Morgunblaðið - 02.07.1933, Qupperneq 8
r
8
MORGUNBLAÐIÐ
Úlæti ð Siglufirði.
Kommúnistar ráðist á
verkamenn verksmiðj-
unnar.
Stjórn verkalýðsfjélags Siglu-
fjárðar, með lióp kommúnista,
rjeðist í gær að verkamönnum
þeim, sem voru við vinnu í sílcl-
arverksmiðju ríkisins á Siglufirði,
og- hröktu þá frá vinnunni, rifu
af þeim verkfærin og höfðu ýms-
an óskunda í frammi. Alls voru
kommúnistar þarna um 60.
Það var um kl. 1, er ólæti
þeirra hófust, og höfðu þeir flæmt
menn frá vinnunni um kl. 5.
Undirbúningi í verksmiðjunni,
undir móttöku síldar, er nú lokið.
Hingað til hefir þar verið greitt
taxtakaup. Ólæti kommúnista eru
út af kaupdeilu, sem þeir hafa
stofnað til í verksmiðjunni enn á
ný, í trássi við verkamennina,
sem vinna í verksmiðjunni.
Viðskiftaráðstefnan
Rússar láta undan og
sleppa bresku verkfræðingunum.
London 1. júlí.
TJnited Press. PB.
Samkomulag hefir náðst milli
Breta og Rússa á viðskiftamála-
ráðstefnunni, um að afturkalla
allar ráðstafanir um viðskifta-
hömlur, sem gerðar voru út af
dómi í máli hresku verkfræðing-
anna í Moskva. Þeir Thornton og
Mae Donald, sem dæmdir voru
til fangavistar í Moskva, verða
látnir lausir í kvöld.
Dagbók.
□ Edda 593378. Ferðalag. —
Þátttaka tilkynnist fyrir 6. þ. m.
Veðrið í gær: Yfir Grænlandi
og Grænlandshafi er grunn en
víðáttumikil lægð og nærri kyr-
stæð, Yindur er SY-lægur um alt
láúd og yfirleitt hægur. Um vest-
urhluta landsins hafa gengið skúr-
ir í dag, en austanlands er veður
þurt. Hiti er víðast 10—12 stig
sumstaðar, heldur meira á N- og
A-landi.
Veðurútlit í Rvík í dag: SV-
gola. Smáskúrir, en bjart á milli.
Háflóð í dag kl. 12 á hádegi.
Betania. Samkoma í kvöld kl.
8y2 síðd. Frk. Kristín Sæmunds
segir frá nýjustu trúarvakningum
í Kína. Allir velkomnir.
Heimatrúboð leikmanna, Vatns-
stíg 3. Samkomur í dag: Barna-
samkoma kl. 10 árd. Almenn sam-
kóma kl. 8 síðd. Allir velkomnir.
Hjálpræðisherinn. 'Útisamkomur
sunnudagsins: kl. 10 árd. í Sól-
eyjargötu kl. 4 síðd., við Verka-
mahnabústaðina kl. 7y2 síðd. á
Lækjartorgi. Samkomur í salnum
kl. 11 árd. og 8i/2 síðd. Kapt. K.
Westergaard stjórnar.
Úr þýsku blaði höfum vjer
fengið úrklippu, frjett frá fs-
landi og er hún svohljóðandi:
„Vjer trúum því ekki, en þó
er það satt, að í Reykjavík á
íslandi, hefir Utvarpsstöðin sagt
frá því eins og ekkert væri um
að vera, enda þótt lífshætta væri
yfírvofandi. að jarðskjálfti hafi
orðið þar, Með rósemi þessari var
komið í veg fyrir að alt lenti
í uppnámi. Eftir að hlustendur
höfðu fengið fregn Útvarpsins,
géögu þeir rólegir út úr húsum
Vielsflíraflelag Islands.
Samkvæmt skrifleg-ri áskorun fjölcla fjelag:smannay.
verður auka-aðalfundur haldinn mánudaginn 3. júlí kL
4 síðd. í Kaupþingssalnum.
