Morgunblaðið - 21.12.1933, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
'iw?
KiDDABUÐ
býður yður aðeins bað besta:
Delicious-epll,
heimsþekt fyrir gæði.
Jaffa«appelsínur,
stórar.
Bananar,
nýir, fullþroskaðir.
Vínber
stór og góð.
Confektöskiur, mikið úrval.
Hncttir.
Confektrúsínur.
Döðltir.
Fíkjar.
K1D DAB
Þórsgötu 14.
Sími 4060.
Spil, margar teg.
Kerti, smá, ísl. og útl.
Kerti, stór, ísl. og útl.
<iW?
KOMID
i ufMttMHto. MttaM n
Þar munið þið gera bestu viðskiftin til jólanna, bæði hvað gjafir snertir
og einnig til eigin notkunar. Þar fáið þið til dæmis:
Nærföt, sokka, trefla, vasaklúta
hanska, sjöl
og ekki að gleyma hinum óviðjafnanlegu:
Lifstykkjum, brjósthöldum,
mjaðmabeltum
og ótal mörgu fleira, sem ekki er rúm til að telja hjer upp..
Gæði og verð óaðfinnanlegt.
Komið, skoðið. Þjer munið kaupa.
UistykMabúðln. HefnariM 11.
JÍú er númer komíð á húsíð.
Dagbók.
Veðrfö (miðvikudagskv. kl.
5): S- og SV-átt með 7—8 st.
hita um alt land. Ný lægð mun
vera að nálgast suðvestan af
hafi og er því búist við að herði
S-áttina til muna á morgun. —
Lægð hefir myndast í dag fyrir
rorðaustan Island og veldur
hún NAN fárviðri (12 vindstig)
á Jan Mayen.
Veðurútlit í Rvík í dag: S-
hvassviðri og rigning.
Silfurbrúðkaup eiga í dag frú
Guðríður Oddsdóttir og Kjart-
an Helgason, Moshúsum, Mið-
nesi.
Bæjarstjómarfundur er í dag
kl. 5 í Kaupþingssalnum. Fjár-
hagsáætlun bæjarsjóðs og hafn
arsjóðs fyrir næsta ár verður
þar til umræðu.
Verslanir verða opnar til kl.
10 í kvöld.
Innbrot í Hafnarfirði. I fyrri-
iiótt var brotist inn í Áfengis-
Verslunina í Hafnarfirði og
stolið 20 flöskum af Portvíni.
Hafði verið rifinn hleri frá
glugga, er vissi út að portinu
«g rúðan brotin. Um 15 krónur
í peningum voru í ólokaðri
skúffu í búðinni, en ekkert hafði
verði snert við þeim.
K. F. U. M. A.—D. fundur í
kvöld kl. 814. .Framkvæmda-
sidórinn talar. Allir karlmenn
velkomnir.
fsland. Samkvæmt fregnum
frá Kalundborg í gærkvöldi
hafði ísinn ekki heft för gufu-
skjpsins „lsland“ um dönsku
sundin, og er skipið væntanlegt
til Kaupmannahafnar í dag.
Gjafir til Mæðrastyrksnefnd-
arinnar: Frá konu 10 kr. Tveir
fatabögglar.
Gjöfum til Mæðrastyrksnefnd
arinnar er veitt móttaka í Vinnu
miðstöð kvenna, Þingholtsstræti
18, frá kl. 3—6 á daginn og á
afgreiðslum dagblaðanna.
Esja var á leið til Bíldudals
í gærmorgun.
Alþýðublaðið birti í gær Ianga
frásögn af fundi í fulltrúaráði
Mjólkurfjelags Reykjavíkur. —
Var frásögn blaðsins hreinn til-
búningur, röng í öllum atriðum,
að því er Mbl. hefir frjett.
Norðlenskur rjómi. Hingað
eh von á bíl í kvöld með rjóma-
flutning að norðan. Er sumt af
rjómanum frá Mjólkursamlagi
Byfirðinga, en sumt úr Húna-
vátnssýslu. Bíll fór hjeðan frá
Mjólkurfjelagi Reykjavíkur til
BlÖnduóss til að teækja rjómann,
en bíll af Akureyri flutti hann
þangað. Tók M. R. þetta ráð
til að bæta úr rjómaeklu sem
búast mátti annars við að yrði
hjer um jólin.
Björgunarskipið breska, sem
á að reyna að bjarga enska tog-
aranum „Margaret Clark“, kom
hingað í gærkvöldi. Liggur það
ná hjer og bíður það hagstæðs
véðurs, að komist verði að tog-
aranum.
Slysatrygging ríkisins tilkynn
ir í auglýsingu í dag um slysa-
tryggingu sendisveina.
