Morgunblaðið - 10.10.1935, Qupperneq 7
Fimtndaginn 10. okt. 1935.
MOKGUNtíLAÐIÐ
„Hvemiff ferOu
að gera lökin þín
svona hrein? Mín
eru altaf orðbi
svo óbragðleg eft-
ir nokkra þvotta“
„Þú ættir að þvo
þau úr Rinso. Það
þvælir burt ÖLL
óhreinindin og
sparar þjer pen-
inga, því ekki
þarf að nudda
þvottinn“.
Hotendur
Rinso
nð þBSSum tindrandi hvfta blæ.
Það er svo auðvelt að þvo úr Rinso. Hið freyðandi
sápulöður gerir alt. Látið Rinso í heitt vatn og
hrærið í uns löður myndast. Sjóðið þvottinn ef
yður finst þörf á eða látið hann liggja í sápu-
vatninu nokkra klukkutíma eða yfir nóttina. Rinso
gerir það sem á vantar. Engin þörf á að nudda
þvottinn eða núa, því að það slítur honum svo
fljótt. Hin áhrifamiklu efni í Rinso ná óhreinind-
unum sjálfkrafa. Þessvegna er svo mikill vinnu-
sparnaður að Rinso.
Auk þess sem Rinso gerir hvítan þvott mjallhvítan
gerir það alla liti miklu hreinni. Látið Rinso gera
þvottinn yðar verulega hreinan.
Enska þlngið
kemur saman
þ. 29. okt.
London 9. okt. FÚ.
Breska ráðuneytið hjelt
tveggja klukkustunda fund í
d?g, en þar sem það lauk ekki
starfi sínu, verður aukafund-
ur haldinn næstkomandi þriðju
dag.
Engin ákvörðun var tekin
um það^ að kalla saman þing
fyr en 29. þ. m., en gert hafði
verið ráð fyrir, er þingi var
slitið þ. 5. ágúst, að það skyldi
koma saman aftur þann dag.
R. S. HUDSON LTD.. LIVERPOOL, EN'GLAND
Tilkynning.
Frá og með deginum í dag verður verð á kolum
sem hjer segir:
1000 kg. ........ kr. 44.00
500 — ........... — 22.00
250 — ........... — 12.25
150 — ........... — 8.25
100 — ........... — 5.50
50 — ............ — 2.75
Verðið miðast við staðgreiðslu, heimflutt til kaup-
enda í Reykjavík.
Jafnframt skal endurnýjuð sú tilkynning vor, að
vegna sívaxandi vanskila og erfiðleika við innheimtu, lán-
um vjer hjer éftir ekki öðrum en þeim, sem staðið hafa
i skilum að fullu.
H/F KOL & SALT. KOLASALAN S/F
KOLAVERSLUN GUÐNA & EINARS.
KOLAVERSLUN SIGURÐAR ÓLAFSSONAR.
KOLAVERSLUN ÓLAFS ÓLAFSSONAR.
i " ' ' M ' %
Hú§næði.
Til leigu verður í vor í nýju húsi, 2 herbergi og eld-
hús ásamt baði, gegn 2 þúsund krónum í fyrirfram
greiðslu. — Þeir, sem sinna vildu þessu, leggi nöfn sín
ásamt heimilisfangi í lokuðu umslagi til A. S. í., fyrir
20. þ. m. merkt „Húsnæði“.
Bráðum keiimr H1 bæjarlns
- spaðkjöl *
af Langanesi, Búðardal, Hornströndum og víðar.
Pantið í síma 1080.
Dagbóh.
- ..%si m
Sambaud isl. samvtnnnfjelaga.
I.O. O.F. 5 = 1171010872=*
Veðrið (miðvikud. kl. 17): Við
S-strönd íslands er alldjúp en
nærri kyrstæð lægð, sem veldur
A- og NA-átt hjer á landi, og er
vindur víðast hægur. Á V-landi
er veður þurt en nokkur úrkoma
sumstaðar á N- og A-landi. Hiti
er 3—6 st.
Veðurútlit í Rvík í dag: NA-
kaldi. Úrkomulaust.
Til Hallgrímskirkju í Saurbæ,
frá Didi 18 kr.
