hafandi og mig langaði ekkert til að auka hann, en hann settist þrátt fyrir það hjer upp með tveim af þjónum sínum og ætlaði sýni- lega að dveljast hjer tímunum saman. Jeg varð hlessa á þessu, en dag- inn eftir fekk jeg skýringuna. Einn af vinum mínum við hirðina •endi mjer með hraðboða brjef er fjallaði um það, að Chateller- ault hefði að vilja konungsins lagt af stað til Lavédan til þess að •ækja um hönd dóttur minnar. — Hvað olli þessu, var auðvelt að gera sjer grein fyrir. Konungur- inn, sem metur hann mikils, vildi gjama sjá hann ríkan. Og til þess var auðveldasta ráðið að fá honum ríks kvonfangs og allir litu svo á sem Roxalama væri auðugur erfingi. Auk þess, er það lýðum ljóst, að jeg hefi mikið að segja hjer í hjeraði og óttast menn þess vegna að jeg gangi undan merkj- um kardínálans. Hvaða ráð var betra til þess að ginna. mig inn undir blessun krúnunnar — því að krúnan og kardínálahettan hafa með tímanum fengið sömu þýðingu í okkar tvístraða Frakk- landi — en að gifta dóttur mína einum af vildarmönnum konungs- ins. — Guð einn veit, hvernig þetta hefði farið, ef jeg hefði ekki feng- ið aðvörun þessa í hendur í tæka íV'\ Enn sem komið var, hafði1 í kröfugöngu til lögreglustjóra, og skipuðu homun að láta þá for- sprakka lausa, sem stóðu' fyrir óspektunum á bæjarstjórnarfund- inum. Þá talaði Ólafur Friðriksson. — Hann vildi slá því á frest að gera áhlaup á hegningarhúsið. Þannig var málum komið er blað iö fór í pressuna. Dagbdk. I. O.O. F 3 = 112158 he Veðrið (laugardagskvöld kl. 5): Háþrýstisvæði yfir íslandi og djúp lægð yfir S-Grænlandi. Hjer á landi er yfirleitt stilt veður og bjart, en 8—13 st. frost á V og N- landi. Austan lands er 4—6 st. frost, en um 0 st. í Vestmannaeyj- um. SA-áttin mun nú bráðum fara að gera vart við sig á SV-landi, enda er loft því nær alskýjað í Vestmannaeyjum og Grindavík. Suðvestur af hafinu vantar allar fregnir. Veðurútlit í Rvík í dag: Vax- andi SA-átt. Þykt loft. Sennilega nokkur snjókoma eða slydda og síðan hláka. Kristileg samkoma á Njálsgötu 1 kl. 8 í kvöld. Allir velkomnir Hjónaefni. Trúlofun sína hafa opinberað ungfrú Dagmar Frið- riksdóttir, Hannessonar og Guð- mundur Benónýsson, Kollafirði. Einnig hafa opinberað trúlofun sína ungfrú Ólafía Karlsdóttir og Egill Guðmundsson sjómaður, Hafnarfirði. Fimtugsafmæli á á morgun Finn bogi Finnbogason skipstjóri, Njáls götu 27 A. Nýi Þór liggur enn uppi í fjöru; segja kunnugir, að undanfarna daga hafi verið ekið nokkrum bíl- hlössum af skrani frá skipinu. Grímudansleikur verður haldinn í Goodtemplarahúsinu í Hafnar- firði á þrettándakvöld. Chatellerault aðeins fengið eitt eða tvö tækifæri til þess, að tala við dóttur mína. Sama dag og jeg fekk brjef þetta sendi jeg hana til Auch til ættingja móður hennar. Chatellerault var hjer í viku- tima, en varð svo óþolinmóður og spurði mig, hvenær dóttir mín kæmi aftur. — Þegar þjer farið herra minn, sagði jeg og þegar hann leitaði á mig, til þess að leiða sannleikann í Ijós, sagði jeg honum afdráttar- laust ásetning minn, og áður en tuttugu og fjórar stundir voru liðn ar, var hann kominn af stað áleið- is til Parísarborgar. Greifinn þagnaði \0g gekk um gólf. Á meðan velti jeg því fyrir mjer, sem hann hafði sagt mjer, þar