Morgunblaðið - 21.12.1933, Qupperneq 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
] Sma-auglýsingar
Postulíns kaffistell og bolla- pör með heildsöluverði á Lauf- ásveg 44.
í jólapokana fæst nú, sem fyr, mikið af allkonar sælgæti í Tóbakshúsinu, Austurstræti 17. —
Jólavörur. Hattar harðir og linir, manchettskyrtur hvítar og mislitar, húfur, nærföt, háls- bindi, dömusokkar og márgt fleira. Karlmannahattabúðin, Hafnarstræti 18.
Georgette með flauelisrósum í langfallegustu úrvali í Versl. „Dyngja“.
Frönsk Sjöl eru besta jóla- gjöfin fyrir konur á peysuföt- um, fást í Versl. „Dyngja“, Bankastræti 3.
Ullarvesti á Drengi eru ný- komin. Versl. „Dyngja“.
Silki-Kaffidúkar, hvítir og mislitir, verð frá 7.10. Versl. „Dyngja“.
Silki- og Isgarnssokkar á 1.75 eru komnir aftur. Versl. „Dyngja".
Slifsi, Slifsisborðar, Upphluts- skyrtuefni, Ullarklæði. Alt fæst þetta í Versl. „Dyngja“.
Vasaklútakassar o g Vasa- klútamöppur. Versl. „Dyngja“.
Tilbúnir Skúfar og Skúfsilki. Versl. „Dyngja“, Bankastræti 3.
Hótel Skjaldbreið. Tökum á móti pöntunum á jólamatnum til föstudagskvölds. Virðingar- fylst. Hótel Skjaldbreið. Sími 3549.
Corselet, Lífstykki og Sokka- bandastrengir. Einnig nokkur Silkiundirlíf við peysuföt. Versl. „Dyngja“.
Flóra, Vesturgötu 17, sími 2039. Jólatrjen komin og úrval af græn- um greinum.
Mogunblaðið fæst í Café Svanur við Barónsstíg og Grettisgötu.
Vanti yður kjól, ættuð þjer að athuga tilbúnu kjólana hjá mjer. Fallegan kjól fáið þjer fyrir kr. 24.00. Alla Stefáns. Vesturgötu 3 (Liverpool). Nýr silungur. Nordals-íshús. Sími 3007.
Jólaspilin og spilaborðin eru best á Vatnsstíg 3. Húsgagnaversl. Reykjavíkur.
Dúkkur í miklu úrvali, ný- komnar. — Leikfangagerðin, Laugaveg 19.
Handmáluð kaffistell óvenju- lega falleg, með tækifærisverði í Leikfangagerðinni á Lauga- veg 19.
1 Dívanar, dýnur og alls konar I stoppuð húsgögn. — Vandað 1 efni. Vönduð vinna- VatnssL 3 ‘J Húsgagnaverslun Reykjavíkur
Jeg heilsa þjer.
Ljóð eftir Guðmund
Daníelsson frá Gutt-
ormshaga. Reykjavík
1933.
Höfundur þessara ljóða er
ungur maður við nám í Kenn-
araskólanum. Minnist jeg þess
ekki að hafa sjeð eftir hann
Ijóð á prenti fyr en nú, er hann
kemur fram með þessa bók,
sem er 112 bls. að stærð og
hefir inni að halda 51 kvæði.
Hefir margur lagt af stað með
minna, enda bera kvæðin sjálf
þess vott, að maðurinn er stór-
hugá.
Það leynir sjer ekki, að höf.
er sjerstaklegá, ljett um að
yrkja. Honum vefst aldrei
tunga um tönn og hann stiklar
Ijett og liðlega á erfiðum hátt-
um jafnt sem hinum ljettu. Mál
hans verður því eðlilegt og ó-
þvingað, hvergi myrkt eða tor-
sótt. Mjer flýgur í hug við lest-
ur kvæðahna, hvort hjer muni
vera að koma fram á sjónar-
sviðið nýr rangæskur rímsnill-
ingur, sem eigi eftir að komast
til jafns við Guðmund Guð-
mundsson í orðsins list. Tíminn
verður að skera úr því.
Annað einkenni kemur og
fljótt í Ijós við lestur þessarar
bókar, að höfundurinn er skil-
getið bam 20. aldarinnar. Hann
er nútíðarinnar maður. Ein-
staka sinnum bregður jafnvel
fyrir expressionisma í kvæðum
hans (Harmur, bls. 48; Ást,
bls. 80 og víðar). Þar til vil
jeg telja samlíkingar hans ýms-
ar, sem okkar realistisku klass-
ikurum hefði ekki komið til
hugar að leyfa sjer að nota. —
Um fjöllin segir hann:
Sum eru blá eins og cheviot,
en sum eru hvít af mjöll.
(Vegamaðurinn, bls. 10) Um
kaupakonurnar segir hann:
Ást þeirra er hyldjúp, sem hafið
0g heitari en föt úr ull.
(Kaupakonur, bls. 8). Og í
sama kvæði segir hann:
Þær komu eins og kríuhópur,
eða kindur, sem mæta stygð.
Og í kvæðinu Bæn (bls. 16),
kemst hann svo að orði:
Bæn mín er stór sem biblían
• hans afa.
Þessar djörfu samlíkingar og
hæpnu frá sjónarmiði skáld-
legrar fegurðar eru ávöxtur
hinna nýjustu skáldskapar-
stefna, sem komið hafa upp
eftir ófriðinn mikla og borist
hafa hingað til lands.
Flest eru kvæði höfundar
kendarljóð. Eru þau yfirleitt
vel ort og allvíða glitrar þar
í gull innan um ljettari málma.
Með bestu kvæðunum af því
tæi eru Síðasta sjóferðin (bls.