K. F. U. M. Fyrsti fundur í
A.-D. á þessu starfsári verður i
dag (fimtudag). Allir, sem störf.
uðu við ’ Haustmarkaðinn eru
sjerstaklega hvattir til að mæta
Hefjum vetrarstarfið með góðri
fundarsókn.
Hjónaefni. Síðastl. laugardag
opinberuðu trúlofun sína ungfrú
Helene Jónsson, danskennari og
Börge Tveden, Montör.
Betanía. Munið samkomuna
kvöld kl. 8,30. Allir velkomnir.
60 ára ér í dag ekkjan Anna
Pjetursdóttir, Urðarstíg 7, Hafn-
arfirði.
Farþegar með Dettifossi vestur
og norður í gærkvöldi: Arnfríður
Karlsdóttir, Þorgerður Sveins-
dóttir, Ólafur Sigurðsson, Mr.
White, Herdís Finnbogadóttir,
Arnþór Þorsteinsson og frú, Sig.
Arinbjarnar, Hörður Ólafsson,
Inga Austfjörð, Einar Kristjáns-
son, Björn Jóhannsson, frú Þór-
dís Möller, Valborg Pjetursdóttir
og margir fleiri.
Eimskip. Gullfoss fór frá Aal-
borg í gær á leið til Leith. Goða-
foss fór frá Hull í gær á leið til
Hamborgar. Brúarfoss var vænt-
anlegur til Stykkishólms í nótt kl.
3—4. Dettifoss fór vestur og
norður í gærkvöldi kl. 10. Lag-
arfoss var á Biti'ufirði í gær-
morgun. Selfoss fór til útlanda í
gærkvöldi kl. 8.
Lestrarstofa fyrir sjómenn verð-
ur opnuð í dag á Norðurstíg 5.
Stofan verður opin eftirleiðis dag-
lega frá kl. 9 f. h. til 10 e. h.
María Hallgrímsdóttir læknir
kom frá útlöndum með íslandi á
sunnudaginn. Hefir hún verið er-
lendis á fimta ár við framhalds-
nám í læknisfræði.
Ungbarnavernd Líknar, Templ-
arasundi 3, verður opin fyrir börn,
sem ekki hafa haft kíkhósta, á
fimtudögum frá 3—4, en þau, sem
eru með kíkhósta, eða hafa haft
hann, á föstudögum á sama tíma.
Heimatrúboð leikmanna, Hverf-
isgötu 50. Samkoma í kvöld kl. 8.
Allir velkomnir.
Bjarni Björnsson, hinn alkunni
gamanvísusöngvari, ætlar að
•skemta bæjarbúum annað kvöld í
Iðnó.
S. P. R. Útborganir fara fram
í kvöld kl. 6—7 á Skólavörðustíg
38 (uppi).
Halldóra Sigurðardóttir, ekkja
Jóhannesar Björnssonar fyrver-
andi hreppstjóra Akranesi ljest í
fyrrinótt eftir langa vanheilsu,
65 ára að aldri.
Knattspymumynd sú, sem
jýska knattspymusambandið gaf
S. í. var sýnd á Stokkseyri s. 1.
sunnudag ásamt nokkrum ís-
lénskum íþróttamyndum frá
íþróttamótum í sumar, sem í. S.
í. hefir látið taka. Áhorfendur
ljetu óspart í ljós hrifningu sína
og virtust ánægðir með sýning-
una. I gærkvöldi voru þessar
kvikmyndir sýndar í K. R.-hús-
inu fyrir fullu húsi. Forseti í. S.
íf skýrði myndirnar, en Sig.
Tómasson úrsmiður sýndi þær.
Leiðrjetting. Að gefnu tilefni
skal þess getið, að þeir Steindór
Hjaltalín og Ingvar Guðjónsson
tóku ekki á leigu bryggju í
Hafnarfirði, til síldarsöltunar, —
heldur greiða þar bryggjugjöld,
svo sem venja er .
Sjómannakveðja. Lagðir af
stað áleiðis til Þýskalands. Vel-
líðan. Kærar kveðjur. Skipverjar
á Venusi.
Tryggvi gamli fór á veiðar
gærkvöldi.
Línuv. Eldborg er nú verið að
búa út til fiskflutninga. Einnig
mun að einhverju leyti vera véitt
í skipið í ís.
Baldur kom í gærmorgun frá
Þýskalandi.
Skallagrímur var væntanlegur
í morgun.