sem það hafði komið mjer fyr- ir sjónir eins og sjáldgæf opin- berun. Hann hjelt áfram augna- bliki síðar. — Og nú þegar Chatellerault hefir farið fýluför, gerir konung- urinn annan enn þá hættulegri mann út á móti mjer, til þess að fá vilja sínum framgengt. Hann sendir markgreifann Marcel de Bardelys í sömu erindagerðum. Vafalaust kennir hann ldaufaskap um óheppni Chatelleraults og þess vegna hefir hann að þessu sinni valið mann, sem frægur er fyrir hirðgáfur og hæversku, og sem vanur er að beita allskonar ásta- brögðum og klækjum og þess vegna hlýtur að veiða dóttur mína í net sitt. Hann gerir okkur mik- inn heiðnr með því, að senda okk- Fyrsta dansæfing í dansskóla Ástu Norðmann og Sig. Guðmunds sonar, í þessum mánuði verður á morgun (mánudag) í Iðnó. J. Símonarson & Jónsson opna í dag köku- og brauðagerð sína á Laugaveg 5 og verður hressingar- skáli í sambandi við hana. Togararnir. Á veiðar fóru í fyrrakvöld Biagi, Max Pemberton og Skallagrímur. Barðinn kom í gær frá Englandi. 9 mattadora í spaða fekk Jó- hann Ármann úrsmiður í „l’hom- bre“ í fyrrakvöld. Hafði hann ása veltu og „keypti“ fjögur spil. Hjálpræðisherinn í Hafnarfirði. Samkomur í dag: Sunnudagaskóli kl. 2. Hjálpræðisherssamkoma kl. 8 síðd. Allir velkomnir! Hjálpræðisherinn. Samkomur í dag: Helgunarsamkoma kl. 10% árd. Lautn. H. Andersen stjórnar. Sunnudagaskóli kl. 2. Hjálpræðis- samkoma kl. 8 síðd. Kapt. A. Olsen stjórnar. Mikill söngur og hljóð- færasláttur. Allir velkomnir. Sjómannastofan, samkoma í ‘dag kl. 6. Allir velkomnir. Pjetur Sigurðsson flytur fyrir- lestur í Varðarhúsinu í kvöld kl. 8% um þýðingarmesta atriði krist- indómsins, brýnustu þörf þjóðar- innar. Lúðrafjelagið „Svanur“. Nýlega hafa nokkrir ungir áhugamenn stofnað hornaflokk, er hlotið hefir nafnið Liiðrafjelagið „Svanur“. — Hefir fjelagið ráðist í að panta fyrsta flokks hljóðfæri handa 22 mönnum og mun innan skamms halda hlutaveltu og reyna að fá eitthvað upp í kostnaðinn. Stjórn fjelagsins skipa: Ágúst Ólafsson, Óskar A. Þorkelsson og Hersveinn Þorsteinsson. Að Flögu í Skaftártungu hefir verið reist bráðbirgðaskýli handa fólkinu til að hafast við í vetur. ísfisksala. Þessir togarar hafa nýlega selt afla sinn í Englandi: Njörður fyrir 872 stpd., Snorri goði fyrir 1015, Þórólfur fyrir ui þenna mann, er fegurstur er og liprastur allra annara í hirð- inni, — ef þá orðrómurinn lýgur ekki, — og samt bítur smjaður þessa heiðurs engan veginn á mjer. Bardelys mun fara hjeðan á burt aftur jafntómhentur og Chatellerault. Látum hann bara koma hingað — dóttir mín verður þá samstundis send aftur til Auch. Finst yður ekki, Lesperon, að það sje rjettilega gert af mjer? — Jú, vissulega, svaraði jeg og dró seiminn, eins og jeg væri að hugsa málið vandlega, ef þjer eruð sannfærður um að ályktun yðar yðar um Bardelys sjeu á rökum bygðar. — Jeg þarf ekki vitnanna við. Hvaða erindi skyldi hann eiga annað til Lavédan? Spurning þessi var þannig vaxin að jeg reyndi ekki að svara henni og til allrar heppni ætlaðist hann heldur ekki til að jeg svaraði. Hann fór nú, án þess að segja meira, og gaf mjer næði til þess að skoða málið frá annari hlið, já, frá svo gersamlega annari hlið að jeg var með allan hugann við hans. Oftsinnis