Morgunblaðið - 26.11.1933, Blaðsíða 5
5
Sunnudaginn 26. nóv. 1933.
Fyrir nokkru lögðu 30 franskar flugvjelar á stað í hópflug yfir nýlendur Frakka í Afríku. Mynd-
in lijer a^ ofan er tekin á Istres-flugvellinum hjá París rjett áður en flugvjelarnar lögðu á stað. —
Fremst á myndinni er foringi hópflugsins, Vuillemin hershöfðingi, 0g Pierre Cot flugmálaráðherra
Frakka. — Séinnstu fregnir herma, að flugvjelaflotinn væri kominn til St- Louis í -Senegal og
var gert ráð fyrir að hann hefði þar tveggja daga viðdvöl.
V arhugaverð
verndarstefna.
I.
í fyrra gerðust þau tíðindi á
Alþingi, að borið var fram frum
varp um að gerbanna með lög-
um innflutning á niðursoðinni
mjólk. Frumvarpið var sam-
þykt og afgreitt sem lög og ekki
bar á, að nokkur fyndi hvöt hjá
sjer til þess að andmæla þeirri
einstæðu löggjöf, sem hjer var
á ferðinni. Þótt margar þjóðir
gangi nú langt í því, að hindra
innflutning frá öðrum löndum
á ýmsum vörum, hefir víst eng-
in þeirra tekið svo djúpt í ár-
inni í þessu starfi, sem íslend-
ingar, með því að bannfæra inn-
flutning einnar fæðutegundar
á þenna hátt. Bannið er svo rót-
tækt, að engar undanþágur er
hægt að gefa, hversu sem á
stendur. Vöruna má heldur ekki
flytja til landsins, hversu háan
toll, sem menn vilja af henni
greiða.
II.
Frumvarp þetta fekk svo góð-
an byr í þinginu í> fyrra og sætti
svo litlum andmælum, að nú er
fram komið á Alþingi annað
frumvarp, sem gerir ráð fyrir
að banna gersamlega innflutn-
ing á kjöti, fiskmeti, ostum,
eggjum, egg.iadufti, smjöri og
kartöflum. Unclanþágu frá
banni þessu má ekki gefa nema
fyrir smjör og kartöflur.
Hvernig sem fer um frum-
varp þetta, má ekki svo snúast,
að ekki sé bent á hversu einstæð
og varhugaverð stefna hjer er
á ferðinni. Hún er varhugaverð
á tvennan hátt. I fyrsta lagi
gagnvart þeim erlendu þjóðum,
sem vjer skiftum við. I öðru lagi
gagnvart landsmönnum í heild,
sem vörurnar verða að kaupa.
Þar að auki er undanþágulaust
aðflutningsbann, eins og þetta,
svo fátítt, að það er varla
sæmandi menningarþjóð, sem
nokkur viðskifti hefir við um-
heiminn. Það er hinn mesti mis
skilningur, og ekki háskalaus,
að trúa því að vjer getum leyft
oss í þessu efni það, sem aðrar
þjóðir treysta sér ekki til að
gera. Ef þær vilja hindra inn-
flutning einhverrar vöru, er
það gert með tolli eða takmörk-
‘un á því vörumagni, sem inn er
flutt. Algert bann á innflutn-
íngi einhverrar vöru getur ann-
arsstaðar ekki til mála komið,
nema alveg einstæð og óvenju-
leg atvik sjeu fyrir hendi. Hjer
er ekki um neitt slíkt að ræða.
Stefna sú, sem hjer hefir ver-
ið tekin til verndar afurðasölu
landsmanna innanlands, er ó-
þörf. Það er óþarfi og óvitur-
l.egt að taka upp svo varhuga-
verða stefnu, sem þessi er, ef
hægt er að ná markinu á ann-
an hátt. Hjer er ekki um neitt
annað að ræða en það, að forða
framleiðendum innlendrar vöru
frá utanaðkomandi samkeppni,
er aregið gæti úr höndum þeirra
söluna eða lækkað verðið. Lát-
um nú svo vera, sem lengi má
um deila, að þetta sje sann-
gjarnt og nauðsynlegt, þá er
afar auðvelt að gera þetta með |
toilum, og svo háir geta þeir |
verið, að enginn hafi hvöt til j
þess nje getu að flytja vör-,
urnar frá útlöndum. En þá skilstj
mjer, að náð sé sama marki og
ætlast er til með aðflutnings-j
banninu.
Það er ekki nauðsynlegt að
slátra kálfinum til þess að hann
hlaupi. ekki um alt túnið, það
má tjóðra hann. Háir tollar eru
í rauninni ekki annað en grímu-
klætt aðflutningsbann, en þeir
eru hyggilegri stefna, eins og
málum er nú háttað, heldur en
að taka upp það eindæmi, að
gerbanna innflutning einhverr-
ar vöru. Önnur hlið þessa máls
og ekki sú lítilvægasta, er sú,
hversu langt skuli gengið í toll-
þyngslumrm. En út í það skal
ekki farið Jijer. Á hitt skal að-
eins bent, að tollarnir geta far-
ið út í öfgar ekki síður en sú
verndarstefna, sem hjer hefir
verið gerð að umtalsefni.
|
III.
