Morgunblaðið - 27.09.1931, Side 9

Morgunblaðið - 27.09.1931, Side 9
Simnudaginn 27. sept. li>81. 9 Bláa bðkln". Ný bók á kostnað ríkissjóðs. Útsráfukostnaður 22—25 búsund krónur. „Emáþjófuriun, sem tekur 20 króna virði, þarf að finna, að hann sje undir sömu vernd og sama aðhaldi eins og maður, sem ranglega tek- ur frá öðrum tugi þúsunda' ‘. Ur formála „Bláu bókar- innar' ‘. I. Þegar landsreikningurinn 1929' kom til yfirskoðunarmanna, fanst þar útgjaldaliður í 11. gr. B. 5, að upphæð 9450 kr., sem yfirskoðun- armenir gátu eklti áttað sig á. Við gjaldalið þenna voru þær einu upplýsingar gefnar, að þetta væri greiðsla fyrir „útdrátt nokkurra mála“. Yfirskoðunarmenn óskuðu eftir skýringu á þessu. Svar stjóm arinnar var, að hjer værí um að ræða „kostnað við prentun á mörg- um þýðingarmiklum skjölum“. Yf- irskoðunarmönnum þótti svarið snubbótt ; þeir segja: „Svarið er ófullnægjandi og því er ekki unt að gera tillögu til úrskurðar“. Landsreikningurinn 1929 kom til umræðu og úrskurðar á síðasta þingi (sumarþinginu). Jón Þór- láksson flutti m. a. þá breytinga.r- tillögu í Ed., að þessi ntgjalda- liður yrði tekinn burt úr frv„ því óviðfeldið væri fyrir Alþingi, að samþykkja gjaldalið, sem yfir- skoðunarmenn sæju sjer ekki færi að gera tillögu um. Stjórnarliðið fann þó ekki ástæðu til að bíða eft-ir tillögu yfirskoðunarmanna, og feldi brtt. J. Þorl. Nú má telja þáð fyllilega upp- lýst, til hvers þessu fje liefir verið varið. Upphæðin er hluti prent- unarkostnaðár „Bláu liókarinnar“ svo nefndu. Skömmu eftir þingrofið í vor, sagði Tryggvi Þórhallsson forsæt- isráðherra stjórnarandstæðingum, að liann hefði engan þátt átt í út- gáfu rits þessa.. Og hann lýsti því yfir, ótilkvaddur, að þessi bók skyldi alls ekki verða send út. Þessi yfirlýsing forsætisráðherra verður ekki skibn á annan veg en þann, að hann hafi talið innihald bókarinnar þannig, að ósæmilegt væri að láta ríkið gefa hana út. Til þess svo að bjarga lieiðri rík- isins frá ósómanum, sem orðinn var, hafi ráðherrann ákveðið, að eyðileggja upplagið, sem búið var að prenta. En þessi góði ásetn- ingur ráðherrans breyttist snögg- lega, eftir að Jónas Jónsson kom aftur í dómsmálaráðherrasætið. Og nú er sjón sögu ríkari, því að „Bláa bókin“ er komin út. 1 II. Ritstj. þessa blaðs fór fyrir fám dögum að grenslast eftir, hvar þessi margumtalaða bók mundi fá- anleg. Hann símaði fyrst í ráðu- neyti forsætisráðherrans, en fekk þa.r þær upplýsingar, að ritstjóri Tímans sæi um útsendingu bókair- irnar. Er þá ekki unt að fá bókina nema ef ritstjóra Tímans Þóknast að láta hana af hendi? spurði rit- stjóri þessa blaðs. Var það talið va.fasamt, en reynandi væri þó að tala við dómsmálaráðunevtið. Því ráði var tekið með þökkum; það hreif, og er ritstjóri Tímans beð- inn velvirðingar á því, að fram hjá honum var gengið. Þessi „Bláa bólt“ er 226 bls. í sama broti og „Verkin tala“. — Framan á kápunni er prentað stóru letri: „Nokkrar skýrslur og dóm- ar. — Gefið út að tilhlutun ríkis- stjómarinnar.