Fjelaffsstjórnin.
Bifreiðastðð íslands,
Hafnarsiræti 21.
m > Simi 1540. <- <m
f iicmisit fatahrcinsun (ituu
£augav«$34 J&ímit 4500
Fullkomnar vjelar. Nýjustn og hestu efni. Þaulvant starfsfólk.
10 ára reynsla.
sínum. Jarðskjálftann var ann-
ars stuttur, og voru það aðeins
nokkur hús utan Reykjavíkur,
sem hrundu.“
Um síðustu helgi fór Fjelag
ungra Sjálfstæðismanna á Siglu-
firði skemtiför til Akureyrar og
í Vaglaskóg. Var lagt af stað
fná Siglufirði kl. 8 á laugardags-
kvöld með E.s. „Bjarka“. Var
komið til baka á mánudagsmorg-
un kl. 6. Veður var ágætt, glaða
sólskin í skóginum. Voru um 60
manns í förinni og má af því sjá,
hve góð samtök eru í Fjelagi
nngra Sjálfstæðismanna á Siglu-
firði.
Dr. med. Meulengraeht yfir-
læknir í Bispebjerg-spítala var í
fyrradag boðinn af Læknafjelag-
inu upp í Mosfellssveit til að
skoða Korpúlfsstaði, Álafoss og
Reyki. Þótti honum mikill ný-
tískubragur á þessum stöðum öll-
um. í gær fór liann svo upp í
Borgarfjörð landveg til að veiða
þar lax.
Útvarpið í dag: 10.00 Messa í
dómkirkjunni. 11.15 Veðurfregnir.
15.30 Miðdegisiitvarp. 19.30 Veð-
urfregnir. 19.40 Tónleikar. 20.00
Klukkusláttur. Grammófónsöngur.
20.30 Erindi: Um Bjarna riddara
Sivertsen. (Sigurður Skúlason).
21.00 Frjettir. 21.30 Grammófón-
tónleikar: Schumann : Svmphonia
nr. 4 í D-moll (Mozart-hátiðar-
orkesti’ið í París, Bruno Walter).
Danslög til kl. 24.
Útvarpið á morgun: 10.00 Veð-
urfregnir. 12.15 Hádegisútvarp.
16.00 Veðurfregnir. 19.30 Veður-
fregnir. 19.40 Tilkynningar: Al-
þýðulög. (Utvarpskvartetfinn).
20.30 Frjettir. 21.00 Stjórnmála-
umræður.
Aðalfundur f. S. f. hófst hjer
27. júní, og lauk honum aðfaranótt
föstudags. Ný sambandslög voru
samþykt á fundinnm og eftir þeim
var kosinn níu manna íþróttadóm-
stóll. Ymsar tillögur voru sam-
þyktar á fundinum, eins og t. d.
að koma á læknisskoðun á, íþrótta-
mönnum. Ennfremur voru kosnir
fimm menn í laganefnd. f sam-
bandsstjómina voru kosnir: Ben.
G. Waage, forseti (endurkosinn).
Guðm. Kr. Guðmundsson, gjald-
keri (endnrkosinn) og Erlingur
Pálsson; Jón Sigurðsson baðst
undan endurkosningu. En fyrir
eru í stjórninni, þeir: Kjartan
Þorvarðsson og Magnús Stefáns-
son. í varastjórn voru kosnir: Ól-
afur Sveinsson, Guðm. Halldórs-
son og Hinrik Thorarensen. Fund-
urinn var fjölmennur.
Farsóttir og manndauði í Revkja
vík vikuna 18.'—24. júní (í svig-
um tölur næstu viku á undan):
Hálsbólga 20 (26). Kvefsótt 22
(46). Kveflungnabólga 1 (2).
Gigtsótt 0 (1). Taugaveiki 1 (0).
Iðrakvef 10 (24). Taksótt 1 (0).
Skarlatssótt 0 (3). Hlaupabóla 1
(4). Ristill 1 (0). Mannslát 5 (5).