Verndarstefna þessi er aðal-
lprra t.il knmin vpffna landbúu-i
aðarafurða landsmanna. En
fiskur og fiskmeti hefir þó ver-
ið tekið með, þótt innflutningur
á slíku sje lítilræði eitt og geti
alls engin áhrif haft á fiskfram-
leiðslu landsmanna. En út af
þessu má þó benda á, að tvær
þjóðir, sem mest kaupa af ís-
lenskum fiski, hafa talsverðan
iðnað við niðursuðu á smásíld.
Þessa smásíld er landsmönnum
bannað að kaupa af þessum
þjóðum fyrír nokkur þúsund
krónur á ári meðan þær kaupa
af oss fyrir tugi miljóna og öll
aíkoma vor er undir þeirra við-
skiftum komin. Undanþágulaust
innflutningsbann á portugölsk-
um sardínum gæti haft æði-
mikla örðugleika í för með sér.
Og hjer er verið að gera til-
raun til að setja bann á inn-
flutning fiskmetis, sem þjóðar
búskapinn skiftir engu máli.
Framleiðsla á eggjum svo
nokkru nemi, er enn í bernsku
hjer á landi og er langt frá því
að enn sje framleitt hér nóg af
eggjum alt árið. Hænsabú hafa
risið upp mörg síðan innflutn-
ingsbannið hófst 1931, vegna
þess að innflutningur eggja
hefir verið mjög takmarkaður.
En framleiðsla þessi hefir ekki
farið varhluta af barnasjúkdóm
um, eins og við er að búast, og
virðist þessi rekstur mjög á reiki
og lítt orðinn fastur í sessi. Til
þess að hægt sé að lögbanna
innflutning jafnnauðsynlegrar
vöru og eggja, verður hin inn-
lenda framleiðsla vörunnar að
standa á öruggari grundvelli
en hún gerir nú hjá oss. Auk
þess má ekki verð og vöruvönd-
un standa mjög langt að baki
því, sem annarsstaðar tíðkast.
Jeg hefi aðeins drepið á
þessi tvö atriði í sambandi við
frumvarpið, til þess að sýna
fram á að fleira getur verið var-
hugavert við það en stefnan,
sem það byggist á. I stað þess
að koma með í mörgu lagi slík-
ar verndarráðstafanir, sem
hvorki eru fugl nje fiskur, virð-
ist nær að skynsamlegur grund-
völlur sje nú þegar lagður fyr-
ir vernd innlendu vörunnar í
heild og innflutningshöftin um
leið afnumin.
Björn Ólafsson.. .
Þökkum hjartanlega hinar mörgu og hlýju hamingjuóskir
og gjafir á 40 ára hjúskaparafmæli okkar. Guð launi ykkur
öllum.
Margrjet og Halldór Ó. Sigurðsson.
fakB'ífsiin RevM ví ur,
(Halldór Sigurbjörnsson)
Hafnarstræti 17. Sími 2742.
Kemisk fata og skinnvöru hreinsun. Litun. Hraðpressun.
Hattapressun.
Látið okkur gufuhreinsa, lita eða kemisk hreinsa fatnað
yðar, og þjer munuð sannfærast um að þjer fáið það hvergi
ódýrara nje betur gert.
Afgreiðsla í Hafnarf. hjá Ólafi Jónssyni kaupm. Sími 9148.
Afgr. í Keflavík hjá Skúla Hallssyni bilstjóra. Sími 36.
Afgreiðsla í Vestmannaeyjum hjá Jóni Sigurðssyni klæð-
skera. Sími 143.
Hvergi fljótari nje betri afgreiðsla. Hreinsum og pressum
karlmannsbindi, föt og hatta yðar meðan þjer bíðið. —
Sjerstök biðstofa.
Sent gegn póstkröfu um land alt.
Tökum að okkur allar viðgerðir á karlmannafatnaði.
Houpmenn og kaupfielög!
Höfum fengið Konfektrúsínur í pökkum og kössum
og Gráfíkjur í pökkum og kössum.
Birgðir mjög takmarkaðar.
Væntanlegt næstu daga:
Epli, Delieious, Jonathan og Machintos.
Appelsínur, Jaffa og suðafríkanskar.
Vínber. Laukur.
Kartöflur. Rúsínur.
Fíkjur í pökkum og 10 kg. kössum.
| Éggert Kristjánsson & Co.
Ef yður ekki
er sama
hvort rafmagnsreikningurinn er hár eða lág-
ur, þá kaupið hinar viðurkendu V.I.R. raf-
magnsperur, sem eru framúrskarandi straum-
sparar. Kosta aðeins 90 aura stykkið.
Helgi Magnússon & €o.
Hafnarstræti 19.
Bannhneyksli í U. S. A.
Berlín. 25. nóv. F. Ú.
1 Bandaríkjunum hefir ný-
lega verið kveðinn upp dómur í
einu stærsta smygl- og bruggun-
armáli, sem þar hefir komið fyr-
ir. Ákærðir voru 78 menn, og
fengu flestir þeirra fangelsis-
dóm. Meðal hinna ákærðu voru
öldungaráðsmaður í einu af sam
bandsríkjunum, og ritari ríkis-
stjórans í sama ríki.