“ Skal hjer stuttlega getíð innihalds bókarinnar. Fyrst er Formáli; tekur hann yfir nokkuð á 3. bls. Er hann dags. 10. mars 1931 og nafnið „Jónas Jónsson“ undir. Vafalaust er það dómsmálaráðherrann. Þessi „Formáli“ er eins konar leiðbein- ing til lesandans um það, hvaða ályktanir beri að draga af hinum ýmsn skýrslum og dómum, sem á eftir koma. En „skýrslurnar“ og „dómarnir“ snerta. þau mál, sem nú skal greina: Vífilsstaðamál. Er þar birt skýrsla nefndar þeirrar, sem þá- verandi dómsmálaráðherra skip- aði í árslok 1922, til þess að rann- saka aðbúnað sjúklinga á Vífils- stöðum. Tilefni þesarar rannsókn- ar voru svæsnar ádeilugreinar, að- allega í garð yfirlæknsins á Víf- ilsstöðum. er birtst liöfðu í Alþbl. og Tímanum. Ekki er vafi á því, að Jónas Jónsson frá Hriflu átti drjúgan þátt í skrifum þessum. Var ætlun lians sú, að koma Sig- urði Magnússyni frá hælinu. En nefndin komst að þeirri niðurstöðu að yfirlækuirinn hefði yfirleitt staðið vel í stöðu sinni. Segir nefndin í lok slcýrslunnar, að lækn- irinn liafi unnið sama verk, og 3—4 læknar vinna á jafnstórum heilsuhælum erlend.is. J. J. tókst því ekki að koma Sigurði Magn- ússyni frá liælinu. Júppíter- og Tervani-málin. Eigi verður sjeð, livað stjórnin ei- að fara með því að birta á ný skýrslu um þessi mál. Er helst svo að skilja á „Formálanum", að ekki sje samboðlð menningarþjóð, að taka gildan vitnisburð óbreyttra sjómanna í opinberum málum, svo sem Hæstirjettur gerði í máli Jú- píters. er hann tók gildan eiðsvar- inn vitnisburð sjómanna á vjel- bátnum „Trausta“. — í Tervani- málinu er farið fljótt yfir sögu; þar er birt brjef frá sambandi enskra togaraeigenda, þar sem krafist er að niður falli málsókn gegn hinum brotlega skipstjóra. á Tervani. svo og þakkarbrjef frá sömu. eftir að dómsmálaráðherra íslands hafði í heimildarleysi gefið skipstjóra upp salcir, og loks þakkarbrjef frá bretska konsúlat- inu. Va.ntar því ýmislegt inn í þetta mál, svo sem brjef dóms- málaráðherrans, þar sem hann leysti liinn brotlega, erlenda skip- stjóra undan rjettmætri refsingu; einnig vantar frásögnina um veislu þá, sem mælt er,.->að dómsmálaráð- herra Islands ha.fi setið með hin- um brotlega skipstjóra .eftir að ráðherrann hafði endurgreitt þær 3G þús. krónur, sem skipstjórinn var krafinn um til tryggingar sekt sinni. Þá koma þrír dómar í landhelg- ismáliiHi, og verður ekki sjeð hver tilgángur er með birtingu þeirra, ekki síst þar sem dóma.rnir eru birtir í dómasafni. , Árbæjarmálið. Ætla mætti, að stjórnin og flokkur hennar hefði fengið nóg af rógskrifum Jónasar frá Hriflu í sambandi við Arbæj- armálið svo nefnda. En svo virð- ist ekki, því að stjórnin birtir hjer enn á ný prófin í þessu máli og clóminn. Jafnfra.mt er gefið í skyn í „Formálanum", að