Morgunblaðið - 26.11.1935, Side 2
t
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudaginn 26. nóv. 1935,
JEotpnl>yi{>
Útgef.: H.f. Ár/akur, Reykjavtk.
Rltatjörar: Jön KJartanaaon,
Valtýr Stefánason.
Rltatjörn og- afgrelSala:
Austurstræti 8. — Stml 1800.
Auglýslngastjörl: E. Hafberg.
Auglýsingaskrltstofa:
Au turatrœti 17. ■— Stmi 8700.
Helmaslœar:
Jön Kjartansson, nr. 8742.
Valtjr Stefánsson, nr. 4220.
Árni Óla, nr. 3046.
B. Hafberg, nr. 8770.
Áskriftagjald: kr. 8.00 á aaánuöi.
1 lausasölu: 10 aura elntaklB.
20 aura meB Leabök.
Rosti sósfalista.
Haraldur Guðmundsson, nú-
verandi atvinnumálaráðherra,
hafði orð fyrir jafnaðarmönn-
um á stjórnmálafundum, sem
haldnir 'voru austur í Skafta-
fellssýslu haustið 1928. Á fund-
um þessum flutti Haraldur
bændum þann boðskap, að ríkið
ætti að eignast allar jarðir.
Daufar undirtektir fjekk boð-
skapur þessi og keptust fulltrú-
ar Framsóknarflokksins um að
halda uppi málstað sjálfábúð-
arinnar gegn þjóðnýtingarkenn-
ingum Haralds.
Eftir því sem árin liðu fór þó
að bera meira ög meira á því,
að forystumenn Framsóknar
sveigðust að stefnu sósíalista;
einnig í jarðeignamálinu. Og
um kosningar í fyrra prjedik-
uðu ýmsir frambjóðendur
þeirra það, sem hinn eina sanna
gleðiboðskap, að bændur Ijeti
jarðir sínar af hendi til ríkisins.
Þegar sva til stjórnarmynd-
unar kom gerðu stjórnarflokk-
■arnir samning um þetta mál á
grundvelli þjóðnýtingarstefnu
sósíalista.
En nú hefir það komið í ljós,
að þótt tíminn til að fram-
kvæma þetta stefnuskráratriði
sósíalista, væri að því leyti vel
valinn, að margir bændur hafa
í bili tilhneigingu til að telja
sjer jarðirnar verðlitlar, vegna
afkomuvandræða hinna síðustu
ára, þá er þó þorrinn af bænd-
um — einnig innan Framsókn-
ar — mjög hikandi í þessu
máli og fjöldinn allur gersam-
lega andvígur því.
Af þessum ástæðum þorðu
ýmsir Framsóknarmenn ekki
að beitast gegn sjálfsábúðinni
á þingi og því komst málið í
gegn.
En útaf þessu fyllist Alþýðu-
blaðið hinni mestu heipt. — í
blaðinu í fyrradag segir svo:
„En Framsóknarmönnum er
best að gera sjer það Ijóst,
ef þeir hyggjast að leita sam-
vinnu við íhaldið, til þess að
svíkja málefnasamning stjórn-
arflokkanna, að þá mun Al-
þýðuflokkurinn fara sínu fram
og síst mun það hans tap, þótt
samvinnan rofni“.
Af hverju stafar allur þessi
rosti ?
Jú, af því að Framsóknarfl.
sem upphaflega var stofnaður
sem bændaflokkur, og þykist
enn vera bændaflokkur, hefir
af ótta við kjósendur í sveit-
um landsins vikið frá stefnu
sósíalista í einu atriði, því sem
veit að eignarrjetti bænda yfir
jörðunum.
Refsiaðgeröabann á olíu boðar Evrópustríð!
Sendiherra itala
iParisferáfund
Lavalsij
Hefir Laval lofað að
herða ekki á refsi-
, ........ M|«&
aðgerðum?
■ ■ ■ ■ '
KAUPMANNAHÖFN I GÆR.
EINKASKEYTI TIL
MORGUNBLAÐSINS.
Franska blaðið Echo
de Paris þykist hafa
sannfrjett að Mussolini
líti svo á, að refsiað-
gerðabann á olíuflutn-
ing til Italíu sje hernað-
arráðtsöfun og boði því
Evrópustríð.
Sendiherra ítala í París
fór í gær á fund Lavals og
varaði við því, að lagt verði
bann á olíuflutning til Ítalíu.