Næturvörður verður í nótt í
Reykjavíkur Apóteki og Lyfja-
búðinni Iðunn.
Smákom heitir lítill bækling-
ur, sem nýkominn er út, eftir
Guðrúnu Finnsdóttur, og er hún
iálf útgefandi. Kannast marg-
’ bæjarbúar við þessa rauna-
mæddu gömlu konu, sem haft
;efir við mikla og erfiða van-
heilsu að búa áratugum saman.
I bækling sinn ritar hún hug-
í pontisku mýrunum.
Sunnan við Rómaborg eru
hinar svonefndu pontisku mýr-
ar. Var það til skams tíma fenja
flói, óbyggilegur öllum mönn-
um. Nú hefir Mússólíni látið
ræsa mýrarnar fram og gera
þar akra og borgir. Fyrsta borg-
in, sem þar var bygð, heitir Lit-
toria, og sjest hjer á myndinni
ráðhúsið, sem þar hefir verið
reist.
leiðingar sínar og um reynslu
þá er lífið hefir veitt henni.
Bæklingurinn fæst á afgreiðslu
Morgunblaðsins.
Ötvarpið í dag: 10.00 Veður-
fregnir. 12.15 Hádegisútvarp.
15.00 Veðurfregnir. Endurtekn-
ing frjetta o. fl. 19.00 Tónleik-
ar. 19.10 Veðurfregnir. 19.20
Tilkynningar. 19.25 Dagskrá
næstu viku. Tónleikar. 19.50
Tilkynningar. 20.00 Klukku-
sláttur. Frjettir. 20.30 Erindi:
ísland erlendis. (Vilhj. Finsen
ritstjóri). 21.00 Tónleikar. (Út-
varpstríóið). Grammófón: Men-
delsohn: Symphonia No. 4 í A-
dúr. (Scala orkester, Milano).
Togaramir. Bragi kom frá
Englandi í gærmorgun og fór
á veiðar í gærkvöldi. „Hannes
ráðherra" fór á veiðar í gær-
morgun. Karlsefni fór til Isa-
fjarðar í gærmorgun til þess að
kaupa bátafisk fyrir vestan. —
Geir hefir verið á veiðum, kom
hingað í gærmorgun, en fór
strax aftur á veiðar. Hilmir fór
á veiðar í gær. Kópur var vænt-
anlegur hingað frá Englandi í
gærkvöldi. t
Meðal farþega hjeðan' með
Lyru í gær til Bergen voru:
Guðmundur Helgason, Halldór
Guðmundsson, Reidar Sörensen,
Kristþór Alexandersson, Þor-
steinn Hannesson, og Gunnþ.
Bjömsdóttir til Thorshavn. Til
Vestmannaeyja: Matthildur
Karlsson, Margrjet Gunnars-
dóttir, Hulda Magnúsdótt-
ir, Anna. Einarsdótir, Magnús
Magnússon, Snorri Halldórsson.
Skeiðamenn hafa nýlega lok-
ið við smíði á vönduðum heima
vistarskóla fyrir böm. Stendur
skólinn nálægt Húsatóftum.
Jólablað Spegilsins kemur út
á morgun, þrefalt að stærð og
með litmyndum.
Eimskip. Gullfoss er í Reykja
vík. Goðafoss er í Reykjavík.
Brúarfoss er í Kaupmannahöfn.
Dettifoss fór til Hull og Ham-
borgar í gærkvöldi. Lagarfoss
er í Kaupmannahöfn. Selfoss er
í Reykjavík.
Mæðrastyrksnefndin hefir
upplýsingaskrifstofu opna á
mánudagskvöldum og fimtu-
dagskvöldum kl. 8—10 í Þing-
holtsstræti 18, niðri.
Til Hallgrímskirkju í Saurbæ.
Frá tveimur litlum stúlkum,
fundið á götu 1 kr. og 2 aurar.
Áheit frá Þ. M. 10 kr. Kærar
þakkir. Ól. B. Björnsson.
Gjöf til björgunarskútusjóðs
Slysavarnaf jelags íslands að
upphæð kr. 1000.00 — eitt þús-
und krónur — frá einum eldri
borgara bæjarins sem ekki vill
láta nafns síns getið. Hjartans
þakkir f. h. Slysavarnafjelags
Islands. Þorst. Þorsteinsson,
Vatnsveitan lokúð. í dag verð
ur lokað fyrir vatnið í þeinr
hluta austurbæjar, sunnan
Laugavegar 0g vestan Hring-
bráutar, sem venjulega verður
ekki fyrir vatnsskorti. Þennan
tíma verður reynt að koma
vatni upp á Skólavörðuhæðina .