meðferð þessa máls hafi eigi verið lögum samkvæm. Hitt hefir þó margoft verið sannað, að dómur undirrjett- ar var í fullu samræmi við dóm- venju. Um þetta bera vitni ótal dóma.r í dómasafni yfirrjettar og hæstarjettar. Þá þykir skýrsluhöf. undarlegt, að í tíð fyrv. stjórnar skyldi hafa verið áfrýjað „lítil- vægu“ sakamáli gegn þrem mönn- um í Rangárvallasýslu. Þetta ætt-i höf. þó að geta skilið, þega.r hann athugar að undirrjettardómarmn heimfærði ekki brot hinna seku undir þá grein hegningarlaganna, sem vera bar. Shellmálið. f ,Formálanum‘ seg- ir dómsmálaráðh. um Shell-málið, a.ð sú „mikla“ spurning vakni, hvort h.f. Shell á íslandi sje lög- legt, íslenskt fjelag eða ekki. Uro þetta er það að segja, að núver- andi dómsmálaráðh. hefir undan- arin ár verið að grafast fyrir um þetta. Ha.nn hefir haft í þjónustu sinni sæg lögfræðinga. eytt tugum þúsunda af ríkisfje til að rann- saka þetta. Hann hefir fyrirskipað opinbera málsókn og fengið dóm undirrjettar og Hæstarjettar. — Niðurstaða.n hefir orðið sú, að þetta fjelag er talið löglegt, ís- lenskt fjelag. Þarna er svarað liinni „miklu“ spurningu. Bæjarfógetamálið kemur næst. Vonandi fer nii þetta mál að vera nægilega birt. Þega.r Bergur Jóns- son hafði kveðið upp sinn dóm í málinu, var dómurinn birtur í Tímanum á ríkissjóðs kostnað. — Yfirskoðunarmenn landsreiknings- ins víttu harðlega slíka meðferð á fje ríkissjóðs og „átelja hlutdræga notkun ríkisfjár.“ Næst voru dómarnir birtir í dómasafn; Hæsta rjetta.r; einnig á ríkisins kostnað, eins og aðrir dómar þar. Loks eru dómarnir nú birtir í þriðja sinni. á kostnað ríkissjóðs. Yæri fróð- legt. að fá skýrslu um, hvað búið er að kosta miklu af opinberu fje til að birta dóma í þessu máli. Það er víst orðin lagleg summa.. Hegningarhúsið í Reykiavík. t þessum kafla. eru birt fjögur brjef, frá lögreglustjóra, dómkirkjupresti, landlækni og hjeraðslækni, um nauðsyn endurbóta á hegningar- húsinu í Reykjavík. Yafala.ust kemur mörgum það kynlega fyrir sjónir. að stjómin skuli þirta þessi brjef. ITndanfarið hefir dómsmála- ráðh. sí og æ verið að hrósa sjer fyrir umbætur á hegningarhúsinu. Eftir þessum brjefum að dæma, , eru það aðrir, en dómsmálaráð- .herrann, sem hafa haft forgöngu 'í þessu máli. Stokkseyrarmálið. Þar eru birtir dómar undirrjettar og Hæstarjett- ar í brunamálinu á Stokksevri; sömu dómar eru birtir í dómasafni Hæstarjetta.r. f „Formálanum" segir, að dómur undirrjettar sje „skýr og ákveðinn“ ; minna er látið af dómi Hæstarjettar, enda var Magnús Torfason þar óþægi- Hgætar gulrðfur frá Hvanneyri koma hingað um helgina. Tekið á móti pöntunum hjá Kaupfjelagi Borgfirðinga á Laugavegi, Tómasi Jónssyni, H. Benediktsson og Co. og Hvanneyr- arsölunni, Tjarnargötu 5. Átsúkbnlaði. Snðnsúkknlaði, Cacao. Þegar þjer biðjið um ein- hverja af ofangreindum vörutegundum, þá takið fram að það eigi að vera frá C-I-D-A. lega mintur á títuprjóna og salm- íakspíritus. Það, sem enn er óta.lið í þessu merkilega stjórnarriti, er nánast samtíningur og sitthvað. Þar er Bolungarvíkurmálið (Hnífsdals- málinu slept), Tveir hæstarjettar- dómar (í máli S.