síðan jeg fór frá Parísarborg, hafði jeg furðað mig á, að hann. skyldi hafa hrapað svóna að ráði sínu, að hætta öllum eigum sínum í veðmál, sem komið væri undir skapferli konu hvernig færi. Að jeg stæði honum óneit- anlega framar bæði um líkams- skapgerð, ættgöfgi og auðlegð, hlaut Chatellerault að vita eins og allir aðrir. En þessa yfirburði mína og möguleika þess, að jeg 1110, og Egill Skallagrímsson fyrir rúm 1300 stpd. Síra Helgi Hjálmarsson prjedik- ar á Elliheimilinu í dag kl. 4 síðd. Glímufjel. Ármann biður þess getið, að æfingar byrji í öllum flokkum eftir helgina. Jólapottar Hjálpræðishersins. — Eins og að undanförnu hafði Hjálpræðisherinn í ár þrjá jóla- potta til fjársöfnunar handa fá- tækum. Var einn potturinn á horn- inu hjá Vöruhúsinu, annar fyrir fiaman hjá Haraldi og hinn þriðji inni á Klapparstíg. Auk þess hafði Herinn jólatrje í norðvesturhorni Austurvallar, alt upp ljómað af rafljósum, og bar það svip á bæ- inn um tíma. Alls mun hafa safn- ast hjá Hernum í pottana og sam- skotabauk hjá jólatrjenu krónur 1683.48. Gyllir kom af veiðum í gær með nær 2000 körfur ísfiskjar. Fór samdægurs áleiðis til Englands. Leikhúsið. Söngleikurinn „Þrír skálkar“ verða sýndir í síðasta sinn í Iðnó í kvöld kl. 8. Jólatrjesskemtun Vecrslunar- mannafjelags Reykjavíkur. Vegna mjög mikillar aðsóknar að jóla- trjesskemtun fjelagsins í dag í K. R.-húsinu, biður stjóm fjelagsins, fjelagsmenn að athuga það, að æskilegast er að ekki komi fleiri fullorðnir með börnunum, en nauð- synlegt er. Súðin fer hjeðan í hringferð vestur um land á þriðjudaginn (6. þ. mán.). Þetta er fyrsta ferð henn ar síðan hún kom úr viðgerðinni, og er hún nú um skeið eina strand ferðaskipið, vegna þess að Esja er farin til útlanda, og kemur varla aftur fyr en um næstu mánaðamót. íslensk síld til Bandaríkjanna. í „Havfiskeritidende“ nýútkomnu, er þess getið, að 50 þús. tunnur af síld sem Norðmenn hafa veitt hjer við land í sumar, hafi verið seldar til Bandaríkjanna. — Væri ekki mögulegt að selja Bandaríkjamönn um íslenska síld, sem íslendingar veiða sjálfir? gæti fengið ásta konu með hjálp þeirra, hefir hann sjálfsagt metið einskis er hann steypti sjer í snarkasti í þetta vafasama veð- mál. Hann hefði átt að vita það, að þó að hann hafði fengið hrygg- brot, var þó engin ástæða til að halda að jeg fengi líka hryggbrot. Slík ályktun gat ekki verið annað en grátleg ósamkvæmni og jeg hafði þess vegna oft síðustu dag- ana verið að furða mig á, hve reiðu búinn Chatellerault hefði verið til þess að taka á móti veðmáli mínu. Hjer kom skýringin á þessu loksins. Hann liafði gert ráð fyrir að með mig yrði farið nákvæmlega eins á Lavédan og hann og hann þóttist viss um, að mjer gæfist ekki færi á að sjá hina fögru og kaldlyndu Roxalönnu, ekki svo mikið sem sjá hann bregða fyrir eitt augnablik. Hann hafði gint mig í þorpara- lega gildu, er engum öðrum var samboðin er erkibófum. En örlögin höfðu tekið í taum- ana og spilin voru gefin upp aftur, eftir að jeg var farinn frá París. Við höfðum gengið þannig frá veðmálinu, að jeg hafði óbundnar hendur til þess að fá vilja mínum framgengt á þann hátt, sem mjer þætti haganlegast; samt gat litið svo út, sem einhver æðri máttur hefði valið fyrir mig og