Morgunblaðið - 02.07.1933, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Aðallnndnr
Læknaljelags Islands
verður haldinn í Reykjavík 3.—4. júlí.
FUNDAREFNI:
3. júlí k 1. 4 e- h.
1. Stjórnin gerir grein fyrir störfum f jelagsins síðastl. ár.
2. Reikningar lagðir fram.
3. Yfirlæknir d*r. med. E. Meulengracht flytur erindi um
blóðsjúkdóma.
4. Lárus Einarsson fyltur erindi um breytingar á tauga-
vef við illkynjað blóðleysi.
5. Próf. Guðm. Hannesson: Gjaldskrármálið.
6. Skólaíæknir Ólafur Heigason: Skólabörn í Reykjavík.
4. j ú 1 í :
1. Yfirlæknir dr. med. E. Meulengracht: Erindi um sjálf-
valið efni.
2. Próf. Sigurður Magnússon: Berklavarnir.
3. Próf. Jón Hj. Sigurðsson: Lungnabólga og meðferð
hennar.
4. Önnur mál. — Stjórnarkosning.
5. júlí:
Samsæti á Hótel Borg um kvöldið.
STJÓRNIN.
Hattaverslnn
Hargrjeiar
Levf
gefiu- mikinn afsiátt af öllum sumarhöttum gegn staðgreiðslu.
Það sem eftir er af „Modelle“ selst fyrir lxúlfvirði.
NB. Orlítið eftir af hinum ódýru, vel sniðnu undirfötum.
Sement
(Alaborgar),
seljum við frá skipshlið á morgun og næstu daga. Þeir,
sem þurfa á sementi að halda, ættu að nota sjer þetta
tækifæn, því verðið er mun lægra en ella.
Nánari upplýsingar í síma 1228.
H. Benediktsson & Co.
Hótel Bóðardalar
tekur á móti sumar gestum og selur þeim ódýra gistingu og fæði í
lengri og skemri tíma. Útvegar hesta til skemtiferða um nágrennið.
Bifreiðastöðin Hekla (sími 1515), sem hefir áætlunarferðir til Búð-
ardals, gefur allar nánari upplýsingar.
Snorri Halldórsson.
Snnrpnnót
tiPsölu, tækifæriskaup. Allar nánari upplýsingar gefur
Jónas Halldórsson, Gerði, Skildinganesi. Sími 1972.
Fengum með e.s. Goðafoss:
Nýjar ítalskar kartöflur.
Appelsínur. — Epli. — Laukur.
Eggert Krist|ánsson & Ce.
Sími 1400 (3 línur).
Enöurgreiðsla
á saltkjötstolli frá
Noregi
nemur rúmlega 84
þús. ísl. króna.
Svo sem kunnugt er, var eitt
ákvæði norsku samninganna um
það, að Norðmenn skyldu endur-
greiða íslendingum nokkurn hluta
þess kjöttolls, sem innheimtur var
af kjöti því, sem flutt var hjeðan
frá síðustu haustslátrun.
Ráðuneyti forsætisráðherra lief-
ir fyrir nokkru borist skýrsla frá
norsku stjórnínni um þann kjöt-
innflutning frá íslandi, sem inn-
flutningstollur hefir verið greidd-
ur af í Noregi. Nemur sá inn-
flutningur 7480 tunnum, (að við-
bættum 62 kg.). Tollur sá, sem
Norðmenn skyldu endurgreiða
nemur norskar kr. 10.08 á tunnu.
Heildarupphæð stx sem Norðmenn
hafa sent nemur því n. kr. 75.-
403.98, eða ísl. kr. 84.172.65.
Enda þótt liðinn sje sá frestur
sem ráðuneyti forsætisráðherra
setti fyrir innsendingu á skilríkj-
um fyrir kjötntflutningi til Nor-
egs, munu þó enn nokkrir útflytj-
endur eiga eftir að senda inn skil-
ríki fvrir útflutningi kjöts.
En af útflutningsskýrslum þeim,
sem ráðuneyti forsætisráðherra
liefir borist, er Ijóst, að skýrslur
hjeðan sýna nokkuð hærri tunnu-
tölu en norsku innflutningsskýrsl-
nrnar. Stafar þessi mismunur af
því að nokkuð af íslenska kjötinu,
sem sent var til Noregs var selt
til skipa, en það kjöt kemur ekki
á innflutningsskýrslur í Noregi.