Skeyti til „Daily Telegraph
í London hermir, ennfremur
að Laval hafi lofað Musso-
lini að ekki skuli verða hert
frekar én nú er á refsiað-
gerðunum.
Verður fundum
refsiaðgerðanefnd-
arinnar fresfað?|
Mörg áhrifamestu blöðin í
London bjuggust við því í gær
að bann myndi verða lagt á
olíuútflutning til Italíu frá 16.
des. að telja.
Var búist við að refsiaðgerða
nefndin, sem boðuð hafði ver-
ið á fund 29. nóv. n.k., myndi
taka ákvörðun samhljóða þessu
í dag hefir gosið upp sá
kvittur að fundi refsiað-
gerðanefndarinnar muni
verða frestað.
Er talið að Laval hafi farið
fram á að fundurinn verði ekki
haldinn fyr en síðar.
Laval mun hafa borið fyrir
sig hina alvarlegu tíma, sem
framundan eru í innanríkismál-
um Frakka.
Bílaeigendur í Ítalíu
verða að spara
bensín.
Skeyti frá Róm herma að
bensínverð fari mjög hækk-
andi.
Mussolini hefir kvatt bíla-
eigendur til þess að fara spar-
lega með bensín.
Hann hefir beðið þá að
hætta öllum skemtiakstri.
Einnig er búist við að bif-
reiðaakstur á sunnudögum
verði bannaður.
Pálí.
»- Er mennirnir eru í hernaði til þess að verja land sitt gegn landvinningabrölti Musso-
Iini, sitja konurnar í Abyssiníu heima í hreysum sínum og vinna störf sín fjarri kúlna-
þyt og flugvjelagný.
Abyssiníumenn hafa
tekíð Gorahai aftur!
Italir á undanhaldi
bæði á norður- og
suðurvígstöðvunum.
Grikkir endurheimta
konung sinn.
London 25. nóv. FÚ.
Abyssiníumenn hafa
náð Gorahai aftur á sitt
vald!
Hafa Abyssiníumenn
hafið snarpa sók;n á suð-
urvígstöðvunum og unn-
ið aftur 80 mílna svæði,
sem ftalir höfðu tekið.
Abyssiníumenn hafa
einnig byrjað gagnsókn
á norðurvígstöðvunum.
Frá Addis Abeba er
símað að ítalskar her-
deildir hafi verið hrakt-
ar á flótta fyrir norðan
Makale.
Georg er koininn
til Aþenu.
KAUPMANNAHÖFN í GÆR.
EINKASKEYTI TIL
MORGUNBLAÐSINS.
Grikkir hafa nú heimt
heim konung sinn.
Var Georgi konungi
tekið með fallbyssuskot-
um og klukkna hring-
ingum, er hann steig á
land í Aþenu í morgun.
Tvö hundruð þúsund manns
höfðu flykst til höfuðborgar-
innar til þess að hylla konung.
Mörg hundruð þúsund manns
voru á götunum ög fagnaðar-
látunum ætlaði aldrei að
linna. Páll.
Sfríðið er nú fyrsf
að byrfa!
Berlín 25. nóv. FÚ.
De Bono sagði nýlega í
ræðu að stríðið væri í raun og
veru nú fyrst að hefjast.
Ræðu þessa hjelt hann fyrir
flugmannaliði ítala á flugvelli
1 Asmara.
Amerískur sundmaður hefir
sett heimsmet í 400 metra
sundi.
Synti hann vegalengdipa á
17,8 mínútum. (FÚ.).
Georg Grikkjakonungur.
Japanir
faka fyrsta
munnbit'
ann í Xorð-
nr-Kína.
Hopejhferaðið
lýst sjálfstætt.
KAUPMANNAHÖFN I GÆR.
EINKASKEYTI TIL
MORGUNBLAÐSINS.
Jun Ju Keng hershöfð-
ingi tilkynti í dag að
austurhluti Hopej hjer-
aðsins í Norður-Kína
væri sjálfstætt og óháð
ríki!
Fregn þessi er sam-
kvæmt skeyti frá Tokio.
Þess mun ekki langt að bíða,
að því er kunnir stjórnmála-
menn telja, að Japanir leggi
undir sig öll hjeruðin í Norður-
Kína.
Framhald á 3. síðu, 5. dálki.