Landlæknisskrifstofan. (FB.).
fsland í erlendum blöðum. í
Guernsey W. Evening Press, Gu-
ernsey, er allítarlega skýrt frá
fyrirlestri, sem Árni Jóhannesson
Majór (í Hjálpræðishernum)
flutti um fsland í Clifton Hall,
Guernsey. Fyrirlesarinn ræddi að-
allega um landslag á fslandi og
gat helstu atriða úr sögu þjóðar-
innar. Einnig skýrði hann frá
starfsemi Hjálpræðishersins á fs-
landi. t— í Aberdeen Press &
Joumal er grein um fsland, eftir
E. R. Yarham, F. R, G. S. Er í
grein þessari, sem hefir talsverðan
fróðleik að geyma, getið um það
hve mikil viðskifti fslendingár
eiga við Breta. Greinarhöfundur
kemur víða við, en villulaus er
frásögnin ekki með öllu. (FB.).
Vorskóli fsaks Jónssonar hætti
störfum í fyrradag. Skólinn hefir
starfað sjö vikur og sóttu hann
um 160 börn á aldrinum 4—13
ára, er skiftust í 5 deildir eftir-
aldri og þroska. Að' þessu sinni
hafði skólinn húsnæði í Kenn-
araskólanum og til afnota stóran
grasvöll þar í nánd, fyrir leik
og garðrækt. Öll börnin hafa far-
ið margar námsferðir hjer um
nágrennið, en þau eldri hafa auk
þess farið iit í Viðey, upp að
Álafossi, til Þingvalla og upp í
Rauðhóla. Ferðir þessar liafa veitt
börnunum ótæmandi viðfangsefni,
vakið hjá þeim starfsþrá. Sund-
kenlsu fengu þau börn sem þess
æsktu í Sundlaugunum. Myndir
frá skólastarfinu verða til sýnis
í glugga Morgunþlaðsins í dag og
næstu daga.
Fyrsta íþróttanámskeiðinu að
Álafossi í sumar, var lokið í gær.
Foreldrum og aðstandendum harn
anna var boðið að vera við sýn-
ingarnar sem fram fóru þá og
luku allir upp einum mnnni um
það, að árangurinn af eins mán-
aðar námi drengjanna væri mikill,
bæði í leikfimi og sundi.
Happdrætti Iðnaðarmannafjelags
Hafnarfjarðar fór fram 1. júlí,
á skrifstofu bæjarfógeta. Komu
npp þessi númer: Svefnherberg-
ishúsgögn nr. 6748. Dragnótavinda
nr. 1552. Skrifborð nr. 9022. Hlið-
grind nr. 7111. Útidyraliurð nr.
2569. Legubekkur nr. 3822. Hjól-
börur nr. 5142 og 7989.
K.F.U.M. og K. í Hafnarfirði.
Fundur í kvöld kl. 8. Sigurbjörn
Einarsson talar. Allir velkomnir.
Bjarni Björnsson heldur kvöld-
skemtun í G. T. húsinu í Hafnar-
firði í kvöld.
Kappreiðar verða háðar á. Skeið
vellinum hjá Elliðaám í dag. -—
Eru þetta aðrar kappreiðar árs-
ins, en líldega verða ekki fleiri
kappreiðar hjer í ár. Að þessu
sinni verða reyndir 30—40 gæð-
ingar á Skeiðvellinum og margir
þeirra hafa aldrei sjest áður. Er
nú ósýnna um úrslitin en oft
áður, því að ýmsir hinna nýju
hesta eru taldir mjög efnilegir.
Fer vel á því, ef fleiri og betri
hestar koma fram til kappleiks
með hverju ‘árinu sem líður.
Flug Lindberghs. Bandaríkin
hafa komið! upp veðurathugana-
stöð á miðjum Grænlandsjölki og
á hún að vera amerísku flugmönn
unum til aðstoðar. Á loftskeyta-
stöðvunum í Grænlandi verður
haldinn vörður nótt og dag nndir
eins og Lindbergh er tilbúinn að
leggja á stað.Milli noklcnrra loft-
skeytastöðva í Grænlandi, verða
skeytin að fara nm loftskeytastöð
ina í Reykjavík. (Tilkynning frá
sendih. Dana).