Þar sem ekki eru enn komnar
fram allar útflutningsskýrslur frá
útflytjendum hjeðan, verðnr ekki
á, þessú stigi sagt um það með
fullri vissu hversu há endurgreiðsl
an verður á útflutta túnnu. En
ráðuneyti forsætísráðherra hefir
ákveðið að greiða nú þegar þeim
útflytjendum, sem lagt hafa inn
fnllnægjandi skilríki fvrir útflutn
ingi kr. 9.50 á. tunnu, en uppbót
fá þeir svo síðar, þegar öll skil-
ríki eru komin fram og s.jeð verð-
ur hvað mikið kjötmagn hefir
verið flutt til Noregs.
Gullinnlausnarmálin.
London, 1. júlí.
United Press. FB.
Kl. 10 síðd. í gær var fundur
haldinn í Downing Street í gær
og sóttu hann fulltrúar Bretlands
og þeirra ríkja, sem ekki hafa
horfið frá gullinnlausn. Fundinum
var frestað kl. 10.45 vegna þess,
að svar Roosevelts (sbr. fyrra
skeyti) var ókomið. Fundurinn
verður settur á. ný undir eins og
svarið kemur.
Skuldagreiðslur Þjóðverja.
Berlin, 1. júlí.
United Press. FB.
Ríkisbankinn hefir ákveðið að
draga að miklu leyti úr greiðslu-
stöðvunarákvæðunum, sem ráðgert
var að kæmi til framkvæmda í
dag. Er búist viS, að nálega helm-
ingur greiðslna fari fram. Sömu-
leiðis vaxtagreiðslur o. s. frv. af
Dawes og Younglánunum. Þessar
ákvarðanir eru bundnar því skil-
yrði. að útflutningsverslun Þýska-
lands aukist svo, að þetta verði
kleift.
Tíl Hkareyrar
t
alla mánudaga, þriðjudaga, fimtu-
daga og föstudaga. Afgreiðsluna í
Reykjavílc hefir Aðalstöðin. Sími
1383.
Blfreiðastöð Bkureyrar.
Sími 9.
Keflauíkurfrjettir.
Yertíðarafli varð hjer í betra
meðallagi hjá flestum en fiskur
smár eins og tvær undanfarnar
vertíðir.
Vjelbátarnir hafa ekki hafst
neitt að síðan um miðjan maí, að
einum undanskildum, Arnbirni
Ólafssyni, er nýhyrjaðnr er á rek-
netaveiðum lijer í Faxaflóa. Iíefir
hann þegar aflað liátt á þriðja
hundrað tunnur.
Eigendur fiskimjölsverksmiðj-
unnar' hjer, Elías Þorsteinsson og
Karl Runólfsson, eru að byggja
stórhýsi (ca. 4000 m3) til beina-
geymslu.
Yaldemar BjÖrnsson bóndi á
Völlnm er að koma upp nýrri
fiskverkunarstöð, sem þegar er
tekin til starfa.
Annars er lítil atvinna hjer,
nema við fiskverkunina.
Nýtt líf er að færast hjer í
stjórnmálin. Þjóðernissinnar komu
hingað nokkrum sinnum og hjeldu
fundi og leit svo út um tíma sem
þeir mundu afla sjer lijer tolu-
verðs fylgis. En þegar þeir svo
fóru að ráðast á þingmanninn
okkar, þá skyldist mönnum að
hjer vorn á ferðinni niðurrifs-
menn, og mun hinum gætn-
ari mönnum hafa sýnst, að þjóðin
þvrfti nú frekar manna við, er
eitthvað gætu bygt upp úr þeim
rústum, er stjórnarfarsástandið og
kreppan hefir komið öllu í- Yið
nánari athugun munu forvígis-
menn þessarar hreyfingar ekki
liafa þótt líklegir til þess og hefir
fvlgi þeirra því rjenað.
Eins og Morgitnblaðið hefir get-
ið um hjelt Ólafur Thors hjer
fund til að skýra norsku samning-
ana. Sýndi hann fram á, að fríð-
indi þan. er Norðmenn fengu með
samningnum liöfðu þeir að mestu
fengið áður, sumpart með samn-
ingnum frá 1924, eða fiskiveiða-
löggjöfinni. Mun mönnnm hafa
skilist, að hjer er minna í húfi
on þeir ætluðu og einkum þegar
tekið er tillit til þess, að samning-
urinn er uppsegjanlegur með sex
mánaða fyrirvara.