13) og Skógarganga (bls. 11).
Þar er lesandinn í andrúmslofti
hins þýska snillings Heine, sem
mörgum íslendingum hefir fall-
ið skálda best í geð, enda ort
margt í hans anda og stíl,
hvort sem það hefir verið þeim
sjálfrátt eða ósjálfrátt. — Til
þessa flokks heyra enn frem-
ur kvæði eins og Þú veröld
(bls. 30), Vindurinn tók blóm-
ið mitt (bls. 65), Nótt (bls.
78), Við tjörnina (bls. 89),
Særingar (bls. 101) og Síðasta
sigarettan (bls. 104). Vanda-
samt er að yrkja um augna-1
bliks blæbrigði hugans, svo að ,
úr því verði annað en áferðar- j
sljett rím, en kvæði þessi og
fleiri í bókinni gefa vonir um,
að höfundurinn sje það mikill
listamaður í eðli sínu, að hon-
um sje óhætt að halda áfram
í þeirri kveðskapargrein.
En lífið og starfið verður
honum einnig yrkisefni. Hann
ber aðdáun fyrir þeim, sem
erja jörðina og rækta hana. —
Viðhorf hans við þessum efn-
um speglast í kvæðinu Útsýn
(bls. 27), sem er gott kvæði
og fult af framfarahug og
bjartsýni: ,
Knýjast hjól á kargann,
kvama undur móann.
Holtasveitin hýmar.
Hvítá vökvar Flóann.
Vellir vefjast grasi.
Vaxa grænir meiðir.
Og til allra átta
opnast nýjar leiðir.
Bæði í þessu kvæði og fleirum,
t. d. Þverárbrú (bls. 33) bland-
ast saman hjá skáldinu þjóð-
rækni og trú á land og þjóð og
áhrif frá nýjum þjóðfjelags-
kenningum, sem höf. er auð-
sjáanlega snortinn af, og kem-
ur það ljósast fram í kvæðinu
Bylting (bls. 49), sem er hvort
tveggja í senn, lýsing á ástand-
inu, lýsing á byltingunni og
framtíðarsýn, þegar „böls mun
alls batna“. En hann stendur
engu að síður á þjóðlegri rót.
Ást hans á íslenskri jörð er
undirtónn í mörgum kvæðum
hans. Auk þeirra kvæða, sem
síðast voru nefnd, má sjerstak-
lega nefna kvæðið Vor (bls.
22) og Jökulgil (bls. 55). Það
endar svo:
Hjerna er alt úr eldi, klöpp
og klaka,
með kynjasvip, er töfrar huga
mahns,
svo hjeðan allir halda leið
til baka
með hugargull og ást til þessa
lands.
Tvö kvæði em í bókinni sögu-
legs efnis, Einar Þveræingur
(bls. 81) og Kári Sölmundar-
son (bls. 85), hvorttveggja vel
gerð kvæði.
Með bók þessari hefir höf.
farið mjög myndarlega af stað,
og hann má óhræddur halda
áfram. Hann virðist eiga eld-
móð æskunnar í ríkum mæli,
og honum er ljett um mál. —
Yngsta kynslóðin í landinu hef-
ir eignast góða fulltrúa á
skáldaþinginu, þar sem eru þeir
höfundur þessarar bókar, og
Bjami M. Gíslason, sem með
skömmu millibili, hafa báðir
hvatt sjer svo skörulega hljóðs,
að alt bendir til þess, að mikils
megi af þeim vænta.
G. J.
Úrvalsleðurvöru.
Kventöskur feikna úrval, einnig seðlaveski, seðla-
buddur, ferðaáhöld, skjala-, sköla- Og músík—
möppur. Eindæma miklu úr að velja af allskonar
fallegúm en ódýrum buddum handa kvenfólki,
karlmönnum, drengjum og télpum. Cigarettuveski
úr leðri frá 1.50. Lyklabuddur, vasagreiður og
speglar, sjálfblekungar, blýantar, spil frá 35 aur-
um og spilapeningar. Bamatöskur mjög fallegar
og fleira. Ódýr veski tekin upp í dag.
LEÐURVÖRUDEILDIN.
HLJÓÐFÆRAHÚSIÐ.
Bankastræti 7 (við hliðina á skóbúð Lárusar).
ATLABÚ Ð. Laugaveg 38.
Að gefnu tilefni
viljum vjer tilkynna að versluninni er lokað
alla laugardaga kl. 12 á hádegi.
Enn fremúr það, að ekki verður svarað í
síma á Þorláksmessu og laugardaginn 30.
desember.
Vínverslun Ríkisins.
Jólakjólar.
Enn er tækifæri til þess að fá fallegan jólakjól.
Eftirmiðdagskjólar frá kr. 24.00
Samkvæmiskjólar frá kr. 29.00
Alt nýjasta tíska.
Alla Stefáns.
Vesturgötu 3 (Liverpool).
Hin margeftirspurðu
Gólfteppi
Olg
Gólfrenningar
eru nú komnir aftur.
Sömuleiðis fallegt úrval af
Dívanteppum.
Brsuns-verslun
S
„ÚLFABLÓГ
Ijóðmæli Álfs frá Klettstíu, hafa flogið út undanfarna daga, enda.
engin ný ljóðabók hlotið jafn góða dóma. — Hjer skulu birtir
tveir smákaflar úr „Stormi“, sem kom út í gær:
„Ljóð hans eru „lyrislcnáttúrulýsingar víða ágætar, og
mörg eru ort undir nýjum, fögrum og hrynjandi bragarháttum‘‘.
„ÍJr kvæðinu „Haustsálmur“, sem er eitthvert fegursta kvæð-
-iS í bókinni, enda svo ágætt kvæði, að hvert stórskáld væri full-
sæml af —----------“.