fundið að minsta kosti leið til þess að' buga mótspyrnu föðurins — brjóstvörn þá, sem Chatellerault hafði í fullu trausti reitt sig á. Ásmundur Sveinsson mýndhöggv ari tók sjer far með Esju til út- landa. Ætlar hann til Lundúna og Parísar, og vera þar í nokkra mán- uði. • Um síldareinkasöluna á að halda umræðufund á Akureyri einhverh. næstu daga. Fundinn boða í sam* einingu útgerðarmenn, skipstjórar og sjómenn. Verkafólk í klæðaverksmiðjunni Gefjun á Akureyri gaf Einari 01- geirssyni umboð til þess að semja um kaup sitt eftir áramótin. En er til átti að taka afturkallaði verka- fólkið umboð þetta, og komst sam- komulag á milli verkafólksins og forstjóra verksmiðjunnar. Jónas ráðherra hvarf burt úr bænum í gær, tók varðskipið Oð- in til þess að flytja sig til Borg- arness. Hafði flogið fyrir, að sam- herjar hans bolsarnir ætluðu að heimsækja stjórnarráðið í gær, og mun Jónasi hafa þótt hentugra að vera ekki þátttakandi í þeiín fundi. Suðurland fer til Borgar- ness í dag kl. 10 f. h. og mun ráð- herrann vart hafa haft svo brýnt erindi við Borgfirðinga, að hann hafi þurft að liitta þá endilega aj5 máli í gær, ef hitt hefði ekki verið, að hann hafi viljað hypja sig úr bænum einmitt þenna dag. — Til þess þó að láta uppi eitthvert er- indi í Borgarfirðinum, mun hann hafa látið í veðri vaka, er þangað kom, að hann ætlaði að „vígja'1 fjósið dýra á Hvanneyri. Guðjón prófessor Samúelsson var í fylgð. með ráðherranum —- til aðstoðar við væntanlega vígslu. Ágætt skautasvell verður á Tjörninni í dag. Notið tækifærið meðan það gefst. Ríkislánið. í seinasta hefti Versl unartíðinda er grein eftir Lárus Jóhannesson hæstarjettarmálafl.- mann um lántöku ríkisins liina nýju. Segir þar m. a. svo: „Onnur ríki hafa notað tækifærið til aþ segja upp eldri lánum sínum til þess að fá önnur ný með lægfi vöxtum, og hefir (Dönum) tekist a|i fá lán með raunverulegum vöxtuúi rjett um 5%, þar sem raunveru- legir vextir íslenska lánsins erU 6.18%, — Er greinilegt af þessú, að ísland hefir í augum erlendr^t lánveitenda mist traust frá þvi, sem það hafði árið 1921, og ekki síður frá því árið 1926, því ajð þá tókst Jóni Þorlákssyni, þáver- andi fjármálaráðherra, að fá lán í Danmörku til kaupa á veðskulda- brjefum, með sömu kjörum og voru á lánum danska ríkisins uffl það leyti. — Þetta minkaða traust á íslandi, sem lántakanda, getur eklci átt rót sína að rekja til van- trausts á atvinnuvegum hjer á landi .... hlýtur því fyrst og fremst að vera vantraust á fjár- málastjórn ríkisins. — Og þar sem vænta má, að lán þetta verði tekið til samanburðar við önnur lán ísl. ríkisins í framtíðinni eða lán til íslenskra fyrirtækja (t. d. Raf- veitulán Reykjavíkur, lán til upp- borgunar lánsins frá 1921) má gera ráð fyrir, að þessi lántaka verði okkur íslendingur dýr um það er lýkur“. Veðurfregnir um nætur. Veður- stofan tilkynti í gær, að framvegis verði sendar út veðurfregnir og veðurspár kl. 1.45 mín. eftir mið- nætti, á 1200 metra bylgju. Verða veðurfregnir þessar og veðurspár bygðar á veðurskeytum sem Veð- urstofan fær um miðnætti, frá ísa- firði, Hornafirði, Vestmannaeyj- um, Grænlandi, Bretlandi og nokkr um skipum, og e. t. v. víðar að.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.