Morgunblaðið - 27.09.1931, Side 2
2
MOR<JUNBLAÐIÐ
Lfllð f glnggana f Sokkabtiðfnnf í dag.
Sllkl-Olfukðpuraar
eru komnar aftur í öllum
stærðum. Komið fljótt á
meðan úr nógu er að velja.
„Qeysir"
Fermingarfataefni.
Blátt sheviot, verulega gott, sel
jeg með innkaupsverði meðan end-
ist. —
Hjörtur Fjeldsted,
Tjarnargötu 30.
RúgmíUi
í slátrifi, best í
Versl. Vfslr.
Vefmrkðpir,
Dömukjólar
Skólakjólar
Regnhlífar
Gardínutau
fallegt úrval.
Nýkomið.
Margskonar aðrar
Haustvörur
teknar upp daglega.
Versl. Vik.
m . =11 inr==n =1G
Morgunstund
gefur gull í mund,
þeim, sem auglýsa í
Morgunblaöinu.
nr—..=ii :ini -irr^r: ..Jlíu-i
Leikfjelag Reykiavíkur.
Starf og áætlun.
I.
Áður en langt um líður hefur
Leikfjelagið starfsemi sína á
þessu hausti. Um nokkurn tíma
hafa leikendur og aðrir starfs-
menn unnið af kappi að und-
irbúningi fyrstu leiksýningar
vetrarins, og jeg vona, að mjer
sje óhætt að segja, að fjölmarg
ir bæjarbúar hlakki til að sjá
ávöxtinn af þeirri iðju, ekki að
eins að því er snertir fyrstu
sýninguna, sem verður hinn vin
sæli gamanlpikur „Imyndunar-
veikin“, með Friðfinni Guð-
jónssyni í aðalhlutverkinu, held
ur og allar sýningarnar, sem
eiga eftir að koma. Að minnsta
kosti er ekki svo sjaldan spurt,
hvað líði starfseminni, hvenær
við ætlum að byrja að leika o.
s- frv. — og sjálfsagt er að
greiða þessum spurningum svör
eftir því sem tök eru á.
Áður vildi jeg þó víkja nokkr
um orðum að starfsemi fjelags-
ins á síðasta vetri, þó ekki væri
til annars en skýringar á ein-
hverjum hluta hins margbrotna
starfs, sem áhorfendur eiga nú
enn á ný kost á að kynnast frá
áhorfendabekkjunum í Iðnó. —
Sú hlið málsins var og er raun-
ar öllum opin — galdurinn var
allur sá, að kaupa aðgöngumiða
að sjónleikjunum — og dómend
ur blaðanna hafa þegar tekið af
mjer ómak með löngum, og eins
og gengur, misjafnlega hlið-
hollum dómum sínum um leik-
ina, eins og þeir komu fyrir
sjónir frá áhorfendabekknum í
Iðnó. En það eru aðrar hliðar á
starfseminni, sem að jafnaði er
minna rætt um, en eiga ekki
síður skilið rjettan skilning og
athygli bæjarbúa, og er þá fyrst
til að taka fjárhagshliðina.
Fjárhagur fjelagsins hefir
víst aldrei staðið með miklum
blóma, en út yfir tók þó vorið
1930, því þá var fjelagið bein-
línis í nauðum statt sökum
skulda, sem á það höfðu hlað-
ist, á undanförnum 4—5 árum.
Með það fyrir augum, að rjetta
fjárhag fjelagsins, gerðu nokkr
ir helstu leikendur og athafna-
menn á þessu sviði samtök með
sjer á síðastliðnum vetri, og
tóku að sjer reksturinn að öllu
leyti. Með aukinni hagsýni og
stjórnsemi, ósjerhlífnu starfi og
góðum skilningi landsstjórnar
og bæjarstjórnar á hag og
starfi fjelagsins, tókst svo til á
síðastliðnum vetri, þrátt fyrir ó-
fyrirsjáanlega örðugleika, sem
steðjuðu að fjelaginu, m. a.
tafir vegna viðgerðar á húsi
og samkomubann, að fjárhag-
urinn rjettist til muna.
Þó að hagur fjelagsins sje nú
stórum mun betri en í fyrra,
mun starfsemi þess á komandi
leikári mörgum sömu annmörk-
um háð og þá. Nær þetta fyrst
og fremst til leikenda og starfs-
manna, sem verða enn sem fyr
að sýna ósjerhlífni á hverju
sviði og vinna margt og mikið
fyrir litla eða enga þóknun. —
Eins nær þetta til sýningar-
í jölda hvers leikrits, sem verður
takmarkaður, eins og í fyrra.
Þetta síðasta atriði kann að
koma mönnum einkennilega fyr
ir sjónir, vegna þess, hve nærri
liggur að ætla, að margar sýn-
ingar borgi sig betur en fáar.
En því er til að svara, að með-
an svo hagar til, að varla er
hægt að sýna leikrit fyrir minna
en 800.00 kr. í beinan kveld-
kostnað (auk stofnkostnaðs,
sem er varlega áætlaður 1500—
2000 kr. á hvert leikrit), þá er
það sýnilegt, að eftir að aðsókn
linast nokkuð til muna að leikn
um, þá er beint fjárhagslegt
tap að halda sýningunni áfram.