Hjónaband. 1 gær voru gefin
saman í hjónaband af lögmanni
ungfrú Kristín Björnsdóttir og
Geir Sigurðsson lögregluþjónn
Heimili ungu hjónanna er
Laugaveg 51.
ísland í erlendum blöðum.
Völkischer Beobachter 19. sept,
birtist löng grein eftir Alexander
Funkenberg: Sommerreise auf Is
land. — Corh'wall, Ontario hefir
birt ritstjórnargrein í dagblað
(nafn ókunnugt) um landnám ls
lendingar í Vésturheimi og orðstír
þann, sem íslendingar hafa getið
sjer vestra. Greinin nefnist „Iee
landers good settlers“. (FB).
Ctvarpið:
Fimtudagur 10. október.
10,00 Veðurfregnir.
12,00 Hádegisútvarp.
13,00 Áttundi dráttur í happ
drætti Háskólans.
15,00 Veðnrfregnir.
19.10 Veðurfregnir.
19,20 Þingfrjettir.
19,45 Frjettir.
20,15 Erindi: Sovjet-Kína (Einar
Olgeirsson forstjóri).
20,40 Útvarpshljómsveitni (Þór
Guðm.): Miniatur Suite, eftir
Eric Coats, o. fl.
21,00 Lesin dagskrá 'næstu viku,
21.10 Skýrsla um vinninga í happ
drætti Háskólans.
21t25 Tónleikar: a) Lög á ís
lensku, pl.; b) Danslög.
Tjekkneski þjóðsöngurinn „Kde
domov muy“,. eins og hann heitir,
á 100 ára afmæli á þessu ári. 1
tilefni af því hefir bæjarstjórnin
í Prag ákveðið að láta reisa tón-
skáldinu Frantizek Sjkroup,
minnismerki í borginni, en hann
samdi þjóðsönginn, á sínum tíma.
Vi8
nákvæmar
teikningar
eru
Stabilo
bestir.
Þeir fást
í 16 mis-
munandi
hörðum
gerðum.
BoUUtaiúH
Lækjargötu 2. Simi 3736.
Sterkar taugar. Liðsforingi sem
var staddur á hersýningu í Jap-
an, sem haldin var til heiðurs
keisaranum, hefir sagt svo frá,
að Japanir hafi óvenju sterkar
taugar. Þannig segir hann að
börn, gamlar konur og aðrir háfi
staðið rjett hjá fallbyssukjöftun-
um og hlegið og gert að gamni
sínu, þegar hleypt, var af þeim.
Fargjald eftir vigt. Londonar-
dagblaðið Daily Express, sendir
á hverjum morgni blöð með flug-
vjel til Parísarborgar. Nú geta
farþegar fengið að fara með flug-
vjelinni. Gjald fyrir farþegana er
28 aurar á pund. Fargjaldið gæti
orðið nokkuð hátt fyrir suma
Dani.
50 ára afmæli bílsins. í tilefni
af að 50 ár eru liðin síðan fyrsti
bíllinn var búinn til hafa yfir-
völdin í Stuttgart ákv.eðið að
heiðra minningu Daimlers,, sem
fann upp bílinn. Verður það gért
á þann hátt að hinu gamla yerk-
stæði lians verður breytt, í bíla-
safn. ;-,ii
Til að hæna að ferðamenn.
Mogens Lichtenberg' Seih hefir
umsjón með ferðamannaskrifstofu
Dana, ætlar að koma á fót bæjar-
hátíðum í Kaupmannahof'ú til að
hæna ferðamenn þangað. Á einni
slíkri hátíð á heill her af fom-
um víkingum í hringabrynjum og
alvopnaðir að ganga uny göt-
urnar.
Luxusneglur. Miljónamær, Ma-
jorie Leau að nafni, sýndi sig
um daginn á veitingahúsi 1 New
York, með neglur, sem lýstu eins
og demantar. Hún hafðí' látið
slípa 10 rúbína þannig að þeir
voru mátulegir yfir négíurnar.
Mýs í símamiðstöðinni. í jap-
anska bænum Nashiro kpmst alt
í uppnám nýlega vegna símasam-
bandsins. Herskarar af músum
höfðu nagað stoðirnar unda'n síma
miðstöðinni, þannig að byggingin
hrundi saman.