Flug ítalanna. Skeytin í blað-
inu í dag um flngið eru öll frá
frjettastofunni United Press, send
bingað til F. B.
Sjálfstæðisflokkurinn hefir skrif
stofu í Varðarhúsinu við Kalk-
ofnsveg og er hún opin alla daga.
Þar liggur kjörskrá frammi og
þar eru gefnar allar upplýsingar
er kosningarnar varða. Sími skrif-
stofnnnar er 2339.
Kjósendur Sjálfstæðisflokksins,
sem fara bnrt úr bænnm fyrir
kjördag (16. júlí) og búast við að
vera fjarverandi á kjördegi, eru
ímintir nm að kjósa hjá lögmanni
áður en þeir fara. — Kosninga-
skrifstofa lögmanns er í barna-
skólanum við Fríkirkjuveg (geng-
ið inn um portið) og er opin alla
virka daga frá kl. 10—12 árd. og
1—5 síðd. Listi Sjálfstæðisflokks-
ins er C-listi.
Sjálfstæðiskjósendur utan af
kandi, sem dvelja í bænum og eiga
kosningarrjett í öðrum kjördæm-
um, og búast ekki við að verða
komnir heim fyrir kjördag, eru
ámintir um að kjósa hjer hjá lög-
manni og senda atkvæðin til við-
komandi kjörstjóma tímanlega.
Geta þeir snúið sjer til skrifstofu
Sjálfstæðismanna í Varðarhúsinu
um upplýsingar þessu viðvíkjandi.
Fiskveiðasaga
Reykvíkinga.
Fyrir fáum dögum var á það
minst í Morgunblaðinn, að sögu
Alþingishátíðarinnar bæri ag taka
saman, meðan hún er mönnum í
fersku minni. Þetta er í alla staði
laukrjett, en er ekki fleira, sem
taka þarf saman?
Hvernig er með þilskipaflota
Reykjavíkur og sögu hans, er hún
í nndirbúningi ? Þeir fara að verða
fáir, sem skerf sinn geta lagt til
þeirrar sögu, sje engu þegar safn-
að —
Sögu togaraflotans kannast
f jöldi manna við, enn sem komið er,
og aðeins um 30 ára tímahil að
ræða. Þetta snertir Reykjavíkur-
bæ, eigi alllítið, því menn verða að
muna það, að vöxt sinn og við-
gang á hærinn útgerðinni að
þakka, og merkilegt myndi fræði-
mönnum seinni tíma þykja það, ef
i gömlum ritum, þ. e. frá þeim
tímum, sem við nú lifum á, fynd-
ist ekki nema eitthvert hrafl um
veiðiskap.
Fyrirtæki eins og miljónafjelag-
ið 1906—1914 er slíkt, að um það
má margt merkilegt segja, sem
kemur við fiskveiðasögu landsins,
verði hún nokkurn tíma skráð.
Sjómaður.
Barnavinaf j elagið .Sumargjöf'.
Fjehirðir „Sumargjafar“, Isak
Jónsson, hiðnr þess getið að út-
borganir fyrir ,Sumargjöf‘ verði
á mánudaginn kemur (3. júlí) kl.
4—6 síðd. í herbergi fjelagsins,
Laugaveg 3, 1. hæð. Þeir, sem
ekki þá gefa sig fram, fá ekki
reikninga sína greidda fyr en 1
næsta mánuði.
Hressingarskálinn
Austurstræti 20
Fyrstu jarðarber
ársins
HEEBtitZM!fsí3S— ~~t .
(frá Reykjum)
eru komin.
Smábariafðt.
Mikið nrval.
Gott verð.
Vörnhúsiö.
Tryggingin Jyrir því að bakstur-
inn nái tilætlaðri lyftingu, er a5
nota Lillu-gerduftið.
H.f. Efnagerð Reykjavíkur.