Í.S. gegn B. Kr. og Garðars Gíslasonar gegn Tr. Þ.), Rannsókn í læknamálinu (Skýrsla Þórðar Eyjólfssonar), Útdráttur úr dagbók Þórs 1924, Tillaga til þingsályktunar um yf- irlæknisstöðuna við geðveikrahælið á Kleppi' (orðrjett prentuð þál.till. J. Þori.!) og loks Brjef frá bæjar- 'fóg'etanum í Reykjavík til stjórn- arráðsins (frá 13. febr. 1922). Er þá alt talið. scmti bókin hefir að flytja. h.ins otr s.iá r.iá, er hjer aðallega um að ræða uppprentun á ýmsum skjölum, sem áður liafa verið birt, og sum oftar en einu sinni. Af þessum síðast töldu málum, þykir rjett að minnast aðeins á eitt, en það er „Útdráttur úr dag- bók Þórs 1924“. Þessum útdrætti fjdgir svohljóðandi greinargerð í formálanum: „Utdrátturinn vir dagbók Þórs frá 20. mars 1924 er merkilegur þáttur í hinni byrj- andi viðleitni tslendinga til ' að verja landhelgina. Togararnir eru í það sinn reknir úr landhelginni. en ekki sóttir til saka.“ Hjeðinn Valdimarsson var fyrir nokkuru í Alþýðublaðinu með dylgjur í garð skipherranna Jóh. P. Jónssonar og Friðriks Ólafsson- pr í svipuðum anda og hjer er gert. Þeir Jóhann og Friðrik stefndu Hjeðni fyrir dylgjur hans og kröfð ust þess, að hann yrði sektaður og ummælin dæmd dauð og ómerk. Fór fram opinber lögreglurann- sókn í sambandi við þetta mál og voru prófin lögð fram’ í meiðyrða- málunum. Lögmaðurinn i Reykja- vík kvað upp dóm í þessum meið- yrðamálum nú í sumar, og dæmdi Hjeðin í sekt og málskostnað og ummælin dauð og ómerk. Af þessu er ljóst, að skipherrunum, Jóhanni og Friðrik, væri í lófa lagið að fá rílrisstjórnina dæmda fyrir dylgjwnar { þessari bók, sem gefin er út fyrir almannafje! III. „Smáþjófurinn, sem tekur 20 króna virði, þarf að finna. að hann :.;je undir sömu vernd og sama að- haldi eins og maður. sem rang- !ega teknr frá öðrum tugi þús- unda''. Þessi orð eru telrin úr formála „Bláu bókarinnar.“ Láta mun nærri, að kostnaður- inn v.ið útgáfu ])essarar síðustu bókar stjórnarinnar hafi numið 22—25 þúsundum króna. Þetta fje er ranglega og í algerðu heimild- arleysi tekið úr ríkissjóði. Aður hafði stjórn Afturhaldsins Itekið um 80—90 þúsund krónur úr ríkissjóði til útgáfu flokkslitaðra og hlutdrægra bóka. Þetta verða þá samtals 102—115 þúsundir kr„ sem stjórnin hefir ranglega tekið úr ríkissjóði til útgáfu bóka. Stjórnin hefir ekki enn fengið maklega refsingu fyrir þetta at- hæfi. Og á meðan svo er, er hætt við, að smáþjófurinn, sem tekur 20 króna virði, eigi erfitt með að finna, að hann sje undir sömu vemd og þeir „hæstvirtu“, sem óátalið taka — ekki tugi — held- ,ur hundruð þúsunda af almanna- fje.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.