Treysti Ólafur mjög fjdgi sitt ð
þessum fundi. Guðhrandur Jóns-
son, frambjóðandi jafnaðarmanna,
mætti hjer á fundintim.
Yar framkoma hans öll hin skop
legasta og minti hann fundarmenn
rnjög á Bjarna Björnsson og Rein
liolt Richter.
Fekk hann, að vonttm daufar
undirtektir sinna manna. Ljetu
fuiidarmenn hann óspart skilja, að
liann væri ekki líklegur til að
fella Ólaf Thors.
Guðhrandur mun hafa ætlað að
bæta sjer upp hrakfarirnar á fund
inttm með því að rölta manna á
milli í liðshón daginn eftir.
Guðbrandm' var að dylgja með,
að hann liefði í fórum sínttm eitt-
ltvað góðmeti, sem hann ætlaði að
geyma sjer til næsta fundar. —
Skildu menn að það mundi vera
fisksölurógurinn, sem Jónas bóndi
frá Hrifltt vakti upp hjer um árið.
Og var það tilefnið til þess að
Eyjólfur Jóhannsson framkvæmda
stjóri mintist á það mál, á þann
drengilega hátt, er við mátti húast
af honttm.
En með því að Ólafur Thors er
ltunnur að góðvild og hjálpfýsi í
garð kjósenda sinna og annara, er
til háns leita, þó mun Guðbrandi
síst verða það til framdráttar, að
ala á því níði.
Lanömœlingar
herforingjaráðsins
og nýir uppðrcettir.
Landmæl ingamennirnir dönsku
-komu ekki liingað til Reykjavíkur
í vor, heldur stigu þeir á land
á Austfjörðum. Blaðið hefir því
ekki liaft tal af þeim.
Geir G. Zoega vegamálastjóri
hefir, fyrir ltönd ráðuneytisins,
umsjón með landmælingunum, og
liefir hann skýrt blaðinu svo frá:
Fjárveitíng til landmælinganna
et’ jafnliá í ár og í fyrra, 35 þús.
kr. og eru mælingamenn liinir
sömtt. Stjórn mælinganna annast
P. F. Jensen oberstlautinant, sem
fvr. Hann hefir og undirstöðu-
mælingar, þríhyrningamælingar. á
hendi.
Auk mælingaflokks hans eru
mælingaflokkar fjórir. Þrír þeirra
vinna að mæling bygða, en einn
flokkur mælir öræfi. 1 öræfa-
flokki er Steinþór Sigurðsson
magister, sem í fyrra.
Öræfaflokkurinn mælir land-
svæðið alt frá Hólsseli á Fjöllum
og suður til Vatnajökuls, vestur
að Jökulsá, og austur að Snæ-
felli. Sennilega mælir sá flokkur
og í ár Mývatnsöræfi til Herðu-
breiðar.
Bygðaflokkarnir mæla Melrakka-
sljettu austanverða, Þistilfjörð,
Langanes og Langanesstrandir. til
Yopnafjarðar. En óvíst- hvort
tekst að rnæla Vopnafjörð í suraai.
P. F. Jensen heldttr áfram þrí-
hymingamælingum áleiðis til
Tjónsheiðar, en lýkur vart á þessu
sumri, að tengja mælingar sínar
við þríhvrningamælingar Horna-
fjarðar, er gerðar voru, er land-
mælingarnar bvrjnðtt laust eftir
aldamótin.
Nýir uppdrættir ertt nú af Ey.ja
fjarðarsýslu norðanverðri og meg
inhluta S.-Þingeyjarsýslu. Unnið
er að uppdráttum af Vesturlandi
i minni mælikvarða, en þeir upp-
drættir voru gerðir í ttpphafi,
mælikv. 1 rlÓÓ.OOO. Og uppdráttur
af Snæfellsnesi og Breiðafirði í
mælikvarða 1:250.000 (eins og hið
vinsæla Suð-Vesturlandskort) kem
ur út. í haust.
August Renoir. Nýlega var selt
málverk eftir hann, er kostaði
232.000 franka. Þeir fá fje sitt
með rentum og renturentum, er á
sínttm tíma keyptu myndir lians
fyrir lítið verð.
Met í ökuhraða. Þýskur öku-
meistari, Ernst Henne, setti nýlega
met í ökuhraða. Hann ók sem
svaraði 230 km. á klukkustund.