Þó ekki sje fyllilega sambæri-
legt í öllum tilfellum, þá er hjer
bent á örðugleika, sem öll leik-
hús eiga við að stríða. Hjer eft-
ir, sem hingað til munu sjálf-
sagt mörg góð leikrit „vera tek-
in af leikskrá“ eftir fáar sýn-
ingar, meðan áhorfendur hafa
ekki sett á sig þá gullnu reglu:
að koma fljótt, að koma á
fyrstu sýningarnar, ef þeir á
annað borð ætla að sjá leikinn
— annars eiga þeir hæglega á
hættu að missa alveg af hon-
um. —
Það væri vel þess vert, að
láta staðar numið við ýmsar
fleiri hliðar á starfsemi L. R. á
síðastliðnum vetri. — Það gæti
.gefið tilefni til víðtækra bolla-
legginga um framtíð leiklistar-
innar hjer í höfuðstaðnum, og
ætti það ekki illa við, þar sem
hjer er verið að reisa þjóðleik-
hús; en þessar hugleiðingar
verð jeg því miður að leiða hjá
mjer að sinni — rúmsins vegna.
II.
Eins og áður er sagt, byrja
sýningar nú í haust á gaman-
leiknum „Imyndunarveikin", og
verða fyrstu sýningar núna eft-
ir mánaðamótin. Yfirhöfuð mun
L. R. kappkosta eftir því að
sýna ljetta og skemtilega leiki
í vetur, og mun þó vitanlega
ekki gleyma lærdómsríkari og
alvarlegri viðfangsefnunum. —
Með „Imyndunarveikinni" verð
ur sýndur dansleikur — ballet
— og stjórnar ungfrú Rigmor
Hanson leiknum og dansar
sjálf. Er það í fyrsta skifti, að
L. R. sýnir heilsteyptan ballet
— orðið dansleikur er iðulega
notað í annari merkingu, og
þyrfti það að breytast — en
slíkar sýningar eru algengar á
leikhúsum erlendis. Kemur það
sjer nú vel, að Leikfjelagið
ræður nú yfir betri leiksviðs-
útbúnaði en nokkru sinni fyr,
vegna hringtjalds og aukinnar
leiksviðslýsingar.
Á eftir „ímyndunarveikinni"
verður leikrit Einars H. Kvar-
ans „Hallsteinn og Dóra“ vænt
anlega sýnt nokkrum sinnum.
Var það leikið í vor við geysi-
mikla aðsókn, en sýningunum
varð að hætta áður en leikur-
inn væri þrautsýndur, vegna
þess að áliðið var sumars. —
Sýndi fjelagið sjónleikinn á Ak-
ureyri við fádæma aðsókn í
júlí-byrjun. Telja má víst, að
einhverjum sje enn forvitni
á að sjá þennan merki-
lega sjónleik, sem vakið
hefir svo mikið umtal og
athygli um land alt. Síðar verð-
ur nýtt enskt leikrit „The
Ghosttrain“ sýnt, og þar á eft-
ir kemur jóla-sýningin, sem að
þessu sinni verður, að öllu for-
fallalausu bráðfjörugur og
skemtilegur þýskur söngleikur.
Lengra fram í tímann verður
engu lofað að svo stöddu; til
umræðu hafa komið leikrit eft-
ir Galsworthy, Shaw, Staven-
hagen o. fl.
Þá hefir fjelagið ákveðið að
taka í sínar hendur sjerstakar
barnasýningar, og verða til
þeirra sýninga valin leikrit við
hæfi „minstu áhorfendanna“,
en leikendur verða valdir úr
hópi þeirra yngstu, þó þannig,
að eldri leikendur leiki erfið-
ustu hlutverkin og stjórni sýn-
ingunum.
Leikendur verða allir hinir
sömu og í fyrra, nema hvað
ungfrú Arndís Björnsdóttir, sem
þá var utanlands, hefir bætst í
hópinn og svo nokkrir nýir leik-
endur, sem ekki hafa leikið
hjer á leiksviði fyr.
L. S.
Peter Freuchen heimtar að
Grænland verði opnað.
NRP. 26. sept. FB.
Danski Grænlandsfarinn Peter
Freuchen hjelt fyrirlestur í Kaup-
mannahöfn í fyrradag og vítti
einangrunarstefnuna viðvíkjandi
Grænlandi. Kvað hann nauðsyn-
legt að stofna fríhafnir á ströndum
Grænlands, til þess að koma í veg
fyrir að erlend skip lentu í erfið-
leikum og neyð.
H. I Heinz & Go.
London,
framleiða 57 tegundir af
alls konar kryddvörum
og matvörum.
Baked Beans.
Mixed Pickles.
Sinnep.
Capers.
Tomat Súpa.
Warsester sósa.
Mayonnaise.
Salad Cream.
Sandw. Spread.
Spaghetti m. fleski
o. fl. o. fl.
Reynið Heirz vörur,
og sannfærist um gæðin.
Atvinnuleysi á Akureyri. Bæjar-
stjórn Akureyrar telur fyrirsjáan-
legt, atvinnuleysi i bænum í haust
og komanda vetri og hefir skorað
á atvinnuveitendur að láta menn
búsetta í bænum sitja fyrir vinnu,
og aðvarar utanbæjarm-enn að
koma þangað í atvinnuleit. (FB.).
Kristileg samkoma á Njálsgötu
1 í kvöld kl. 8. Allir velkomnir.
„Brúarfoss"
fer á þriðjudagskvöld
(29.sept.) vestur og norð-
ur um lanð til London.
Farseðlar óskast sótt-
ir fyrir hádegi á þriðju-
dag.
rn
E.s. „Goðafoss"
kom með það, sem okkur vantaði. Nú eru
allar deildir fullar af nýjum vörum. -
Úrvalið er ffott.
Verðið er lágt.
Fyrst off síðast í
Haraldarbúð.